Morgunblaðið - 27.10.2011, Side 4
4 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. OKTÓBER 2011
ólfsson, þegar Morgunblaðið náði
tali af honum í gærkvöldi.
Ánægja með Dagnýju og Dóru
Ísland sigraði Norður-Írland 2:0
en Rangæingarnir Hólmfríður
Magnúsdóttir og Dagný Brynj-
arsdóttir skoruðu mörkin með
tveggja mínútna millibili skömmu
fyrir leikhlé. Sigur Íslands var því
meira sannfærandi en í Belfast í síð-
ustu undankeppni þar sem Ísland
vann 1:0 með marki Katrínar Óm-
arsdóttur seint í leiknum. Dagný
kom inn í byrjunarliðið ásamt Dóru
Maríu Lárusdóttur sem lagði upp
fyrra markið og Sigurður hrósaði
þeim sérstaklega fyrir þeirra fram-
lag.
„Núna spiluðum við miklu, miklu
betur. Flæðið var gott í sóknar-
leiknum þar sem boltinn gekk vel á
milli leikmanna. Við sköpuðum okk-
ur fullt af færum og vorum hættuleg
í föstum leikatriðum. Fyrra markið
kom eftir horn og það var gott því
við höfum aðeins hikstað í föstum
leikatriðum eftir að við misstum
Eddu út. Það er líka jákvætt, að þó
að við missum út sterka leikmenn
eins og Eddu og Katrínu Ómars, þá
koma aðrar inn og standa sig vel. Ég
var mjög ánægður með þær sem
komu inn í liðið vegna þeirra breyt-
inga sem ég gerði frá síðasta leik.
Þær stóðu sig frábærlega vel, bæði
Dóra María og Dagný.“
Úrslitin í riðlinum sýna að sigr-
arnir eru ekki auðsóttir og því er
vafalaust öllum í íslenska hópnum
létt eftir að hafa náð sex stigum út úr
leikjum ferðarinnar. Ísland hefur
setið í toppsæti riðilsins frá fyrsta
leik í vor og gaf ekki færi á sér í
þessari atrennu.
Morgunblaðið/Eggert
Barátta Tveir leikmenn N-írska landsliðsins sækja að Ólínu G. Viðarsdóttur bakverði íslenska landsliðsins.
Viðeigandi endir á árinu
Kvennalandsliðið í knattspyrnu lauk frábæru ári með sannfærandi sigri
Öruggari sigur en síðast í Belfast Ísland heldur toppsæti riðilsins
Oval-völlurinn í Belfast, undankeppni
EM-kvenna, miðvikudaginn 26. októ-
ber 2011.
Skilyrði: Svalt í veðri en völlurinn
ágætur þrátt miklar rigningar.
Skot: N-Írland 5 (2) – Ísland 16 (8).
Horn: N-Írland 1 – Ísland 8.
Lið N-Írlands: Emma Higgins,
Lyndsay Corry, Demi Vance, Nadane
Coldwell, Julie Nelson, Ashley Hut-
ton, Kenda McMullan (Jessica
Stephens 66.), Rachel Furness, Sa-
rah McFadden, Kristy McGuinness
(Simone Magill 79.), Aoife Lennon
(Laura Nicholas 88).
Lið Íslands: (4-3-3) Mark: Þóra B.
Helgadóttir. Vörn: Ólína G. Viðars-
dóttir, Sif Atladóttir, Katrín Jóns-
dóttir, Hallbera Gísladóttir. Miðja:
Fanndís Friðriksdóttir, Sara Björk
Gunnarsdóttir, Dagný Brynjarsdóttir
(Þórunn Helga Jónsdóttir 78.), Dóra
María Lárusdóttir (Guðný Björk Óð-
insdóttir 81.), Hólmfríður Magn-
úsdóttir (Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir
89.). Sókn: Margrét Lára Viðars-
dóttir.
Dómari: Carina Vitulano frá Ítalíu.
N-Írland – Ísland 0:2
FÆRI 19. Ólína G. Við-arsdóttir fékk
dauðafæri um tvo metra frá mark-
inu eftir hornspyrnu Dóru Maríu
Lárusdóttur en skallaði framhjá.
0:1 39. Aftur tók DóraMaría hornspyrnu og aft-
ur reyndi Ólína fyrir sér. Að
þessu sinni skaut hún í Hólmfríði
Magnúsdóttur og þaðan fór tuðr-
an í netið.
0:2 41. Dagný Brynj-arsdóttir bætti öðru
marki við aðeins tveimur mínútum
síðar. Hallbera Guðný Gísladóttir
gaf fyrir frá vinstri og Dagný
skallaði laglega í fjærhornið úr
vítateignum. Vel að þessu marki
staðið.
I Gul spjöld:Engin.
I Rauð spjöld: Engin.
Dagný Brynjarsdóttir skoraði
sitt fyrsta
mark í A-
landsleik þeg-
ar hún gerði
seinna mark
Íslands í Bel-
fast í gær-
kvöld. Þetta
var hennar
17. lands-
leikur.
Hólmfríður
Magnúsdóttir, sem er úr Rang-
árvallasýslunni eins og Dagný,
skoraði hinsvegar sitt 26. mark en
hún er næstmarkahæsta landsliðs-
kona Íslands frá upphafi.
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir,
fyrirliði Íslandsmeistara Stjörn-
unnar, kom inn á undir lokin og
spilaði sinn fyrsta A-landsleik.
Margrét Lára Viðarsdóttir,
Katrín Jónsdóttir, Sif Atladóttir,
Hallbera Guðný Gísladóttir og
Sara Björk
Gunn-
arsdóttir
voru í byrj-
unarliði Ís-
lands í öll-
um níu
landsleikj-
unum á
þessu ári.
Ólína G.
Viðarsdóttir og Fanndís Friðriks-
dóttir léku líka alla níu landsleik-
ina. Ólína kom einu sinni inn á
sem varamaður og Fanndís tvisv-
ar.
Margrét Lára Viðarsdóttir varð
markahæst á árinu með 8 mörk
fyrir landsliðið og er nú með 63
samanlagt. Hólmfríður Magn-
úsdóttir skoraði 4, Dóra María
Lárusdóttir 2, og þær Katrín
Jónsdóttir, Hallbera Guðný Gísla-
dóttir, Sara Björk Gunnarsdóttir,
Katrín Ómarsdóttir og Dagný
Brynjarsdóttir gerðu sitt markið
hver.
Ísland lék án Eddu Garð-
arsdóttur og Katrínu Ómars-
dóttur sem báðar eru tengiliðir.
Edda var í landsliðshópnum en
lék hvorki í Ungverjalandi né í
Norður-Írlandi. Hún sat á bekkn-
um í fyrri leik ferðarinnar en í
gærkvöldi var hún ekki í hópnum
vegna veikinda. Katrín gaf ekki
kost á sér vegna anna í námi í
Berkeley í Bandaríkjunum.
Landsliðsþjálfarinn Sigurður
Ragnar Eyjólfsson gerði tvær
breytingar á liðinu frá því í sig-
urleiknum á móti Ungverjum á
laugardaginn. Dóra María Lár-
usdóttir og Dagný Brynjarsdóttir
komu inn í liðið sem miðtengiliðir
í stað þeirra Laufeyjar Ólafs-
dóttur og Málfríðar Ernu Sigurð-
ardóttur sem fengu sér sæti á
varamannabekknum.
Ísland spilar ekki aftur í und-
ankeppni EM fyrr en 4. apríl en í
millitíðinni spila hin liðin í riðl-
inum átta leiki. Ísland mætir
Belgíu á útivelli 4. apríl.
Ísland lék í gærkvöldi fimmta
leik sinn í keppninni en liðið er
með 13 stig eftir fimm þá fyrstu.
Ísland vann Búlgaríu 6:0, Noregi
3:1 og Ungverjaland 1:0 en gerði
0:0 jafntefli við Belgíu.
Þetta gerðist
í Belfast
FÓTBOLTI
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Íslenska kvennalandsliðið í knatt-
spyrnu lauk í gærkvöldi einu glæsi-
legasta ári í sinni sögu með því að
sækja þrjú stig til Belfast í undan-
keppni EM. Ísland er á toppi riðils-
ins með fjóra sigra og eitt jafntefli
eftir fimm leiki en tekur ekki upp
þráðinn í keppninni fyrr en í apríl á
næsta ári.
„Í síðustu tveimur leikjum hafði
verið svolítið basl á okkur en leik-
menn mínir komu ótrúlega sterkir til
leiks og spiluðu flottan fótbolta. Það
er virkilega gaman að enda þetta
frábæra ár hjá okkur svona vel. Við
spiluðum úrslitaleik á Algarve, höf-
um unnið fjögur lið sem eru hærra
skráð en við og höfum unnið alla
hina leikina nema leikinn gegn Belg-
íu sem fór 0:0. Eini tapleikur ársins
var á móti besta liði í heimi og það er
því varla hægt að gera betur en við
höfum gert núna í ár,“ sagði lands-
liðsþjálfarinn, Sigurður Ragnar Eyj-