Morgunblaðið - 08.07.2011, Blaðsíða 4
„Við erum
með betra lið
en í fyrra“
1. DEILDIN
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
„Við erum vel stemmdir og það er
gott sjálfstraust í liðinu. Nú eru
komnir sex sigrar í röð og við höld-
um áfram að einbeita okkur að ein-
um leik í einu,“ sagði Viðar Örn
Kjartansson, framherji Selfyssinga,
sem skoraði bæði mörk þeirra í
gærkvöld þegar þeir lögðu ÍR, 2:1,
í 1. deildinni í fótbolta á Selfoss-
velli.
Selfoss er nú þremur stigum á
eftir toppliði Skagamanna, sem
sækir KA heim í kvöld, og fimm
stigum á undan Þrótturum sem eru
í þriðja sæti eftir 2:1 sigur á Hauk-
um.
Viðar Örn hefur nú skorað 8
mörk í fyrstu 10 leikjum Selfyss-
inga í deildinni. Hann sagði að leik-
urinn hefði verið erfiður.
„Við áttum fyrri hálfleikinn
skuldlaust og ég hefði átt að skora
meira en eitt mark. En eftir að við
komumst í 2:0 svöruðu þeir um hæl
og komu þá tvíefldir inn í leikinn.
Eftir það vorum við hálflamaðir en
náðum að halda út og hirða stigin,
sem skiptir öllu máli,“ sagði Viðar
við Morgunblaðið. Það var Brynjar
Benediktsson sem minnkaði mun-
inn fyrir ÍR á 69. mínútu.
Hann er á því að Selfoss sé með
betra lið í ár en í fyrra þegar það
féll úr úrvalsdeildinni í frumraun
sinni þar. „Já, mér finnst það og
strákarnir hafa talað um það. Liðið
er öðruvísi byggt upp, við erum
með marga nýja menn, en liðið er
sterkara að mínu mati. Áherslurnar
eru líka á hreinu, við byrjum á að
vinna baráttuna í leikjunum, förum
síðan að spila fótbolta, og við erum
góðir í honum,“ sagði Viðar Örn
ennfremur.
Taplausir hjá Ragnari
HK gerði sitt þriðja 1:1 jafntefli í
röð og er því taplaust í deildinni
eftir að Ragnar Gíslason tók við
sem þjálfari – en situr samt áfram
í botnsætinu og er án sigurs. Fjöln-
ir var í heimsókn í Kópavogi og
komst yfir með marki Guðmundar
Karls Guðmundssonar. Hólmbert
Aron Friðjónsson jafnaði fyrir HK
beint úr aukaspyrnu á lokasek-
úndum fyrri hálfleiks.
Samúel Arnar Kjartansson hjá
HK var rekinn af velli 10 mínútum
fyrir leikslok en Fjölnismenn náðu
ekki að færa sér liðsmuninn í nyt.
Grótta í fínni stöðu
Leiknismenn eru líka án sigurs í
fyrstu 10 leikjunum og útlitið er
orðið jafndökkt hjá þeim og HK.
Þeir tóku á móti Gróttu og töpuðu
1:2, þannig að Seltirningar eru
komnir í fína stöðu um miðja deild
en flestir spáðu þeim falli fyrir
mót.
Andri Björn Sigurðsson og Sölvi
Davíðsson komu Gróttu í 2:0 í
seinni hálfleik. Fannar Þór Arn-
arsson minnkaði muninn fyrir
Leikni og síðan átti Pape Mamedou
Faye tvö skot í þverslána á marki
Gróttu á lokamínútunum.
Fimmtánda mark Sveinbjörns
Þróttarar lögðu Hauka 2:1 á Val-
bjarnarvelli í leik þar sem allt
gerðist á skömmum tíma í fyrri
hálfleik. Grétar Atli Grétarsson
kom Haukum yfir og þá meiddist
Trausti Sveinbjörnsson, markvörð-
ur Þróttara, og þurfti að fara af
velli. En þeir svöruðu fyrir hlé með
tveimur mörkum á tveimur mín-
útum. Sveinbjörn Jónasson jafnaði
úr vítaspyrnu, skoraði sitt 15. mark
á tímabilinu í deild og bikar, og
Jens Sævarsson skoraði í kjölfarið
eftir sendingu Guðfinns Ómars-
sonar. Það reyndist sigurmarkið,
Haukar sóttu mjög í seinni hálfleik
en sköpuðu sér nær engin færi til
að jafna.
Viðar Örn Kjartansson skoraði bæði
mörk Selfoss sem vann sjötta leikinn í
röð Þróttarar í þriðja sætið HK og
Leiknir R. eru enn án sigurs
Morgunblaðið/Ernir
Návígi Hilmar Trausti Arnarsson, fyrirliði Hauka, og Þróttarinn Oddur Björnsson eigast við í leik liðanna á Val-
bjarnarvelli í gærkvöld. Þróttarar höfðu betur og eru í þriðja sæti deildarinnar, fimm stigum á eftir Selfyssingum.
Leikmenn:
Kristinn Steindórsson, Breiðabliki 10
Albert Brynjar Ingason, Fylki 7
Grétar S. Sigurðarson, KR 7
Guðjón Pétur Lýðsson,Val 7
Guðmundur Steinarsson, Keflavík 7
Halldór Orri Björnsson, Stjörnunni 7
Haukur Páll Sigurðsson, Val 7
Jesper Holdt Jensen, Stjörnunni 7
Atli Sveinn Þórarinsson, Val 6
Christian Mouritsen, Val 6
Guðmundur R. Gunnarsson, KR 6
Guðmundur Kristjánsson, Breiðabliki 6
Haraldur F. Guðmundsson, Keflavík 6
Mark Rutgers, Víkingi 6
Matthías Vilhjálmsson, FH 6
Srdjan Rajkovic, Þór 6
Þórarinn Ingi Valdimarsson, ÍBV 6
Tryggvi Guðmundsson, ÍBV 6
Lið:
Valur 46
KR 45
FH 45
Stjarnan 44
Fylkir 44
Breiðablik 44
ÍBV 39
Keflavík 35
Þór 34
Víkingur R. 32
Grindavík 29
Fram 29
Kristinn Steindórsson, Breiðabliki 8
Albert Brynjar Ingason, Fylki 5
Atli Viðar Björnsson, FH 5
Guðjón Pétur Lýðsson,Val 5
Halldór Orri Björnsson, Stjörnunni 5
Kjartan Henry Finnbogason, KR 5
Arnar Gunnlaugsson, Fram 4
Garðar Jóhannsson, Stjörnunni 4
Ingimundur Níels Óskarsson, Fylki 4
Matthías Vilhjálmsson, FH 4
Guðmundur Kristjánsson, Breiðabl. 3
Hannes Þ. Sigurðsson, FH 3
Hilmar Geir Emilsson, Keflavík 3
Ian Jeffs, ÍBV 3
Jóhann B. Guðmundsson, Keflavík 3
Sveinn Elías Jónsson, Þór 3
Tryggvi Guðmundsson, ÍBV 3
Viktor Bjarki Arnarsson, KR 3
KR (3) 6245 2082
FH (4) 6787 1697
Valur (5) 7145 1429
Breiðablik (5) 6482 1296
Fylkir (5) 6164 1233
Víkingur R. (5) 6109 1222
Fram (4) 4522 1131
Keflavík (5) 5135 1027
Þór (4) 3786 947
Grindavík (4) 3490 873
ÍBV (5) 4196 839
Stjarnan (4) 3160 790
Samtals: 63.423
Meðaltal: 1.197
9. umferð í Pepsi-deild karla 2011
Einkunnagjöfin
Þessir erumeð flest M í
einkunnagjöf Morgunblaðsins.
Gefið er eitt M fyrir góðan leik,
tvöM fyrir mjög góðan leik og þrjú M
fyrir frábæran leik.
Spjöldin Markskotin
Aðsóknin
Markahæstir
Fjöldi heimaleikja í svigum. Fremri
talan er heildarfjöldi áhorfenda á
heimaleikjum viðkomandi liðs en aftari
talan ermeðaltal á hvern heimaleik.
FH 124 (59) 20
Valur 104 (65) 14
KR 101 (55) 17
Stjarnan 100 (56) 16
ÍBV 93 (52) 11
Fylkir 93 (49) 14
Breiðablik 82 (46) 12
Grindavík 82 (42) 11
Víkingur R. 79 (37) 7
Keflavík 78 (39) 11
Þór 76 (38) 8
Fram 66 (71) 5
Fremst eru heildar markskot liðanna,
skot sem hitta ámarkið eru í sviga og
aftast eru skoruðmörk:
Valur 10 1 14
KR 12 1 16
Fram 16 0 16
Víkingur R. 19 0 19
ÍBV 16 1 20
Breiðablik 13 2 21
Keflavík 22 0 22
Grindavík 15 2 23
Stjarnan 19 1 23
Fylkir 17 2 25
Þór 21 1 25
FH 19 2 27
Gul Rauð Stig
Valsmenn skutust ekki bara á topp
Pepsi-deildar karla í fótboltanum í
fyrrakvöld. Eftir sigurinn á Þór
fyrir norðan, 3:0, eru þeir líka það
lið sem hefur fengið flest M í ein-
kunnagjöf Morgunblaðsins, einu
meira en KR-ingar. Hafa ber þó í
huga að KR á leik til góða gegn ÍBV
og þyrfti ekki mikið til að komast í
efsta sætið á þessum lista.
Kristinn Steindórsson er áfram
með þrjú M í forskot í einkunna-
gjöfinni, enda þótt hann hefði ekki
uppskorið neitt slíkt fyrir frammi-
stöðu sína gegn Víkingi í fyrra-
kvöld. Næstu menn bættu ekki
heldur við sig en nú eru sjö leik-
menn jafnir í öðru sætinu með 7 M
samtals hver.
Kristinn er jafnframt með
örugga forystu í baráttunni um
markakóngstitil deildarinnar og er
með þremur mörkum meira en
fimm næstu menn. Þar skaust FH-
ingurinn Atli Viðar Björnsson uppí
2.-6. sætið með þrennunni gegn
Grindavík.
Viðureign KR og ÍBV var frestað
vegna Evrópuleikja liðanna og því
verður úrvalslið 9. umferðar ekki
birt fyrr en sá leikur hefur farið
fram.
Eins og sjá má hér til hliðar hafa
FH-ingar átt flest skot að marki en
Framarar fæst. Valsmenn eru
prúðasta lið deildarinnar til þessa
en FH er hinsvegar á botninum í
háttvísideildinni. vs@mbl.is
Valur líka
á toppi
M-deildar
4 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 2011
Morgunblaðið/Eggert
Efstur Tveir Víkingar reyna að stöðva Kristin Steindórsson í leiknum í fyrrakvöld.