Morgunblaðið - 09.04.2011, Side 1
LAUGARDAGUR 9. APRÍL 2011
íþróttir
Íshokkí Íslenska karlalandsliðið er komið til Króatíu og mætir heimamönnum í fyrsta leiknum á
HM annað kvöld. Hörð barátta framundan við sterka mótherja. Tekst liðinu aftur að ná 3. sæti? 3
Íþróttir
mbl.is
SUND
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
„Ég átti kannski ekki von á að bæta Íslands-
metið alveg strax og það kom mér dálítið á
óvart. En ég ákvað að keyra á fullu, bæði í
undanrásunum og úrslitunum, og það var gott
að ná metinu og HM-lágmarkinu strax í morg-
un,“ sagði sundkonan Eygló Ósk Gústafsdóttir
úr Ægi við Morgunblaðið í gær.
Í gærmorgun bætti þessi 16 ára stúlka eigið
Íslandsmet í 200 metra baksundi þegar hún
synti á 2:15,25 mínútum í undanrásunum á Ís-
landsmeistaramótinu í Laugardalslauginni.
Hún bætti metið rækilega en það fyrra setti
Eygló í mars þegar hún synti á 2:17,83 mín-
útum á móti í Stokkhólmi. Í úrslitasundinu
vann Eygló með yfirburðum og synti aftur
undir HM-lágmarkinu, á 2:15,96 mínútum.
Lágmarkið er 2.16,01 mínútur. „Það var
draumurinn að ná því og nú fer ég til Shanghai
í sumar, nema einhver fari fram úr mér í milli-
tíðinni. Það yrði frábær upplifun að keppa
þar,“ sagði Eygló en heimsmeistaramótið fer
fram í kínversku stórborginni 16.-31. júlí.
Eygló hefur nóg að gera um helgina. „Já, ég
keppi í fjórum greinum í viðbót, hinum bak-
sundsgreinunum og í skriðsundi, og að sjálf-
sögðu reyni ég að vinna gullverðlaun alls stað-
ar. Það er alltaf takmarkið en 200 metra
baksundið er samt mín aðalgrein. Þetta verður
erfið en skemmtileg helgi.“
Ragnheiður Ragnarsdóttir, KR, vann 100 m
skriðsund á 56,10 og náði HM-lágmarki.
Inga Cryer, ÍA, vann 400 m fjórsund á
5:03,74 mín. en Ólöf Edda Eðvarðsdóttir, 14
ára, setti telpnamet, 5:04,19, og varð önnur.
Anton Sveinn Mckee, Ægi, vann 400 m fjór-
sund á 4:32,03 mínútum.
Árni Már Árnason, Bandaríkjunum, vann
100 m skriðsund á 51,17 sekúndum.
Hrafnhildur Lúthersdóttir vann 100 m
bringusund á 1:10,23 og náði HM-lágmarki.
Jakob J. Sveinsson, Ægi, vann 100 m
bringusund á 1:01,72 og náði HM-lágmarki.
Davíð Hildiberg Aðalsteinsson, Bandaríkj-
unum, vann 200 m baksund á 2:04,74 mín.
Bryndís Rún Hansen, Bergen í Noregi, vann
50 m flugsund á 27,66 sekúndum.
Ágúst Júlíusson, ÍA, vann 50 m flugsund á
25,75 sekúndum.
Ægir vann 4x200 m skriðsund kvenna á
8:44,75 mínútum og líka 4x200 m skriðsund
karla á 8:03,73 mínútum.
„Spennt fyrir Shanghai“
Eygló stórbætti metið og náði HM-lágmarki
Einnig Ragnheiður, Jakob og Hrafnhildur
Morgunblaðið/Ómar
Fljót Eygló Ósk Gústafsdóttir á fullri ferð í 200 metra baksundinu í Laugardalslauginni í gær.
Skúli Sigurðsson
sport@mbl.is
Jón Halldór Eðvaldsson, þjálfari
Keflavíkur, hefur síðastliðin fimm
ár stýrt kvennaskútu Keflvíkinga í
körfuboltanum. Á þeim tíma hefur
kappinn tekið tvo Íslandsmeist-
aratitla og einn bikarmeistaratitil.
Þetta árið tók lið hans báða stóru
titlana sem í boði voru. Hann stýrði
sínum síðasta leik í gærkvöld því
hann hefur ákveðið að hætta í kjöl-
farið á Íslandsmeistaratitlinum sem
liðið innbyrti í gærkvöld með sigri á
Njarðvík, 61:51, en þar með unnu
Keflvíkingar einvígið á sannfær-
andi hátt, 3:0.
Þessi vetur stendur upp úr
„Ég er ekki hættur í þjálfun en ég
er hættur með Keflavíkurliðið, það
er klárt. Ég enda þetta á að vinna
þrjá titla af fjórum mögulegum og
það væri ósanngjarnt að biðja um
meira en það. Á þessum fimm árum
stendur þessi vetur klárlega upp úr
hjá mér. Þetta er búinn að vera
rússíbani en alveg svakalega gam-
an,“ sagði þessi litríki þjálfari
Keflavíkur og stakk sér inn í fagn-
aðarlætin fyrir utan Toyotahöllina
þar sem stuðningsmenn fögnuðu
sínu liði með flugeldum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sigurgleði Keflavíkurkonur fögnuðu að sjálfsögðu innilega þegar Íslandsmeistaratitillinn var í öruggri höfn hjá þeim í gærkvöld. »2-3
Jón
kvaddi
með titli
í Keflavík