Siglfirðingur - 30.11.1923, Blaðsíða 1
SIGLFIRÐINGUR
I. árg.
Siglufirði 30. nóv. 1923.
1. blað
ÁVARP.
Eftir áskornn ýmsra góðra manna
hefi jeg ráðist í að gera tilraun
með að gefa hjer út vikublað, jafn-
vel þótt undanfarandi tilraunir á
þyí sviði sjeu ekki sjerlega hvetj-
andi.
»Fram<. sálugi safnaði skuldum,
eins og allir vissu, og þeim því
meiri sem hann lifði lengur, þang-
að til þær urðu honum að bana.
Og »Framtíðin«, sem að vísu ekki
er dauð ennþá, hefur víst ekki gert
mikið betur en að halda holduin.
Mjer er það því fullkomlega Ijóst,
að við fjárhagslega örðugleika muni
verða að stríða, ásamt með ýms-
um fleiri örðugleikum, sem blaða-
útgáfu jafnan eru samfara.
Jeg geng þess heldur ekki dulinn,
hve mikið vantar á að jeg sje fær
um að standa fyrir blaði á þann
veg, að það verði bænum menn-
ingarauki og til uppbyggingar landi
og lýð. í því efni treysti jeg að
mestu leyti á ýmsa menn, mjer
færari, sem lofað hafa aðstoð sinni
um að gera blaðið sem best úr
garði.
Um stefnu blaðsins skal það
eitt sagt að þessu sinni, að það
verður eindregið bindindisblað, en
að öðru leyti mun stefna þess koma
í Ijós smátt og smátt. Annars mun
blaðið fyrst og fremst láta til sín
taka alt, sem heill Siglufjarð-
a r varðar, og berjast á móti mis-
rjetti því, sem sjávarútvegurinn
hefir orðið fyrir í löggjöf vorri nú
síðustu árin.
Frjettir mun blaóið reyna að flytja
sem mestar, rjettastar og nýjastar
og húsmæðrunum mun verða bent
á, hvar þær fái mest fyrir peninga
sína.
Fyrsti árgangur er ákveðinn
minst 40 blöð og kostar hann
fjórar krónur sem greiðist
fyrirfram. — Pað er að vísu nýtt
hjer á landi, að blöð sjeu greidd
fyrirfram, en það er gamall og góð-
ur siður erlendis, sem búið hefði
átt að vera að taka upp hjer á
landi fyrir löngu. Með því er tekið
þvert fyrir mjög umfangsinikla inn-
heimtu og eilíf vanskil, sem mörgu
blaðinu hefir orðið að fjörtjóni.
Hverjum kaupanda verður gefin
skrifleg kvittun, þar sem tekið verð-
ur fratn, að e f ekki koma út 40
tölublöð, þá verði þeim endur-
greiddir 10 aurar fyrir hvert það
tölublað, sein upp á vantar. Jeg
vona því, að menn taki þessari
nýung vel og sjái, að ura enga
hættu er að ræða, þó þeir borgi
blaðið fyrirfram.
Ef vel gengur, er hugsanlegt að
árgangurinn verði jafnvel 50 til 60
tölublöð án þess þó að verðið
hækki.
Virðingarfylst
Friðb. Níelsson.
Pingkosningsirna.r.
Kosingaúrslitin eru nú orðin kunn
úr öllum kjördæmum landsins. Og
það verður ekki annað sagt en að
kosningarnar færu hið ákjósanleg-
asta. Er nú þjóðin bújn að gefa
skýr svör um vilja sinn og afstöðu
í verzlunarmálum sínum, eða, með
hvaða skipulagi hún vill haga rekstri
allrar verzlunar. Pjóðin vill enga
I. O G. T.
Stúkan »Franisókn« nr. 187 heldurfundi
á hverju miðvikudagskvöidi kl. 8 í húsi
Hjálpræðishersins.
Nýir meðlimir velkomnir.
Unglingastúkan »Eyrarrós« nr. 68 held-
ur fundi á hverjum sunnudegi kl. hálf
þrjú á sama stað.
einokun, enga »landsverzlun« á
neinu. Hún vill hafa frjálsa sam-
keppnisverzlun. Petta ættu allir að
muna og allir að þekkja og vita
hjereftir, hafi einhverjum verið það
óljóst áður.
Menn þurfa ekki að vera neitt
feimnir við að segja það óhikað,
að einmitt verzlunarpóiitíkin hefur
ráðið öllu um úrslit þessara kosn-
inga. Annarsvegar var flokkur Jón-
asar frá Hriflu studdur róttækum
einokunarsinnum og jafnaðarmönn-
um með aðalmálgagn sitt »Tímann«
í fylkingarbrjósti; en síðar í þeirri
píslar og »kröfu«-göngu brá fyrir
Verkamanninuni, Degi, Skutli og
Alþýðublaðinu eins og dálitlum
kröfuflöggum, sem mestmegnis
hrópuðu »niður með« alt athafna-
frelsi í landinu. Eða »niður með«
allar einsíakiingseignir nema okkar
foringjanna. Við verðum að vera
bjargálnamenn til þess að okkur
geti líðið vel og hvatt »!ýðinn« til
mótþróa við »auðvaldið!«
Pað dettur nú engum lengur í
hug að nefna neitt, sem heitir
socialismi eða bolshevismi eða
jafnaðarmenska svo að talist geti
til sjálfstæðs pólitíks flokks. Petta
er nú dauðadæmt við þessar kosn-
ingar. Enda hafa pólitískar æsingar
þeirra kumpána verið það ógeðs-
legasta óþrifamerki er sett hefur
verið á íslensk stjórnmál síðan al-
þingi var endurreist. Pessi »flokk-
ur« fjekk samtals rúm 3000 atkvæði
á öllu landinu! Og er þó ekki of-
mælt að frá þessum þrem þúsund-
um megi draga helminginn, sakir
þess, að sumir fulltrúar, eða fram-
bjóðendur »socialista«, munu hafa