Morgunblaðið - 05.04.2011, Síða 3
ÍÞRÓTTIR 3
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. APRÍL 2011
PortúgalinnCarlos Quei-
roz, fyrrum að-
stoðarstjóri Man-
chester United og
landsliðsþjálfari
Portúgals, hefur
verið ráðinn
landsliðsþjálfari
Írans í knatt-
spyrnu. Queiroz samdi við Írani til
þriggja ára, eða fram yfir úr-
slitakeppni HM í Brasilíu árið 2014.
Hann hefur einnig yfirumsjón með
U23 ára og yngri landsliðum þjóð-
arinnar. Queiroz var sagt upp sem
þjálfara portúgalska landsliðsins í
september á síðasta ári, eftir að hann
var settur í sex mánaða bann af lyfja-
yfirvöldum í landinu fyrir að hindra
lyfjapróf.
FIFA, Alþjóða knattspyrnu-sambandið, hefur staðfest að
Mohamed Bin Hamman frá Katar,
forseti asíska knattspyrnusambands-
ins, verði eini mótframbjóðandi
Sepps Blatters í kjörinu á forseta
FIFA þann 1. júní. Bin Hamman til-
kynnti í síðasta mánuði um framboð
sitt en frestur var gefinn til 1. apríl til
að skila þeim inn. Blatter hefur verið
forseti sambandsins frá 1998.
Tiger Woodser dottinn
niður í 7. sæti
heimslistans í
golfi en nýr listi
var kynntur í dag.
Þjóðverjinn Mart-
in Kaymer er eftir
sem áður í efsta
sæti listans. Tiger
var í 5. sæti á síðasta lista en Phil
Mickelson frá Bandaríkjunum og
Englendingurinn Paul Casey fara nú
upp fyrir kappann. Tiger er því í öðru
sæti á meðal bandarískra kylfinga en
langt er síðan það gerðist síðast.
Sam Tillen varnarmaður knatt-spyrnuliðsins Fram skrifaði í
gær undir áframhaldandi samning
við félagið og gildir hann út árið 2013.
Tillen hefur leikið 68 leiki með Fram
og skorað í þeim sex mörk. Þá hefur
hann skorað tvö mörk í fjórum Evr-
ópuleikjum með Fram.
Sam Tillen kom fyrst til félagsins
árið 2008 en hann lék 19 af 22 leikjum
liðsins á síðustu leiktíð. Hann er 26
ára gamall og verður án efa mik-
ilvægur fyrir Fram í átökunum í
Pepsi-deildinni í sumar.
Enska knatt-spyrnu-
sambandið hefur
úrskurðað Wayne
Rooney í tveggja
leikja bann vegna
framkomu hans á
Upton Park á
laugardaginn þeg-
ar hann lét
ósæmileg orð falla
framan við sjónvarpsvélar um leið og
hann fagnaði þriðja marki sínu í leik
Manchester United og West Ham.
Rooney hefur frest til klukkan 17 í
dag til að áfrýja.
Fólk sport@mbl.is
Ólafur Már Þórisson
omt@mbl.is
„Ég myndi ekki segja að Barcelona
hafi verið óskamótherjinn en að sama
skapi vorum við líklega ekki óskamót-
herjinn þeirra,“ sagði Aron Pálm-
arsson leikmaður Kiel um dráttinn í
Meistaradeild Evrópu í handknattleik.
Þar mætir lið hans, og Alfreðs Gísla-
sonar þjálfara, Barcelona í átta liða úr-
slitum. Liðin mættust einnig í riðla-
keppninni en þá gerðu þau jafntefli á
heimavelli Kiel sem tapaði svo í Barce-
lona. Þá er þetta endurtekning á úr-
slitaleiknum í fyrra þar sem Aron og
félagar höfðu betur. „Mér líst vel á
Barcelona, það var ekkert auðvelt lið í
drættinum. Svo verður maður víst að
vinna bestu liðin til þess að verða
meistari. Ég held að sú staðreynd að
við höfum ekki unnið þá á þessari leik-
tíð hjálpi okkur frekar en eitthvað ann-
að.“
Kiel byrjar á útivelli en Aron telur
liðið ekki fara með forskot í leikina þó
þeir spili seinni leikinn á heimavelli.
„Það er þægilegra og ég held að öll lið-
in vilji byrja á útivelli. Ég veit það
hinsvegar að ef við værum að byrja á
heimavelli þá kæmum við dýrvitlausir
til leiks og ég býst við því frá leik-
mönnum Barcelona. Það er því alls
óvíst hvort það er eitthvað betra. Þetta
eru alltaf átta liða úrslit í Meist-
aradeild og þar eru allir leikir erfiðir,
hvort sem þeir eru á útivelli eða ekki.“
Löwen til Frakklands
Rhein-Neckar Löwen, lið Guð-
mundar Þórðar Guðmundssonar
landsliðsþjálfara, mætir franska liðinu
Montpellier en fyrri leikurinn fer fram
á heimavelli Löwen í Þýskalandi. Með
Löwen leika að sjálfsögðu Guðjón Val-
ur Sigurðsson, Ólafur Stefánsson og
Róbert Gunnarsson. Verkefni þeirra
verður ærið, Montpellier er ógn-
arsterkt en besti handknattleiksmaður
heims um þessar mundir, Nikola Kar-
abatic, spilar með liðinu. Þá mætast
einnig þýska liðið Flensburg og Ciu-
dad Real frá Spáni og efsta liðið í
þýsku deildinni Hamburg dróst gegn
rússneska liðinu Medvedid. Fyrri um-
ferðin fer fram 20. til 24. apríl.
„Það var ekkert auðvelt lið í drættinum“
landi hans Cristiano Ronaldo taki þátt í leiknum.
Ronaldo hefur verið að glíma við meiðsli að und-
anförnu.
Harry Redknapp var lítið að hugsa um að næla
fleiri rósum í hnappagat Mourinho. Hann var hins-
vegar ánægður með að geta teflt fram Gareth
Bale. „Hann gefur okkur svo mikið. Hann getur
hlaupið með boltann og sótt mjög hratt. Bale gæti
verið okkur mjög mikilvægur. Real Madrid er þó
líklegra en við komum mjög bjartsýnir,“ sagði
Redknapp sem lýsti því yfir að lið hans myndi ekki
setjast til baka og verjast. „Við erum ekki með
varnarsinnaða leikmenn, við spilum því ekki þann-
ig.“ Leikirnir á morgun hefjast klukkan 18:45 og
verða að sjálfsögðu í beinni textalýsingu á mbl.is.
omt@mbl.is
ndi Redknapp“
Birkir Már Sævarsson skoraði síðasta
mark Brann sem vann Íslendingaliðið
Lilleström í norsku úrvalsdeildinni í
knattspyrnu í gær. Birkir stóð sig vel en
það er ekki á hverjum degi sem þessi
knái bakvörður finnur netmöskvana.
Brann vann Lilleström 4:1 á heimavelli
þess síðarnefnda. Stefán Gíslason og Stefán
Logi Magnússon markvörður spiluðu
allan leikinn fyrir Lilleström en
Birni Bergmann Sigurðarsyni
var skipt af velli á 56. mín-
útu.
Brann er eftir leikinn
með fullt hús stiga eftir
tvo leiki. Lilleström er
hinsvegar með 3 stig eftir einn sigur og tap
í tveimur leikjum.
Í sænsku úrvalsdeildinni tapaði IFK
Gautaborg fyrir Örebro 1:0 á heimavelli.
Fjórir Íslendingar spila með Gautaborg en
Ragnar Sigurðsson var sá eini sem byrjaði
leikinn. Hjörtur Logi Valgarðsson kom inná
sem varamaður á 38. mínútu og Theódór Elm-
ar Bjarnason fékk að spila síðustu 22 mín-
úturnar. Hjálmar Jónsson kom ekkert
við sögu.
Þá spilaði Helgi Valur Daní-
elsson allan leikinn fyrir
sænska liðið AIK sem gerði
markalaust jafntefli við Djur-
gården á útivelli. omt@mbl.is
Birkir Már
Sævarsson
VIÐTAL
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
„Þetta fór betur en á horfðist og ég
býst við því að ég missi ekki af nema
einum leik,“ sagði Kolbeinn Sigþórs-
son, landsliðsmaður í knattspyrnu og
leikmaður AZ Alkmaar í Hollandi, við
Morgunblaðið í gær.
Kolbeinn fór meiddur af velli eftir
aðeins 25 mínútur þegar AZ vann
mikilvægan útisigur á Feyenoord, 1:0, í
Rotterdam á laugardagskvöldið. Þjálf-
ari AZ, Gertjan Verbeek, lýsti þá yfir
miklum áhyggjum og taldi hættu á að
Kolbeinn léki ekki meira á þessu tíma-
bili en hann er markahæsti leikmaður
liðsins í vetur með 11 mörk í úrvals-
deildinni.
„Ég varð fyrir tæklingu snemma í
leiknum og reyndi síðan að harka af
mér og halda áfram en það gekk ekki
og ég varð að fara af velli. Þetta leit
ekki nógu vel út, þarna gat verið um
slæma tognun eða jafnvel slit að ræða
en sem betur fer reyndist bara um
væga tognun að ræða,“ sagði Kolbeinn.
Hann reiknar ekki með því að geta
spilað næsta leik sem er gegn Breda á
heimavelli á föstudagskvöldið, en stefn-
ir á að vera klár í slaginn laugardaginn
16. apríl þegar AZ fær ADO Den Haag
í heimsókn.
Mikilvægur leikur í baráttu
um Evrópusæti
„Já, ég held að það séu góðar líkur á
að ég nái þeim leik og þeim fjórum
leikjum sem eftir eru. Leikurinn við
ADO er geysilega mikilvægur, við er-
um í fjórða sætinu, einu stigi á undan
ADO, og markmiðið er að halda því.
Fjórða sætið gefur þátttökurétt í Evr-
ópudeildinni á meðan liðin í fimmta til
áttunda sæti þurfa að fara í umspil um
eitt Evrópusæti. Ef við endum í fjórða
sætinu verður tímabilið búið 15. maí,
það yrði virkilega gott vegna undirbún-
ingsins hjá 21-árs landsliðinu. Annars
þurfum við að spila til 1. júní og það
viljum við forðast,“ sagði Kolbeinn.
Hann náði ekki að spila með A-
landsliðinu gegn Kýpur á dögunum
vegna nárameiðsla. „Ég var tæpur
vegna þeirra alveg fram að leiknum við
Feyenoord en fann svo ekkert fyrir
þeim í leiknum. Það var því ansi
svekkjandi að verða fyrir öðrum
meiðslum strax á fyrstu mínútunum.“
Orðaður við stærri félög
Kolbeinn hefur talsvert verið orð-
aður við önnur félög að undanförnu.
Enskir fjölmiðlar skrifuðu um áhuga
Newcastle á honum fyrir skömmu og
um helgina var hann orðaður við
Feyenoord í blaðinu De Telegraf. Kol-
beinn kvaðst rólegur yfir þessum mál-
um.
„Mér líður vel hjá AZ og það væri
ekki mikil ástæða til að færa sig til inn-
an Hollands, nema kannski ef tilboð
kæmu frá Ajax eða PSV. En að öðru
leyti er allt opið hjá mér. Minn samn-
ingur rennur út vorið 2012 og það er
því hálft ár þangað til ég má fara að
ræða við önnur félög. Auðvitað horfi ég
til stóru deildanna í Englandi og
Þýskalandi en aðalmálið er að vera þar
sem mér hentar best og taka rétt skref
þegar þar að kemur,“ sagði Kolbeinn.
Samherji Kolbeins í AZ og íslenska
landsliðinu, Jóhann Berg Guðmunds-
son, var ekki með AZ gegn Feyenoord
en hann meiddist á ökkla í landsleikn-
um á Kýpur. „Jói er orðinn nokkuð
góður og verður örugglega með í næsta
leik á föstudaginn,“ sagði Kolbeinn.
Morgunblaðið/Eggert
Marksækinn Kolbeinn Sigþórsson er markahæsti leikmaður AZ Alkmaar í vet-
ur og hann skoraði þrívegis í fimm fyrstu A-landsleikjum sínum.
Meiðsli Kolbeins reyndust ekki alvarleg
Vonar að tímabilinu ljúki 15. maí
„Ég stefni
á síðustu
fjóra leikina“
Svíþjóð
8-liða úrslit, oddaleikur:
Sundsvall – Jämtland...........................83:67
Hlynur Bæringsson skoraði 16 stig fyrir
Sundsvall og Jakob Örn Sigurðarson skor-
aði 12 stig.
Sundsvall áfram, 3:2.
NBA-deildin
San Antonio – Phoenix....................... 114:97
LA Lakers – Denver ............................ 90:95
Boston – Detroit ................................. 101:90
Charlotte – Washington....................... 91:97
New Jersey – Miami .......................... 94:108
New York – Cleveland ..................... 123:107
Toronto – Orlando .............................. 102:98
Sacramento – Utah ............................ 106:97
Houston – Atlanta ............................ 114:109
New Orleans – Indiana ...................... 108:96
Portland – Dallas................................ 104:96
KÖRFUBOLTI
Birkir Már fann netmöskvana