Austurland - 08.03.1968, Síða 4
4
AUSTURLAND
Neskaupstað, 8. marz 1968.
f
er i frettum?
inu , utan hvað tveir og stundum
þrír menn hafa starfað við sím-
stöðvarhúsið, sem hér er í smíð-
um. Nokkur hópur fólks fór héð-
an í atvinnuleit eftir áramótin
suður á firði og til verstöðva
sunnanlands, en eftirtekja þeirra
mun hafa orðið rýr vegna þess,
hvernig vertáðin hefur gengið.
Einhverjir eru ófarnir sem ætl-
uðu, en óvissan vegna verkfalla
freistar manna ekki ttl að hleypa
heimdraganum þessa stundina.
Héðan hefur ekki verið róið í
vetur svo heitið geti, enda eiga
menn ekki veiði von fremur en á
undanförnum árum. Trilla, sem
kannað hefur miðin öðru hvoru,
hefur einskis orðið vör, nema
hvað þeir beittu fyrir hákarl fyr-
rekin í sameiningu af Kaupfélag-
inu og Rafmagnsveitum ríkisins.
Félagslíf
Ekki er margt hér til skemmt-
unar yfir veturinn. Þó er spiluð
félagsvist öðru hvoru, og kvik-
myndir eru sýndar einu sinni í
viku eða oftar í skólahúsinu.
Dansleikir eru fágætir. Aðal fagn-
aður vetrarins er þorrablót, sem
hér hefur verið haldið um langt
árabil. Undir borðhaldi er þar
flutt margt gamanefni, að þessu
sinni kviðlingar um undirbúnings-
nefnd blótsins, og síðan annáll
liðins árs.
Samgöngur hafa verið erfiðar
frá áramótum, og Vatnsskarð
oftast teppt, þar til nú í hlák-
Hvaö
Frá Fáskrúðsfirði
Búðum, 6. marz — AG/GÓ
Atvinna
Hér er að sjálfsögðu verkfallið
helzta umræðuefnið manna á
meðal og ekki hvað sízt í dag, því
að hér var veitt undanþága varð-
andi útskipun síldar. Sú ráðstöf-
un mælist misjafnlega fyrir, en
þetta leyfi var veitt þegar fullvíst
var talið að samskonar leyfi yrði
veitt annars staðar, m.' a. í Nes-
kaupstað.
Annars hefur atvinna verið hér
allgóð síðan í byrjun febrúar. Er
þar bæði um að ræða umsöltun
síldar og svo hefur bræðslan
tekið á móti 900 tonnum af loðnu.
Heimabátar stunda ekki Joðnu-
ve:ðar,þeir fóru á net.
Vatnsleysi
Það er sama sagan hér og víða
annars staðar, við höfum átt við
vatnsskort að stríða. Vatnið úr
fjallinu, af Engihjallanum, þraut
algjöriega og svo fraus víða í
leiðslum. Borað hefur verið eftir
vatni hér innan við fjörðinn og
leiðsla tögð til bæjarins, en eftir
að tengja við vatnsgeyminn, sem
ekki er fullgerður. Nú var það
ráð tekið að setja dælu við bor-
holuna og dæla beint inn á vatns-
leiðslukerfið. Gafst það vel og
bjargaði málunum.
Samgöngur
Vegir hafa oftast vcrið færir í
vetur bæði suður með ströndinni
og eins upp í Egilsstaði um Vatt-
arnessskriður. Áætlunarferðir eiga
að vera ein til tvær í viku til
Egilsstaða. Mér er ekki kunnugt
um hvernig það stenzt, en oft
finnst manni blöðin æði gömul
þegar þau berast hingað.
Félagslíf
Já, hér er töluvert fjör í félags-
lífinu. Leikfélagið starfar af
krafti og hefur nýlokið leikför
með „Leynimel 13“ á ýmsa ná-
grannastaði.
Hér er bridgefélag og Lions-
klúbbur, og nú fyrir skömmu
stofnuðu tómstundamálarar félag
með að ég held 12 stofnendum,
það er falleg tala, sem á eflaust
eftir að hækka.
Aðalsamkoma vetrarins er
hjónaballið, sem að jafnaði er
haldið á þrettándanum, og svo
var einnig nú.
Frá Borgarfirði
' Borgarfirði, 5. marz — AG/HG
Atvinnuleysi
Það hefur verið afskaplega
dauft yfir atvinnulífi hjá okkur
það sem af er vetri, eins og raun-
ar oft áður. Má segja, að frá því
um miðjan nóvember hafi enga
átviíijiu verið að hafa hér í þorp-
Frá Borgaríirði
ir fáum dögum og fengu einn all
vænan.
Vonir stóðu til, að veitt yrði fé
úr ríkissjóði til hafnarfram-
kvæmda hér á Borgarfirði, en
brýn nauðsyn er að fá hafnar-
garðinn lengdan. Einnig þessar
vonir hafa nú brugðizt, þannig
að vart er að vænta að úr ræt-
ist með atvinnu fyrr en þá kemur
fram á sumar.
Verkalýðsfélagið hefur lýst yf-
ir vinnustöðvun, sem kemur til
framkvæmda á miðnætti í nótt.
Hér er að vísu ekki mörg verk að
stöðva, en auðvitað skerumst við
ekki úr leik í þeirri baráttu, sem
nú er háð.
Rafniagn frá Grímsárveitu
Þann 22. febrúar sl. var Borg-
arfjörður tengdur Grímsárveit-
unni, en á liðnu sumri var lögð
lína yfir Sandaskörð og síðan
unnið að tengingum innan héraðs.
Þetta var mjög ánægjuleg stund
fyrir okkur, og hafa engar trufl-
anir orðið á kerfinu síðan. Hafa
þá allir bæir hér um slóðir feng-
ið rafmagn frá orkuveitusvæði
Austurlands nema Njarðvíkurbæ-
irhir. Áður var hér dieselstöð,
eystri. — Ljósm. H. G.
unni að það opnaðist. Á þessu
timabili komu þó nokkrum sinn-
um snjóbílar hingað með farþega
og lækni frá Egilsstöðum, og einu
sinni kom snjóbíll frá Seyðisfirði.
Hellsufar hefur sem betur fer
verið ágætt í vetur, því að langt
er til læknis. Þorsteinn læknir á
Egilsstöðum hefur í mörg horn
að líta, en hefur þó komíð hing-
að a. m. k. einu sinni í mánuði
í vetur. Ljósmóðir okkar varð-
veitir nauðsynlegustu lyf og út-
deilir þeim samkvæmt fyrirmæl-
um læknisins.
Tíðarfar hefur verið mjög erf-
itt, svellalög gífurleg, en ekki
snjóþungt. Þrátt fyrir hlákuna
um daginn eru svell enn víða hér
í sveitinni og útlitið því kviðvæn-
legt vegna kalhættu. Bændur
munu sæmilega birgir af heyjum
og fóðurbætir er nógur til staðar.
Kanipfélag Héraðsbúa tók hér
við verzlun sl. sumar, svo sem
kunnugt er, eftir að kaupfélag
okkar varð gjaldþrota. Hefur
útibú KHB reynzt okkur vel að
flestra mati, og verður ekki séð,
að annað sé vænlegra en það taki
við verzlun hér til frambúðar.
Eftir ér þó alveg að semja tim-þá
hluti, og skal því ekkert fullyrt
um, hvað ofan á verður í þessu
efni.
Frá Reykjanesi
Reykjaneskjördæmi, 4. febr. — AG
Kæri vinur. Hvað skal segja?
Hvaða rúnir á að rista?
Sízt er vert að sitja og þegja.
Éig sendi austur fréttalista.
Veðrið það er vitlaust núna.
Varla hundi út sigandi.
Sjómenn hvíla limi lúna,
en leiðist þessi hríðarfjandi.
Hérna kringum Faxaflóa
formenn vilja heldur róa.
En ef þeir draga drátt að landi,
djöfullinn er alls ráðandi,
svo að dropi úr dauðri flösku
dettur ei né aur í tösku.
Fyrirtæki fá sig bera.
Fæstir vita, hvað skal gera.
En ráðamenn með háa hatta
he:mta af öllum þunga skatta.
Hve lengi þetta þannig gengur,
það veit ekki nokkur drengur.
Ástandinu engir hrósa.
Vmsir vilja láta -kjósa
aftur, og þeir um það tala,
en óttast nýja hannibala.
Þú birtir aldrei kattarkvæði,
sem kveðið var hér heima í næði.
Eg enga ketti átt hef slíka,
sem alla reif, jafnt snauða og ríka.
Þar eru hrörleg húsakynni,
sem hinir minnstu fá ei inni.
Á blaði þínu það nú sannast,
og þetta sjálfsagt við þú kannast.
Af mér er ágætt allt að frétta.
Eitthvað er hann víst að létta.
Eg þarf að fleygja í féð og kúna,
og fleira er ógert hjá mér núna.
Eg sendi linu seinna og meira,
því sannleikann er gott að heyra.
Þú heilsar, góði, hverjum vini
frá honum Steina Gíslasyni.
—o—-
Ath.:
Vegna upphafs fréttapistils frá
Fáskrúðsfirði, skal tekið fram, að
síldartökuskip það, sem um er
rætt, hefði alls ekki fengið af-
greiðslu á Norðfirði í verkfalli.
Svo fráleitt var það, að ekki var
einu sinni á það minnzt. Skip
þetta átti að taka alla Rússlands-
síldina, sem eftir er á Norðfirði,
en aðeins lítið á Fáskrúðsfirði.
Vegna hinnar furðulegu undan-
þágu losna nú saltendur á Fá-
skrúðsfirði við alla sína Rúss-
landssíld, þótt þeir séu í verk-
falli, en vafamál hvað Norðfirð-
ingar losna við mikið.
Fróðlegt væri að fá upplýst,
hvers vegna forráðamenn verk-
lýðsfélagsins á Fáskrúðsfirði
töldu fullvíst, að skipið yrði af-
greitt hér — svo víst, að þeir
töldu sig ekki þurfa að spyrjast
fyrir um það hjá Verklýðsfélagi
Norðfirðinga eða ASA. — Eins
væri nauðsynlegt að forráðamenn
verklýðsfélagsins á Fáskrúðsfirði
skýrðu frá því hvers vegna þeir
létu halda áfram að hlaða skipið
eftir að ijóst var að þeir höfðu
verið blekktir. — Ritstj.