Morgunblaðið - 26.10.2011, Qupperneq 4
NBA-DEILDIN
Gunnar Valgeirsson
gval@mbl.is
Eftir langar samningaviðræður
eigenda og stéttarfélags leik-
manna NBA-deildarinnar í síðustu
viku virtust möguleikar á að aðilar
væru að nálgast hvor annan og
verkbanni eigenda yrði fljótlega
aflétt. Þegar fulltrúar þessara að-
ila birtust hins vegar eftir fundinn
í fréttaviðtöl var fljótlega ljóst að
allt er nú komið í hnút í deilunni
og lítil ástæða til að halda að
nokkuð verði keppt í deildinni fyrr
en um jól í fyrsta lagi.
Leikmenn fært sig nær
Í samningaviðræðunum í síðustu
viku höfði leikmenn fært sig mun
nær kröfum eigenda um skiptingu
á sameiginlegum „körfuknattleiks-
tekjum“ liðanna. Leikmenn fengu
57% þeirra í síðasta samningi og
voru tilbúnir að minnka sinn hlut í
52,5%, en eigendur eru ekki til
viðræðu um málið fyrr en leik-
menn fara alla leið í 50%. Punktur!
Leikmenn höfðu einnig gefið
eftir í að stytta samninga reyndari
leikmanna, auk þess að þrengja
reglur um svokallað launaþak lið-
anna, sem nú gefa ríkari liðunum
töluvert tækifæri á að fara vel yfir
það.
Eigendur verða sjálfir að
leysa vandann
Þrátt fyrir þennan sveiganleika
leikmanna voru flestir eigendur á
því að standa hart á 50% tölunni
og gefa ekkert eftir af þeirri
kröfu.
Tvennt virðist augljóst í stöð-
unni nú. Í fyrsta lagi er ljóst að
meirihluti eigenda vill fara í hart í
þessari deilu áður en hann sam-
þykkir nýjan samning. Stór hluti
eigendanna heldur því fram að rík-
ari liðin, eins og Chicago Bulls,
Dallas Mavericks, Miami Heat,
New York Knicks og Los Angeles
Lakers, hafi of mikinn sveigj-
anleika að laða til sín stórstjörnur
þar sem eigendur þeirra hafi efni
á að brjóta launaþak liðanna
(hvert lið í deildinni á einungis að
geta greitt leikmannahópi sínum
ákveðna heildarupphæð á hverju
keppnistímabili). Þetta væri hægt
að leysa ef reglur um umfram-
eyðslu væru hertar í núverandi
samningaviðræðum (sem leikmenn
eru tilbúnir að semja um), auk
þess sem eigendurnir sjálfir gætu
bjargað þessu vandamáli með því
að skipta sértekjum sínum betur á
milli liðanna en nú er gert.
Stærsta málið hér er að ríkari lið-
in í stærri borgunum fá mun hærri
tekjur af sjónvarpssamningum sín-
um við sjónvarpsstöðvar sinna eig-
in borga, sem sjónvarpa meiri-
hluta leikja þeirra í
deildarkeppninni. Ef eigendur
dreifðu þeim jafnt myndi þetta
tekjubil liðanna hverfa að miklum
hluta. Hér verða eigendur sjálfir
að leysa vandann.
Annað atriðið er að leikmenn
hafa mun minna vald í þessari
stöðu en margir af þeim halda.
Eigendurnir eru flestir reyndir í
viðskiptum og hafa nægilegt fé til
að standa af sér margra mánaða
verkbann án leikja. Flestir leik-
manna deildarinnar eiga hins veg-
ar stuttan feril og þegar þeir fara
að missa stórar upphæðir í launum
er augljóst að reyna mun á einingu
þeirra í þessari deilu. Svo virðist
sem deila aðilanna muni dragast á
langinn þangað til leikmenn gefa
meira eftir.
Eru eigendurnir blankir?
Opinber rökstuðningur eigenda í
þessari deilu er að meirihluti lið-
anna tapi peningum undir fyrri
samningi eigenda og stéttarfélags
leikmanna og að nýr samningur
verði að bæta það. Þegar rekstr-
artölur liðanna eru hins vegar
skoðaðar kemur í ljós að ekki er
allt sem sýnist. Liðin tapa ekki á
rekstrinum.
Um áratugi hafa eigendur NBA-
liðanna, rétt eins og eigendur í
NFL-ruðningsdeildinni og MBL-
hafnaboltadeildinni, oftast fengið
skattgeiðendur borganna til að
fjármagna stóran hluta af bygg-
ingu leikvanga og íþróttahalla. Það
þýðir að stærsti hluti kostnaðar
þeirra er laun leikmanna. Í þessari
stöðu eru lið ekki í fjárhagsvanda
eða að tapa rekstrarlega.
Líta á lið sín sem búðarkassa
Það sem gerst hefur á undan-
förnum árum er að nýríkir millj-
arðamæringar hafa keypt NBA-lið
á uppsprengdu verði og oft tekið
stór lán á alþjóðafjármálamörk-
uðum til að fjármagna kaupin.
Þetta þekkja knattspyrnu-
áhugamenn vel frá Evrópu, þar
sem nýríkir eigendur líta á lið sín
sem búðarkassa sem þeir geta not-
að að vild.
Þessir eigendur hafa töluverðan
fjárhagskostnað sem þeir verða að
fjármagna, rétt eins og Glazer-
fjölskyldan hjá Manchester United
stendur frammi fyrir á Englandi.
Þennan fjárhagskostnað vilja
margir þessara eigenda að leik-
menn fjármagni að hluta til með
því að gefa meira eftir í samninga-
viðræðunum. Þetta telja leikmenn
afleitt og ósanngjarnt. Hvor að-
ilinn hefur rétt fyrir sér hér er
umdeilanlegt, en ef litið er á
eyðslu margra eigenda á und-
anförnum áratugum er ljóst að þar
til þeir taka betri ákvarðanir í
samningaviðræðum við einstaka
leikmenn mun launakostnaður
þeirra halda áfram að fara upp úr
öllu valdi. Hver ræður því hversu
há laun þeir bjóða leikmönnum?
Reuters
Tilþrif Stjörnurnar í NBA halda sér í formi með því að taka þátt í góðgerðarleikjum og hér eru þeir Carmelo
Anthony, LeBron James og Chris Paul í góðgerðarleik sem fram fór í Flórída fyrr í þessum mánuði.
Allt komið í hnút í NBA
Leikmennirnir tilbúnir að gefa eftir en ekki nóg að mati eigendanna
Meirihluti eigenda vill fara í hart áður en hann samþykkir nýjan samning
Deilur í NBA
» Keppni í NBA-deildinni hefst
varla fyrr en í kringum jólin en
deila á milli eigenda og leik-
manna er í algjörum hnút.
» Um áratugi hafa eigendur
NBA-liðanna, rétt eins og eig-
endur í NFL-ruðningsdeildinni
og MBL-hafnaboltadeildinni,
oftast fengið skattgreiðendur
borganna til að fjármagna
stóran hluta af byggingu leik-
vanga og íþróttahalla.
4 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 2011
Guðjón ValurSigurðsson
og Svíinn Niclas
Ekberg, leik-
menn danska
meistaraliðsins
AG Köbenhavn,
voru valdir í úr-
valslið Meist-
aradeildar Evr-
ópu fyrir leiki síðustu helgar. Báðir
fóru þeir á kostum með Kaup-
mannahafnarliðinu þegar það gerði
sér lítið fyrir og lagði frönsku meist-
arana í Montpellier. Þeir Guðjón og
Ekberg skoruðu níu mörk hvor en
AG Köbenhavn hefur unnið alla þrjá
leiki sína í riðlakeppni Meist-
aradeildarinnar.
Norski landsliðsmarkvörðurinnSteinar Ege, sem leikur með
danska meistaraliðinu AG Köben-
havn, íhugar að gefa ekki kost á sér
með landsliðinu þegar það leikur í
úrslitakeppni Evrópumótsins í Serb-
íu í janúar. Ege hefur þegar tekið
ákvörðun um að gefa ekki kost sér í
æfingamót með norska landsliðinu
en Norðmenn mæta þá Portúgal,
Makedóníu og Litháen. Ege er orð-
inn 39 ára gamall og segist þurfa að
hugsa um skrokkinn en hann átti
stórleik með AG Köbenhavn um síð-
ustu helgi í sigri liðsins á Montpel-
lier. Norðmenn leika í riðli með Ís-
lendingum, Slóvenum og Króötum á
EM.
Leiknismenn,sem nýlega
réðu Willum Þór
Þórsson sem
þjálfara liðsins,
hafa fengið góðan
liðstyrk fyrir bar-
áttuna á næstu
leiktíð en miðju-
maðurinn Andri
Steinn Birgisson hefur skrifað undir
tveggja ára samning við Breiðholts-
liðið. Andri Steinn hefur leikið með
Keflvíkingum undanfarin tvö ár und-
ir stjórn Willums Þórs en samningur
leikmannsins við Keflavík rann út á
dögunum.
Suðurafrískahlaupakonan
Caster Seme-
nya, sem varð
heimsmeistari í
800 metra hlaupi
á HM í Þýska-
landi fyrir tveim-
ur árum, hefur
ákveðið að gera
Mariu Mutolu að þjálfara sínum en
Mutola, sem er frá Mósambík, hefur
bæði orðið heims- og ólympíu-
meistari í 800 metra hlaupi. Mutola
mun þjálfa Semenya fyrir Ólympíu-
leikana sem fram fara í London á
næsta ári. Semenya, sem er tvítug,
varð mikið fréttaefni eftir sigurinn á
HM 2009 en vafi þótti leika á hvort
hún væri karl eða kona. Hún var sett
í bann meðan kynferði hennar var
rannsakað en fékk aftur að keppa
gegn kynsystrum sínum tæpu ári
síðar. Hún keppti á HM í Suður-
Kóreu í ágúst þar sem hún vann til
silfurverðlauna í 800 metra hlaupinu.
Maria hefur verið mitt átrún-aðargoð frá því ég byrjaði að
hlaupa,“ sagði Semenya við fjölmiðla
í Suður-Afríku. „Eftir HM í S-Kóreu
spurði ég hana hvort hún væri
áhugasöm um að þjálfa mig. Hún var
jákvæð fyrir því og nú er ég mjög
ánægð að hún hefur ákveðið að verða
þjálfari minn. Hún á langan og glæsi-
legan feril að baki og ég veit að hún
mun reynast mér frábær kennari,“
sagði Semenya.
Varnarjaxlinn Freyr Bjarnasonhefur skrifað undir nýjan eins
árs samning við FH-inga. Freyr,
sem er 34 ára, hefur leikið með FH
frá árinu 2001 en þar áður var hann í
herbúðum ÍA.
Fólk sport@mbl.is