Morgunblaðið - 05.04.2011, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 05.04.2011, Qupperneq 1
ÞRIÐJUDAGUR 5. APRÍL 2011 PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 14, miðvikudaginn 20. apríl. NÁNARI UPPLÝSINGAR: Katrín Theódórsdóttir kata@mbl.is Sími: 569-1105 Morgunblaðið gefur út glæsilegt sérblað um Íslandsmótið Pepsí-deild karla í knattspyrnu 30. apríl. Farið verður um víðan völl og fróðlegar upplýsingar um liðin sem leika sumarið 2011. ÍSLANDSMÓTIÐ PEPSÍ-DEILD KARLA Í KNATTSPYRNU 2011 MEÐAL EFNIS: Umfjöllun um öll liðin í Pepsí-deild karla Allir leikmenn og ítarlegar upplýsingar um þá Sérfræðingar spá í styrkleika liðanna Allir leikdagar sumarsins Árangur liða í gegnum tíðina Dómarar sumarsins Ásamt fullt af spennandi efni –– Meira fyrir lesendur SÉRBLAÐ íþróttir Oddaleikur Keflvíkingar knúðu í gærkvöldi fram oddaleik gegn KR í undanúrslitum Íslands- móts karla í körfuknattleik með sigri í fjórða leiknum 104:103 eftir framlengingu. 4 Íþróttir mbl.is Kristján Jónsson kris@mbl.is Sundsvall Dragons, lið Hlyns Bæringssonar og Jakobs Sigurðarsonar, komst í gærkvöldi í und- anúrslit sænsku úrvalsdeildarinnar í körfuknatt- leik, þegar liðið sigraði Jämtland 83:67 í oddaleik í átta liða úrslitum.Hlynur og Jakob lögðu sitt af mörkum að venju. Hlynur skoraði 16 stig og tók 7 fráköst. Jakob skoraði 12 stig og gaf 5 stoð- sendingar. „Þetta var svolítið stress en við vorum alltaf með fína forystu. Þetta var endanlega komið um miðjan fjórða leikhluta,“ sagði Hlynur þegar Morgunblaðið sló á þráðinn til hans í gærkvöldi. Sundsvall varð deildameistari en Jämtland hafn- aði í áttunda sæti. Hlynur segir Jämtland hafa sótt í sig veðrið eftir slæma byrjun á leiktíðinni og hafi það þess vegna reynst erfiður andstæð- ingur. „Fyrirfram ætti rimma á milli liða í þessum sætum ekki að vera svona jöfn. Þeir skiptu um þjálfara og fengu tvo nýja leikmenn á miðju tímabili. Þetta var erfiðasta sería sem ég man eftir að hafa spilað í fyrstu umferð. Ég held að við séum á mjög góðum stað. Ég tel betra að fara í gegnum svona seríu heldur en að rúlla 3:0 yfir andstæðingana í fyrstu umferð. Þá eru menn að spila alla leiki og ekkert verkefni er auðvelt. Við erum því nokkuð brattir,“ útskýrði Hlynur og hann vonast til þess að mæta Uppsala í undanúrslitum en liðið er með Helga Má Magnússon innanborðs. Uppsala mætir Sö- dertlje í oddaleik í kvöld. Hinüm megin mætast meistararnir í Norrköping og LF Basket en þau tvö hafa ásamt Sundsvall verið talin líklegust til að vinna titilinn. Hlynur segir stemninguna vera að aukast hjá Sundsvall. „Stemningin í úrslitakeppninni er sú mesta sem verið hefur í vetur. Það var stappað í húsinu í kvöld, um 2500 manns og mikil læti sem var mjög gaman.“ „Við erum nokkuð brattir“  Sannfærandi sigur hjá Sundsvall í oddaleiknum  Jakob og Hlynur gætu mætt Helga í undanúrslitum  Betra að lenda í alvöru rimmu að mati Hlyns „Mér finnst að það sé búið að snúa þessu einvígi. Ég held að við séum að finna meðbyr en núna stöndum við bara frammi fyrir eins konar bikarleik. Þeir sem vinna eru komnir áfram en þeir sem tapa eru búnir. Næstu 40 mín- útur í KR-heimilinu verða mikið stress, rétt eins og síð- ustu leikir hafa verið. Ég finn fyrir stígandi mín megin. Mér finnst við enn eiga svolítið inni en ég er mjög ánægður með það sem er að gerast,“ sagði Guðjón Skúlason, þjálfari Keflavíkur, þegar Morgunblaðið ræddi við hann í gærkvöldi. Hann sagðist þá vera að ná sér niður eftir atburði kvöldsins, þegar Keflavík sigraði KR eftir framlengingu 104:103 og knúði fram oddaleik í vesturbæ Reykjavíkur. Keflavík snéri við 0:2 stöðu í undanúrslitarimmu gegn ÍR árið 2008 og sigraði 3:2. Keflavík varð í kjölfarið Íslandsmeistari. „Maður finnur að við búum yfir nægilegum karakter til að gera þetta. Menn eru alveg tilbúnir og þetta verður svakalegur leikur á fimmtudaginn. Keflavík hefur oft lent undir í erfiðum seríum í úrslitakeppni í gegnum tíð- ina en tekist að klára dæmið“ sagði Guðjón ennfremur en hann á að baki ófaá leikina í úrslitakeppni sem leik- maður og þjálfari. kris@mbl.is Finnur fyrir stígandi  Guðjón Skúlason finnur fyrir meðbyr í rimmunni gegn KR  Stendur frammi fyrir eins konar bikarleik Heiðar Helguson og félagar í QPR eru á góðri leið með að tryggja sér sæti í ensku úrvalsdeildinni eftir góðan 3:0 sigur á Sheffield United í gær. QPR er eftir leikinn með 79 stig í 1. deildinni, níu stigum meira en Norwich sem er í öðru sæti. Knattspyrnumaðurinn harði frá Dal- vík átti góðan leik þrátt fyrir að hafa ekki verið á meðal markaskorara. Wayne Routledge skoraði tvö af mörkum QPR og Argentínumað- urinn Alejandro Faurlin skoraði eitt. Aðeins eru sjö leikir eftir af deild- inni og þarf mikið að gerast svo QPR spili ekki í deild þeirra bestu á Eng- landi á næsta tímabili. omt@mbl.is Fátt getur stoppað QPR úr þessu KA átti í vandræðum með bar- áttuglaða Þróttara frá Reykjavík í fyrsta leik liðanna í undanúrslit- unum í blaki í gær. Þróttur byrjaði betur en KA-liðið hrökk þó í gang og náði að landa sigri. Nánari um- fjöllun um undanúrslitin þar sem einnig áttust við HK og Stjarnan má finna á baksíðu íþróttablaðsins. Ljósmynd/Þórir Tryggvason Þróttur hafði ekki erindi sem erfiði norður

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.