Morgunblaðið - 09.04.2011, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 09.04.2011, Blaðsíða 3
gra ÍÞRÓTTIR 3 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. APRÍL 2011 Í KRÓATÍU Kristján Jónsson kris@mbl.is Íslenska karlalandsliðið í íshokkí tekst á næstu dögum á við nýja áskor- un eftir að liðið vann í fyrsta skipti til verðlauna í 2. deild heimsmeist- aramótsins í fyrra. Ísland mætir gest- gjöfunum, Króötum, í Zagreb annað kvöld. HM í íshokkí er deildaskipt og hald- ið á hverju ári. Íslendingar tóku seint til við að skauta í þartilgerðum mann- virkjum og landsliðið á sér ekki langa sögu. Framfarirnar hafa hins vegar verið hraðar en fyrir nokkrum árum var liðið eins konar jójólið á milli 2. og 3. deildar. Í Eistlandi í fyrra brá hins vegar svo við að Ísland hafnaði í 3. sæti í sínum riðli í 2. deild en deildinni er skipt upp í tvo riðla. Er það besti árangur Íslands en liðið nú er síst lak- ara en í fyrra enda hafa framfarirnar verið merkjanlegar frá ári til árs og yngri kynslóðirnar hafa fengið um- fangsmeira uppeldi í íþróttinni. Gullsmiðurinn fór til Víetnam Íslenska liðið er skipað mörgum af sömu leikmönnum og léku í Narva í fyrra. Liðið kemur þó til með að sakna Jónasar Breka Magnússonar sem er mikill baráttuhundur og einn leik- reyndasti leikmaður landsliðsins. Hann hefur verið í fríi frá íshokkí- iðkun í Danmörku í vetur og hefur dvalið í Víetnam við störf sín sem gull- smiður. Á hinn bóginn má nefna að þeir Gauti Þormóðsson og Stefán Hrafnsson eru nú með liðinu en þeir gátu ekki verið með í fyrra. Stærsta breytingin er sú að skipt hefur verið um karl í brúnni. Þraut- reyndur Dani, Olaf Eller, er tekinn við liðinu af hinum hálfíslenska Richard Tahtinen. Eller valdi Ómar Skúlason markvörð í stað Ævars Þórs Björns- sonar en Dennis Hedström mun vafa- laust vera aðalmarkvörður liðsins eins og undanfarin ár. Eller valdi 24 manna æfingahóp sem dvaldi við æfingar í nokkra daga í Danmörku. Fækkað var um tvo í hópnum en þeir Patrik Adel og Jó- hann Leifsson hlutu ekki náð fyrir augum landsliðsþjálfarans að þessu sinni og eru farnir til síns heima. Ísland spilaði tvo æfingaleiki gegn dönskum félagsliðum í ferðinni og tapaði fyrri leiknum 2:4 fyrir Rödovre en vann seinni leikinn 5:0 gegn Hern- ing. Króatar og Rúmenar sterkastir Ísland leikur í riðli með gestgjöf- unum Króötum, Rúmenum, Búlgör- um, Kínverjum og Írum. Króatar féllu niður úr 1. deild í fyrra og Rúmenar féllu niður árið þar áður. Fyrirfram eiga þessi lið að vera sterkust og for- vitnilegt verður að sjá hvort Íslend- ingar geti strítt þeim. Íslenska liðið átti góða kafla í tapleikjunum í fyrra gegn Eistum og Rúmenum. Ísland vann þá Kína í fyrsta skipti í blóðugum baráttuleik og nú mun liðið glíma við Búlgaríu sem það hefur aldr- ei unnið. Riðillinn gæti orðið mjög skemmtilegur ef Ísland, Kína og Búlg- aría hafa burði til að stríða Króötum og Rúmenum. Kínverjar komust í 3:0 gegn Rúmeníu í fyrra en töpuðu 3:4 og því er ýmislegt hægt á góðum degi. Reynslan í íshokkíinu hefur hins vegar verið sú að styrkleikamunurinn er mikill á milli deilda og þess vegna ættu Króatar að vera í góðum málum á heimavelli. Spurningin er hins vegar hvert íslensku landsliðsmennirnir vilja stefna? Ætla þeir að taka næsta skref og vinna silfur eða munu þeir stefna á að halda bronsinu fyrst um sinn? Ljósmynd/Kristján Maack Landsliðið Ísland leikur gegn Króatíu í fyrsta leiknum í Zagreb annað kvöld. Hvert stefnir liðið?  Íslenska íshokkílandsliðið mætt til leiks á HM í Zagreb  Leikur liðið sama leik og í fyrra þegar það fékk brons? Rory McIlroyleiðir enn eftir annan dag- inn á Mast- ersmótinu í golfi. Hann er nú sam- tals á 10 höggum undir pari. Jason Day var hins- vegar hástökkv- ari dagsins en hann spilaði á 64 höggum eða átta undir pari í gær og er annar. Þegar blaðið fór í prentun var Tiger Woods á 16. holunni, fimm undir pari. Hann er greinilega að nálgast sitt besta form. Tiger var jafn tveimur kylfingum í fjórða sæti.    Gunnar Steinn Jónsson var ístóru hlutverki hjá Drott í gær- kvöld þegar liðið vann mikilvægan sigur á Lugi, 30:25, í úrslitakeppn- inni um sænska meistaratitilinn í handknattleik. Með sigrinum styrkti Drott stöðu sína í riðlinum og komst í annað sætið en tvö efstu liðin fara í undanúrslit. Guif, lið Kristjáns og Hauks Andréssona, hefur þegar unnið riðilinn. Gunnar Steinn var markahæstur hjá Drott með 7 mörk og Ulf Sivertsson þjálfari liðsins sagði á vef félagsins að hann hefði verið einn þriggja lykilmanna liðs- ins.    Viktor Krist-mannsson náði lengst ís- lensku keppend- anna í karlaflokki á Evrópumeistara- mótinu í áhalda- fimleikum sem nú stendur yfir í Berlín. Viktor hafnaði þar í 40. sæti, varð þriðji efstur af Norðurlanda- búum og fékk 79,600 stig samtals. Þeir sem urðu í efstu 24 sætunum keppa áfram um helgina um sigur í fjölþrautinni og átta efstu á hverju áhaldi. Róbert Kristmannsson fékk 76,850 stig og Ólafur Garðar Gunn- arsson 74,850 stig en þeir Jón Sig- urður Gunnarsson og Bjarki Ás- geirsson náðu ekki að ljúka keppni.    Steven Gerr-ard, fyrirliði enska knatt- spyrnuliðsins Liverpool, spilar ekki meira með liðinu á þessu keppnistímabili vegna meiðsla. Kenny Dalglish knattspyrnustjóri staðfesti þetta í gær. Gerrard hefur verið í ná- kvæmri læknisskoðun í vikunni. Hann hóf æfingar á ný í síðustu viku eftir aðgerð á nára en meiðslin tóku sig strax upp á ný síðasta föstudag. Daniel Agger, varnarmaður Liver- pool, er líka frá keppni út tímabilið og Glen Johnson næsta mánuðinn. Fólk sport@mbl.is Morgunblaðið/Ómar sem í gær samdi við Val til tveggja ára Framara í leiknum á Hlíðarenda. undsdóttir Guðný Jenný leik og gerði sóknar- itt fyrir allt frá byrjun. kot og þar af voru fjöl- færum. maður leiksins sdóttir Stjarna Pálínu óðu liði en það geislaði af t og vilji til að sigra auk g vel. Hún skoraði 17 stig, g gaf þrjár stoðsendingar. maður leiksins Morgunblaðið/Árni Sæberg ekur við bikarnum eftirsótta úr höndum Hannesar Jónssonar formanns Körfuknattleikssambands Íslands að loknum sigurleiknum gegn Njarðvíkingum í gærkvöld. Svíþjóð Undanúrslit, fyrsti leikur: Sundsvall – Södertälje ........................ 78:62  Jakob Örn Sigurðarson skoraði 8 stig, átti 8 stoðsendingar og tók 4 fráköst fyrir Sundsvall. Hlynur Bæringsson skoraði 6 stig, tók 7 fráköst og átti 4 stoðsendingar. NBA-deildin Chicago – Boston.................................. 97:81 Utah – Portland.................................... 87:98 KÖRFUBOLTI Svíþjóð Úrslitakeppnin: Drott – Lugi ......................................... 30:25  Gunnar Steinn Jónsson skoraði 7 mörk fyrir Drott. Þýskaland B-DEILD NORÐUR: Essen – Nordhorn................................ 29:19  Einar Ingi Hrafnsson skoraði 2 mörk fyrir Nordhorn. HANDBOLTI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.