Morgunblaðið - 05.04.2011, Síða 2
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. APRÍL 2011
Magnea Ólafs og Magnús K.
Magnússon úr Víkingi sigruðu
í meistaraflokkum kvenna og
karla á lokamóti mótaraða
Borðtennissambands Íslands
á sunnudaginn og urðu þar
með Grand Prix-meistarar
keppnistímabilsins 2010-2011.
Í meistaraflokki karla léku
í undanúrslitum Magnús K.
Magnússon og Daði F. Guð-
mundsson, Víkingi, og fóru
leikar þannig að Magnús sigraði 4:1. Í hinum und-
anúrslitaleiknum lék Kári Mímisson, KR, gegn
Sindra Þór Sigurðssyni, Víkingi, og Kári sigraði,
4:1.
Magnús og Kári léku því til
úrslita og Magnús sigraði,
4:2.
Í meistaraflokki kvenna
léku í undanúrslitum Magnea
Ólafs og Eyrún Elíasdóttir,
Víkingi, þar sem Magnea
sigraði örugglega, 4:0. Í hin-
um undanúrslitaleiknum léku
Bergrún Björgvinsdóttir,
Dímon, og Sigrún Tóms-
dóttir, KR, þar sem Bergrún
sigraði 4:1.
Magnea og Bergrún léku því til úrslita og leikar
fóru þannig að Magnea sigraði örugglega, 4:0.
vs@mbl.is
Magnea og Magnús meistarar
Magnea
Ólafs
Magnús Kristinn
Magnússon
VIÐTAL
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
„Árangur liðsins hefur verið framar
vonum. Eftir að það var í fallbaráttu í
fyrra var stefnan sett á að vera um
miðjan riðilinn en nú þegar ein um-
ferð er eftir þá erum við í öðru sæti
og á leið í úrslitakeppni um sæti í 1.
deild,“ sagði Sigrún Sjöfn Ámunda-
dóttir, körfuknattleikskona hjá
franska C-deildarliðinu Olympique
Sannois Saint-Gratien (OSSG), þegar
Morgunblaðið sló á þráðinn til hennar
í gær til að forvitnast um dvöl hennar
hjá þessu félagi í einu úthverfa
Parísarborgar.
Sigrún Sjöfn er úr Borgarnesi en
lék um nokkurra ára skeið með KR
en var í herbúðum Hamars í fyrra.
Hún á 20 landsleiki að baki fyrir Ís-
lands hönd. Hún flutti til Parísar sl.
sumar og segir að Ágúst Björg-
vinsson, þjálfari Hamars, hafi komið
sér í samband við forráðamenn
OSSG. Hana hafi langað að breyta til
í körfuboltanum og tekið því fegins
hendi er henni stóð til boða að leika
sem atvinnumaður með Parísarliðinu.
Sigrún Sjöfn segir að æv-
intýraþráin hafi gert vart við sig. Það
hafi fyrst og fremst verið ástæðan
fyrir því að hún flutti til Frakklands.
„Reynslan af þessum vetri hefur
verið mjög góð Allir í kringum liðið
hafa reynst mér afar vel. Þá hefur
allt staðið eins og stafur á bók.“
Ekki hefur það heldur spillt fyrir
dvölinni í París að liðinu hefur gengið
afar vel.
Settum okkur ný markmið
„Fljótlega eftir að keppni hófst í
haust þá sáum við fram á að liðið var
sterkara en svo að það yrði um miðja
deild og þar með settum við okkur ný
markmið, að vera í toppbaráttunni,
og það hefur tekist,“ segir Sigrún
Sjöfn en þegar ein umferð er eftir af
riðlakeppninni er OSSG í öðru sæti,
með átján sigra og þrjú töp. Sæti í
úrslitakeppninni er í höfn. Og nú er
stefnan sett á að fara alla leið upp um
deild,“ segir Sigrún Sjöfn.
Síðasti leikur OSSG í riðlunum fer
fram á næsta laugardag. Úrslita-
keppnin hefst síðan laugardaginn fyr-
ir páska og stendur eitthvað fram
undir lok maí. Sigrún Sjöfn segir að
lið hennar og tvö önnur úr hennar
riðli fari í úrslitakeppni ásamt þrem-
ur öðrum liðum úr einum af fjórum
riðlum 2. deildar. Liðin úr riðli OSSG
mætast ekki aftur heldur taka þau
mér sér úrslitin úr innbyrðis leikjum
keppnistímabilsins. Þau leika ein-
göngu við liðin þrjú úr hinum riðl-
inum heima og að heiman. Tvö efstu
lið riðilsins fara síðan upp í 1. deild.
Bikarkeppni framundan
Að úrslitakeppninni lokinni tekur
við bikarkeppni milli liða á Parísar-
svæðinu sem verður lokið þegar
u.þ.b. vika verður liðin af júní. Þá
kemur Sigrún Sjöfn heim, hvort sem
hún snýr á ný út síðsumars eða
ekki.
„Við erum með lið sem getur farið
upp um deild,“ segir Sigrún Sjöfn
sem hefur ekki neinar sérstakar
skýringar á bættum árangri liðsins
frá síðasta ári. Liðið hafi aðeins
bætt við sig tveimur leikmönnum,
auk sín hafi frönsk stúlka gengið til
liðs við það á síðasta sumri. „Annars
er þetta sami kjarni og áður,“ segir
Sigrún Sjöfn en 12 leikmenn eru í
æfingahópnum en heimilt er að tefla
10 fram í hverjum leik.
Hærri og sterkari leikmenn
Sigrún Sjöfn segir liðið æfa sam-
an þrisvar í viku en auk þess eiga
leikmenn að æfa sjálfir. „Ég æfi
flesta daga, reyni að fara að lyfta
eins oft og mögulegt er,“ segir Sig-
rún Sjöfn sem alveg hefur einbeitt
sér að körfuknattleiknum síðan hún
flutti út í ágúst á síðasta ári.
Munurinn á þeim körfubolta sem
liðið hennar og andstæðingarnir
leika og þeim sem stundaður er af
bestu liðunum hér heima er ekkert
gríðarlega mikill, að mati Sigrúnar
Sjafnar.
„Gæðin eru ef til vill ekkert mikið
meiri hérna en leikurinn er öðruvísi.
Hraðinn er meiri, leikmenn eru flest-
ir líkamlega sterkari auk þess sem
leikmennirnir í teignum eru hærri,
alveg upp í 195 sentimetra háir. Það
er nokkuð sem við eru ekki með mik-
ið af heima,“ segir Sigrún Sjöfn sem
er vel sátt við þann leiktíma sem hún
hefur fengið til þessa á keppn-
istímabilinu.
Veltir framhaldinu fyrir sér
„Mér hefur gengið afar vel og
standa á mér öll spjót frá for-
ráðamönnum félagsins að ég verði
áfram. Ég er að velta stöðunni fyrir
mér um þessar mundir og sjá til
hvað verður úr þessu hjá okkur á
næstu vikum. Það eina sem stendur í
mér er að ég vildi gjarnan að meiri
metnaður ríkti innan félagsins. Það
er kannski það eina sem veldur því
að ég er ekki alveg fús að koma aftur
á næsta keppnistímabili.
Þessi vetur hefur verið frábær
reynsla fyrir mig sem fylgir manni
vafalaust alla ævi,“ segir Sigrún
Sjöfn Ámundadóttir, körfuknatt-
leikskona í Frakklandi.
Morgunblaðið/Ómar
Atvinnumennska Sigrún Sjöfn Ámundadóttir einbeitir sér að körfuboltanum í París og gæti leikið áfram með liðinu.
„Dvölin í París frábær“
Borgnesingurinn Sigrún Sjöfn Ámundadóttir í atvinnumennsku í körfubolta
með franska liðinu OSSG Komnar í úrslitakeppni og geta farið upp um deild
Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu heldur áfram
í kvöld en þá tekur Schalke á móti Inter og Real
Madrid fær Tottenham í heimsókn á Bernabéu í
átta liða úrslitum. Langt er síðan stuðningsmenn
Madrídar-liðsins sáu Real Madrid spila svo seint í
keppninni. José Mourinho knattspyrnustjóri Real
Madrid var auðmjúkur í garð Harry Redknapp
stjóra Tottenham þegar hann hitti fréttamenn.
„Markalaust jafntefli á heimavelli eru alltaf góð
úrslit í Meistaradeildinni. Harry Redknapp er vin-
ur minn. Ég er mjög ánægður fyrir hans hönd því
þegar ég var á Englandi þá hafði hann ekki þessi
tækifæri. Ég segi það frá hjarta mínu að ef ég næ
ekki í úrslitaleikinn þá vona ég að það verði hann.“
Mourinho hefur lýst því yfir að hann muni bíða
fram á síðustu stundu með að ákveða hvort sam-
„Ef ekki ég þá vonan
Deildabikar karla, Lengjubikar
A-DEILD, 2. riðill:
HK – Víkingur R.......................................1:2
Eyþór Helgi Birgisson 22. (víti) – Viktor
Jónsson 85., Baldur Ingimar Aðalsteinsson
90.
Víkingur Ó. – Leiknir R...........................1:0
Brynjar Kristmundsson 42.
Staðan:
Valur 7 6 0 1 18:3 18
Fram 5 4 0 1 8:2 12
Fjölnir 6 3 1 2 14:7 10
Leiknir R. 7 3 1 3 12:12 10
ÍBV 6 2 2 2 9:8 8
Víkingur R. 7 2 1 4 11:15 7
Víkingur Ó 5 2 1 2 4:9 7
HK 7 0 0 7 3:23 0
B-DEILD, 2. riðill:
KV – Njarðvík...............................................?
Ekki var greint frá úrslitum leiksins á
vef KSÍ í gærkvöldi.
England
B-DEILD:
QPR – Sheffield United ...........................3:0
Heiðar Helguson lagði upp tvö mörk fyr-
ir QPR.
Staðan:
QPR 39 22 13 4 63:23 79
Norwich 39 19 13 7 68:47 70
Cardiff 39 19 9 11 64:47 66
Swansea 39 20 6 13 54:38 66
Leeds 39 17 13 9 73:61 64
Reading 38 15 15 8 62:42 60
Nottingham F. 39 15 15 9 49:39 60
Millwall 39 15 12 12 52:40 57
Burnley 38 15 12 11 54:48 57
Watford 39 15 11 13 68:56 56
Hull 39 14 14 11 42:39 56
Leicester 39 16 8 15 59:59 56
Portsmouth 39 15 9 15 50:50 54
Bristol City 39 15 8 16 51:54 53
Ipswich 39 15 7 17 50:50 52
Barnsley 39 12 11 16 45:57 47
Coventry 39 12 9 18 43:50 45
Middlesbro 38 12 9 17 49:57 45
Derby 39 12 8 19 49:57 44
Doncaster 39 11 11 17 49:68 44
Cr. Palace 39 11 9 19 39:60 42
Sheffield Utd 39 9 8 22 34:62 35
Preston 38 8 10 20 44:66 34
Scunthorpe 39 10 4 25 33:74 34
Svíþjóð
IFK Gautaborg – Örebro.........................0:1
Ragnar Sigurðsson spilaði allan leikinn,
Theódór Elmar Bjarnason kom inná sem
varamaður á 68. mínútu, Hjörtur Logi Val-
garðsson kom inná á 38. mínútu en Hjálmar
Jónsson sat allan tímann á varamanna-
bekknum hjá Gautaborg.
Djurgården – AIK ...................................0:0
Helgi Valur Daníelsson spilaði allan leik-
inn fyrir AIK.
Elfsborg – Häcken ....................................2:1
Noregur
Lilleström – Brann ...................................1:4
Björn Bergmann Sigurðarson spilaði
fyrstu 56 mínúturnar, Stefán Gíslason spil-
aði allan leikinn og fékk gult spjald og Stef-
án Logi Magnússon stóð allan tímann í
markinu hjá Brann.
Birkir Már Sævarsson skoraði fjórða
mark Brann.
Staðan:
Start 2 2 0 0 7:1 6
Brann 2 2 0 0 6:2 6
Vålerenga 2 2 0 0 4:0 6
Tromsö 2 1 1 0 4:2 4
Lilleström 2 1 0 1 8:4 3
Sarpsborg 2 1 0 1 5:4 3
Odd Grenland 2 1 0 1 4:3 3
Haugasund 2 1 0 1 4:4 3
Fredrikstad 2 1 0 1 2:2 3
Viking 2 1 0 1 1:2 3
Strömsgodset 2 1 0 1 3:6 3
Stabæk 2 1 0 1 2:8 3
Molde 2 0 1 1 2:5 1
Rosenborg 2 0 0 2 2:4 0
Aalesund 2 0 0 2 1:4 0
Sogndal 2 0 0 2 2:6 0
Danmörk
Midtjylland – Lyngby...............................4:4
Spánn
Almería – Athletic Bilbao .........................1:3
KNATTSPYRNA
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrslit kvenna, annar leikur:
Njarðvík: Njarðvík – Keflavík............. 19.15
Staðan er 1:0 fyrir Keflavík.
BLAK
Undanúrslit kvenna, fyrstu leikir:
Neskaupstaður: Þróttur N. – KA ....... 19.30
Fagrilundur: HK – Ýmir...................... 19.30
KNATTSPYRNA
Deildabikar karla. Lengjubikarinn:
Reyðarfj.: Fjarðabyggð – Draupnir ........ 19
Í KVÖLD!