Morgunblaðið - 23.06.2011, Page 2

Morgunblaðið - 23.06.2011, Page 2
2 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 2011 Benedikt Guðmundssyni, hinum sigursæla þjálfara körfuboltaliðs Þórs frá Þorláks- höfn, gengur vel að safna liði fyrir átökin í úrvalsdeildinni á næstu leiktíð. Þórsarar eru nýliðar í deildinni eftir sannfærandi sig- ur í 1. deildinni og hafa fengið til sín fjóra leikmenn. Tveir öflugir íslenskir leikmenn gengu til liðs við félagið á dögunum, Guð- mundur Jónsson frá Njarðvík og Darri Hilmarsson frá KR en hann var á láni hjá Hamri á síðustu leiktíð. Benedikt staðfesti við Morgunblaðið í gær að tveir erlendir leikmenn væru á leið- inni til félagsins. Um er að ræða Banda- ríkjamann og Serba. Sá bandaríski heitir Darrin Govens og er leikstjórnandi. Hann lék með St. Josephs- skólanum í há- skólakörfuboltanum á sínum tíma. Sá serb- neski heitir Marko Lat- inovic og er framherji en hann lék með Erskine- skólanum í há- skólakörfuboltanum. Benedikt sló á létta strengi þegar Morg- unblaðið innti hann eftir því í gær hvort um væri að ræða öfluga leik- menn í tilviki Govens og Latinovic. „Allt eru þetta toppmenn áður en þeir koma til landsins,“ svaraði Benedikt. kris@mbl.is Benedikt safnar liði í Þorlákshöfn Benedikt Guðmundsson FRJÁLSAR Sindri Sverrisson sindris@mbl.is „Ég vaknaði með þvílíkan magakrampa og byrjaði bara að æla og æla. Seinni partinn var ég svo mátt- laus að ég gat ekki staðið upp úr rúminu lengur, og ég hélt að ég væri bara að deyja. Ég gat ekki einu sinni komið vatnssopa niður. Þetta var bara alveg hræðilegt.“ Svona lýsir spjótkastarinn Ásdís Hjálmsdóttir, fremsti frjálsíþróttamaður landsins, verstu einkenn- um matareitrunar sem hún fékk þegar hún keppti á móti í Marokkó í byrjun mánaðarins. Ásdís hefur síðan keppt á tveimur mótum, á Ítalíu og svo í Evr- ópubikarnum í Laugardalnum um helgina, en finnur enn fyrir eftirköstum matareitrunarinnar sem hefur því haft áhrif á hana í þremur mótum og sett keppn- istímabilið úr skorðum. Keppnistímabil sem Íslands- methafinn hóf í sennilega sínu besta formi. Sleppir móti í Þýskalandi um næstu helgi „Þetta er hrikalega svekkjandi. Þetta tók al- gjörlega kraft úr mér og í raun hefur þessi mat- areitrun eyðilagt síðustu þrjú mót fyrir mér. Þessi matareitrun og það sem henni fylgir hefur setið í mér lengur en ég bjóst við. Ég er búin að fá svimaköst, höfuðverkjaköst og finna fyrir ógleði á hverjum einasta degi,“ sagði Ásdís sem hefur geng- ist undir ýmiss konar rannsóknir hjá læknum í vik- unni og er bjartsýn á að hún braggist sem fyrst. Ás- dís hefur þó þegar ákveðið að sleppa móti í Þýskalandi um næstu helgi. „Mér finnst ég vera að fá kraftinn aftur og reyni bara að taka léttar æfingar og næra mig vel. Mat- arlystin er kannski minni en venjulega en samt örugglega meiri en hjá venjulegu fólki,“ sagði Ásdís létt. Flökurt í atrennunni „Mér fannst þetta vera að lagast mjög hratt fyrir mótið á Ítalíu [10. júní] þó ég væri ekki með alveg fullan kraft þar, en svo þegar ég kom heim þá hélt þetta bara áfram með ógleði og svimaköstum. Þegar ég keppti um helgina varð mér bara flökurt í atrenn- unni og svimaði mikið. Í gær var hins vegar fyrsti dagurinn þar sem ég fékk ekkert kast þannig að vonandi er þetta að lagast,“ bætti hún við. Ásdís var sem kunnugt er eini fulltrúi Íslands á Demantamótaröðinni síðasta sumar en hefur ekki fengið boð um að koma á Demantamót í ár enda lengst kastað 58,36 metra en Íslandsmet hennar er 61,37 metrar. Þá vantar hana enn upp á að ná lág- marki fyrir heimsmeistaramótið í Suður-Kóreu í lok ágúst, en þar líkt og fyrir Ólympíuleikana í London á næsta ári er lágmarkið 59 metrar. Stefnir á HM-lágmarkið og ÓL um leið „Ég er í smápásu núna til að ná mér bara góðri og ætla svo að sjá til hvaða mót ég fer á. Stefnan er að ná HM-lágmarkinu og ólympíulágmarkinu um leið sem allra fyrst og ég á að gera það miðað við formið sem ég er í. Ég hef tíma fram í miðjan ágúst fyrir HM og hef ekki áhyggjur af þessu lágmarki því ef ég er fullfrísk er ekkert mál fyrir mig að ná því. Ég þarf náttúrlega að kasta lengra til að tryggja mér þátttöku á Demantamótum og ætlunin var að koma mér inn á Demantamót með kasti í einhverju af þessum síðustu þremur mótum. Ég þarf því enn að sanna mig til að komast inn á næsta Demantamót sem er í kringum 9. júlí. Það væri því gott að ná öðru móti í byrjun júlí til að koma mér þangað,“ sagði Ásdís. Morgunblaðið/Ernir Kastar Ásdís Hjálmsdóttir í Evrópubikarnum á Laugardalsvellinum um síðustu helgi. Hún vann öruggan sigur en var nokkuð frá sínu besta. „Hélt ég væri að deyja“  Ásdís Hjálmsdóttir spjótkastari fékk heiftarlega matareitrun í Marokkó  Veik- indin hafa haft áhrif á hana í undanförnum mótum og sett tímabilið úr skorðum Dregið var í 8-liða úrslit Valitor-bikarsins í knatt- spyrnu í höfuðstöðum KSÍ í hádeginu í gær. Ekki liggur þó alveg fyrir hvaða lið mætast því tveir síð- ustu leikir 16-liða úrslitanna fara fram í kvöld. Tvö 1. deildarlið eru komin áfram í 8-liða úrslit og það þriðja, BÍ/Bolungarvík, á eftir að spila í 16-liða úr- slitum. Fjölnir fékk heimaleik gegn ÍBV en Fjölnismenn hafa heldur betur látið til sín taka í bikarnum á umliðnum árum. Fjölnir fór í bikarúrslit tvö ár í röð og í fyrra skiptið, 2007, sem 1. deildarlið. „Það eru nokkrir enn í liðinu sem prófuðu þetta á sínum tíma og vita um hvað þetta snýst. Þeir vita eftir hverju er að slægjast og vissulega getur það hjálp- að til,“ sagði Ásmundur við Morgunblaðið í gær en benti á að gamlir sigurleikir hjálpuðu lítið í þess- heimaleik. Ein að mínu mati a því von á skem Grafarvoginum ÍBV er annað af bestu liðu Ásmundur Arnarsson 3. deild karla A KFG – KB ..................................................1:4 Staðan: Augnablik 6 4 1 1 23:9 13 Víðir 5 4 1 0 16:6 13 KB 6 4 0 2 20:5 12 Markaregn 5 2 1 2 15:15 7 KFG 6 2 1 3 14:15 7 Vængir Júpíters 5 2 1 2 9:10 7 Þróttur V. 6 1 1 4 10:20 4 Stál-úlfur 5 0 0 5 10:37 0 3. deild karla C Kári – Skallagrímur ..................................3:1 Ísbjörninn – Björninn...............................3:4 Staðan: Álftanes 5 5 0 0 24:6 15 Grundarfjörður 5 4 1 0 16:3 13 Kári 6 4 1 1 20:8 13 Berserkir 5 3 0 2 18:6 9 Björninn 6 2 1 3 17:15 7 Skallagr. 6 2 1 3 16:19 7 Afríka 5 0 0 5 9:35 0 Ísbjörninn 6 0 0 6 5:33 0 3. deild karla D Magni – Draupnir......................................0:0 Sindri – Leiknir F. ....................................1:0 Huginn – Einherji .....................................3:1 Staðan: Sindri 6 5 1 0 20:2 16 Magni 6 4 1 1 17:6 13 Leiknir F. 6 2 1 3 10:10 7 Einherji 6 1 3 2 11:16 6 Huginn 6 2 0 4 8:13 6 Draupnir 6 0 2 4 6:25 2 1. deild kvenna A FH – Keflavík ............................................3:2 Staðan: FH 4 4 0 0 23:5 12 HK/Víkingur 5 4 0 1 12:7 12 Keflavík 4 3 0 1 13:6 9 Sindri 3 2 0 1 7:12 6 Fjarðab./Leikn. 3 0 0 3 3:10 0 Álftanes 3 0 0 3 0:7 0 Höttur 4 0 0 4 3:14 0 1. deild kvenna B Selfoss – Fram...........................................3:1 Staðan: Selfoss 5 5 0 0 9:1 15 Haukar 4 3 0 1 9:1 9 Fjölnir 4 3 0 1 10:5 9 Völsungur 4 2 0 2 8:6 6 Tindastóll 5 1 1 3 2:13 4 Fram 5 0 1 4 3:12 1 ÍR 3 0 0 3 1:4 0 Úrslitakeppni EM U21 karla Undanúrslit: Spánn – Hvíta-Rússland ..........................3:1 Adrián Lopez 89., 105., Jeffren Suárez 113. – Andrei Voronkov 38.  Eftir framlengingu. Sviss – Tékkland.......................................1:0 Admir Mehmedi 114.  Eftir framlengingu.  Spánn og Sviss mætast í úrslitaleik á laugardag en Hvíta-Rússland og Tékkland leika um 3. sætið og keppnisrétt á ÓL 2012. Noregur Bikarkeppnin, 16 liða úrslit: Brann – Sogndal .......................................2:2  Brann áfram 5:4 eftir vítaspyrnukeppni.  Birkir Már Sævarsson spilaði allan leik- inn fyrir Brann. Haugesund – Viking ................................2:3  Eftir framlengingu.  Indriði Sigurðsson og Birkir Bjarnason spiluðu báðir allan leikinn fyrir Viking. Rosenborg – Lilleström...........................2:2  Björn Bergmann Sigurðarson spilaði all- an leikinn og skoraði bæði mörk Lille- ström. Stefán Gíslason og Stefán Logi Magnússon spiluðu einnig allan leikinn fyr- ir Lilleström.  Rosenborg áfram 6:3 eftir vítaspyrnu- keppni. Molde – Hönefoss......................................3:1  Kristján Örn Sigurðsson var í byrjunar- liði Hönefoss og spilaði allan leikinn. Aalesund – Sarpsborg...............................3:0 Alta – Tromsö ............................................1:0 Odd Grenland – Fredrikstad ...................1:2 Start – Strömsgodset................................1:0 B-DEILD: Asker – Kongsvinger ...............................2:1  Atli Heimisson var ekki í leikmannahópi Asker vegna meiðsla. Svíþjóð A-DEILD KARLA: IFK Gautaborg – Elfsborg ......................1:1  Ragnar Sigurðsson, Hjálmar Jónsson, og Theódór Elmar Bjarnason spiluðu allan leikinn fyrir Gautaborg. Hjörtur Logi Val- garðsson var á meðal varamanna og kom ekki við sögu í leiknum. AIK – Norrköping ...................................3:0  Helgi Valur Daníelsson spilaði allan leik- inn fyrir AIK.  Gunnar Heiðar Þorvaldsson var ekki í leikmannahópi Norrköping vegna meiðsla. Staða efstu liða: Elfsborg 13 7 2 4 21:14 23 Helsingborg 11 6 4 1 13:6 22 Örebro 12 6 2 4 18:13 20 AIK 12 6 2 4 16:11 20 B-DEILD KARLA: Ängelholm – Värnamo.............................1:1  Heiðar Geir Júlíusson var í byrjunarlið- inu hjá Ängelholm en fékk að líta rauða spjaldið á 87. mínútu. KNATTSPYRNA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.