Morgunblaðið - 11.07.2011, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. JÚLÍ 2011
Sérsmíðaðir
hnakkar
15. til 20. júlí verða hér í heimsókn
enskir söðlasmiðir. Þeir taka mát af
hestum sem þurfa sérsmíðaða hnakka.
Uppl. veittar í s. 566 8045 og 698 5799
Netfang: valditryggva@simnet.is
VIÐTAL
Gunnþórunn Jónsdóttir
gunnthorunn@mbl.is
Ridley Scott, leikstjóri og framleiðandi, er staddur
á landinu og er að taka upp nýjustu kvikmynd sína
Prometheus. Blaðamaður hitti hann í miðbæ
Reykjavíkur og spjallaði við hann um væntanlega
stórmynd hans. Drunur í loftræstikerfi fund-
arherbergisins minntu á geimskipið í hinni sögu-
frægu kvikmynd Alien, sem var skemmtilega við-
eigandi, þar sem Prometheus hafði verið nefnd
undanfari að Alien. Ridley Scott gekk inn, ásamt
Mark Huffam, framleiðanda myndarinnar, og við-
talið hófst.
Ekki er langt síðan ákveðið var að taka upp atriði
í kvikmyndinni á Íslandi og sagði Ridley að aðrir
möguleikar hafi staðið til boða. Ísland hafi þó af-
burða fallega náttúru að geyma. „Það er hægt að fá
þetta umhverfi annarsstaðar, til dæmis í Kali-
forníu, í Mahaví-eyðimörkinni, en þessi staður er
mun frumstæðari og villtari, finnst mér. Náttúran
hér hefur ákveðinn karakter og mér líkar vel við
svarta grjótið og auðnina. Þetta var betri valkostur.
Að vera hér er stórkostlegt, virkilega stórkostlegt,“
sagði Ridley. „Það sem ég hef fundið hér á landi er
svakaleg fegurð. Þetta er nákvæmlega það sem ég
vildi fá frá byrjun“. Atriðið sem tekið er hér á landi
birtist meðal annars í byrjun myndarinnar og á að
vera frá upphafi heimsins. Tökur fara fram á Suð-
urlandinu, nálægt Heklu, og starfa þar rúmlega 200
manns, þar af um 100 Íslendingar. Þörfin á vinnu-
afli fyrir svona stórmynd er jafnan mikil enda
margt sem þarf að gera. Ridley segir fréttir af
hugsanlegu gosi ekki hafa haft nein áhrif á sig og
sér hafi langt í frá verið brugðið við upplýsing-
arnar. „Nei, þegar menn eru í vinnu eins og minni
er ekkert sem kemur manni úr jafnvægi. Það er
bara partur af ferlinum.“
Verkfræðingar geimsins
Myndin kemur til með að vera þung og fremur
viðbjóðsleg, það má líklega bera saman við Alien,
og fjallar um guði og verkfræðinga, verkfræðinga
geimsins. Myndin kannar uppruna óþekktra vera,
það er geimvera, sem aðeins birtust örstutt í áð-
urnefndri mynd, Alien, sem flugmaður geimskips-
ins. Ridley staðfesti við blaðamann að samvinna
hans við hinn svissneska hönnuð Hans Rudolf Gi-
ger eða HR Giger komi til með að halda áfram að
einhverju leyti, en Giger hannaði ýmsar sjónrænar
brellur og fleira í Alien. „Við vorum í góðu sam-
bandi við Giger í mörg ár. Við sýndum honum
handritið að myndinni og honum leist vel á það.
Hann ætlar að vinna svolítið fyrir mig með þessa
mynd og hefur verið að vinna að stóru verkefni sem
kemur í myndinni“.
Undanfari þrjátíu árum síðar
Tökur á myndinni hófust í mars á þessu ári og
áætlað er að hún komi út í júní árið 2012. Myndinni
var upphaflega ætlað að verða nokkurs konar und-
anfari Alien sem Ridley Scott leikstýrði og kom út
árið 1979. Hins vegar þróaðist myndin út í það að
verða sjálfstæð mynd um uppruna geimvera. Sjálf-
ur segist Ridley ekki tengja myndina beint við Al-
ien en í lok þriðju senu myndarinnar muni áhorf-
andi átta sig fljótlega á því að Prometheus á sér
smávægilegan skyldleika með henni. „Ég gæti sagt
þér hvernig atriðið lýsir sér en það væri synd. En
við förum aftur í tímann, ekki áfram“.
Margir velta því eflaust fyrir sér hvers
vegna meintur undanfari gömlu Alien sé að
skjóta upp kollinum núna, rúmum þrjátíu
árum síðar. „Ég hef verið upptekinn við að
gera aðrar kvikmyndir,“ sagði leikstjórinn
og hló. „Ég hef oft hugsað um það. Ég
kunni að meta Black Hawk Down, Gladia-
tor, Hannibal og þessar myndir en
vísindaskáldskapurinn er mun
víðsýnni. Það er líka fáránlegt að
halda að við séum ein í heim-
inum. En þróun þessarar teg-
undar kvikmynda varð að
stórri sprengju, alveg eins og
vampírumyndir, þær urðu að
einhverri tískusprengju. Og
það sem er stórfurðulegt er að
alltaf virðast menn sækja í
meira af þessu tagi,“ sagði Ridley og bætti við:
„Ekki meira vampírudót“.
Stórar stjörnur til landsins
Leikarar í myndinni eru ekki af verri endanum
og ber þá hæst að nefna Noomi Rapace sem tækl-
aði hlutverk sitt í sænsku trílógíunni um pönkarast-
úlkuna eftir Stieg Larson með eindæmum vel. Rid-
ley kom fyrst auga á hana í fyrstu mynd
trílógíunnar, Stúlkan sem lék sér að eldinum. Hann
sagði sjálfan sig hafa gapað yfir henni og vildi fá að
vita hver hún væri. „Þetta er stelpan sem mun leika
í Prometheus, hugsaði ég með mér. Ég hitti hana í
Los Angeles og sá að hún var þessi glæsilega kona
og algjör andstæða við pönkara“. Hann var því
sannfærður um að þarna væri á ferðinni ekta leik-
kona. Aðspurður hvort hún sé nokkurskonar arf-
taki Sigourney Weaver sem fór með aðalhlutverk í
Alien vildi hann meina að um væri að ræða mjög
ólíkar konur. „Noomi er mun hviklyndari. Hún hef-
ur þennan eldmóð í sér, virkilega ástríðufull.“ Aðrir
leikarar eru Charlize Theron, Michael Fassbender,
Idris Elba, Guy Pierce, Logan Marshall-Green,
Kate Dickie og Sean Harris. Ridley sagði að von
væri á nokkrum þeirra til landsins, meðal annars
Noomi, Charlize, Michael, Idris og Logan.
Kostnaðurinn leyndarmál
Aðspurður hversu mikið fjármagn fari í kvik-
myndina var Ridley ekki gjarn á að gefa upp neina
upphæð. En miðað við stór nöfn leikara og það að
upptakan hér á landi eigi aðeins eftir að birtast í um
12-15 mínútur af allri kvikmyndinni er ljóst að tals-
verður kostnaður fari í framleiðslu hennar. Það
kostar sitt að ferja allt fylgdarliðið hingað til lands,
hvað þá aðeins fyrir svo stuttan tíma í kvikmynd-
inni. Ridley var sniðugur þegar umræðan fór út í
fjármagn og sagði: „Það kemur þér ekki við,“ og
hló.
Framleiðendur Prometheus vildu koma á fram-
færi þakklæti sínu til Rangárþings Eystra og
Rangárþings Ytra. Einnig til True North umboðs-
ins, Samtaka ferðaþjónustunnar á Íslandi, iðn-
aðarráðuneytis, umhverfisráðuneytis, þjóðgarði
Vatnajökuls og hóteleigenda.
Morgunblaðið/RAX
Auðn Kvikmyndaver Ridley Scott er á Suðurlandi, nálægt Heklu, og starfa þar rúmlega 200 manns. Föruneytið stoppar í tvær vikur hér á landi og heldur svo aftur út í heim.
Uppruni geimvera á Íslandi
Einn helsti leikstjóri heims tekur upp kvikmynd sína Prometheus að hluta til á Íslandi
Var upprunalega undanfari Alien Kvikmyndabúðirnar á Suðurlandi en stutt verður stoppað
Herra Ridley Scott leikstjóri
fæddist 30. nóvember árið
1937.
Ridley Scott hefur leikstýrt
ófáum myndum í gegnum tíð-
ina. Árið 1979 leikstýrði hann
hrollvekjunni Alien, sem er
ákveðið barn síns tíma. Ridley
Scott hefur einnig leikstýrt
myndum á borð við Gladiator,
Black Hawk Down, Hannibal,
Kingdom of Heaven, American
Gangster, Body of Lies og Robin
Hood. Hann hefur verið til-
nefndur til þrennra Academy-
verðlauna fyrir leikstjórn en
einnig til Golden Globe-
verðlauna og Emmy-
verðlauna. Hann hefur
þrisvar sinnum unnið til
bresku Academy-verð-
launanna fyrir myndina
Blade Runner. Hann
var sæmdur
riddarakrossi árið
2003 og kemur til
með að fá stjörnu
á götuna „Holly-
wood Walk of
Fame“ í Holly-
wood.
Ridley Scott
hefur komið
víða við
HÆFILEIKARÍKUR
Ridley Scott