Morgunblaðið - 16.03.2011, Qupperneq 3
Evrópukeppnin
» Noregur er með 9 stig í H-
riðli, Portúgal 7, Danmörk 6,
Kýpur 1 og Ísland ekkert.
» Noregur og Danmörk mætast
sama dag og Kýpur leikur við Ís-
land, 26. mars, og þar með verð-
ur riðlakeppnin hálfnuð.
» Næsti leikur Íslands eftir það
er gegn Dönum á Laugardals-
vellinum 4. júní.
UNDANKEPPNI EM
Guðmundur Hilmarsson
gummih@mbl.is
Eiður Smári Guðjohnsen hlaut ekki
náð fyrir augum Ólafs Jóhannssonar,
landsliðsþjálfara í knattspyrnu, þeg-
ar hann valdi 22 manna landsliðshóp
fyrir leikinn gegn Kýpur í und-
ankeppni EM sem fram fer í Nicosia
á Kýpur hinn 26. þessa mánaðar.
Þetta verður fjórði leikur Íslend-
inga í undankeppninni en íslenska
liðið hefur tapað öllum þremur leikj-
um sínum í keppninni. Fyrst 1:2 fyr-
ir Noregi á Laugardalsvellinum, síð-
an 0:1 fyrir Dönum á Parken, á
marki í uppbótartíma, og loks 1:3
gegn Portúgal á Laugardalsvellinum.
Kýpurbúar eru með eitt stig eftir
óvænt jafntefli á útivelli gegn Portú-
gölum í fyrstu umferðinni í hreint
ótrúlegum leik sem lauk með 4:4
jafntefli. Þeir töpuðu síðan 1:2 fyrir
Norðmönnum á heimavelli og 0:2
fyrir Dönum á Parken.
Eiður lítið spilað frá
því hann fór frá Barcelona
„Eiður Smári hefur átt erfitt upp-
dráttar á Englandi. Hann hefur lítið
spilað frá því hann fór frá Barcelona
og það er ástæðan fyrir því að hann
var ekki valinn í hópinn,“ sagði Ólaf-
ur Jóhannesson landsliðsþjálfari þeg-
ar hann var spurður hvers vegna
Eiður hefði ekki verið valinn í lands-
liðshópinn.
A-landsliðið mætir Kýpur á milli
tveggja æfingaleikja U21 árs lands-
liðsins og að þessu sinni hafði Ólafur
forgang að vali í lið sitt en tíu leik-
menn eru í landsliðshópi Ólafs sem
einnig eru gjaldgengir í U21 ára lið-
ið.
Sölvi og Jón Guðni meiddir
„Þetta er fínn hópur sem ég hef
úr að spila og flestir leikmannanna í
ágætu standi. Það voru fleiri menn
inni í myndinni eins og Árni Gautur
Arason, Brynjar Björn Gunnarsson
og Veigar Páll Gunnarsson en þeir
voru ekki valdir að þessu sinni. Sölvi
Geir Ottesen og Jón Guðni Fjóluson
hefðu verið valdir í hópinn en þeir
eru meiddir. Flestallir í þessum hópi
hafa verið fastamenn í sínum liðum
og hafa staðið sig vel og það er mjög
jákvætt,“ sagði Ólafur.
Það er orðið langt síðan íslenska
landsliðið fagnaði síðast sigri í lands-
leik. Síðasti sigurleikur Íslendinga
leit dagsins ljós gegn Andorra á
Laugardalvellinum, 4:0, í maí á síð-
asta ári en síðan hefur liðið spilað
fimm leiki í röð án sigurs. Það gerði
1:1 jafntefli við Liechtenstein en í
kjölfarið fylgdu töp á móti Noregi,
1:2, Danmörku, 0:1, Portúgal, 1:3, og
Ísrael, 2:3.
„Við höfum farið vel yfir leiki
Kýpurliðsins. Þetta er vel spilandi
lið, sem er að mestu skipað leik-
mönnum liða á Kýpur, og okkar bíð-
ur erfiður leikur. Ég tel okkur samt
eiga ágætis möguleika á að vinna en
til þess þarf margt að ganga upp og
hugarfar leikmanna verður að vera
rétt. Gengi okkar hefur ekki verið
eins og við vildum og okkur hefur
ekki tekst að fá stig í undankeppn-
inni þótt við höfum sýnt ágæta takta
á köflum. Nú er kominn tími á sigur
og vonandi gengur það eftir,“ sagði
Ólafur.
Íslendingar og Kýpurbúar mætt-
ust síðast fyrir ári í Larnaca á Kýp-
ur, í vináttulandsleik, og þá urðu úr-
slitin markalaust jafntefli.
„Kominn tími á sigur“
Morgunblaðið/Gísli Baldur
Stigaleysi Ólafur Jóhannesson fylgist með sínum mönnum hita upp á æfingu á Parken síðasta haust. Þá var íslenska lið-
ið óheppið að krækja ekki í stig gegn Dönum sem tryggðu sér sigurinn með marki í uppbótartíma leiksins, 1:0.
Íslendingar sækja Kýpurbúa heim í undankeppni EM annan laugardag Eiður
Smári úti í kuldanum Tíu leikmenn í hópnum sem eru gjaldgengir í U21 liðið
ÍÞRÓTTIR 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. MARS 2011
Íslandsmeist-arinn Ragna
Ingólfsdóttir tap-
aði naumlega fyr-
ir Carolinu Marin
frá Spáni í for-
keppni Opna
svissneska Grand
Prix-mótsins í
badminton í gær.
Ragna vann fyrstu lotuna 21:19 en sú
spænska vann þá næstu 21:15. Bar-
áttan var mikil í oddalotunni og
Ragna hafði frumkvæðið framan af
og var yfir bæði 11:7 og 12:9. Sú
spænska náði hins vegar yfirhöndinni
þegar á leið og sigraði 21:17. Marin er
í 67. sæti á heimslistanum en Ragna
er í 73. sæti. Opna svissneska mótið
er mjög sterkt og margir af bestu
spilurum heims taka þátt. Þar af leið-
andi þurfti Ragna að fara í forkeppn-
ina en er nú úr leik.
Rheinland, þýska handknattleiks-liðið sem Sigurbergur Sveins-
son og Árni Þór Sigtryggsson léku
með framan af vetri, fær ekki keppn-
isleyfi í 1. deild á komandi tímabili.
Þetta var tilkynnt í gær og þar með
er ljóst að liðið verður annað þeirra
tveggja sem fellur beint úr deildinni í
vor. Rheinland er neðst en er rétt á
eftir tveimur Íslendingaliðum, Burg-
dorf og Ahlen-Hamm, sem þar með
eiga aukna möguleika á að bjarga sér
frá falli úr efstu deildinni.
Svissneska meistaraliðið Kadettenhefur fundið arftaka Björgvins
Páls Gústavssonar, landsliðsmark-
varðar í handbolta, sem fer frá félag-
inu til Magdeburg í sumar. Það er
Arunas Vaskevicius, 37 ára landsliðs-
markvörður Litháens, sem lék um
skeið undir stjórn Dags Sigurðs-
sonar í Bregenz en hefur verið í röð-
um Amicitia í Sviss síðustu árin.
Arsenal bar ígær til baka
fregnir frá sviss-
neska knatt-
spyrnusamband-
inu um að
axlarmeiðslin hjá
Johan Djourou
væru ekki alvar-
leg. Eftir lækn-
isskoðun þar var fullyrt að hann yrði
leikfær í lok mánaðarins. Hjá Arsenal
staðhæfðu menn hinsvegar í gær að
Djourou færi í uppskurð og yrði ekki
meira með liðinu á tímabilinu.
Davíð Páll Hermannsson, leik-maður Hauka, var í gær úr-
skurðaður í þriggja leikja bann af
aganefnd KKÍ, Darco Milosevic, leik-
maður KFÍ, í tveggja leikja bann, og
Nebojsa Knezevic, leikmaður KFÍ,
eins leiks bann. Fimm aðrir leikmenn
liðanna fengu áminningu frá nefnd-
inni. Þeim Davíð og Milosevic lenti
saman í leik liðanna á dögunum. Dav-
íð leikur því ekki með Haukum gegn
Snæfelli í 8 liða úrslitum Íslands-
mótsins en KFÍ hefur lokið keppni og
féll úr úrvalsdeildinni.
Fólk folk@mbl.is
Gunnar Guðmundsson, þjálfari U17 ára
landsliðs karla í knattspyrnu, hefur valið
18 leikmenn fyrir keppni í milliriðli EM í
Ungverjalandi 24.-29. mars. Markverðir
eru Magnús Gunnarsson, Haukum og
Bergsteinn Magnússon, Keflavík. Aðrir
leikmenn eru Árni Vilhjálmsson, Guð-
mundur Friðriksson og Oliver Sigurjóns-
son, Breiðabliki, Hjörtur Hermannsson,
Fylki, Gunnar Þorsteinsson, Grindavík,
Aran Nganpanya og Aron Jóhannsson,
Haukum, Ívar Örn Jónsson og Orri S. Óm-
arsson, HK, Fjalar Örn Sigurðsson og Sindri S. Kristinsson,
ÍA, Óli Pétur Friðþjófsson, KR, Aron Grétar Jafetsson,
Stjörnunni, Aron Elís Þrándarson og Davíð Örn Atlason,
Víkingi R. og Hafþór Mar Aðalgeirsson, Völsungi. vs@mbl.is
Átján í milliriðil EM
Gunnar
Guðmundsson
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
„Þetta er svakalegur léttir fyrir mig og fjölskylduna. Það
er búin að vera mikil óvissa hjá mér undanfarið, sem hefur
verið sérstaklega óþægilegt þar sem ég er með konu og
barn, en nú er komin festa í hlutina og ég einbeiti mér bara
að því að standa mig vel með KR,“ sagði knattspyrnumað-
urinn Guðjón Baldvinsson við Morgunblaðið í gær.
Hann samdi þá við KR til þriggja ára eftir að hafa feng-
ið sig lausan frá GAIS í Svíþjóð, þar sem hann hefur verið
á mála í tvö ár. KR komst í gær að samkomulagi við
Svíana um félagaskipti hans. Guðjón var í láni hjá KR á
síðasta ári og skoraði þá 10 mörk í 13 leikjum í úrvalsdeild-
inni.
Hann reyndi fyrir sér hjá liðum í Rússlandi og Póllandi í
vetur en kveðst ánægður með niðurstöðuna.
„Mér hefur liðið mjög vel í KR. Þar er frábær mann-
skapur og góður mórall og mjög spennandi tímar fram-
undan. Ég er ekki að hugsa um neitt annað, ef einhverjir
aðrir möguleikar koma upp, þá koma þeir bara og ég
skoða það. En ég stefni á að hefja nám
í lögfræði hér heima í
haust og horfi því líka
fram á spennandi tíma
utan vallar. Lögfræðin getur vel gengið með fótbolt-
anum, ætli ég taki ekki bara Guðna Bergs á þetta!“ sagði
Guðjón léttur í lund.
Guðjón er 25 ára gamall, uppalinn í Stjörnunni, en
hafði leikið með KR í eitt ár áður en hann fór til GAIS í
Svíþjóð. Guðjón hefur alls skorað 19 mörk í 34 leikjum
með KR í efstu deild.
MARKVERÐIR:
Gunnleifur Gunnleifsson, FH
Stefán Logi Magnúss., Lilleström
Ingvar Þór Kale, Breiðabliki
VARNARMENN:
Hermann Hreiðarss., Portsmouth
Indriði Sigurðsson, Viking S.
Kristján Örn Sigurðss., Hönefoss
Grétar Rafn Steinsson, Bolton
Birkir Már Sævarsson, Brann
Ragnar Sigurðsson, Gautaborg
Bjarni Ólafur Eiríksson, Stabæk
MIÐJUMENN:
Aron Einar Gunnarsson, Coventry
Ólafur I. Skúlason, SönderjyskE
Rúrik Gíslason, OB
Arnór Smárason, Esbjerg
Jóhann Berg Guðmundsson, AZ
Eggert Gunnþór Jónsson, Hearts
Birkir Bjarnason, Viking S.
Guðmundur Kristjánss, Breiðab.
Gylfi Þór Sigurðsson, Hoffenheim
FRAMHERJAR:
Heiðar Helguson, QPR
Kolbeinn Sigþórsson, AZ Alkmaar
Alfreð Finnbogason, Lokeren
Hópurinn sem fer til Kýpur
A-LANDSLIÐ KARLA Í KNATTSPYRNU:
„Spennandi í KR og lögfræðinni“ GuðjónBaldvinsson