Austurland - 30.11.1956, Blaðsíða 2
2
AUSTUKLAND
Neskaupstað, 30. nóvemb'er 1956.
c
Austnrland
| Ritstjóri: Bjarni Þórðarson.
: Kemur út einu sinni í viku.
Lausasala kr. 2.00.
j Árgangurinn kostar kr. 60.00.
Gjalddagi 1. apríl.
nesprent h-f
1. desember
Á morgun eru liðin 38 ár frá
því Islendingar fengu fullveldi.
Var það merkasti áfanginn til full-
komins sjáfstæðis, sem fékkst
1944. Þessi 38 ár hefur mikið vatn
til sjávar runnið og orðið meiri
umskipti á högum okkar en í aldir
áður. Einangrun okkar, vegna
fjarlægðar frá öðrum þjóðum hef-
ur horfið. Við erum í þjóðbraut
milli heimsálfa. Heimurinn hefur
„minnkað" og engin þjóð getur
látið sig litlu skipta það sem ger-
ist hvar sem er á jarðarkringlunni.
Atburðarásin er ör og öllum
kunn. Hraðinn er ótrúlegur og
jafnvel óþægilegur. Það er ef til
vill verra að vera smáþjóð nú en
fyrir fjórum áratugum. Þó aldrei
hafi smáþjóðirnar reynt að vera
eins sterkar og í dag. Þær spyrna
við fótum þegar sá stóri og sterki
vill troða á rétti þeirra. Vopna-|
valdi er enn beitt víða til að kúga
lítilmagnann.
Hernaður er enn í hávegum
hafður þrátt fyrir tvær heims-
styrjaldir á mannsaldri. Engin
þjóð getur talizt sjálfstæð meðan
erlendir menn bera vopn í landi
hennar, meðan vígvélar og morð-
tól stórvelda hreiðra þar um sig.
En sú sorgarsaga endurtekur
sig enn, að innlendir menn óska
eftir erlendum herjum í þeirra
eigin föðurlandi.
Hafa Islendingar orðið að horfa
upp á það undanfarin ár, að her
væri í landinu. Þó sameinuðust
vinstri öfl þjóðfélagsins sl. sumar
um það að koma hernum burtu.
Það er eitt meginhlutverk þeirrar
vinstri ríkisstjórnar og skýlaust
loforð hennar, þegar hún tók við
völdum. Það er krafa meiri hluta
þjóðarinnar, sem stendur að baki
stjórnarinnar.
Hernaðarsinnar þykjast hafa
himinn höndum tekið, vegna þeirra
hryggilegu atburða sem nú gerast
í heiminum, og eru háværir og
blygðunarlausir í kröfum sínum
um ævarandi hersetu hérlendis.
Aldrei hefur það eins ljóslega
sýnt sig :eins og einmitt nú, hve
lífsnauðsynlegt er fyrir smáþjóð-
irnar að stórveldin stígi ekki síni
um fæti á lönd þeirra.
Árið 1918 og árið 1944 voru all-
ir Islendingar einhuga um það að
ráða sínu eigin landi sjálfir og
frábiðja sér hverskpnar afskipti
Útsvör sam-
vinnufélaga
Framhald af 4. síðu.
ur hér í bænum, annar en bátaút-
vegur, er rekinn af samvinnufé-i
lögum, ef hann er ekki beinlínis
bæjarrekinn. I þessu sambandi má
geta þess, að Dráttarbrautin h. f.,
sem er einhver mesta vinnustöð í
bænum, er hálfopinbert fyrirtæki
þar sem bærinn og samvinnufé-
lög eiga meiri hluta hlutafjárins.
Landgangar við skip
Skipakomur hafa verið tíðar hér
síðari hluta mánaðarins. Hafa
skipin tekið frosinn fisk til Aust-
ur-Evrópu og Bandaríkjanna, síld
til Rússlands og Finnlands. Salt^
fisk til Grikklands. Þá kom ms.
Lagarfoss með aflvélar í 60 lesta
bátinn sem verið er að smíða í
Dráttarbrautinni og einnig vélar |
í ms. Sæfaxa.
Mjög er það áberandi, þegar
kaupskip koma hér, að margir
menn gera sér títt um að fara út
í þau. Sérstakiega munu mejnn
þeir sem sækja í skipin ætla að
ná í vín og eru þeir þá oft mjög
ágengir. Alloft vill það til að menn
eru drukknir og það jafnvel
dauðadrukknir að slangra út í
skipin. Ókyrrt er eigi ósjaldan við
hafnarbryggjurnar, og sjaldan
góðir landgangar um borð.
Þessu rangli fullra manna fylgir
mikil slysahætta og sýndi það sig
í fyrri viku, þegar tveir aðkomu-
menn duttu í sjóinn milli ms.
Drangajökuls og bryggju. Tókst
lögregluþjóninum, Guðmundi
Björgúlfssyni, að ná l mennina
með því að fara niður milli skips
og bryggju. Naut hann aðstoðar
skipshafnar Drangajökuls og
verkamanna sem unnu við skipið.
Kvennadeild Slysavarnarfélags-
ins hér hefur beitt sér fyrir því
að höfnin hafi tiltæka, góða land-
ganga í skip og þá sérstaklega í
togarana, sem aldrei hafa land-
ganga.
Er vonandi að landgangar þess-<
ir komi áður en langt um líður. Á
Slysavarnarfélagið þakkir skyld-
ar fyrir þessa framkvæmd.
Úr því að ógerlegt er að fá
menn til að hætta að vera drukkna
og að sækja svo stíft í skipin, sem
raun ber vitni, verður að forða
slysum með ölium tiltætólegum
ráðum.
erlendra manna. Við megum ekki
líta allt of dökkum augum á útlitið
í heiminum í dag. Við megum ekki
láta þau átök sem nú fara fram
sljóvga sjálfstæðiskennd okkar og
láta allt reka á reiðanum um kröf-
una á fullveldisdaginn: Enginn er.
lendur her á Islandi.
— Meginhluti verzlunar er líka í
höndum samvinnufélaga.
Finnst bæjarbúum sanngjarnt
að allur þorri verzlunarreksturs sé
útsvarsfrjáls ? Eru þeir reiðubún-
ir að bæta ofan á eigin útsvör, út-
svörum þeim, sem samvinnufélögin
hafa borið, en þau eru í ár um
150 þús. kr. auk samvinnuskatts.
Ég held það væri ekki úr vegi,
að viðskiptamenn og félagsmenn
kaupfélagsins létu kaupfélags-
stjórann ótvírætt skilja það á sér,
að þeir væru andvígir því að fé-
lagið skoraðist undan að greiða hið
hóflega útsvar, sem á það hefur
v.erið lagt, og að þeir séu ekki
reiðubúnir að bæta því við eigið
útsvar.
Bráðlega mun hér í blaðinu vik-
ið að úrskurði niðurjöfnunar-
nefndar um kæru kaupfélagsins
og þá sérstaklega álagningu á
mjólkurbúðina, sem Níels Ingv-
arsson drepur á i grein í síðasta
blaði.
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•
■
■
Kvenfélags-
■
■
konur
■
■
■
Munið fundinn á mánudags- j
kvöld, 3. des., kl. 9 í Barna- j
skólanum.
Áríðandi mál á dagskrá.
Félagsvjst.
Mætið stundvíslega.
Ofviðri
Afspyrnu norðvestan veður gekk
yfir landið sl. laugardag. Varð
víða tjón. I Neskaupstað rak m. s.
Goðaborg með legufæri sín upp
undir land og rakst á mb. Gauta,
með þeim afleiðingum að Gauti
slitnaði upp og lenti upp í fjöru.
Skemmdist báturinn töluvert.
Gauti er elzti bátur hér í bæ og
hefur síðari ár verið í eigu Björns
Ingvarssonar, sem sótt hefur sjó-
inn manna mest frá heimahöfn.
I veðrinu fauk járn af nokkr-
um húsum. Járnplata drap kind á
túninu á Bjargi. Skreiðarhjallar
fuku niður, en lítil skemmd mun
hafa orðið á skreið. Nokkrir bát-
ar fuku til í fjörum og brotnuðu
sumir. Olíugeymir sá, sem verið
er að byggja fyrir Olíufélagið hf.
lagðist saman og tefur það bygg-
inguna að koma honum í samt lag.
Til sölu
Barnavagn til sölu.
Lynn Eyvindsson.
AuglýsiS ‘l
Austurlandi
Stjórnin.
Tílkynning
Ég undirritaður tek að mér bólstrun og aðrar viðgerðir á
húsgögnum. Framleiði dívana og rúllugardínur. Hef fyrirliggj-<
andi áklæði, snúrur o. fl.
Vinnustofan er á Hafnarbraut 42.
Vönduð vinna. — Reynið viðskiptin.
Ólafur H. Jónsson.
<-------------------------------- ~-------------------------
Hördúkar á 70.00.
Plastefní á 10.00.
Regnþétt blússuyfirbyrði —
og gallaefni á 30.00.
Stakar herrabuxur.
Fataefni.
L---------------------------------------------------------------------->-»