Morgunblaðið - 27.10.2011, Side 3
FÓTBOLTI
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Svo gæti farið að landsliðsmanninum
sterka, Eggerti Gunnþóri Jónssyni,
verði frjálst að ræða við önnur félög í
janúar. Samningur hans við skoska
úrvalsdeildarliðið Hearts rennur út
næsta sumar en hálfu ári áður geta fé-
lög sett sig í samband við leikmenn í
þeirri stöðu.
Morgunblaðið forvitnaðist um gang
mála hjá Eggerti í gær og var hann
pollrólegur yfir stöðunni. Eggert
sagði Hearts hafa lýst yfir áhuga á því
að halda honum hjá félaginu en hins
vegar væru samningaviðræðurnar
skammt á veg komnar.
„Við erum rétt að byrja að tala
saman. Þeir hafa sagt mér að þeir vilji
gera við mig nýjan samning og ég
ætla bara að bíða eftir tilboði frá þeim
og sjá hvernig mér líst á. Ef ekkert
spennandi kemur út úr því þá skoða
ég kannski aðra möguleika. Ég er
ekkert að stressa mig á þessu,“ sagði
Eggert en hann kann vel við sig hjá
félaginu enda hefur hann verið í her-
búðum þess í Edinborg allar götur
síðan 2005. Eggert er þó einungis 23
ára gamall en hefur öðlast mikla
reynslu í Skotlandi og er varafyrirliði
Hearts.
Ræðir við Hearts
Fréttir bárust af því í lok sept-
ember að Eggert hefði hafnað tilboði
frá Hearts en hann segir félagið ekki
hafa lagt fyrir sig formlegt samnings-
tilboð heldur hafi verið um þreifingar
að ræða.
„Þetta var frekar óformlegt en ég
hafnaði því ekki að semja aftur við fé-
lagið þó ég hafi sagt þeim að ég væri
ekki sáttur við þær hugmyndir sem
þeir viðruðu á þeim tímapunkti. Við
höfum rætt saman í rólegheitunum
síðan þá þó það sé ekki komið á alvar-
legt stig,“ sagði Eggert sem nú stend-
ur frammi fyrir þeirri spurningu
hvort hann eigi að söðla um og reyna
sig á nýjum slóðum eftir að hafa sann-
að sig í skosku deildinni.
Kominn tími á nýja áskorun?
„Í janúar má ég tala við önnur félög
og þá gæti svo sem eitthvað komið
upp. Ég ætla samt sem áður að heyra
fyrst hvað Hearts hefur að bjóða en ef
það verður ekki ákjósanlegt þá byrja
ég að horfa í kringum mig í janúar.
Ég kann vel við mig hérna en það er
spurning hvort maður þurfi að breyta
til. Ég er búinn að vera hérna lengi og
kannski er kominn tími á nýja áskor-
un,“ sagði Eggert ennfremur og mun
vafalaust hafa úr einhverjum til-
boðum að velja fari svo að hann verði
ekki búinn að semja í janúar.
Líst vel á Lagerbäck
Eggert hefur unnið sér fast sæti í
landsliðinu á undanförnum misserum
og var fastamaður í U-21 árs liðinu
sem komst í lokakeppnina í Dan-
mörku í sumar. Þar lék hann í stöðu
hægri bakvarðar en Eggert spilar oft-
ast nær sem tengiliður. Ekki var því
úr vegi að spyrja Eggert hvernig hon-
um lítist á nýja landsliðsþjálfarann,
Lars Lagerbäck? „Mér líst vel á.
Hann hefur gríðarlega góða reynslu
og gerði mjög góða hluti með Svíþjóð.
Það er aðalmálið í þessu og kannski
var þetta eitthvað sem þurfti til þess
að rífa landsliðið upp aftur því það
hefur verið mikil lægð yfir þessu og
neikvæðni.Vonandi nær hann að lyfta
þessu öllu saman upp. Ég vonast eftir
því að halda áfram að standa mig og
geta fengið tækifæri til að vinna með
honum,“ sagði Eggert í samtali við
Morgunblaðið.
„Ég er ekkert að
stressa mig á þessu“
Samningur Eggerts Gunnþórs við Hearts rennur út að tímabilinu loknu
Morgunblaðið/Eggert
Sterkur Eggert Gunnþór Jónsson hefur betur í návígi í sigurleiknum á móti Kýpur í Laugardalnum á dögunum.
ÍÞRÓTTIR 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. OKTÓBER 2011
Xavi Hern-andez er
nú orðinn sá
leikmaður
Barcelona sem
hefur spilað
flesta deild-
arleiki fyrir fé-
lagið. Xavi lék
sinn 392. deild-
arleik gegn Granada í fyrrakvöld
og hélt upp á það með því að
skora eina mark leiksins. Xavi tók
leikjametið af Migueli sem lék
með Katalóníuliðinu á sjöunda og
áttunda áratugnum. Xavi á líka
metið hjá Barcelona yfir þá leik-
menn sem hafa spilað flesta leiki
fyrir liðið en þeir eru núna orðnir
591.
Nýliðar Vals í úrvalsdeild karlaí körfuknattleik hafa fengið
liðsauka fyrir baráttuna í Iceland
Express-deildinni. Hamid Dicko
er kominn til félagsins að því er
fram kemur á vef félagsins. Dicko
er bandarískur en er með franskt
ríkisfang. Dicko lék með Vals-
mönnum þegar þeir töpuðu fyrir
Njarðvíkingum í Lengjubikarnum
í fyrrakvöld. Í þeim leik skoraði
hann 14 stig.
HelenaSverr-
isdóttir skoraði
fimm stig og lék
í 13 mínútur
þegar lið henn-
ar, Good Angels
Kosice frá Sló-
vakíu vann Go-
spic frá Krótaíu, 91:76, í Meist-
aradeild Evrópu í körfuknattleik á
útivelli í gær. Þetta var annar sig-
ur Helenu og félaga í þremur
leikjum í keppninni.
Tonje Larsen, einn af lyk-ilmönnunum í norska kvenna-
landsliðinu í handknattleik sem
Þórir Hergeirsson þjálfar verður
ekki með Norðmönnum á heims-
meistaramótinu sem fram fer í
Brasilíu í desember. Larsen hefur
glímt við hnémeiðsli um nokkurt
skeið og undafarin hefur hún ekki
æft með liði sínu, Larvik, heldur
bara spilað. „Það er erfitt að geta
ekki æft og spilað á full, segir
Larsen á vef Larvik.
Fólk sport@mbl.is
Ernir Hrafn Arnarsson og sam-
herjar hans í þýska handknattleiks-
liðinu Düsseldorf féllu í gærkvöldi úr
þýsku bikarkeppninni í handknatt-
leik. Sömu sögu er að segja af Berg-
ischer HC, sem Rúnar Kárason leik-
ur með. Bergischer laut í lægra haldi
fyrir 2. deildar liðinu Friesenheim.
Ernir Hrafn skoraði sex mörk, þar
af tvö úr vítakasti, þegar Düsseldorf,
sem leikur í 2. deild, tapaði fyrir 1.
deildar liðinu Lübbecke, 34:32, á
heimavelli í hörkuleik. Ernir Hrafn
hefur sótt jafnt og þétt í sig veðrið í
leikjum Düsseldorf eftir því sem á
keppnistímabilið hefur liðið en hann
kom til Düsseldorf í sumar.
Bergischer HC var undir allan
leikinn við Friesenheim á heimavelli
og tapaði með sex marka mun, 33:27.
Rúnar skoraði fjögur mörk.
Óhætt er að segja að um brotlend-
ingu hafi verið að ræða hjá Berg-
ischer HC því um síðustu helgi fóru
leikmenn liðsins á kostum og unnu
stóran sigur á SC Magdeburg.
Hannover Burgdorf, sem Ásgeir
Örn Hallgrímsson, Hannes Jón Jóns-
son og Vignir Svavarsson leika með,
vann stórsigur á Dessau, 35:20, á úti-
velli. Vignir skoraði fimm mörk.
Góður sigur hjá Holstebro
Þórey Rósa Stefánsdóttir skoraði
þrjú mörk fyrir Team Tvis Holstebro
þegar liðið lagði Danmerkurmeistara
FCM Håndbold, 29:27, á heimavelli í
dönsku úrvalsdeildinni í handknatt-
leik í gær að viðstöddum nærri 2.500
áhorfendum. Leikurinn var jafn og
spennandi frá upphafi til enda. Leik-
menn Team Tvis Holstebro voru yfir
nær allan leikinn en gestirnir náðu
þó eins marks forskoti um miðjan
síðari hálfleikinn, 22:21.
Rut Jónsdóttir gat ekki leikið með
Team Tvis Holstebro vegna meiðsla.
Team Tvis er á toppi deildarinnar
með 13 stig að loknum átta leikjum
eins og Viborg og Esbjerg. Randers
kemur þar á eftir með 12 stig og á
leik til góða. iben@mbl.is
Brotlending hjá Rúnari og félögum
Bikarkeppni karla
Fjölnir – HK ..........................................13:36
Víkingur – ÍBV ......................................28:29
Danmörk
A-deild karla:
Tvis Holstebro –Bj./Silkeborg ...........26:29
Guðmundur Árni Ólafsson leikur með
Bjerringbro.
A-deild kvenna:
Team Tvis Holstebro – Midtjylland ...29:27
Þórey Rósa Stefánsdóttir skoraði þrjú
mörk fyrir TTH. Rut Jónsdóttir gat ekki
leikið með liðinu vegna meiðsla.
Þýskaland
Bikarkeppnin, 3. umferð:
Friesenheim – Bergischer HC............33:27
Rúnar Kárason skoraði fjögur af mörk-
um Bergischer
Dessau – Burgdorf ...............................20:35
Ásgeir Örn Hallgrímsson og Hannes
Jónsson léku með Burgdorf. Vignir Svav-
arsson skoraði fimm mörk með Burgdorf
en takmarkaðar upplýsingar bárust um
leikinn.
Düsseldorf – Lübbecke........................32:34
Ernir Hrafn Arnarson skoraði 6 mörk
fyrir Düsseldorf.
Svíþjóð
A-deild karla:
Alingsås – Malmö .................................30:22
Ásbjörn Friðriksson var ekki á meðal
markaskorara Alingsås.
Guif - Drott............................................31:25
Haukur Andrésson skoraði ekki fyrir
Guif í leiknum. Kristján bróðir hans þjálfar
liðið.
Gunnar Steinn Jónsson skoraði 4 mörk
fyrir Drott en fékk rautt spjald á síðustu
mínútu.
HANDBOLTI
sú að mörg lið tefla fram þremur erlendum leik-
mönnum og við stöndum verr að því vígi að því leyti.
Ég varaði við þessu og ítrekaði óskir mínar um að fá
að bæta við leikmanni. Sérstaklega vegna þess að ég
tel að Tindastóll eigi mjög góða möguleika í vetur í
ljósi þess að lykilmenn úr sterkari liðunum eru farnir
utan. Til að mynda fannst mér það vera afar gott
skref að fá Þröst Leó Jóhannsson frá Keflavík en að
tefla bara fram tveimur erlendum leikmönnum var
að mínu mati tvö skref aftur á bak. Við byrjuðum
mjög illa í deildinni og töpuðum fyrstu þremur leikj-
unum. Mér fannst á þeim tímapunkti rétt að láta
staðar numið þar sem ég hef meiri metnað en svo. Ég
óska Tindastóli og vinum mínum í Skagafirði að sjálf-
sögðu alls hins besta,“ sagði Ilievski við Morg-
unblaðið. kris@mbl.is
di
Illa hefur gengið hjá hollenska meistaraliðinu
Ajax síðustu vikurnar en frá því liðið lagði Her-
acles í hollensku deildinni, 3:2, hinn 10. september
hefur meisturunum aðeins tekist að innbyrða fjög-
ur stig í fimm leikjum.
Frank de Boer, þjálfari liðsins, hefur vitaskuld
áhyggjur af gengi sinna manna en hann ræddi við
leikmenn liðsins í gær og er bjartsýnn á að liðið
komist á rétta braut á næstunni.
„Slaka frammistöðu okkar má að mínu mati
helst rekja til hugarfarsins hjá leikmönnum en
hefur ekkert með leikskipulag liðsins að gera,“
sagði Frank de Boer í samtali við hollenska blaðið
De Telegraaf.
„Ég veit hvað menn eru færir um að gera og það
var góður andi á fundi okkar. Allir fengu tækifæri
til að tjá tilfinningar sínar. Það er erfitt að finna
útskýringu á slöku gengi okkar
upp á síðkastið en ég er vongóð-
ur um að við komumst á rétta
sporið eftir þennan fund,“ sagði
De Boer en meistararnir eru í
sjötta sæti deildarinnar með 17
stig eftir 10 umferðir.
Kolbeinn Sigþórsson leikur
sem kunnugt er með Ajax en er
á sjúkralistanum eftir að hafa
fótbrotnað fyrr í þessum mán-
uði. Hann gekkst í kjölfarið und-
ir aðgerð og vonir standa til að hann geti byrjað að
spila um mánaðamótin janúar-febrúar. Kolbeins
hefur verið sárt saknað í framlínunni en áður en
hann meiddist hafði hann skorað fimm mörk í átta
leikjum með liðinu. gummih@mbl.is
Boer kennir hugarfarinu um slakt gengi
Kolbeinn
Sigþórsson