Morgunblaðið - 05.04.2011, Blaðsíða 4
Á VELLINUM
Skúli Sigurðsson
sport@mbl.is
Keflvíkingar sýndu mikinn karakter
í gærkvöldi þegar þeir sigruðu KR í
fjórða leik liðanna í undanúrslitum
Iceland Express-deildarinnar.
104:103 var lokastaða þessa æsi-
spennandi leiks og annað skiptið í
röð þurfti að grípa til framlengingar
eftir dramatíska lokamínútu í venju-
legum leiktíma. Serían býður stuðn-
ingsmönnum liðanna og fleiri til
veislu og veisluborðin svigna undan
kræsingum í formi baráttu og til-
þrifa á báða bóga. Leikurinn var
hnífjafn allan tímann að undan-
skildum fáeinum mínútum í þriðja
leikhluta þegar gestirnir gerðu sig
líklega til að koma sér í þægilegt for-
skot. En það er víst ekkert sem heit-
ir þægilegt forskot í úrslitakeppn-
inni þegar þú ert gestur í Toyotahöll
þeirra Keflvíkinga. Keflvíkingar ein-
faldlega hætta aldrei og að þessu
sinni var það Magnús Þór Gunn-
arsson sem setti upp skotsýningu af
dýrari gerðinni.
Það sem breyst hefur frá fyrstu
tveimur leikjunum í þessari seríu er
að svæðisvörn þeirra Keflvíkinga
virðist vera að trufla sóknarskipulag
KR. Eftir að KR höfðu unnið tvo
fyrstu leikina nokkuð sannfærandi
átti undirritaður alls ekki von á þess-
ari stöðu í einvíginu. Keflvíkingar
hafa nú klifið þrítugan hamarinn og
eina sem þeir þurfa nú að gera er að
stinga flaggi sínu á toppinn, eigna
sér sætið í úrslitin. En KR-ingar
urðu ekkert slakir í körfuknattleik á
einni nóttu þrátt fyrir að hafa tapað
núna tveimur leikjum í röð og nú er
komið að þeim að svara kalli stuðn-
ingsmanna sinna líkt og Keflvík-
ingar hafa gert.
Tekur ekki þátt í rugli
„Það var baráttan líkt og í síðasta
leik frá fyrstu mínútu sem skilaði
sigri í kvöld. Við höfðum líka trú á
þessu og spiluðum bara hörkuvel.
Leikskipulag okkar hefur ekkert
breyst í raun og veru nema hvað nú
spilum við af hörku í 40 mínútur og
reyndar í 45 mínútur í síðustu tveim
leikjum. Það er annaðhvort að vinna
leikinn eða fara í sumarfrí. Ég sé
enga ástæðu að við ættum ekki að
getað farið aftur á þeirra völl og
sigrað.“ sagði Magnús Þór Gunn-
arsson og bætti við að Keflavík væri
á leið í úrslit. Brynjar Þór Björnsson
leikmaður KR var súr með leikinn
en kvað við sama tón og Magnús.
„KR er á leið í úrslit, ég tek ekki einu
sinni þátt í neinu öðru rugli. Þeir eru
ekkert búnir að vinna seríuna þrátt
fyrir þetta kvöld. Við vorum sjálfum
okkur verstir en við komum sterkir
til baka á fimmtudag, það er alveg
óþarfi að örvænta. Varnarlega,
hérna í lokin, erum við ekki nægilega
sterkir. Þetta er engin heimsendir.
Nú bara mætum við á æfingu á
morgun og förum yfir þetta og mæt-
um rétt gíraðir á fimmtudag.“
Það má búast við troðfullri DHL-
höll þeirra KR-inga á fimmtudag
þegar liðin mætast í oddaleik og
veislan mun halda áfram!
Veisluborðin svigna
undan kræsingum
Morgunblaðið/Skúli Sigurðsson
Jaxlar Miðherjarnir Fannar Ólafsson og Sigurður Þorsteinsson takast á.
Veislan mun halda áfram Keflavík knúði fram oddaleik
eftir framlengdan leik Ekkert sem heitir þægilegt forskot
4 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. APRÍL 2011
BLAK
Ólafur Már Þórisson
omt@mbl.is
Deildarmeistarar KA byrjuðu ekki
sannfærandi í undanúrslitum Ís-
landsmótsins í blaki í gær. Þeir
mættu Þrótti R. sem endaði í 4. sæti
deildarinnar og þurfti oddalotu þar
sem KA hafði á endanum betur. All-
ar hrinurnar voru mjög jafnar og
spennandi þrátt fyrir að blakið hafi
ekki verið það besta. KA vann fyrstu
hrinuna en Þróttur tók tvær næstu
mjög sannfærandi en KA-vélin virt-
ist alveg bensínlaus á köflum.
Heimamenn áttu bara ekkert svar
við fádæma varnartilburðum Þrótt-
ara sem oft og tíðum voru ævintýra-
legir. KA-menn jöfnuðu leikinn og
síðan var boðið upp á oddahrinu með
öllu þar sem liðin skiptust á að hafa
forustu. Jafnt var í stöðunni 11:11 en
þá tók KA góðan endasprett og land-
aði sigri 15:11. Stigahæstur hjá KA
var Piotr Kempisty með 25 stig. Hjá
Þrótti R. var Jóhann Sigurðsson at-
kvæðamestur með 18 stig.
Í Fagralundi mætti HK liði
Stjörnunnar en leikir þessara félaga
hafa ávallt verið spennandi síðustu
árin. Á því varð þó undantekning í
gær þar sem Stjörnumenn hentu inn
hvíta handklæðinu í fjórða leikhluta
og HK vann nokkuð auðveldlega 3:1.
Bæði lið spiluðu þó oft góðar varnir.
Eins og úrslitin gefa til kynna voru
það þó HK-ingar sem vörðust betur.
Stjarnan vann fyrstu hrinuna 26:24
en skoraði ekki meira en 20 stig í
næstu þremur og aðeins 16 stig í síð-
ustu hrinunni.
Þungir í fyrstu hrinunni
Brynjar Pétursson fyrirliði HK
var ánægður með sigurinn og þá sér-
staklega hávörnina. „Hávörnin var
mjög góð hjá okkur og þeir áttu í
erfiðleikum með móttökuna. Þess
vegna áttu þeir í erfiðleikum með að
koma boltanum framhjá. Við fengum
mörg stig frá hávörninni og það
munar mjög miklu.“ Brynjar sagði
þeir hafi verið þungir í fyrstu lotunni
en eftir það hafi þeir ekki litið til
baka. „Við vorum mjög einbeittir og
ætluðum okkur að vinna. Það sást al-
veg á okkur.“
Þetta var fyrsti leikur liðanna eft-
ir undanúrslitin í bikarnum þar sem
Stjarnan hafði betur. „Ef við tökum
næsta leik líka þá erum við búnir að
hefna fyrir bikarleikinn. Það er alls
ekki nóg að vinna bara þennan. Við
þurfum að fylgja þessu vel eftir til að
tryggja okkur í úrslit þar sem við
mætum líklega KA.“ Besti maður
vallarins í gær var Orri Þór Jónsson
leikmaður HK.
Mörg stig frá
hávörninni
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hávörn Brynjar Pétursson fyrirliði HK hældi vörn sinna manna eftir leikinn.
Deildarmeistararnir í vandræðum
Óvenju ójafnt í Fagralundi
Toyotahöllin, Íslandsmót karla í
körfubolta, undanúrslit, fjórði leikur,
mánudag 4. apríl 2011.
Gangur leiksins: 10:8, 13:12, 15:18,
17:20, 25:22, 33:35, 37:39, 44:44,
47:48, 54:55, 59:61, 61:69, 65:76,
77:84, 82:87, 89:89, 95:97,
104:103.
Keflavík: Magnús Þór Gunnarsson
29/4 fráköst, Thomas Sanders 21/8
fráköst/7 stoðsendingar, Hörður Ax-
el Vilhjálmsson 16/6 fráköst/7 stoð-
sendingar, Andrija Ciric 13/11 frá-
köst, Gunnar Einarsson 12/7 fráköst,
Sigurður Gunnar Þorsteinsson 8/8
fráköst/7 stoðsendingar/5 varin
skot, Þröstur Leó Jóhannsson 5.
Fráköst: 32 í vörn, 13 í sókn.
KR: Marcus Walker 28/9 stoðsend-
ingar, Brynjar Þór Björnsson 20, Pa-
vel Ermolinskij 16/17 fráköst/5 stoð-
sendingar, Finnur Atli Magnússon
12/8 fráköst/3 varin skot, Fannar
Ólafsson 9/10 fráköst, Hreggviður
Magnússon 6, Ólafur Már Ægisson 6,
Skarphéðinn Freyr Ingason 6.
Fráköst: 32 í vörn, 13 í sókn.
Dómarar: Sigmundur Már Herberts-
son, Davíð Kr. Hreiðarsson, Jón Ben-
der.
Staðan er 2:2 í einvíginu, odda-
leikur á fimmtudaginn.
Keflavík – KR 104:103