Morgunblaðið - 24.05.2011, Side 3
ÍÞRÓTTIR 3
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. MAÍ 2011
Íslenskakvennalands-
liðið í handknatt-
leik spilaði í gær
æfingaleik gegn
U-17 ára lands-
liðið pilta í Voda-
fone-höllinni á
Hlíðarenda í
kvöld. Leikurinn
kom í stað fyrirhugaðra æfingaleikja
gegn Tyrkjum í undirbúningi fyrir
umspilsleiki fyrir HM við Úkraínu.
Tyrkneska landsliðið komst ekki til
Íslands vegna eldgossins í Gríms-
vötnum.
Íslensku piltarnir höfðu betur en
lokatölur voru 29:24 en staðan í hálf-
leik var 13:12 piltunum í vil. Daði
Laxdal Gautason var markahæstur
piltanna með fimm mörk Hjá
kvennalandsliðinu var Hrafnhildur
Skúladóttir markahæst með sex
mörk, Ásta Gunnarsdóttir skoraði
fjögur og þær Arna Sif Pálsdóttir og
Þórey Rósa Stefánsdóttir skoruðu
þrjú mörk hvort. Guðrún Ósk Marí-
asdóttir varði níu skot og Guðný
Jenný Ásmundsdóttir fimm.
Fyrir áhugasama mætast liðin aft-
ur annað kvöld á sama stað.
Nuri Sahin, leikmaður BorussiaDortmund og verðandi leik-
maður Real Madrid á næstu leiktíð,
var kosinn besti leikmaður þýsku 1.
deildarinnar í knattspyrnu. Leik-
menn deildarinnar kusu og þótti
Sahin hafa staðið sig best. Hann átti
frábært tímabil hjá félaginu sem
varð meistari á dögunum. Leik-
stjórnandinn skoraði sex mörk í 30
leikjum og var alltaf í byrjunarliðinu.
Helena Sverrisdóttir körfu-knattleikskona hefur skrifað
undir skammtímasamning við
Hauka um þjálf-
un hjá félaginu í
sumar. Hún mun
sjá um sumaræf-
ingar fyrir stelp-
ur og stráka í 7.
flokki og upp í
drengja- og
stúlknaflokk eins
og fram kemur á
heimasíðu Hauka.
Hún mun einnig standa að sér-
stökum tækniæfingum fyrir efnileg-
ustu körfuknattleiksstelpur Hauka á
aldrinum ellefu til tvítugs.
Helena sem spilað hefur með
bandaríska háskólaliðinu TCU und-
anfarin ár var ekki valin í nýliðavali
kvennadeildar NBA í vor þrátt fyrir
frábær ár í háskólanum. Hún hefur
hinsvegar samið við Good Angel Ko-
sice frá Slóveníu og mun halda þang-
að í haust eftir að sumarþjálfuninni
lýkur.
Tandri Már Konráðsson og ArnórFreyr Stefánsson skrifuðu um
helgina undir samning við hand-
knattleiksdeild HK. Tandri sem er
skytta, kemur frá Stjörnunni en
hann var markahæsti leikmaður lið-
ins á síðustu leiktíð. Arnór er mark-
vörður og kemur frá ÍR.
Fólk folk@mbl.is
JÚDÓ
Guðmundur Hilmarsson
gummih@mbl.is
Íslendingar áttu góðu gengi að fagna á
Norðurlandamótinu í júdó sem fram fór í
Ósló í Noregi um nýliðna helgi. Alls unnu
Íslendingar til 15 verðlauna á mótinu,
sem er það fjölmennasta sem haldið hef-
ur verið frá upphafi. 320 keppendur voru
á mótinu frá sex þjóðum en keppt var
bæði í flokki fullorðinna og unglinga.
Íslendingar unnu til sjö gullverðlauna,
tvennra silfurverðlauna og sex brons-
verðlauna.
„Þetta gekk mjög vel hjá okkur og ég
held að þetta sé besti árangur Íslands á
Norðurlandamóti frá upphafi,“ sagði
Þorvaldur Blöndal í viðtali við Morg-
unblaðið í gær en Þorvaldur vann tvöfalt
á mótinu. Hann bar sigur úr býtum í -100
kg flokki og í opnum flokki en Þorvaldur
er afar reynslumikill og var að hampa
Norðurlandameistaratitli í fimmta sinn á
ferlinum.
Gekk allt upp hjá mér
„Það gekk allt upp hjá mér. Ég glímdi
átta glímur og vann þær allar á ippon.
Fyrsta glíman í þyngdarflokknum var
erfiðust. Hún fór í gullskor en ég náði að
lokum að skora ippon og tryggja mér
sigur,“ sagði Þorvaldur, sem varð Norð-
urlandameistari árið 1999, 2005, 2008 og
núna í Ósló. „Það er farið að síga á seinni
hlutann hjá mér enda búinn að vera lengi
í þessu,“ sagði Þorvaldur.
Þorvaldur mætti Færeyingi í undan-
úrslitum í -100 kg flokknum og hafði svo
betur á móti sænskum júdómanni í úr-
slitunum. „Svíinn er sú manngerð sem
hentar mér mjög vel en hann er langur
og mjór,“ sagði Þorvaldur.
Þorvaldur sagði að íslensku júdó-
mennirnir hefðu mætt til leiks á mótinu
mjög vel undirbúnir bæði líkamlega og
andlega.
Strandaglópar vegna eldgossins
Vegna eldgossins í Grímsvötnum varð
landsliðsfólkið strandaglópar í Noregi en
til stóð að hópurinn kæmi heim á sunnu-
daginn. Spurður hvort hann hefði ekki
bara skellt sér á júdóæfingu sagði Þor-
valdur: „Mér líður þannig í skrokknum
að það er eins strætó hafi keyrt yfir mig.
Ég er lurkum laminn og ekki í standi til
að fara á æfingu alveg strax,“ og hló við.
Á laugardeginum var keppti í U17 og
U20 þar sem Björn Lúkas Haraldsson
sigraði -81 kg þyngdarflokkinn í U17 af
miklu öryggi. Aðrir verðlaunahafar voru
Ingi Þór Kristjánsson (-73 kg flokki),
Sævar Róbertsson (-100 kg flokki) og
Helga Hansdóttir (-57 kg flokki) sem öll
unnu til bronsverðlauna í U20.
Endurkoma hjá Önnu Soffíu
Á sunnudeginum var keppti í meist-
araflokki en þar fóru Íslendingar á
kostum og unnu 6 gull af 13 mögu-
legum. Anna Soffía Víkingsdóttir sem
nýlega varð tvöfaldur Íslandsmeistari
hefur komið sterk inn eftir að hafa
þurft að hvíla í tæpt ár eftir aðgerð á
öxl vegna slæmra meiðsla. Anna vann
-70 kg flokkinn af miklu öryggi og vann
allar sínar glímur á ippon og var sig-
urinn aldrei í hættu.
Í opnum flokki kvenna börðust tvær
íslenskar stelpur í úrslitum, þær Sig-
rún Elísa Magnúsdóttir og Anna Soffía
Víkingsdóttir. Eftir mikil átök í glím-
unni kom Sigrún Elísa öllum á óvart og
skellti Önnu Soffíu á ippon og er því
Norðurlandameistari kvenna í opnum
flokki.
Sveinbjörn sterkur
Sveinbjörn Jun Iura mætti gífurlega
sterkur til leiks en hann hefur verið við
æfingar í Japan í einum af sterkustu
júdóklúbbum í heiminum undanfarna
mánuði. Árangurinn af Japansferðinni
leyndi sér ekki því Sveinbjörn bar höf-
uð og herðar yfir aðra keppendur og
vann -81 kg flokkinn. Ein verðlaun
voru ekki nóg fyrir Sveinbjörn því
hann keppti einnig í opnum flokki og
nældi sér í bronsverðlaun þar.
Björn Sigurðarson og Andri Gunn-
arson gerðu sér lítið fyrir og komust
báðir í úrslitaglímuna í þungavigtar-
flokki (+100 kg). Glíman var í járnum
allan tímann og ekki við öðru að búast
því þetta er ekki í fyrsta skipti sem þeir
mætast til að berjast um gull. Eftir að
tími glímunnar var liðinn var það Björn
sem bar sigur úr býtum með minnsta
mun og fékk Andri því silfur í þeim
flokki.
Aðrir verðlaunahafar á mótinu voru
Birgir Páll Ómarsson sem hlaut brons í
-90 kg flokki og Ásta Lovísa Arnórs-
dóttir sem einnig fékk brons í -57 kg
flokki.
Stefnir á gull á Smáþjóðaleikum
Framundan eru Smáþjóðaleikarnir
sem haldnir verða í Liechtenstein í
byrjun júní og þar keppa sex júdó-
menn. Það verða þau Ingi Þór Krist-
jánsson, Anna Soffía Víkingsdóttir,
Birgir Páll Ómarsson, Þorvaldur Blön-
dal, Hermann Unnarsson og Þor-
móður Jónsson en þeir tveir síðast-
nefndnu tóku ekki þátt í Norður-
landamótinu þar sem þeir eru við
æfingar í Prag.
„Ég stefni að sjálfsögðu að því að
vinna gullið á Smáþjóðaleikunum. Ég
verð búinn að jafna mig eftir átökin á
Norðurlandamótinu,“ sagði Þorvaldur,
sem keppir í -100 kg flokki en ekki er
keppt í opnum flokki á leikunum.
„Mér líður eins og strætó
hafi keyrt yfir mig“
Morgunblaðið/hag
Öflugur Þorvaldur Blöndal var sigursæll á Norðurlandamótinu í Ósló um helgina og kom heim með tvö gull.
Þorvaldur Blöndal varð tvöfaldur Norðurlandameistari í júdó Besti árangur
Íslendinga á Norðurlandamótinu Unnu til 15 verðlauna í Ósló um helgina
Chris Bosh var maðurinn á bak við sigur Miami Heat gegn
Chicago Bulls þegar liðin áttust við í þriðju viðureigninni í
úrslitum austurdeildarinnar í NBA-deildinni í körfuknatt-
leik í fyrrinótt. Miami hafði betur, 96:85, og tók þar með 2:1
forystu í einvígi liðanna.
Bosh skoraði 34 stig en hann hitti úr 13 af 15 síðustu skot-
um sínum í leiknum. LeBron James skoraði 22 stig og átti 10
fráköst og Dwayne Wade setti niður 17 stig og hirti níu frá-
köst. Miami er nú tveimur sigurleikjum frá því að leika til
úrslita um meistaratitilinn en í hinni undanúrslitaviðureign-
inni eigast við Dallas og Oklahoma.
Þetta var annar tapleikur Chicago í röð en liðið hafði ekki
tapað tveimur leikjum í röð síðan í byrjun febrúar. Carlos Boozer var bestur í
liði Chicago en hann skoraði 26 stig og tók 17 fráköst og ungstirnið Derrick
Rose kom næstur með 20 stig en átti í erfiðleikum og hitti aðeins úr 8 af 19 skot-
um utan af velli. Fjórði leikur liðanna fer fram í Miami í nótt. gummih@mbl.is
Bosh var í aðalhlutverki
Chris
Bosh
Handknattleiksþjálfarinn Ólafur Á. Sveinsson
hefur verið ráðinn til norska kvennaliðsins År-
stad og stjórnar því næstu tvö árin. Årstad hafn-
aði í 9. sæti af 14 liðum í norsku 1. deildinni, þeirri
næstefstu, á nýliðnu keppnistímabili.
Ólafur er Gróttumaður að upplagi þar sem
hann spilaði og þjálfaði á árum áður. Hann hefur
síðan þjálfað norsk kvennalið frá árinu 2003, að
því undanskildu að hann þjálfaði karlalið Fjölnis
tímabilið 2008-2009. Annars hefur hann stýrt
norsku kvennaliðunum Træff, Iljotun og Bravo HK
en hann var með síðastnefnda liðið, sem er frá Tromsö, í vetur.
Årstad er frá samnefndu hverfi í Bergen, en þar er einmitt
Brann Stadion, heimavöllur knattspyrnuliðsins Brann þar sem fjöl-
margir Íslendingar hafa verið á mála á undanförnum árum.
vs@mbl.is
Ólafur þjálfar Årstad
Ólafur Á.
Sveinsson
eychelles-eyjum í fyrsta leik sínum á heimsmeist-
adminton sem fram fer í Kína. Íslendingar höfðu betur
m og unnu, 5:0.
rðu Magnús Ingi Helgason og Snjólaug Jónsdóttir
og Allisen Camile í tveimur lotum, 2:19 og 21:19.
afði betur gegn Steve Malcouzana í einliðaleik karla,
ason og Helgi Jóhannsson sigruðu Kervin Ghislan og
iðaleik, 21:11 og 21:14.
vann Cynthiu Course í einliðaleik, 21:10 og 22:20 og í
ær Ragna Ingólfsdóttir og Snjólaug Jóhannsdóttir
ourse og Allisen Camille, 21:8 og 21:11.
nnudag en mætir Ísrael í dag. Ísraelska liðið er búið
yjum, 0:5. Þá vann Srí Lanka sigur á Seychelles-
n um toppsætin stendur á milli Íslands, Srí Lanka og
fram talin sterkust í riðlinum. vs@mbl.is
rsta leik