Siglfirðingur


Siglfirðingur - 22.09.1961, Síða 2

Siglfirðingur - 22.09.1961, Síða 2
2 Kaupum notuð, íslenzk frímerki hæsta verði Um takmarkaðan tíma munum við greiða kr. 25,00 fyrir ónotað sett af EUROPA 1960 og kr. 18,00 fyrir ónotað sett af EUROPA 1961. — Sendum innkaupaverðlista yfir notuð frímerki ef óskað er. Frímerkjafélagið ÞÓR, Pósthólf 78, Reykjavík Nánari uppl. gefur: Finnur Kolbeinsson, Hverfisgötu 4 (sími 251). Landsfundur Sjálfstæðisflokksins Landsfundur Sjálfstæðisflokiksins heifur verið auglýstur í Reykja- vík og hefist 14. október n.ik. Sjálfstæðisfólk, sem erindi á tii Reykja- viikur, og vi-ldi siitja fundinn, ier vinsamfegaisit beðið að siétja sig nú íþegar í samband við viðkomandi félagsformann. SJÁLFSTÆÐISFÉLÖGIN í siglufirði ÁFENGISSALAN annan ársf jórðung 1961 (1. apríl til 30. júní) Heildarsala: SeJt í og frá Reykjavík ................. kr. 38.499.718,00 — ------— Akureyri .................... — 3.984.353,00 — -----— ísafirði ..................... — 1.416.270,00 — ------— Seyðisfirði ................. — 1.117.950,00 — - — — Siglufirði .................. — 1.191.897,00 kr. 46.210.188,00 A sama tíma í 1960 var salan sem hér segir: Selt í og fná Reykjavík ................. kr. 38.686.107,00 — -----— Akureyri .................... — 4.072.974,00 — - — —• ísafirði .................... — 1.389.716,00 — -----— Seyðisifirði ................ — 889.014,00 kr. 46.020.409,00 Frá 1. janúar til 30. júní 1961 nam áfengissalan samtals ................. fcr. 84.781.102,00 Á sama tíimabili 1960 .................. — 81.132.930,00 A.F ENGISVARNARAÐ Siglf irðingur 2 malgagn siglfirzkra ? ? siAlfstæðismanna s í Ábyrgðarmaður: ? > Páll Erlendsson | ? Siglufjarðarprentsmiðja h.f. z Til þess munu tæki- færi gefast Flestar ríkisstjórnir, sem grípa til róttækra ráðstafana í efna- hagsmálum, gjöra það knúðar af aðkallandi nauðsyn og í heilbrigð- um tilgangi. Það er t.d. engin á- stæða til að efast um það, að kaupskerðing og dulbúið gengis- fall krónunnar í tíð vinstri stjórn- arinnar, hafi — að dómi Hanni- bals og Hermanns — átt rætur í þörfum atvinnuveganna og átt að þjóna meintri lækningu á sjúku efnahagslífi, þótt innbyrðis sundrung þeirrar stjórnar og festuleysi hafi fært okkur vá í stað velmegunar. Þær aðgerðir, sem núv. ríkis- stjórn hóf feril sinn með, höíðu og þegar fyrir verkföllin, sýnt mörg batamerki í efnahagslifinu, sér í lagi í hagstæðari viðskipta- jöfnuði við önnur lönd, aukinni sparif jármyndun innanlands og í vaxandi trausti heima og erlendis á íslenkum gjaldmiðli. Ljóst var og, að stefnt var til velmegunar og sama árangurs, sem hliðstæð- ar stjórnaraðgerðir höfðu fært ýmsuin þjóðum Vestur Evrópu. Meinsemdin liggur í því, að stjórnarandstaða á Islandi, bæði fyrr og síðar, er óábyrg í afstöðu sinni ,og telur hlutskipti sitt vera að koma í veg fyrir árangur af. ríkjandi stjórnarstefnu, þótt af- Ieiðingarnar verði tjón og álits- hnekkir þjóðinni allri. Enginn ís- lenzkur stjórnmálaflokkur getur með öllu þvegið hendur sínar af óábyrgri stjórnarandstöðu, þótt núv. stjórnarandstaða, Framsókn- arflokkurinn, taglhnýttur aftan í kommúnista, hafi sýnt meiri á- byrgðarleysi með meiri eyðilegg- ingarárangri en nokkur áður. Og það er alvarleg staðreynd, að Iiægt skuli vera að nota hags- munasamtök fólksins til aðgerða, sem óhjákvæmilega skerða hag þess. Það er reynsla íslenzkra laun- þega, allt frá styrjaldarlokum, að kauphækkanir nmfram greiðslu- þol þjóðarbúsins, koma af stað keðjuáhrifum í efnahaglífinu, víxlhækkunum, sem í reynd þýða hærra verðlag, smærri krónur og minnkandi kaupgetu lannanna. Slíkar aðgerðir ■ hafa annað tveggja: kallað á gengisfall krón- nnnar, til að útflutningframleiðsl- an hafi getað haldið velli í sölu- samkeppni á erlendum mörkuð- um, eða nýja styrki til atvinnu- veganna, sem teknir hafa verið af þjóðinni aftur I einni eða annarri mynd. Þessi hefur reynslan ALLTAF verið, og skiptir þá ekki máli hverjir af hinum fjórum stjórnmálaflokkum okkar hafa farið með völdin, né hvern veg j ríkisstjórn hefur verið saman selt. Lögmál efnahagslífsins er og liið sama, hvort sem kommún- istar eða hægri menn sitja á st j órnarstólum. Nýafstaðin „kjarabarátta“ stað festir enn þessi sömu sannindi. Sá, sem þetta ritar, hefði talið æskilegast, úr því sem komið var, að ríkisstjórnin hefði lögfest til- lögu sáttasemjara (6% hækkun- ina), eftir að báðir deiluaðilar höfðu fellt hana, og jafnframt reynt að halda verðlaginu í skefj- um, sem þó skal viðurkennt, að erfitt hefði verið. Slíkar aðgerðir liefðu máske verið óvinsælar fyrst í stað, en komið launþegum að meira gagni en kauphækkanir, sem hlutu að brenna á báli dýr- tíðar. . . Hvað er þá framundan? Gengi krónunnar hefur verið skráð til samræmis við þá smækkun henn- ar, sem verkföllin orsökuðu. Stjórnarandstöðunni hefur tekizt að seinka eitthvað frekari árangri af stjórnarstefnunni — en aðeins að seinka honum. Það sem hlýtur að skipta höfuðmáli nú, er sam- staða allra góðra íslendinga um þá viðleitni, sem nú er sýnd, til að atvinnuvegir og efnahagslíí þjóðarinnar megi leita í heilbrigð- an farveg og færa þjóðinni vax- andi framleiðslu og velmegun, líkt og orðið liefur með öðrum þjóð- um, sem búa við sams konar þjóð skipulag. Hinir, sem vilja þjóð- skipulagið feigt, og tilkomu nýrra og framandi stjórnarhátta, liafa sérstöðu í þessu efni. . . Lýðræðisflokkamir þrír ættu að geta , á örlagastund, er þjóð- arsómi og nauðsyn krefur, sam- einast um velferð þjóðarbúsins og Jiegnanna. Það er miklum mun meira, sem sameinar okkur en liitt, er sundur skilur. . . . . Kjósi skammsýn forysta Fram- sóknarflokksins fremur að vera taglhnýtingur þeirra Sovétsveina, sem vilja núverandi þjóðskipulag íslenzka lýðveldisins feigt, en samstöðu með lýðræðisflokkunum verða og hljóta hinir almennu liðsmenn, sem flestir og nær allir em góðir íslendingar, að gefa for- ystunni þá ráðningu, sean hún kemst ekki hjá að skilja og taka alvarlega. Og til þess mumi tækifæri gefast. Knattspyrnumét Norðurlands var að iþess-u sinni ihaídið á 4 stöðum; Húsavík, Akureyri, Sauð árkróki og Siglufirði. Hafa öfl.1 knattspymufél. heimsótt Siglu- fjörð og háð hér 1-ei'ki við K.S. hér á velinum. Úrsli-t lieikjanna urðu sem hér segir: KS—ÞÓR 5:3 KS—HSÞ 3:0 KS—UMSE 7:0 KS—UMSS 5:1 KS—KA 1:4 Aðalúrslit em enn ókomin. þar sem ÞÓR vann KA, verða KS, KA og ÞÓR a ð keppa af-tur. Við lok síðasta kappleiksins, er haldinn var ihér, afhenti bæjar- stjóri KS 5000 kr. að gjöf, s-em íólagið á að nota til þess að fá sér góðan þjálfara. — Úrslita- kappleikimir verða háðir hér á laugardag o-g -sunnudag n.k. SIGLFIRÐINGAR ! Fjölmennið á íþróttavöllinn á laugardag og sunnudag ! Einherji og útsvörin Síðasta tbl. Einiherja, sem rit- istýrt er af Jóhanni Þorvaldssyn-i, birtir forsíðufrétt um útsvör í Siglufirði. Er þar reynt að nytja þá óænægju, sem há útsvör hér óhjákvæmitega sikapa, til fram- dráttar Framsóknariflokknum- — En þeir, sem til þékkja, vita: 1) að Eramsóknarfl. er ábyrgur aðili að meirihluta bæjar- stjórnar. 2) að bæjarfultrúi framsóknar samþ. umrædda 200 þús. kr. hæfckun á útsvörunum (ásamt 2 kommúnistum m.a.). 3) að sú hækk-un var samþýkkt í bæjarstjórn með 8 samiblj. atkv. (mótatkvjlaiusit). Einn bæjarf-uilltirúi sa-t hjá. Er grein þessi, sem eigna ve-rð- ur ri-tstjóra, tilraun vinstri fram- sóknarmanna til að vega aftan að Ragnari Jóhannessyni? Eða ier bér einunigis urn fljótfæmisskrif manns að ræða, siem ritar fyrst um málin, en kynnir sér þau á eftir ? Aðalefni greinar þessarar er sú kenning, að fresta skuli sem flestum framkvæmdum ibæjarfé- lagi, þrátt fyrir árstíðabundið a-t- vinnuleysi. Átti másfce að fresta framkvæmdum við Barnasikóla og Sundiau-g? Á bæja-rfélagið másk-e að feta í spor formanns kaup-fé- lagsstjó-marinnar um þess kionar frestun, -sem lýsir sér í „tómt- húsi“ kaupfólagsins við Hvann- eyrarbraut, þar -sem eitt sinn átti að hef ja iðn-að, en berir steinvegg- ir vi-tna uim „frestun á fram- kvæmdum“ í bæ o-f iítillar at- vinnu ? Þá k-vartar ritstjórinn í ann- arri grein um eigin skilnings- skort á greinum ,,Siglfirðings“. Við óskum honum vaxandi skiln- ings í framtíði-nni, bæði í þessum efnum og öðru-m.

x

Siglfirðingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Siglfirðingur
https://timarit.is/publication/803

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.