Austurland - 14.10.1955, Blaðsíða 2
2
AUSTURLAND
Neskaupstað, 14. október 1955.
Aiisturland
Málgagn sósíalista á Austur-
landi.
Kemur út einu sinni i viku.
Ritst jóri:
Bjarni Þórðarson.
Lausasala kr. 1.25.
Árgangurinn kostar kr. 45.00.
Gjalddagi 1. apríl.
Nesprent h. f.
Svik ríkisstjórnar-
innar í húsnæðis-
málunum
Ríkisstjórnin, talsmenn hennar
og blöð hafa básúnað út um
byggðir landsins hvílíkt afrek hún
hefði unnið í húsnæðismálunum.
Og afrekið var lagasetning þar
sem svo er fyrir mælt, að til bygg-
ingar íbúðarhúsa skyldi lána 100
millj. kr. á ári. Og vissulega hefði
hér verið um stórmerka lagasetn-
ingu að ræða, ef efndirnar væru
eitthvað í stíl við loforðin.
En nú er það komiið á daginn,
að allt er þetta skrum eitt. Allt
sumarið, sem er bezti byggingar-
tíminn, er látið líða hjá án þess
að nokkuð sé aðhafzt. Loks þegar
líða fer að hausti, er auglýst eftir
umsóknum um lán og var umsókn-
arfrestur til 1. okt. og nú, þegar
farið er að nálgast veturnætur, er
ekkert farið að lana úr þessu
marglofaða lánakerfi. Það er því
sýnilegt, að lítið verður byggt fyr-
ir fé úr þessum sjóði á þessu áei.
En eins og áður er sagt var 100
millj. kr. heitið.
Það hefur koinið á daginn, að
húsnæðismálastjórn hefur aðeins
10 millj. en ekki 100 millj. kr. til
r áðstöfunar til bygginga í ár og
annað eins næsta ár.
Um 3000 umsóknir bárust um
byggingalán. Samkvæmt lögun-
um er gert ráð fyrir að veita 70
þús. kr. lán út á hverja íbúð. Ættu
því 150, eða einn umsækjandi af
hverjum 20, að geta gert sér von
um úrlausn, en ef farið hefði ver-
ið að lögunum, áttu nær 1500 að
fá lán, eða annar hver umsækj-
andi.
Fjölda margir menn hafa í því
trausti, að mark væri takandi á
ríkisstjórninni, hafið byggingar-
framkvæmdir og mörgum hefur
verið gefið vilyrði fyrir lánum.
T. d. er sagt, að Hannes félags-
fræðingur hafi heitið ekki svo fá-
um kjósendum í Kópavogi lánumi,
í kosningabaráttunni í haust.
Mikill fjöldi manna er svikinn
af ríkisstjórninni í Jjessu máli og
U nglinga vinn an
í sumar
Eins Jg áður hefur verið frú
skýrt, hélt bærinn uppi talsverðri
unglingavinnu í sumar. Er það í
fyrsta skipti, sem skipulögð ung-
lingavinna hefur átt sér stað hér
í bæ.
Það margir unglingar sóttu
vinnu þessa, að nauðsynlegt reynd-
ist að skipta vinnunni þannig, að
hver þeirra um sig átti kost á að
vinna í tvær vikur af þrem.
Mjög var það misjafnt hvernig
drengirnir sóttu þessa vinnu. Sum-
ir byrjuðu seint, voru oft í ann-
arri vinnu fyrst. Aðrir hættu
snemma af einhverjum ástæðum,
fóru t. d. í aðra vinnu. Einhverjir
hafa misst eitthvað úr sakir las-
leika.
Vinnan tók yfir 10 vikna skeið.
Enginn dagur féll úr vegna ill-
viöra, en tvívegis var hætt að
vinna vegna mikilla hita. Dagleg-
ur vinnutími var einni stund
skemmri en fullorðinna og viku-
kaup kr. 363.88.
Alls tóku 20 drengir á aldrinum
12—14 ára þátt í vinnunni. Allir
saman unnu þeir fyrir kr. 36.146.
78, eða kr. 1.807.29 til jafnaðar.
Kaup þeirra var mjög misjafnt,
icr. 595.47 til kr. 2.840.13. Sá sem
liæst komst sleppti engri vinnu-
stund, sem hann átti kost á og
forfallaðist aldrei.
Margir drengjanna, e. t. v. flest-
ir, hafa haft einhverja vinnu með
bæjarvinnunni, t. d. þá vikuna,
sem þeir fengu þar ekki vinnu.
Verkstjóri var Gunnar Ólafs-
son, skólastjóri, nema síðustu vik-
una Eyþór Þórðarson, kennari.
Það, semi drengirnir einkum
unnu að var bygging vatnsgeym-
ís, vegagerð og vegabætur, skolp-
veita frá sjúkrahúsinu og skurð-
gröftur við kirkjugarðinn til
þurrkunar hans. Hafa þeir komið
íurðu miklu í verk, enda búið við
ágæta verkstjórn.
Margir mundu hafa lent í vand-
ræðum með að finna hæfileg við-
hafa beinlínis orðið fyrir tjóni.
Ætti þetta að vera mönnum á-
minning um að gleypa ekki við
öllu skrumi ríkisstjórnarinnar um
ráðgerðar stórframkvæmdir.
En þeir, sem hugsað liafa til
bygginga, eiga siðferðilega kröfu
á hendur stjórnarinnar um að
hún standi við loforðin. Þessir
menn eiga að heimta af ríkis-
stjórninni, að hún tryggi 100 millj.
kr. lán til húsabygginga á ári,
eins og hún hefur heitið. Kosning-
ar eru ekki mjög langt undan og
á þvi stjórnin óhægt um vik að
standa á móti kröfumi um að hún
efni skýlaus loforð sín og fram-
kvæmi lög þau, er hún hefur sett
og auglýst sem mikið afrek.
fangsefni fyrir drengina í sumar,
ef bærinn hefði ekki tekið upp
þessa nýbreytni. Það er ekki ein-
göngu, að drengirnir hafi getað
aflað sér nokkurra tekna, heldur
hefur vinnan einnig — og það er
miklu þýðingarmeira — haidið
drengjunum frá göturápi og
strákapörum, en hætt er við að
athafnaþráin brjótist út í óknytt-
um, ef henni fæst ekki svalað á
beilbrigðan hátt.
Síðan unglingavinna bæjarins
hætti, hefur verið talsvert um
vinnu fyrir drengi, einkum línu-
vinna og fiskvinna. Það má því
telja, að sumarið í sumar hafi
fært unglingum bæjarins viðun-
andi viðfangsefni í hagnýtu starfi.
Auk þessara 20 drengja, hefur
bærinn haft í vinnu sumarlangt
allmarga drengi á aldrinum 14—
16 ára og nokkra pilta sem sækja
æðri skóla og þarfnast þess, að
hafa viðunandi sumarvinnu, því
oft eru efni af skornum skammti
til að sækja skóla vetur eftir vet-
ur.
Sjálfsagt virðist að halda ung-
lingavinnu uppi framvegis, eigi
unglingarnir iekki kost á vinnu við
framleiðslustörf. Það er illt að
þurfa að kasta á glæ vinnuafli
unglinganna, sem vissulega er
verðmætt, og stuðla þannig að því,
að þeir leiðist út í miður hollar
athafnir.
Hér í blaðinu hefur áður verið
frá því skýrt, að Austfirðingur
h. f. hefði á prjónunum áform um
togarakaup og að ráðgert væri að
Djúpivogur og Stöðyarfjörður
yrðu aðilar að þeim skipakaupum.
Togari Keflavíkurbæjar, Kefl-
víkingur, hefur legið aðgerðarlaus
í Reykjavíkurhöfn mestan hluta
ársins og er til sölu, því Keflvík-
ingar hafa gefizt upp á útgerð
hans. Hugkvæmdist nú forráða-
mönnum Austfirðings h. f. að fá
það skip og munu hafa leitað til
ríkisstjórnarinnar með tilmæli
þar að lútandi. En svar ríkisstjórn
arinnar mun hafa verið neikvætt
og er sagt að hún hafi í hyggju að
ráðstafa dkipinu til Vestfjarðe.
Vestfirðingar eiga þó helmingi
fleiri togara sem stendur, en Aust-
firðingar.
Margir hafa dregið í efa, að
skynsamilegt væri fyrir Austfirð-
inga að kaupa Keflvíking. Skipið
er nú orðið 8 ára gamalt og talið
illa farið. Auk þess bendir reynsl-
an til þess, að rekstur skipsins
yrði ekki hagstæður.
Frá Alþingi
Alþingi kom saman til funda 8.
okt. og þegar hafa verið lögð fram
mörg frumvörp, þar á meðal frum-
varp til fjárlaga fyrir árið 1956.
Fyrsta umræða um fjárlagafrum-
varpið fer fram á mánudaginn
kemur og verður lienni útvarpað.
Blaðið mun eftir því sem tök eru
á, skýra frá gangi þingmála.
Kosnar hafa verið fastar nefnd-
ir þingsins og þar gerðist það til
tíðinda, sem raunar hefur skeð
áður, að Alþýðuflokkurinn gerði
bandalag við Framsóknarflokkinn
um nefndarkosningar og tókst
með því mióti að útiloka sósíalista
frá flestum nefndum efri deildar.
Aþýðuflokkurinn gumar mjög
af hetjulegri baráttu sinni gegn
núverandi ríkisstjórn og aftur-
haldsstefnu hennar. En alltaf þeg-
ar á skal herða, guggnar hann.
Þarf ekki annað en að flokknum
sé boðið sæti í ómerkilegri nefnd
fyrir náð stjórnarinnar til þess
að hann skríði undir pilsfald henn-
ar o^ uni sér þar vel.
En erfiðlega mun óbreyttum
flokksmönnum Alþýðuflokksins
ganga að samræma starfsaðferðir
flokksins og „stjórnarandstöðu“
hans.
Isólfur
losaði hér í gær 175 tonn af
fiski, nJest karfa. 1 fyrradag
landaði hann 100 tonnum af farm-
inum á Eskifirði.
Fyrir þá staði, sem hér um ræð-
ir, eru kaup á togara mikið hagS'
munamál og vissulega hefði Kefl'
víkingur haft mjög mikið gildi
fyrir atvinnulíf þeirra, burcséð frá
möguleikunum til að láta skipið
bera sig. Vonandi leggja þeir ekki
árar í bát, þótt rikisstjórnin neit-
aði þeim um Keflvíking. Og þeir
eiga að setja markið það hátt, að
krefjast þess, að þsim verði gefinn
kostur á nýju skipi. Ef vilji er fyr-
ir hendi heima fyrir og samtök
góð, hljóta þessir 5 staðir, hrepp'
ar, kaupfélög og önnur fyrirtæki
og einstaklingar, að geta boðið
fram það mikið fé, að ríkisstjörn'
in standi sig ekki við að neita um
þá fyrirgreiðslu og aðstoð, sem
n eð þarf.
V
V. s. Viðir af Djúpavogi kom 3
morgun hlaðið saltfiski frá Horna-
firði. Verður hann verkaður 3
þurrkhúsunum hér. Einnig hefui
fiskur af Hornafirði verið fluttuf
á EskifjÖrð til verkunar þar. ^
Neitað um togara