Austurland - 23.08.1957, Blaðsíða 3
Neskaupstað, 23. ágúst 1957.
AUSTUHLAND
F 3
Sleppt úr haldi
Fólki því, sem verið hafði í sótt-
kví og frá er sagt á öðrum stað
í blaðinu, var leyft að fara heim
til sín í fyrrakvöld eftir sólar-
hrings dvöl á Bjargi.
Ástæðan fyrir því að sóttvörn-
um var hætt, var sú, að heilbrigð-
isyfirvöldin höfðu ákveðið að taka
ekki upp almennar varnir gegn
Asíuinfluenzunni, enda mun hún
þegar fyrir nokkru hafa náð hér
fótfestu. Ákvörðun heilbrigðisyf-
irvaldanna mun hafa verið tekin
í samráði við nágrannalönd okk-
ar, en þar hefur faraldurinn
stungið sér niður, en sóttvörnum
hætt.
Inflúenza þessi breiðist vafa-
laust út með Moskvaförunum og
öðrum ferðamönnum. í gær var
frá því skýrt að til Svíþjóðar
hefði hún borizt með skátum,
sem sóttu skátamót í Englandi.
Bæjarstjórnin hér sá ekki á-
stæðu til að halda fólkinu í sótt-
kví eftir að fréttist um ákvörð-
un heilbrigðisstjórnarinnar, enda
hefði það verið gagnslaust, nema
jafnframt hefði verið sett sam-
göngubann við bæinn um ófyrir-
sjáanlegan tíma. Því banni hefði
verið mjög erfitt að framfylgja
og svo dýrt í framkvæmd, að
varla er í það leggjandi að halda
uppi vörnum gegn svo vægum
sjúkdómi, sem hér virðist á ferð-J
inni.
Sem sagt: Bærinn er ekki yfir-
valdslaus lengur,
Atyinnutækj anefnd
tii Austfjarða
Eins og kunnugt er er starf-
andi á vegum ríkisstjórnarinnar
svokölluð atvinnutækjanefnd.
Hlutverk hennar er að fylgjast
með ástandi atvinnumála í hin-
um ýmsu byggðarlögum og að
gera tillögur um öflun nýrra at-
vinnutækja fyrir þá staði, sem
þess þurfa, svo og að gera tillög-
ur um skiptingu þeirra atvinnu-
tækja, sem aflað er á vegum rík-
isstjórnarinnar.
Atvinnutækjanefnd hefur gert
sér mikið far um að afla sér sem
haldbeztra upplýsinga um at-
vinnuástandið á hverjum stað,
bæði með skýrslusöfnun og heim-
sóknum í byggðarlögin.
Nú á næstunni mun nefndin
ferðast um Austurland og ræða
við sveitarstjórnir og stjórn
Fjórðungsþings Austfjarða um
atvinnumál. Mun nefndin væntair-
lega fara til Hornafjarðar um
miðja næstu viku og halda síðan
sem leið liggur norður firðina.
Gjafir og áheiit til Sjúkrahússins.
Gjöf B. J. Nesk. kr. 200.00, frá
konu á Fáskrúðsfirði kr. 500.00,
áheit frá NN kr. 50.00, áheit frá
NN kr. 100.00, áheit frá NN kr.
50. — Með þakklæti móttekið.
Stefán Þorleifsson,
N orSfjarSarbió
Glötuð ævi j
Amerísk stórmynd, gerð
eftir frásögn í metsölubók-
inni „Amatomy of a Crime“,
um ævi afbrotamanns og hið
fræga „Boston rán“, eiitt
mesta og djarfasta peninga-
rán, er um getur.
Aðalhlutverk:
Toni Curijs,
Julia Adams
George Nader.
Sýnd föstudag (í kvöld) kl. 9.
Myndasafn
Sýnd sunnudag kl. 5.
Ótti
Frábærlega gerð og afburða
vel leikin þýzk stórmynd með
Ingrid Bergman í aðalhlut-
verki. Leikstjóri er Koberto
Rosselline
Sýnd laugardag kl. 9.
Sýnd suimudag kl. 9.
Ath.: Kvikmyndin verður
send út í næstu viku. Er því
enginn möguleiki að hafa
fleiri sýningar á myndinni.
Sóttkví
Framhald af 4. síðu.
á að komast um borð, að þeir
máttu ekki vera að því að bíða
þess að skipið fengi löglega af-
greiðlu. í þeim hópi eru, auk toll-
varðarins (sóttgæzlumanns), stað-
gengill bæjarfógeta, lögiregilu-
þjónn, hafnarvörður og tveir
ígripa-löggæzlumenn. Alls eru í
sóttkví um 20 manns. Þar á með-
al verður að telja að sé öll sótt-
varnranefndin, nema héraðslækn-
irinn, sem þó hefði máske verið
ástæða til að hafa með í hópnum,
því eðlilega komst hann ekki hjá
að hafa mök við skipið og far-
þega þess.
Auðséð var á sumum þeirra,
sem ruðst höfðu um borð, að
Rússar höfðu gert sér ailt far um
að láta þeim ekki leiðast í prís-
undinni, því í hópnum mátti sjá
nokkra þeirra „vel drukkna“ og
létu sumir all-dólgslega. Hafa
þeir hvorki orðið sjálfum sér né
öðrum til neins sóma með fram-
ferði sínu, en hinsvegar orðið gott
fréttaefni fyrir blöð og útvarp.
Fólk þyrfti sannarlega að temja
scr aðra umgengnishætti í sam-
bcndi við skipakomur frá útlönd-
um og hvorki láta brennivíns-
þorsta eða annað knýja sig til
lögbrota Og sérstaklega verður
að gera þá kröfu til þeirra, sem
laga og réttar eiga að gæta, að
þeir hafi ekki forgöngu um að
fótumtroða lögin.
Hið rússneska skip hélt áleiðis
til Reykjavíkur nokkru fyrir
klukkan 9 um kvöldið. Á þvi var
75 manna áhöfn. (21.
|
Oxlar með hjóhim |
fyrir aftanívagna og kerrur, bæði vörubíla- og fólksbílahjól á
öxlum. Líka beizlisgrindur fyrir kassa og heygrind. Jeppakerra. :
■
Til sölu hjá Kristjáni Júliussyni, Vesturgötu 22, Reykja- |
víb, sími 81040. — Póstkröfusendi.
* i
Skyggnilýsingar
hefur frú Lára Ágústsdóttir miðill í Samkomuhúsinu í Nes-
kaupstað föstudaginn 23. ág. 1957 kl. 20.30.
Aðgöngumiðar við innganginn.
■w
Bíll iil sölu
Studebaker fólksbifreið, smíðaár 1942 í ágætu lagi, er til
sölu.
Óskar Jónsson.
Aivinna
■
■
■
Okkur vantar nokkra trésmiði og járniðnaðarmenn :
nú þegar. Getum bætt við einum nema í skipasmíði. :
■
■
Dráttarbrautin h. f.
Það á að vigta síldina
Eins og kunnugt er er síld, sem
látin er í hinar stærri síldarverk-
smiðjur, mæld en ekki vegin.
Vafalaust eru síldarmálin lög-
gilt og ekki er að. efa að þau eru
rétt, svo langt sem það nær. En
við löggildingu málanna er notuð
ný síld. Aftur á móti er mjög oft
landað gamalli síld og þykjast
sjómenn þess fullvissir að þá
tekur síldarmálið miklu meiri
þunga, en þegar riý síld er mæld.
Sérstaklega hefur sjómönnum
þótt áberandi hve sviknir þeir eru
á málinu, þegar þeir höfðu til
samanburðar vigtun á síld hjá
litlu verksmiðjunum hér eystra.
Heyrt hef ég af' einum skipstjóra,
sem taldi sig. hafa í báti sínum
um 370 mál miðað við löndun á
Raufarhöfn, en reyndist vigtað
440 mál.
Það á að vera ákveðin krafa,
sjómanna og útgerðarmanna, að
bræðslusíld sé skilyrðislaust vegin.
Anstnrland
Ritstjóri: Bjarni Þórðarson.
Kemur út einu Binni í viku.
Lausasala kr. 2.00.
MSSPRENT H-P
Tapatl-Funclitl
Hjólkoppur, gulur að lit ■
■
með rauðum stöfum, af Play- :
mouth-bíl, tapaðist milli Eski-:
fjarðar og Norðfjarðar. Finn-» j
andi vinsamlegast skili honum :
til Þorleifs Jónssonar Eskifirði.:
- fi
j :
.■■■■■•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•■■•■■■■■■■■■■•
Grímsárvirkjun
seinkar
Upphaflega var svo ráð fyrir
gert, að Grímsárvirkjun yrði lokið
15. nóv. í haust, en að undanförnu
hefur verið talið að stöðin mundi
fullbúin um áramót.
Jakob Gíslason, raforkumála-
stjóri, lét upp það álit á Reyðar-
firði á mánudaginn, að virkjunin
mundi ekki geta tekið til starfa
fyrr en eftir áramót, vegna ófyr-
irsjáanlegra tafa, sem orðið hafa
á verkinu.
Enda þótt Grímsárvirkjun verði
ekki lokið fyrr en eftir áramót,
taka Rafmagnsveitur ríkisins við
rekstri rafstöðvarinnar í Nes-
kaupstað 1. jan. nk. — Rafmagns-
veiturnar tóku við rekstri raf-
veitunnar á Seyðisfirði 1. ágúst.