Austurland - 22.12.1956, Síða 2
2
AUSTURLAND
Neskaupstað, 22. desember 1956.
Efnahagsmálatillögurnar
Skúli Þorsteinsson fimmiugur
Framhald af 1. síðu.
færslugjald á erlendan gjaldeyri,
sem þeir láta af hendi. Undan-
þegnar eru þó brýnustu lífsnauð-
synjar og rekstrarvörur sjávar-
útvegs og landbúnaðar.
2. Innheimta skal 80% innflutn.
ingsgjald af tilteknum vöru-
flokkum. :Þdssir tveir tekjuíiðir
eiga að skila 154.5 millj.
3. Bankarnir greiði 50% af
gengismun og provisíon. Áætlað
10 millj.
4. Á selda farmiða til útlanda
skal lagður 10% skattur.
5. Heimilt er að innheimta
125 gjald af fob-verði bifreiða
og bifhjóla, í stað 100% nú. Þess-
ir tveir liðir eiga að skila 11.7
millj.
6. Greiða skal 10% gjald af ið-
gjöldum vátryggingarfélaga, und-
anþegnar líftryggingar, bruna-
tryggingar húsa, skipa- og afla-
tryggingar o. fl.
7. Skattur á innl. tollvörutegi
undir skal vera 80% og eiga þær
tekjur að nema 5.5 millj.
8. Skattar af innl. framleiðslu
og þjónustu eiga að gefa í tekjur
19.9 millj.
Alls hafa hér verið taldar tekj-
ur 201.6 millj. — Auk þess er gert
ráð fyrir gjaldi af duldum
greiðslum o. fl. 30.7 millj. Verða
þessar tekjur þá í heild 232.3 millj.
og fær útflutningssjóður 80%, en
ríkissjóður 20.
Stórejgnaskattur
Innheimta á á næstu árum sér-
stakan stóreignaskatt a. m. k. 80
millj., þar af skal innheimta 15
millj. strax eftir álagningu og
fénu varið til íbúðabygginga.
Skattfríðindi láglaunamanna
og sjómanna
Lækka á um þriðjung tekju-
skatf þeirra fjölskyldumanna, sem
hafa innan við 45 þús. kr. tekjur,
og einhleypinga með innan við
35 þús. kr. tekjur.
Sjóklæðafrádráttur sjómanna
verður um það bil tvöfaldaður og
þsim auk þess veitt talsverð skatt-
fríðindi.
Hámarksverð og verðlags-
eftirlit
Sett verður á fót strangt verð-
lagseftirlit og álagning lækkuð.
Skal ráðherra skipa verðlags-'
stjóra, sem leyta skal samstarfs
við stéttasamtökin um land allt.
Kaupgjaldsmál
Kaupgjald skal greitt eftir vísi-
tölunni 178 til loka febrúarmán-
aðar n, k., en eftir það skal kaup
breytast eins og útreiknuð kaup-
gjaldsvísitala segir til um, þó svo,
að 6 vísitölustig skulu bundin
framvegis, einnig hva:ð snertir
verð. landbúnaðarvara.
Fiskverð til _ bátasjómanna
hækkar úr 130 au. í 138 au. pr.
kg. af þorski.
Nýjar Iagasetn,ingar boðaðar
Ríkisstjórnin hefur tilkynnt að
hún muni á næstunni fly.tja
nokkur frumvörp, sum beinlínis í
sambandi við það mál, sem hér
hefur verið rætt. Eru það frum-
vörp um lækkun tekjuskatts á
láglaunum, um aukin skattfríð-
indi og stóreignaskatt. — Þá mun
hún og flytja frumvörp um húsa-
leigu, endurskipulagningu banka-
mála og endurskipulagningu út-
flutningsverzlunarinnar, en hún er
nú sumpart í 'höndum einokunar-1
hringa íhaldsins, sem miskunnar-
laust hafa notað aðstöðu sína til
að féfletta landsmenn. Nægir þar
að minna á saltfiskhringinn, sem
hvað eftir annað hefur orðið upp-
vís að hinum svívirðilfljgustu
brögðum til að hafa fé af fram-
leiðendum.
Ólík vinnubrögð
Síðustu rikisstjórnir hafa með
öllu neitað að hafa samstarf við
stéttasamtökin, þegar gera hefur
þurft ráðstafanir til að halda út-
flutningsframleiðslunni gangandi.
Niðurstaðan hefur jafnan verið
sú, að byrðunum hefur verið velt
yfir á bak almennings, en þeim
hlíft, sem hagnazt hafa á viðskiptn
um við útgerðina. Þetta hefur aft-
ur leitt til tíðra verkfalla og alls-
konar truflana í atvinnulífinu, sem
aftur hafa orðið orsök minni
framleiðslu. Hér við bætist, að ráð.
stafanir hafa ekki verið gerðar í
tíma og hefur það leitt til stöðv-
ana veiða vikum saman oft og
einatt.
Nú eru vinnubrögðin önnur. Nú
eru trúnaðarmenn launþega og
framleiðenda kvaddir til samráða
og reynt að tryggja að þessir að-
ilar fallist á fyrirhugaðar aðgerð-
ir. Með þessu vinnst, að verk-
fallshætta verður minni og trufl-
anir í rekstrinum fátíðari. T. d.
mun útgerð báta geta hafizt þeg-
ar eftir áramótin. Þetta á að
tryggja aukna framleiðslu.
Ef íháldið réði
Ef svo illa hefði tekizt til, að
íhaldið hefði verið við völd, hefði
það sagt alþýðunni stríð á hendur,
lækkað gengið og velt öllum þung-
anum yfir á almenning. Afleiðing-
in hefði orðið tíð og langvinn
verkföll, sem lamað hefðu stór-
lega framleiðslu þjóðarinnar.
Ihaldið hefði aldrei setzt að
samningaborði með verklýðssam-
tökunum, til að semja um lausn
vandamálanna. Það hefði þjösnazt
áfram í blindri þjónustu við auð-
menn og okurkarla.
Það er sú aðstaða, sem Alþýðu-i
bandalagið fékk 1 kosningunum í
sumar, sem gert hefur gæfumun-
inn.
lagði leið sína til Þýzkalands og
Norðurlanda.
Skúli er frjór í kennslu og fund-
vís á margt sem vel má fara. Hjá
honum hef ég séð sérstaklega
smekklegar og vel unnar vinnu-
bækur barna.
Hann hefur tekið virkan þátt í
félagsskap austfirzkra kennara.
Með honum hefur veri gott og
gaman að starfa. Hann er mikill
fundarmaður, enda mjög vanur
ræðumennsku. Hann er mælskur
og málhagur og ræður hans eru
heitar.
Skúli er hressilegur og aðsóps-
mikill. Það gustar af andlegri fyr-
irmennsku þar sem hann er á ferð.
Hann er Austfirðingur að ætt og
uppruna, fæddur að Óseyri við
Stöðvarfjörð, sonur hjónanna
Þorsteins Mýrmanns og Guðríðar
Guttormsdóttur.
Sem að líkum lætur ann hann
Austurlandi og um það ort:
Meðan hjalar sær við sand
sjónir vaka og minni.
Aldrei glatar Austurland
undrafegurð sinni.
Snemma fór hann að ríma og
búa til bögu.
Um ferskeytluna hefur hann
þetta kveðið:
Ferhendan er flestum skjól
fyrir blaki af hrinum,
yljar þjóð um byggð og ból,
bezf þó sínum vinum.
Þó hann hafi mörgum stund-
Mér er sagt að þú sért að verða
fimmtugur, Skúli.
í tilefni þeirra tímamóta langar
mig til að mega færa þér beztu
heillaóskir frá stjórn Ungmenna-
og íþróttasambands Austurlands.
Þegar UlA hóf göngu sína fyrir
rúmum 15 árum, varst þú einróma
kjörinn formaður og hefur gegnt
því starfi óslitið, að tveim árum
Dr bænum
Nausíahvammur — ekki
Skuggahlíð.
Horfið hefur verið fráþví að
hafa í Skuggahlíð tæki þau, sem
bæta eiga hlustunarskilyrði hér í
byggðarlaginu. Verða þau sett upp
í Naustahvammi hér í bænum.
Talið er að verki þessu muni
lokið fyrir jól, og eins að hlust-
unarskilyrði batni stórlega við
þessar framkvæmdir.
Sölubúðum
verður lokað ld. 1 á aðfangadag
og gamlársdag.
um notið einn yls stökunnar hef-
ur hann meira að gert í bundnu
máli og ritað fjölda greina í blöð
og tímarit. Hann hefur og samið
vinsælar barnabækur sem vekja
áhuga hinna ungu fyrir náttúr-
unni, fegurð hennar, gróðri og
dýralífi. Málfar bókanna ber merki
hins orðhaga hagyrðings.
I bókinni Börnin hlæja og
hoppa, eru til dæmis heiti þátt-
anna þannig að hljómi: Kolbrún
og köngulóin, Kalli og kletturinn
o. s. frv. Flestir þættirnir byrja
líka á frumortri bögu um efnið.
Það er hverjum hollt að eiga
hugðarefni og geta sinnt þeim,
þegar stund gefst frá skyldustörf-
unum.
Skúli er svo lánsamur að geta
horfið inn í heim orðlistarinnar á
slíkum stundum og verið þar einn
að leik.
Heimilið er þó mesta hamingja
hans, konan og börnin.
Hann er kvæntur Önnu Sigurð-
ardóttur, Þórólfssonar, skóla-
stjóra að Hvítárbakka, og eiga
þau þrjú efnileg börn.
Margar hlýjar kveðjur munu
þangað berast á þessum merku
tímamótum í lífi húsbóndans.
Austfirzkir kennarar senda þér,
Skúli, alúðarkveðjur og árnaðar-
óskir og þakka unnin störf. Ég
þakka þér fyrir ánægjuleg og vax-
andi kynni. Lifðu heill.
Sigfús Jóelsson.
undanskildum, þar til á sl. vori
þegar þú baðst undan endurkosn-
ingu eflaust m. a. vegna þess að
þú avaldir þá erlendis.
Það var engin tilviljun að þér
var falið þetta forystuhlutverk.
Margt stuðlaði þar að.
Áhugi þinn á félagsmálum al-
mennt, náin og löng kynni á starf-
semi ungmennafélaga og msðfædd-
ir forystuhæfileikar. Við, sem höf-
um starfað með þér í stjórn UlA,
vitum mæta vel hve mikið starf og
margþætt þú hefur lagt þeim sam-
tökum, bæði heima fyrir og út á
við ekki síður.
Á þingum UMF íslands og ann-
arra heildarsamtaka og ung-
menna- og íþróttahreyfingarinnar,
varst þú alltaf hinn skörulegi og
skeleggi fulltrúi UlA og aflaðir
sambandinu virðingar og álits.
Þessi fátæklegu orð eiga að vera
lítill þakklætisvottur frá núverandi
stjórn UlA fyrir allt, sem því hef-
ur unnið í þess þágu.
Lifðu heill, Skúli.
Islandi allt.
Gunnar Ólafsson.
(Form. UlA).
Afmælisk veðj a
til Skúla Þorsteinssonar