Morgunblaðið - 26.10.2011, Page 3

Morgunblaðið - 26.10.2011, Page 3
KVENNALANDSLIÐIÐ Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is Kvennalandsliðið í knattspyrnu leik- ur í kvöld sinn síðasta leik á árinu þegar það etur kappi við Norður-Íra í undankeppni Evrópumóts landsliða en leikurinn fer fram í Belfast. Ís- lenska liðið fagnaði 1:0 sigri gegn Ungverjum á laugardaginn í fjórða leik sínum í riðlinum en Norður-Írar léku sinn fyrsta leik um síðustu helgi og höfðu betur á móti Búlgör- um á útivelli, 1:0. Búum okkur undir mjög erfiðan leik „Við búum okkur mjög erfiðan leik. Síðast þegar við mættum Norð- ur-Írum hér í Belfast var um hörku- leik að ræða en við náðum að skora mark undir lokin og vinna,“ sagði Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálf- ari kvennalandsliðsins, við Morg- unblaðið í gær. Ísland og Norður-Írland voru í sama riðli í undankeppni fyrir HM 2010. Íslendingar höfðu betur í báð- um rimmunum, 2:0, á Laugardalvelli og 1:0 í Belfast þar sem Katrín Óm- arsdóttir skoraði sigurmarkið 10 mínútum fyrir leikslok. Ætla að ná markalausu jafntefli „Norður-írska liðið er baráttulið og ef marka má viðtöl við þjálfara og leikmenn þeirra þá ætla þeir leggja áherslu á að spila sterkan varnarleik og spila með lið sitt aft- arlega á vellinum og freista þess að ná markalausu jafntefli. Fyrirfram reiknaði ég með að þessi leikur yrði sá erfiðari af þessum tveimur sem við erum að spila í þessari ferð og reyndar held ég að allir leikirnir í riðlinum verði erfiðir og leikirnir vinnist á fáum mörkum. Það er oft erfitt að finna leiðir til að komast framhjá þykkum varnarmúr og því held ég að við verðum að búa okkur undir strembinn leik,“ sagði Sig- urður Ragnar. Leikurinn er í kvöld er sá síðasti sem íslenska liðið spilar á árinu en fyrsti leikur liðsins í undankeppn- inni verður 4. apríl þegar það mætir Belgum ytra. Áður en að þeim leik kemur mun landsliðið taka þátt í Algarve-mótinu eins og undanfarin ár en það hefst í lok febrúar. Ísland lék til úrslita á mótinu á þessu ári en tapaði fyrir Bandaríkjunum í úr- slitaleiknum. Farinn að merkja þreytu í hópnum „Þetta er búið að vera langt og strangt tímabil hjá flestum leik- mönnum í landsliðinu og auðvitað er ég farinn að merkja smáþreytu hjá mannskapnum og þá hafa álags- meiðsli gert vart við sig. Við höfum til að mynda ekki getað tekið mikið á því á æfingunum hér úti og þetta hefur snúist um að hjálpa þeim að jafna sig, hvílast vel, láta þær fá góða næringu og fara yfir leik- skipulag okkar og mótherjanna á fundum. Það er mikilvægt fyrir okk- ur að enda árið vel. Þetta hefur ver- ið frábært ár. Þó svo að við höfum hikstað á móti Belgíu á Laugardals- vellinum töpuðum við honum ekki. Aðrir leikir hafa verið frábærir hjá okkur. Mótið í Algarve í febrúar á næsta ári verður flottur undirbún- ingur fyrir síðari hlutann í keppn- inni. Við ætlum okkur sigur í leikn- um á móti Norður-Írunum og það yrði draumur að enda árið með 13 stig af 15 mögulegum,“ sagði Sig- urður Ragnar. Mikið hefur rignt í Belfast og ná- grenni síðustu dagana og á tímabili var útlit fyrir að leikurinn yrði færður á gervigras en Sigurður sagði við Morgunblaðið í gær að dregið hefði úr úrkomunni og meiri líkur væru á að leikurinn yrði spil- aður á The Oval-vellinum. „Það er mjög mikilvægt að enda árið vel“ Morgunblaðið/Kristinn Mikilvæg Sara Björk Gunnarsdóttir verður í eldlínunni í Belfast í kvöld en hún er mikilvægur hlekkur í liðinu.  Ísland mætir N-Írlandi í undankeppni EM í Belfast í kvöld Ísland í efsta sæti » Ísland er efst í riðlinum. Ís- lenska liðið hefur 10 stig eftir fjóra leiki. Belgía kemur næst með 4 stig eftir tvo leiki, Noregur hefur 3 stig eftir tvo leiki og N- Írland hefur 3 stig eftir einn leik. » Ísland og N-Írland hafa tvíveg- is áður mæst. Ísland hafði betur í Belfast, 1:0, árið 2009 og 2:0 í Laugardalnum í fyrra. ÍÞRÓTTIR 3 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 2011 Mikil pressaer komin á Roland Nilsson þjálfara danska meistaraliðsins FC Köbenhavn sem þeir Sölvi Geir Ottesen og Ragnar Sigurðs- son leika með. Eftir tap liðsins á heimavelli gegn Nordsjælland heimtuðu margir stuðningsmenn Kaupmannahafn- arliðsins að Nilsson yrði rekinn en liðið hefur tapað tveimur leikjum í röð og hefur ekki tekist að vinna sig- ur í síðustu fimm leikjum sínum. Nils- son tók við þjálfun FC Köbenhavn fyrir tímabilið af Norðmanninum Stole Solbakken.    Úrvalsdeildarlið Hauka í körfu-knattleik karla er með Banda- ríkjamanninn Christopher Smith til reynslu. Smith, sem er um tveir metrar á hæð, þekkir vel til körfu- boltans hér á landi. Hann lék með Fjölni í Grafarvogi tímabilið 2009-10 og með Njarðvíkingum á síðustu leik- tíð. Hann lék 15 leiki með Suð- urnesjaliðinu á síðustu leiktíð þar sem hann skoraði að meðaltali 20,09 stig og tók 8,1 fráköst að jafnaði.    Aron Einar Gunnarsson, leik-maður Cardiff, var valinn í lið umferðarinnar hjá Sky fyrir frammi- stöðu sína í leiknum gegn Barnsley í ensku 1. deildinni í knattspyrnu um síðustu helgi en Aron skoraði tvö af mörkum sinna manna.    Oddur Gretarsson, einn af lyk-ilmönnum Akureyrarliðsins í handbolta, var í gær úrskurðaður í eins leiks bann á fundi aganefndar HSÍ. Oddur fékk útilokun vegna brots á síðustu sekúndunum í við- ureign Akureyrar og Vals í síðustu viku þar sem liðin skildu jöfn. Oddur tekur bannið út á sunnudag- inn þegar Akureyringar sækja HK- inga heim í Digranesið. Fólk folk@mbl.is Úrvalsdeildarlið Snæfells í körfuknattleik karla greindi frá því á heimasíðu félagsins að það hefði ákveðið að leysa Bandaríkja- manninn Brandon Cotton undan samningi. Kann þessi ákvörðun að hafa komið ein- hverjum körfuboltaunnendum í opna skjöldu því Cotton skoraði 35 stig að meðaltali í deildaleikjunum þremur. „Við réðum leikstjórnanda en fengum skor- ara og í raun skotbakvörð. Við þurfum leik- stjórnanda sem gerir leikmennina í kringum sig betri og hann gerði það ekki,“ sagði Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari Snæfells, þegar Morgunblaðið spurði hann út í þessa ákvörðun í gær. Cotton fer ekki af landi brott heldur getur hann haldið áfram að raða niður körfunum með Hamri í Hveragerði í 1. deildinni. kris@mbl.is Vantar leikstjórnanda Ingi Þór Steinþórsson Argentína varð í fyrrakvöld Ameríkumeist- ari í handknattleik eftir sigur á Brasilíu, 26:23, í úrslitaleik á Ameríkuleikunum í Mexíkó. Argentína hefur þar með tryggt sér keppnisrétt á Ólympíuleikunum í London á næsta ári. Brasilía fer í forkeppni Ólympíuleikanna og einnig Síle sem hafnaði í þriðja sæti eftir sigur á Dóminíska lýðveldinu, 27:24, í leikn- um um bronsið. Federico Gaston Fernandez skoraði mest Argentíumanna, sex mörk, og Diego Estaban Simonet var með fimm. Ljóst er að íslenska landsliðið í handknattleik karla mætir annaðhvort Brasilíu eða Síle í forkeppni Ólympíuleikanna í apr- íl. iben@mbl.is Argentína meistari Diego Estaban Simonet Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, tilkynnti í gærkvöldi byrjunarliðið sem mætir Norður-Írum í undankeppni EM í knattspyrnu ytra í dag. Hann gerði tvær breytingar á liðinu sem hóf leikinn gegn Ungverjum á laugardag- inn. Dóra María Lárusdóttir og Dagný Brynj- arsdóttir koma inn fyrir Laufeyju Ólafsdóttur og Málfríði Ernu Sigurðardóttur. Markvörður: Þóra Helgadóttir, hægri bak- vörður: Ólína G. Viðarsdóttir, miðverðir: Sif Atladóttir og Katrín Jónsdóttir, fyrirliði, vinstri bakvörður: Hallbera Gísladóttir, tengi- liðir: Sara Björk Gunnarsdóttir, Dagný Brynjarsdóttir og Dóra María Lárusdóttir, hægri kantur: Fanndís Friðriksdóttir, vinstri kantur: Hólmfríður Magnúsdóttir og framherji verður Margrét Lára Viðarsdóttir. iben@mbl.is Dagný og Dóra byrja Dagný Brynjarsdóttir Bikarkeppni karla Eimskips-bikarinn: Hamrarnir – Stjarnan...........................11:42 Þýskaland Bikarkeppnin, 3. umferð: Melsungen – RN Löwen ......................29:31  Róbert Gunnarsson skoraði eitt mark fyrir Löwen. Guðmundur Þórður Guð- mundsson er þjálfari liðsins. Beckdorf – TV Bittenfeld....................31:41  Arnór Þór Gunnarsson og Árni Þór Sig- tryggsson hjá Bittenfeld. HG Saarlouis – Füchse Berlin ............28:39  Alexander Petersson skoraði 2 mörk fyr- ir Füchse Berlin. Dagur Sigurðsson er þjálfari liðsins. Wetzlar – Flensburg ............................27:29  Kári Kristján Kristjánsson skoraði eitt mark fyrir Westzlar. Kiel – Magdeburg.................................28:19  Aron Pálmarsson lék með Kiel en skor- aði ekki mark. Alfreð Gíslason er þjálfari liðsins.  Björgvin Páll Gústavsson lék í marki Magdeburg. HANDBOLTI

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.