Austurland - 20.04.1956, Blaðsíða 4
4
AUSTURLAND
Neskaupstað, 20. apríl 1956.
Er flokkaskipunin að riðlast?
Adalfundur Yerk-
lýdsfél. Norðfirðinga
Telur Alþýðubandalagið mikiisverðan
áfanga á sviði stjói nmálalegrar ein-
ingar alþýðunnar og heitir á alla al-
þýðu að styðja það
Verklýðsfélag Norðfirðinga hélt
aðalfund sinn 15. apríl.
1 stjórn voru kosnir:
Einar Guðmundsson, formaður
Bjarni Þórðarson, varaform.
Jóhann Jónsson, ritari
Sigfinnur Karlsson, gjaldkeri
Karl Jörgensen,
Karl Marteinsson,
Hilmar Björnsson, meðstj.
Varastjórn:
Valdemar Eyjólfsson
Jón Ólafsson
Sigurður Jónsson.
1 trúnaðarráð voru kosnir, auk
stjórnar og varastjórnar:
Hjálmar Björnsson,
Geir Jónsson,
Baldvin Þorsteinsson,
Guðm. Sigurjónsson,
Halldór Haraldsson,
Ingvar Þorleifsson.
1 1. maí-nefnd voru kosnir:
Bjarni Þórðarson,
Baldvin Þorsteinsson,
Sigfinnur Karlsson,
Karl Marteinsson,
Sigurður Jónsson.
Fulltrúi félagsins í stjórn félags-
heimilis var kosinn:
Sigfinnur Karlsson.
»1
Atvinnuleysistryggingaraar
Lúðvík Jósepsson flutti fróðlegt
og athyglisvert erindi um atvinnu-
leysistryggingarnar, skýrði lögin
og gerði grein fyrir skipulagi
óygginganna. — Munu fundar-
menn áreiðanlega hafa haft mikið
gagn af þessu erindi.
Stjórnmálasamtök
alþýðunnar
Svohljóðandi tillaga var sam-
þykkt á fundinum með atkvæðum
allra fundarmanna:
„Aðalfundur Verklýðsfélags
Norðfirðinga, haldinn 15. apríl
1956, lýsir yfir fullum stuðningi
við tilraunir miðstjórnar Alþýðu-
sambands Islands til að koma á
stjórnmálalegu samstarfi vinstri
flokkanna til að vinna að hags-
munamálum alþýðunnar til sjávar
og sveita. Harmar fundurinn að
ekki skyldi takast að fá alla vinstri
flokkana til slíks samstarfs, en
telur að með stofnun Alþýðubanda
lagsins hafi mikilsverðum áfanga
verið náð á sviði stjórnmálalegrar
'einingar alþýðunnar. Heitir fund-
urinn á alla alþýðu að styðja og
efla þetta bandalag og telur að
mikilsverðasta hagsmunamál al-
þýðunnar nú sé að alþýðusamtök-
in fái aukin áhrif á Alþingi og að
stjórnmálasamtök þeirra verði að-
ilar að ríkisstjórn. Því aðeins að
þetta takist er þess að vænta að
hagsmunabaráttan nái tilgangi
sínum eins og nú háttar“.
10 þús. til togarakaupa
Fundurinn samþykkti að kaupa
skuldabréf í nýja togaranum fyrir
10 þús. kr.
Árgjald hækkar
Árgjald karla var ákveðið kr.
175 og kvenna 125 og skulu 50
kr. af hverju árgjaldi renna til
griciðslu á framlagi félagsins til
byggingar félagsheimilis. Árgjald-
ið hefur verið óbreytt árum sam-
an, en það hlýtur að hækka eins
og annað. Mörg verklýðsfélög hafa
að undanförnu hækkað árgjald
sitt verulega.
Þegar félagsheimilið er komið
upp, batnar stórlega félagsleg að-
staða verklýðsfélagsins og því
ekki óeðlilegt að það láti hluta af
árgjaldi meðlima sinna ganga til
greiðslu á framlagi sínu til bygg-
ingarinnar.
Vegleg afmælishátíð
Gagnfræðaskóians
Gagnfræðaskólinn í Neskaup-
stað minntist 25 ára starfsafmæl-
is síns með veglegu hófi í barna-
skólanum laugardagskvöldið 14.
apríl, en skólinn tók fyrst til
starfa haustið 1931.
Fjöldi manna sótti hóf þetta.
Var fyrst setzt að kaffiborði og
veitt af mikilli rausn.
Oddur A. Sigurjónsson, sem ver-
ið hefur skólastjóri gagnfræða-
skólans í 18 ár samfleytt, rakti
sögu skólans, en auk hans tóku
allmargir til máls.
Samkór Neskaupstaðar söng
nokkup lög og Lúðrasveit Nes-
kaupstaðar lék og var báðum
mjög vel tekið.
Að borðhaldi loknu var stiginn
dans fram eftir nóttu. Lék Dans-
hljómsveit Neskaupstaðar fyrir
dansinum af miklu fjöri.
Afmælisfagnaður þessi var hinn
ánægjulegasti og þeim, sem að
stóðu, til sóma.
Framhald af 1. síðu.
í átökunum milli vinstri og hægri
aflanna í þjóðfélaginu.
Samtök afturhaldsins
Sjálfstæðisflokkurinn er stjórn-
málasamtök afturhaldsins og gæt-
ir hagsmuna þeirra afla, sem
spilitust eru og rotnust með þjóð-
inni. Hann verður vafalaust til í
einhverri mynd, jafnlengi og þessi
öfl hafa not fyrir hann, það er að
segja jafnlengi og þessi þjóðfé-
lagslega meinsemd er ekki skorin
burtu.
Þó Sjálfstæðisflokkurinn lúti
valdi allskonar braskaralýðs, er
vitanlega innan flokksins og í röð.
um kjösenda hans mesti fjöldi
heiðarlegra og þjóðhollra manna,
sem enga samleið — hvorki hags-
munalega né skoðanalega — eiga
með klíkunna, sem ræður Sjálf-
stæðisflokknum, heldur hefur lát-
ið blekkjast til fylgis við hann.
Þetta fólk er smátt og smátt að
skilja eðli þjóðfélagsbaráttunnar
og hlutverk Sjálfstæðisflokksins.
Þetta má m. a. sjá af því að hlut-
fallslegt fylgi flokksins meðal
þjóðarinnar hlefur jafnan farið
þverrandi eins og hagskýrslur
sanna.
Það er ákaflega mikilsvert að
þetta blekkta fólk skilji sem fyrst
sinn vitjunartíma. Um leið og það
verður, er lokið yfirráðum íhalds-
ins yfir hinum þýðingarmestu mál-
efnum þjóðarinnar.
Alþýðubandalagið
Stjórnmálasamtökum þeim, sem
þetta nafn bera, er ætlað það
þarfa og mikilsVerða hlutverk að
sameina til átaka öll þau öfl í
þjóðfélaginu, sem vinna vilja gegn
yfirráðum auðvaldsins yfir mál-
efnum þjóðarinnar. Það er hlut-
verk þessa bandalags ,,að skipu-
leggja á stjórnmálasviðinu bar-
áttu alþýðunnar fyrir bættum
kjörum, aukinni menningu, sjálf-
stæði þjóðarinnar og samstarfi
allra frjálslyndra manna", eins og
í' flokkslögunum segir.
Með stofnun Alþýðubandalags-
ins er alþýðunni gert fært að sam-
einast til átaka í stjórnmálabar-
áttunni. Islenzk alþýða hefur ver-
ið sundruð og spillt kröftum sín-
um í innbyrðis baráttu. Og ein-
mitt þessi sundrung alþýðunnar
er undirstaðan undir valdi aftur-
haldsins. Það er hlutverk Alþýðu-
bandalagsins að sameina þessa
sundruðu krafta. Og hvers vegna
skyldi alþýðan halda áfram að
skemmta skrattanum með inn-
byrðis hjaðningavígum? -— Hvaða
grundvallarmunum er í raun og
veru á lífsskoðun t. d. sjómanns í
Sósíalistaflokknum, verkamanns-
ins í Alþýðuflokknum og smábónd--
ans í Framsóknarflokknum ?
Við sósíalistar viljum láta forn-
ar væringar við aðra vinstri menn
niður falla. Við viljum ná sem
víðtækastri samvinnu við aðra
menn við svipuð viðhorf og við
erum reiðubúnir að sýna þann
vilja í Verki. —- Auðvitað afneit-
um við ekki lífsskoðun okkar og
ætlumst heldur ekki til þess af
bandamönnum okkar, að þeir af-
neiti sinni. Innan Alþýðubanda-
lagsins á að vera hátt til lofts og
vítt til veggja. Þar eiga allir
frjálslyndir menn heima, þó þá
greini á um einstök atriði, sem oft
eru harla lítilfjörleg, þegar málin
eru brotin til mergjar.
Vindbólur
Auk höfuðfylkinganna í stjórn-
málunum, rísa stundum upp smá-
hópar manna, sem af einhverjum
ástæðum hafa ekki getað fundið
sér samastað í flokkum þeim, sem
fyrir eru. Tvær slíkar vindbólur
risu við síðustu kosningar, Lýð-
veldisflokkurinn og Þjóðvarnar-
flokkurinn. Fyrrnefnda vindbólan
hjaðnaði þegar eftir kosningar, en
hin síðarnefnda er enn ósprungin,
enda tókst Þjóðvarnarflokknum
að ná tveim þingsætum.
Svo er að sjá, að þessi flokkur
muni í sumar hafa menn í kjöri
þar sem hann getur, en líklegt er
að hann fái engan mann kjörinn
og mun þá sú vindbóla einnig
hjaðna. Flokkurinn hafnaði aðild
að Alþýðubandalaginu, enda þótt
vitað sé að margir áhrifamenn
innan hans hafi viljað vera með
og er vitað að margir Þjóðvarn-
armenn muni af þeim sökum segja
skilið við flokkinn' og ganga til
samstarfs við Alþýðubandalagið.
Það sem kosningarnar
snúast um
Kosningarnar í sumar snúast
um það, ef á heildina er litið,
hvort mynduð verður vinstri
stjórn eða „þjóðstjórn“ eftir kosn-
ingar. Takist Alþýðubandalaginu
að fá öfluga fótfestu á þingi verð-
ur mynduð vinstri stjórn með
þátttöku þess, því Framsóknar-
flokknum er það ljóst, að íhalds-
samvinna undir þeim kringum-
stæðum mundi ríða flokknum að
fullu. En verði hinsvegar lítil
breyting á skipan þingsins og fylgi
flokkanna, er hætt við að Fram-
sókn haldi áfram á sömu braut
og efni til áframhaldandi íhalds-
samvinnu.
Það er hið mikla hlutverk kjós-
enda í þessum kosningum að
tryggja að mynduð verði vinstri
stjórn. En til þess að það geti
tekizt verða vinstri menn í öllum
flokkum að brjóta af sér flokks-
viðjarnar og fylkja sér úm stjórn-
málasamtök alþýðunnar — Al-
þýðubandalagið.
Goðanes
kom af veiðum í nótt með á að
gizka 230—-240 tonn af fiski.