Austurland


Austurland - 29.04.1960, Page 4

Austurland - 29.04.1960, Page 4
4 AUSTURLAND Neskaupstað, 29. apríl 1960. Frá Reyðarfirði Félagslíf hefur hér verið með daufasta móti í vetur og má heita að samkomuhald hafi legið niðri síðan þorrablót var haldið á þorradag, en það var hið myndar- legasta eins og venja er til. Félög eru þó nokkur til og eru þau mjög mismunandi öflug og þróttmikil í félagsstarfseminni, en mættu þó öll betur gera. Ung- mennafélagið Valur hefur haldið fáeina skemmtifundi fyrir félags- menn sína og eru þaó mestmegn- is unglingarnir, sem þá fundi sækja. Auk þess hefur félagið staðið fyrir nokkru tómstunda- starfi fyrir unglingana s. s. frí- merkjaklúhb og kenndur hefur veri j nótnalestur. Þá hetfur Aðal- steinn Eiríksson bifvélavirki kennt drengjum glímu með góðum árangri og við lofsverðan áhuga. Allt er þetta góðra gjalda vert, því fátt er nauðsynlegra ungling- unum en þeim sé séð fyrir hollri tómstundaiðju. Félagið hefur enn ekki haldið aðalfund sinn, en stjórn þess skipa: form. Kristinn Einarsson, ritari Valtýr Sæmunds- son, gjaldk. Aðalsteinn Eiríksson. Heldur hefur félagsstarfsemi verið dauf hjá verkalýðsfélaginu, enda mjög fámennt á þeim fund- um, þar sem ekki liggja fyrir nein þýðingarmikil mál. Þó hélt félag- ið einn mjög fjölsóttan fund í febrúar og voru þar ræddar efna- hagsráðstafanir þær, er þá voru nýlega samþykktar. Urðu umræð- ur allfjörugar, en fáir reyndust vilja mæla aðgerðunum bót. And- úð sinni á afturhalds lögunum lýsti fundurinn með yfirgnæfandi meirihluta. Aðalfundur félagsins var haldinn 9. apríl sl. og var all- fjölmennur. I verkalýðsfélaginu eru nú yfir 120 félagar, þar af ná- lægt 40 meðlimir í kvennadeild fé- lagsins, en formaður þar er Lára Jónasdóttir. Fjárhagur félagsins má mjög góður teljast og eignir allmiklar þar sem félagið er einn aif éigendum Félagslundar. Samn- ingum var sagt upp á árinu og bíða menn nú átekta hvað gerist, en flestra álit er það, að verka- lýðshreyfingin eigi ekki annars úikosta en leita réttar síns með öllum tiltækilegum ráðum. í stjórn voru kjörnir fyrir næsta ár: for- ma'ður Helgi Seljan, ritari Sigfús Jóelsson, gjaldk. Sigurjón Ólason. Varaform. Pétur Jóhannsson. I trúnaðarráði eru: Benedikt Ein- arsson, Bergur Þorkelsson, Hans P. Beck og Jóhann Björnsson. Alger samstaða er milli vinstri manna í félaginu. Kvenfélagið hefur enn sem fyrr vcrið fjörugasta félagið hvað fundarhöld snertir. Það heldur fund í hverjum mánuði og koma félagskonur saman á heimilum hverrar annarrar til skiptis. For- maður er Lára Jónasdóttir, en aðrar í stjórn eru: Sigurrós Odd- geirsdóttir, ritari og Sesselja Magnúsdóttir, gjaldkeri. Sunnudaginn 3. apríl hélt fcarnaskólinn skemmtun og voru þar sýndir 4 leikþættir við góðar undirtektir. Mikil fyrirhöfn er við að æfa svo stóran hóp bama, um 70 að tölu. Ráðgert er að ung- lingasikólinn hafi sína samkomu á sumardaginn fyrsta og verða þar sennilega sýndir tveir leikþættir, ein skrautsýning og fleira verður til skemmtunar. Það er fyrst og fremst skólastjóranum, Sigfúsi Jóelssyni, sem þakka ber þessa lcfsverðu viðleitni, en hann hefur al't frá því hann kom fyrst að skólanum hér sýnt frábæran dugnað við að koma á fót slíkum leiksýningum barnanna. Hefur honum tekizt það, sem flestir hafa gefizt upp á, en það er að leyfa öllum nemendunum að leika eða koma fram, sem eðlilega kostar miklu meira umstang og erfiðis- auka. (Framb. í næsta blaði). 1. maí Framh. af 1. síðu. inu í landinu, að það hafi lifað um efni fram, að það þurfi að herða sultarólina og fóma mað kristi- legu hugarfari nokkru af þeim Iflísgæðum sem það hafi of mikið af. Oflærðir og eintrjáningslegir hagfræðingar, sem ekki hafa minnstu hugmynd um lífskjör al- þýðunnar, eða neina þekkingu á gangi atvinnuveganna, eru látnir ganga fram fyrir skjöldu kaldrifj- aðra stjómmálamanna, en að baki þeim standa aftur auðmenn- irnir. Þessir kuldalegu valdhafar, knúnir áfram af auðstéttinni, reyna nú að ræna alþýðu manna þeim árangri bættra lífskjara, sem þrotlaus pólitísk og stéttarleg barátta hefur fært henni að und- ai.förnu. Þeir vilja gera fátækt- ins að fylgifiski verkalýðsins, Litlum dreng bjargaö frá drukknun Það er ekki ósjaldan, »5 við sjá- um lítil börn umhirðulaus niðri á bryggjum og plönum við höfnina. Það er auðvitað erfitt að fyrir- byggja slíkt, þar sem svo skammt er frá heimilunum niður á bryggj- urnar og ekki margra kosta völ um leiksvæði fyrir smáfólkið og bryggjurnar heilla með allt sitt aíhafnalíf, bátana og veiðina. En þetta eru mikil hættusvæði fyrir börn, sem ekki hafa lært sund o? vissulega hafa orðið alvarleg slys hér við höfnina og núna í fyrri viku munaði mjóu, að svo yrði. Þá féll í sjóinn tveggja ára drengur Þorleifur Gunnarsson en var bjargað af Tómasi R. Zoega, 13 ára. Tíðindamaður blaðsins náði tali a.f Tómasi og spurði hann um til- drög þessa og sagðist honum svo frá: ,,Ég var staddur niðri í vélbátn- um Smára, er lá í króknum við ytri bæjarbryggjuna. Þegar ég var að koma upp úr lúkamum, þá heyrði ég tvo litla stráka hrópa, að einhver hefði dottið í sjóinn, Ég hljóp aftur fyrir stýrishúsið og sá þá hvar lítill strákur maraði í kafi. Ég bjó mig strax undir að ná honum úr sjónum, brá mér úr skóm og reyndi að gera mér grein fyrir því hvert myndi bezt að synda með hann og sá ég strax að helzt myndi að reyna að komast í einhvern bryggjustaurinn og fá hjálp til þess að koma okkur upp á bryggjuna. Ég stakk mér strax aftur af Smára og náði fljótlega tökum á stráknum og synti með hann að einum bryggjustaumum. Þá kom þar að Guðjón Marteinsson, verk- stjóri og fleiri, og drógu okkur upp á bryggjuna. Strákurinn var með meðvitund því hann sprikl- aði dálítið, en ég held að hann hafi verið búinn að sökkva tvisv- ar.“ Tómas hefur sýnt þarna snar- ræði og ályktað rökrétt við björg- unina, en það er mikið atriði und- ir svona kringumstæðum að vega og meta allar aðstæður og vera fljótur að draga af þeim réttar á- lyktanir. Þama sannast sem og cft áður, að góð íþrótt er gulli betri og e. t. v. er sundið allra íþrótta nytsamast. S. Þ. Af mæli: Sigurbjörg Jónsdóttir Svends- aas, ekkja, Hafnarbraut 18, varð 70 ára 26. apríl. Hún fæddist í Vaðlavík í Helgustaðahreppi en flutti hingað 1917. gera atvinnuleysið landlægt. Þeir sakna hinna gömlu og góðu tíma, þegar fátæki maðurinn var auð- sveipur þeim ríka. Sú ríkisstjórn, sem nú fer með völd, hefur gert margvíslegar ráðstafanir til lífs- kjaraskerðingar. Hún telur það nauðsyn. En hver trúir því, að kjör eða aðstaða hinna ítnörgu ríku, sem hafa hundruð þúsunda króna í árstekjur og eyða þeim öllum, að tekjur þeirra verði minnkaðar. Allar þessar ráðstaif- anir eru gerðar til þess að þetta peningafólk geti áfram veitt sér allt og meira en áður. Það er þetta ríka fólk, sem stjórnar árásunum á alþýðuna. Verkafólkið, sjómennirnir og allir launþegar finna næstum dag- lega hvað kaupmáttur tekna þeirra fer rýrnandi. Slíkt er ekki hægt að láta bjóða sér. Verkalýðs- samtökin gera því 1. maí 1960 sérstak’ega að baráttudegi gegn því fjandsamlega ríkisvaldi ,sem nú hefur sagt þeim stríð á hend- ur. 1. maí verða verklýðssamtök- in að sýna styrk sinn og láta valdhafana finna, að þeim líðst ekki að skerða kjör vinnandi fólks hiö minnsta. Þau verða að samfylkja bændum, millistéttum, smáútvegsmönnum og öllum laun- þegum í landinu gegn kjaraskerð- ingarstjórninni. Þeim verður að takast með baráttuhug og mætti samtakanna að velta þeirri ríkis- stjórn úr sessi, sem ræðst gegn lífsafkomu og bættum kjörum al- þýðu manna. NorSfjar&arbió GIFT RlKUM MANNI Sýnd föstudag (í kvöld) kl. 9. HRAKFÖLL I TONNATALI Sýnd laugardag kl. 9. VERTIGO Ákaflega spennandi mynd með James Stewart og Kim Novak. Sýnd sunnudag kl. 9. 1. maí Fyrsta maí-hátíðarhöldin hefjast á bæjartorginu kl. 2 e. h. DAGSKRÁ: 1. Ræða: Guðmundur Sigurj ónsson. 2. Upplestur: Birgir Stefánsson (frumsamið). 3. Ræða: Bjami Þórðarson. Lúðrasveit Neskaupstaðar leikur á milli atriða undir stjóm Haralds Guðmundssonar. Kl. 5: Baraasýning í bíó. Sýn d verður kvikmyndin Hviti hundurinn o. fl. Nefndin. AAAA/WAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAA^VAAAAAAAAAAAAAAAA- Þakka hjartanlega öllum þeim, sem sýndu mér hlýhug og vináttu með skeytum, gjöfum og heimsóknum á 70 ára afmæli mími. Guð blessi ykkur öll. Sigurbjörg J. Svendsás, MAAlMlAAAAAAAAAA^AAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAA^AO^^AAAA^MXlAA/MMMMKMVl

x

Austurland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.