Morgunblaðið - 24.05.2011, Síða 4
Leikmenn:
Kristinn Steindórsson, Breiðabliki 6
Guðmundur Steinarsson, Keflavík 5
Haraldur F. Guðmundsson, Keflavík 5
Mark Rutgers, Víkingi 5
Bjarni Guðjónsson, KR 4
Egill Atlason, Víkingi 4
Jesper Holdt Jensen, Stjörnunni 4
Óskar Örn Hauksson, KR 4
Rasmus Christiansen, ÍBV 4
Skúli Jón Friðgeirsson, KR 4
Þórarinn Ingi Valdimarsson, ÍBV 4
Lið:
Breiðablik 27
KR 25
Fylkir 25
ÍBV 24
Stjarnan 24
Valur 20
Keflavík 20
Víkingur R. 20
FH 19
Grindavík 17
Fram 17
Þór 13
Kristinn Steindórsson, Breiðabliki 5
Albert Brynjar Ingason, Fylki 3
Guðjón Pétur Lýðsson,Val 3
Halldór Orri Björnsson, Stjörnunni 3
Kjartan Henry Finnbogason, KR 3
Arnar Gunnlaugsson, Fram 2
Garðar Jóhannsson, Stjörnunni 2
Guðmundur Kristjánsson,Breiðabliki 2
Guðmundur Steinarsson, Keflavík 2
Hilmar Geir Eiðsson, Keflavík 2
Jóhann B. Guðmundsson, Keflavík 2
Óskar Örn Hauksson, KR 2
Tryggvi Guðmundsson, ÍBV 2
Viktor Bjarki Arnarsson, KR 2
Þórarinn Ingi Valdimarsson, ÍBV 2
Þórir Hannesson, Fylki 2
KR (2) 3746 1873
Valur (3) 5187 1729
FH (2) 3309 1655
Breiðablik (3) 4686 1562
Keflavík (3) 3693 1231
Víkingur R. (3) 3597 1199
Fylkir (3) 3581 1194
Þór (1) 1113 1113
Grindavík (2) 2000 1000
Fram (2) 1904 952
Stjarnan (2) 1744 872
ÍBV (3) 2324 775
Samtals: 36.884
Meðaltal: 1.272
5. umferð í Pepsi-deild karla 2011
Einkunnagjöfin
Þessir erumeð flest M í
einkunnagjöf Morgunblaðsins.
Gefið er eitt M fyrir góðan leik,
tvöM fyrir mjög góðan leik og þrjú M
fyrir frábæran leik.
Spjöldin Markskotin
Aðsóknin
Markahæstir
Fjöldi heimaleikja í svigum. Fremri
talan er heildarfjöldi áhorfenda á
heimaleikjum viðkomandi liðs en aftari
talan ermeðaltal á hvern heimaleik.
KR 61 (37) 10
Stjarnan 59 (34) 9
Breiðablik 53 (28) 9
Valur 50 (31) 5
ÍBV 49 (27) 6
FH 47 (23) 6
Fylkir 46 (25) 7
Keflavík 44 (22) 8
Grindavík 41 (20) 4
Víkingur R. 41 (17) 3
Fram 33 (18) 2
Þór 24 (13) 2
Fremst eru heildar markskot liðanna,
skot sem hitta ámarkið eru í sviga og
aftast eru skoruðmörk:
Valur 8 0 8
Þór 8 0 8
Fram 9 0 9
ÍBV 9 1 13
KR 9 1 13
FH 9 1 13
Keflavík 13 0 13
Víkingur R. 13 0 13
Stjarnan 11 1 15
Breiðablik 8 2 16
Grindavík 9 2 17
Fylkir 10 2 18
Gul Rauð Stig
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Efstur Kristinn Steindórsson er markahæstur eftir þrennuna gegn Fylki og
efstur í M-gjöfinni eftir að hafa fengið 3 M fyrir frammistöðu sína.
4 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. MAÍ 2011
Guðmundur E.Stephensen
varð á sunnudag-
inn hollenskur
deildarmeistari í
borðtennis með
liði sínu, Enjoy-
&Deploy, þegar
það vann Wijzen-
beek/Westa, 4:3, í
æsispennandi leik. Guðmundur skil-
aði sínu og vel það því hann vann báða
sína leiki, 3:0, gegn Liu Quiang frá
Kína og Dean Sliepen. Enjoy-
&Deploy mætir Wijzenbeek/Westa í
úrslitaleik um hollenska meistaratit-
ilinn og fer hann fram 2. júní.
Jack Wilshere, miðjumaðurinnknái í liði Arsenal, og Andy Car-
roll, framherjinn stóri og sterki hjá
Liverpool, voru ekki valdir í lokahóp-
inn sem leikur fyrir Englands hönd á
Evrópumóti U21 ára landsliða í
knattspyrnu í Danmörku í næsta
mánuði. Stuart Pearce, þjálfari enska
liðsins, tilkynnti 23 manna hóp sinn í
gær og vakti mesta athygli að þeir
Wilshere og Carroll voru ekki í hópn-
um en bæði Arsenal og Liverpool
höfðu sett sig á móti því að þeir léku
með á mótinu.
Bandarískikylfingurinn
Tiger Woods er
fallinn niður í
tólfta sæti á nýj-
um heimslista í
golfi sem gefinn
var út í gærmorg-
un. Þetta er í
fyrsta sinn sem
Tiger er ekki á topp tíu listanum frá
árinu 1997 en hann hefur átt í miklum
erfiðleikum, fyrst í einkalífinu en
glímir nú við meiðsli í hné. Englend-
ingurinn Lee Westwood heldur efsta
sætinu en landi hans, Luke Donald,
átti möguleika á að velta honum af
stalli með sigri á Volvo-heimsmótinu í
holukeppni á Spáni um helgina en
hann varð að gera sér annað sætið að
góðu. Martyn Kaymer frá Þýskalandi
er síðan þriðji á listanum og Phil Mic-
kelson frá Bandaríkjunum er fjórði.
Stjórn Birmingham City tilkynnti ígær að Alex McLeish verði
áfram knattspyrnustjóri liðsins þrátt
fyrir að liðið hafi fallið úr úrvalsdeild-
inni. Undir stjórn Skotans bar Birm-
ingham sigur úr býtum í deildabik-
arnum og leikur í Evrópudeildinni á
næstu leiktíð en tap gegn Tottenham
í lokaumferð ensku úrvalsdeild-
arinnar varð til þess að liðið féll úr
deildinni. Mark á lokamínútunni
felldi Birmingham en annars hefði
Wolves farið niður í staðinn.
Fólk sport@mbl.is
FÓTBOLTI
Guðmundur Hilmarsson
gummih@mbl.is
Tryggvi Guðmundsson, markahrókurinn mikli úr liði
ÍBV, kinnbeinsbrotnaði og hlaut fleiri sár í andlitið eft-
ir samstuð við Harald Frey Guðmundsson, fyrirliða
Keflavíkur, í leik liðanna í Keflavík í fyrrakvöld.
Tryggvi kemur örugglega til með að missa af næstu
leikjum Eyjamanna en þeir etja kappi við Kjalnesinga
í bikarnum annað kvöld og taka á móti Víkingum í
deildinni um næstu helgi.
„Ég kvarta ekkert. Ég er hress og kátur en ég er
engu að síður kinnbeinsbrotinn og er með sprungu
undir auganu. Kinnbeinið færðist aðeins til og ég þarf
að fara í aðgerð til að láta laga það og fer í hana á
fimmtudaginn,“ sagði Tryggvi við Morgunblaðið.
Stjörnur en ekki heilahristingur
„Þetta var ansi þungt högg. Ég sá stjörnur strax en
fékk ekki heilahristing. Ég fór inn á aftur en það var
ekki fyrr en ég snýtti mér í leikhléinu sem ákvörðun
var tekin um að fara með mig upp á sjúkrahús, því
þegar ég snýtti mér myndaðist stór kúla undir auganu
og þá var ekkert vit í öðru en að fara beint í sneið-
myndatöku. Ég var skoðaður nánar í morgun og þá
fékk ég að vita að ég þyrfti að fara í aðgerð svona upp
á fegurðina í ellinni. Það er víst líf eftir boltann,“ sagði
Tryggvi við Morgunblaðið í gær en hann skoraði fyrra
mark ÍBV sem vann góðan sigur á Keflvíkingum, 2:0.
Nenni þessu ekkert
Spurður hversu lengi hann verði frá keppni sagði
Tryggvi: „Ég veit svo sem ekkert hvað verður eftir
þessa aðgerð en ég nenni þessu ekkert. Ég vil bara
spila því það er svo gaman að spila með ÍBV í dag. Ég
finn ekki fyrir neinum sársauka og væri þess vegna til
í að skella mér á góða æfingu í dag. En maður verður
víst að hlusta á þessa sérfræðinga,“ sagði Tryggvi,
sem hefur nú skorað 118 mörk í efstu deild og vantar
aðeins átta mörk til að jafna markamet Inga Björns
Albertssonar.
Morgunblaðið/Golli
Laskaður Tryggvi Guðmundsson missir af næstu leikjum Eyjamanna vegna höggsins sem hann
fékk á kinnbeinið í fyrrakvöld. Hann segist þó mest langa að fara beint á æfingu hjá liðinu.
„Stór kúla undir auganu
þegar ég snýtti mér“
Tryggvi Guðmundsson er kinnbeinsbrotinn og þarf að fara í aðgerð
Leik Þórs og FH í Pepsi-deild karla
var í gær frestað til mánudagsins 13.
júní. Hann átti að fara fram á sunnu-
daginn en var þá frestað um sólar-
hring þar sem flug til Akureyrar lá
niðri vegna gossins í Grímsvötnum.
Leikurinn átti síðan að fara fram í
gærkvöld en bæði félögin óskuðu
eftir því við KSÍ að leiknum yrði
frestað til 13. júní vegna slæmra
vallarskilyrða á Akureyri.
Þar með fer sá leikur fram í miðju
sumarfríinu í deildinni en hlé er á
keppni að öðru leyti frá 6. júní til 24.
júní vegna úrslitakeppni 21-árs
landsliðanna í Danmörku.
Fyrir vikið er ekki hægt að birta
úrvalslið 5. umferðar hér í Morgun-
blaðinu fyrr en að loknum leiknum á
Akureyri 13. júní. Til hliðar má að
öðru leyti sjá uppgjör á deildinni að
loknum leikjunum fimm í 5. umferð-
inni sem fram fóru í fyrrakvöld.
vs@mbl.is
5. umferð-
inni lýkur
13. júní