Morgunblaðið - 24.05.2011, Page 2
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. MAÍ 2011
HANDBOLTI
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Ragnar Óskarsson, fyrrverandi
landsliðsmaður í handknattleik, varð
á sunnudaginn franskur bikarmeist-
ari með liði sínu US Dunkerque eftir
sigur á Chambéry. Ragnar hefur
ákveðið að leggja skóna á hilluna að
tímabilinu loknu og sagðist ekki geta
hugsað sér að kveðja Dunkerque með
skemmtilegri hætti en um er að ræða
fyrsta titilinn í sögu félagsins en mik-
ill uppgangur varð hjá félaginu
skömmu fyrir síðustu aldamót.
„Félagið hefur verið að eltast við
þetta í ein tíu ár eða frá því að liðið fór
að vera ofarlega í deildinni að jafnaði.
Liðið hefur tapað úrslitaleikjum bik-
arnum, deildabikarnum og einnig í
Evrópukeppni og því er eiginlega
ótrúlegt að þetta skuli vera fyrsti tit-
ilinn. Það var því kominn tími á þetta
og það er allt vitlaust í borginni.
Frakkarnir ætla að halda upp á þetta
langt fram á sumar,“ sagði Ragnar og
gat ekki neitað því að frábært væri að
upplifa þennan sigur hjá félaginu því
á heildina litið hefur Ragnar leikið
með liðinu í sjö keppnistímabil auk
þess sem eiginkona hans og tengda-
fjölskylda eru frá Dunkerque.
Lætur gott heita
Ragnar hefur ákveðið að láta stað-
ar numið í handboltanum eftir farsæl-
an feril. Hann sagði bikarmeistaratit-
ilinn hafa auðveldað þá ákvörðun. „Ég
tók þessa ákvörðun fyrir svolitlu og
tilkynnti Frökkunum hana. Á seinni
hluta tímabilsins hef ég hins vegar
spilað mjög mikið og gengið vel. Ég
var því farinn að velta því fyrir mér
hvort ég ætti að bæta við einu eða
tveimur árum en eftir þennan bik-
arsigur þá er toppurinn að enda fer-
ilinn með þessum hætti,“ sagði Ragn-
ar en honum fannst ekki heillandi
tilhugsun að leggja skóna á hilluna
þegar farið væri að halla undan fæti
inni á vellinum.
Flott að enda á þessum nótum
„Mér finnst mjög flott að enda á
þessum nótum og geta tekið þá
ákvörðun sjálfur í stað þess að hætta í
atvinnumennskunni af því að maður
fær ekki lengur samning. Skrokk-
urinn er í góðu lagi og ég hefði getað
haldið áfram en það er ýmislegt sem
mig langar að gera þegar ferlinum
lýkur,“ útskýrði Ragnar en vildi ekki
fara nánar út í þá sálma að svo
stöddu. Hann er þó ekki á förum frá
Dunkerque og mun koma að starfi fé-
lagsins á næstu leiktíð með ein-
hverjum hætti.
Ragnar á enn eftir að spila tvo
deildaleiki í Frakklandi áður en hann
lætur gott heita. Þeir leikir hafa hins
vegar enga þýðingu fyrir Dunkerque
sem hefur tryggt sér 3. sætið í deild-
inni á eftir Nikola Karabatic og fé-
lögum í Montpellier og Chambéry.
Síðarnefnda félagið var einmitt and-
stæðingur Dunkerque í bikarúrslita-
leiknum. Leikurinn fór fram á sögu-
slóðum Íslendinga eða í hinni
glæsilegu Bercy-höll í París. Þar vann
Ísland sigur á Póllandi í úrslitaleik B-
keppninnar árið 1989.
Geggjuð stemning í Bercy
„Ég hafði einu sinni spilað áður í
Bercy með landsliðinu en aldrei með
félagsliði. Höllin tekur um 15 þúsund
manns og hún var nánast full á bik-
arúrslitaleiknum. Þar af voru um 2
þúsund manns sem fylgdu okkur frá
Dunkerque. Ég gæti ekki hugsað mér
betri endi á ferlinum,“ sagði Ragnar
en borgin er nyrst í Frakklandi og því
nokkurt ferðalag í höfuðstaðinn.
Leikurinn olli ekki vonbrigðum því
jafnt var að loknum venjulegum leik-
tíma 25:25. Þá var einfaldlega gripið
til vítakeppni og þar hafði Dunkerque
betur 3:2.
„Menn voru ekki með neitt rugl
heldur drifu þetta bara af,“ sagði
Ragnar léttur og bætti við. „Stemn-
ingin á leiknum var geggjuð og frá-
bært að upplifa þetta. Við vorum um
tíma fjórum mörkum yfir í síðari hálf-
leik og vorum tveimur yfir þegar tvær
mínútur voru eftir en þeir náðu að
jafna. Menn spiluðu gríðarlega fast og
spennan var mikil. Markvörður okk-
ar, Vincent Gérard, réð úrslitum því
hann varði þrjú vítaköst. Hann er að
mínu mati framtíðarmarkvörður í
franska landsliðinu og var valinn besti
markvörður deildarinnar,“ sagði
Ragnar sem lék um helming leiktím-
ans í stöðu leikstjórnanda og það hef-
ur verið hans hlutskipti í vetur að
mestu leyti.
Ragnar bik-
armeistari á
söguslóðum
Morgunblaðið/Kristinn
Frakkland Ragnar Óskarsson hefur átt farsælan feril í franska handboltanum
frá árinu 2000 og lýkur honum sem bikarmeistari með Dunkerque.
Leggur skóna á hilluna að tímabilinu
loknu Fyrsti titillinn í sögu Dunkerque
RAGNAR ÓSKARSSON
» Ragnar verður 33 ára í ágúst
og er uppalinn ÍR-ingur þar
sem hann lék til ársins 2000.
Þá hélt Ragnar til Dunkerque
og lék með liðinu í fjögur ár,
síðan eitt ár með Skjern í Dan-
mörku, tvö með Ivry í París og
eitt með Nimes í suðurhluta
Frakklands. Loks sneri hann
aftur norður til Dunkerque
sumarið 2008.
» Ragnar, sem sleit tvisvar
krossband í hné, var tvívegis
valinn besti leikstjórnandinn í
Frakklandi með Dunkerque og
varð markakóngur deildarinnar
með Ivry. Þar varð hann Frakk-
landsmeistari árið 2006. Um
helgina bættist svo bik-
armeistaratitillinn í safnið.
»Ragnar lék 99 A-landsleiki
fyrir Íslands hönd og skoraði
158 mörk. Ragnar skoraði eitt
sinn 17 mörk í leik með U18 ára
landsliði Íslands gegn Póllandi.
Íslenskt íþróttafólk hefur gert það gott í Dan-
mörku á keppnistímabilinu sem nú er að ljúka
þar í hinum ýmsu greinum. Íslendingar hafa
fagnað dönskum meistaratitlum í handknattleik,
knattspyrnu og körfuknattleik á undanförnum
vikum.
Arnór Atlason og Snorri Steinn Guðjónsson
eru danskir meistarar í handknattleik með AG
Köbenhavn, og Arnór sem fyrirliði liðsins.
Sölvi Geir Ottesen er danskur meistari í knatt-
spyrnu með FC Köbenhavn.
Guðni Valentínusson er danskur meistari í
körfuknattleik með Bakken Bears.
Hrannar Hólm stýrði liði SISU til danska
meistaratitilsins í körfuknattleik kvenna.
Þá er Aron Jóhannsson orðinn meistari í
dönsku 1. deildinni í knattspyrnu með AGF.
Elsa Sæný Valgeirsdóttir var síðan hársbreidd
frá danska meistaratitlinum í blaki en lið hennar,
Holte, tapaði í oddaleik í úrslitum.
vs@mbl.is
Íslendingar sigursælir í Danmörku í vetur
Rúnar Kárason og félagar í Bergischer Löwen tryggðu sér
um helgina sæti í þýsku 1. deildinni í handknattleik, efstu
deildinni þar í landi. Þeir lögðu Aue, 25:22, í lokaumferðinni
og fóru þar með upp fyrir Hüttenberg sem tapaði óvænt á
sama tíma fyrir Saarlouis, 36:35.
Rúnar skoraði 5 mörk fyrir Bergischer sem fékk þar með
54 stig og vann suðurriðil 2. deildar, en Hüttenberg varð í
öðru sæti með 53 stig og þarf að fara í umspil. Rúnar kom til
Bergischer í láni frá Füchse Berlín um áramótin og samdi
til vorsins, þannig að óljóst er hvort hann mun leika áfram
með liðinu á næsta tímabili.
Bergischer er sameinað lið Solingen og Wuppertal en
með Wuppertal hófu Ólafur Stefánsson og Dagur Sigurðsson atvinnumanns-
ferilinn undir lok síðustu aldar. Þar spiluðu þeir með Geir Sveinssyni og undir
stjórn Viggós Sigurðssonar.
Arnar Jón Agnarsson skoraði 5 mörk fyrir Aue sem náði ekki að komast í
hóp níu efstu liða og féll þar með í 3. deild. Aue endaði í 11. sæti af 18 liðum en
riðlarnir tveir í 2. deildinni verða sameinaðir í einni deild næsta vetur.
Gylfi og Minden fara í umspilið
Hildesheim vann norðurriðilinn og fer beint upp ásamt Bergischer. Gylfi
Gylfason skoraði 6 mörk fyrir Minden sem vann Wilhelmshavener, 26:25, og
endaði í öðru sætinu, stigi á eftir Hildesheim sem missteig sig ekki í loka-
umferðinni.
Minden fer í umspil gegn Hüttenberg og sigurliðið í því einvígi mætir þriðja
neðsta liði í úrslitaleikjum um sæti í 1. deildinni. Það verður annaðhvort Ahlen-
Hamm eða Friesenheim.
Íslendingaliðin Emsdetten, Nordhorn, Bittenfeld og Eisenach enduðu öll í
efri hluta 2. deildar og spila í nýju 2. deildinni. Aue var eina Íslendingaliðið sem
varð að sætta sig við að fara niður í 3. deild en þangað féll helmingur liðanna í
riðlunum tveimur.
vs@mbl.is
Rúnar og Bergischer Löwen fóru upp í 1. deildina
Rúnar
Kárason
Svíþjóð
A-DEILD:
Elfsborg – Halmstad ............................... 3:2
Jónas Guðni Sævarsson var í liði Halm-
stad og var fyrirliði en var skipt af velli eftir
aðeins 15 mínútur vegna meiðsla.
Mjällby – Djurgården .............................. 3:0
Staðan:
Helsingborg 9 6 2 1 12:5 20
Malmö FF 9 5 2 2 12:10 17
Elfsborg 9 5 1 3 15:12 16
Kalmar 9 5 1 3 11:8 16
Gefle 9 4 3 2 11:9 15
AIK 8 4 2 2 11:8 14
Trelleborg 9 4 2 3 14:15 14
GAIS 9 4 1 4 12:11 13
Örebro 9 4 1 4 12:11 13
Norrköping 9 4 1 4 12:14 13
Hacken 9 3 3 3 15:11 12
Gautaborg 9 3 2 4 11:12 11
Mjällby 9 3 1 5 8:8 10
Syrianska 8 1 2 5 5:11 5
Djurgården 9 1 2 6 8:15 5
Halmstad 9 1 2 6 6:15 5
B-DEILD:
Falkenberg – Ängelholm........................ 1:0
Heiðar Geir Júlíusson kom inn á hjá
Ängelholm á 87. mínútu.
Öster – Västerås ...................................... 0:0
Davíð Þór Viðarsson lék allan leikinn
með Öster.
Bandaríkin
Boston Breakers – Philadelphia............ 1:1
Hólmfríður Magnúsdóttir kom inn á hjá
Philadelphia á 69. mínútu.
Staðan:
West. New York 6 5 1 0 16:6 16
magicJack 4 3 0 1 5:4 8
Philadelphia 5 2 2 1 8:6 8
Boston 7 2 1 4 9:10 7
Sky Blue 5 1 1 3 6:7 4
Atlanta 7 1 1 5 5:16 4
KNATTSPYRNA
KNATTSPYRNA
Úrvalsdeild kvenna, Pepsi-deildin:
Hásteinsvöllur: ÍBV – Afturelding .......... 18
Fylkisvöllur: Fylkir – Valur ................ 19.15
Stjörnuvöllur: Stjarnan – Þróttur R... 19.15
KR-völlur: KR – Breiðablik................. 19.15
Bikarkeppni karla, Valitor-bikarinn:
Hveragerði: Hamar – KFS....................... 18
3. deild karla:
Borgarnes: Skallagrímur – Björninn ...... 20
Vopnafjörður: Einherji – Huginn ............ 20
Í KVÖLD!
Ísland mætti í gær Se
aramóti landsliða í ba
í öllum viðureignunum
Í tvenndarleik sigu
þau George Cupidon o
Atli Jóhannsson ha
21:19 og 21:14.
Magnús Ingi Helga
George Cupidon í tvíl
Tinna Helgadóttir v
tvíliðaleik fögnuðu þæ
sigri gegn Cynthiu Co
Ísland sat hjá í fyrstu umferðinni á sun
að tapa fyrir Srí Lanka, 0:5, og Filippsey
eyjum, 5:0, þannig að ljóst er að baráttan
Filippseyja. Síðastnefnda þjóðin er fyrir
Stórsigur í fyr
Tinna
Helgadóttir
Albert Brynjar Ingason, framherji
Fylkis, verður ekki með liðinu þeg-
ar það mætir FH í Valitor-
bikarkeppni KSÍ
á fimmtudaginn
en hann fór
meiddur af velli
gegn Breiðablik
á sunnudaginn.
Hann segir þó að
aðeins sé um
bólgur í ökkl-
anum að ræða.
„Það er mögu-
leiki að ég nái
leiknum á mánu-
daginn ef ég á að vera bjartsýnn,“
sagði Albert. Guðmundur Krist-
jánsson, leikmaður Breiðabliks,
sem braut á Alberti, hringdi í hann
síðar um kvöldið og bað hann af-
sökunar. „Það var fagmannlega
gert. Guðmundur er, eins og ég, al-
vörukarlmaður og þá getur svona
lagað gerst.“
omt@mbl.is
Albert ekki
með gegn FH
Albert
Ingason
Skannaðu kóðann
til að sjá mynd-
band frá víta-
keppninni í Bercy.