Austurland - 25.04.1975, Page 1
MÁLGAGN ALÞÝGUBANDALAGSINS ÁAUSTURLANDI
25. árgangur.
Neskaupstaö, 25. apríl 1975.
18. tölublað.
1 ðrstí
Samkvæmt almanakinu er nú
vetur a3 baki og sumarið gengið
í garð.
Sumardagurmn fyrsti hefur
jafnan verið merkisdagur með
íslendingum. Hann er tákn þess,
að veturinn sem oft hefur xeynst
þjóðinni þungbær sé runninn í
aldanna skaut og framundan sé
betri tíð og bættur hagur. En
oft hefur sumaiáð brugðist von-
um manna, einkum fyrr á öld-
um, þegar 'menn höfðu fá úrræði
ti'i að verjast óáran af völdum
i-lrar veðráttu eða náttúruafl-
anna.
Liðinn vetur varð Norðfirð-
ingum mjög erfiður. Snjóþyngsli
voru með meira rnóti og gildir
það raunar um Austurland allt,
og samgönguerfiðleikar miklir.
Miptin
En hið skelfilega áfall, sem
dundi yfir Neskaupstað 20. des-
ember, var auðvitað þyngsta
launin. Mannskaðinn, sem þá
varð, var vitanlega sárastur og
tilfinnanlegastur. En það tjón,
sem varð á atvinnutækju'm, var
einnig þungt áfall. í einni svip-
an sópuðust burtu eða stór-
skemmdust í snjóflóði helstu at-
vinnutæki bæjarins.
Norðfirðingar brugðust af
manndómi við áfallinu. Æðru-
lausir gengu þeir að björgunar-
störfum og slkjótlaga fóru þeir
að huga að endurreisnarstarf-
inu.
Sú mikla og almenna samúð
og aðstoð, sem norðfirðingar
nutu í þessum þrengingum, var
þeim mikill styrkur. Og fram-
coðm aðstoð nágrannanna og
fjárhagslegur stuðningur ríkis-
valds og al’mennings, sýndu svo
að ekki varð um villsþ að norð-
fircingar stóðu ekki einir; heldur
var litið á slysið sem skaða þjóð-
arinnar allrar og að í hlut þjóð-
a.heildarinnar kæmi að bæta
það sem bætt varð.
Norðfirðingar gieyma aldrei
Liðnum vetri.
En nú er sumarið gengið í
garð og öll vonum við að það
verði gjöfullt og að í sumar verð-
um við þess megnug, með aðstoð
samborgaranna, að græða sem
best þau sár sem veturinn veitti
okkur. Kappsa’mlega verður
unnið að uppbyggingarstarfinu
cg að því stefnt að ljúka því á
þessu ári. Vonandi tekst það.
Austurland óskar lesendum
sinum og landsmönnum öllum
gleðilegs sumars.
Hvaö er í fréttum?
Fra Hornafiröi
Tíðarfarið hefur verið hér með
eindæmum milt og votviðra-
samt, en ekki viðrað að sáma
skapi vel fyrir sjóinn. Svo bætist
það ofan á. að aflinn er mjög
lélegur — það fiskast hreint
ekki neitt.
Héðan róa 12 bátar á net og
bolfiskaflinn er um 2300 tonn.
Þetta er hreinasta hörmung,
okkur vantar togara, við vorum
bölvaðir klaufar að fylgja ekki
þeim sem keyptu sér skuttog-
ara. Þá væri annað ástand hér í
fiskvinnslunni, en þar hefur
stundum rétt hangið í að dag-
vinna hafi verið unnin.
Loðnubræðslunni er nú senn
að ljúka. Á land bárust 14.800
tonn, sem eru um 1000 tonnum
minna en í fyrra.
Dýrtíðin flæðir yfir eins og
landfarsótt. Fjölbýlishúsbyggj-
endur hafa svona heldur betur
fengið að kenna á verðlagsþró-
uninni_ sem raunar fleiri. Þann-
ig er nú byggingarkostnaður
fjölbýlishúsanna kominn 50—
60% fram úr áætlun og 'miklir
eriiðleikar blasa við fyrir alla
aðila. Sveitarfélagið sem fram-
kvæmdaaðili er komið í van-
skil við verktaka og kaupendur
íbúðanna horfa fram á einhverj-
ar vanefndir á afhendingu íbúð-
anna, en þær fyrstu átti að af-
henda 1. apríl n. k. Það er nefni-
lega enga peninga að fá að láni.
Þingmennii'nir eru fullir af
„góðum vilja“ til að redda lán-
um en allt er samt stopp.
Ég vorkennf dálítið þingmönn-
um stjórnarflokkanna í svona
málum. Það er svo erfitt að fram
kvæ’ma samdráttar- og niður-
skurðarstefnu stjórnarinnar og
hafa um leið „góðan vilja“ hér
úti á landsbyggðinni. Þetta
tvennt á eina og sama andar-
takinu, hlýtur að valda pólitískri
kransæðastíflu!
Á laugardaginn fyrir páska
var opnaður grillskáli í sam-
bandi við bensínafgreiðslu Skelj-
ungs hér á Höfn. Þar eru á boð-
stólum ýmsar veitingar s. s.
grillréttir, kaffi, brauð, öl o. fl.
Skálann eiga í sameiningu Sig-
urður Sigfússon og Viðar Þor-
björnsson, en Viðar sér um allan
rekstur skálans.
Annað fréttnæmt hefur ekki
gerst hér í byggðarlaginu. Allar
sögur um reka á njósnaduflum
er löngu liðin tíð og enginn veit
með vissu hver duflar við hvern
um þessar mundir.
Þorsteinn Þorsteinsson.
Héraðsvahð
Menningarsamtök Héraðsbúa
gangast fyrir héraðsvöku í
Valaskjálf Egilsstöðum 2. 3. og
4. maí n. k. Dagskráratriði verða
á kvöldin. 2. ’maí verður fundur
um menntaskóla á Austurlandi.
3. maí verða fljótsdælingar með
dagskrá og einnig verður þá
dansleikur. 4. maí verður síðan
dagskrá helguð Kristjáni frá
Djúpalæk og verður skáldið við-
statt. Gestur vökunnar verður
Vilhjálmur Hjálmarsson,
menntamálaráðherra.
Áshorun
Svohljóðandi áskorun var sam
þykkt af hreppsnefndinni á
Egilsstöðum:
Hreppsnefnd Egilsstaðahrepps
skorar á Menntamálaráðherra,
að sjá svo um að nýleifð hækk-
jn afnotagjalda sjónvarps fyrir
tímabilið 1. janúar til 30. júní
náj ekki til sjónvarpsnotenda á
\uiturlandi, vegna óviðunandi
móttökuskilyrða frá Gagnheið-
arstöðinni síðastliðinn vetur, eða
verulegur afsláttur verði veitt-
ur.
Hreppsnefndin mótmælir harð
lega, að afnotagjöld fyrir út-
varp og sjónvarp eru innheimt
sameiginlega, og menn látnir
greiða fyrir útvarpstæki þó eig-
andi sjónvarpstækis eigi ekkert
útvarp.
Bridgemót Austurlands
Sl. helgi var bridgemót Aust-
urlands haldið í Neskaupstað.
AUs kepptu 9 sveitir frá Egils-
stöðum, Neskaupstað, Fásikrúðs-
firði og Stöðvarfirði. Úrslit
urðu þessi:
Nr. 1 sveit Sigfinns Karlsson-
ar Nesk., 1111 stig. Auk Sig-
finns eru í sveitinni Friðrik Vil-
hjálmsson, Bjarni Guðmundsson
og Valdemar Andrésson.
Nr. 2 sveit Þórarins Hallgríms
sonar, Egilsstöðum 1092 stig.
Nr. 3 sveit Ara Sigurbjörns-
sonar, Egilsstöðum 1053 stig.
Nr. 4 sveit Bjöms Steindórs-
scnar, Neskaupstað 1000 stig,
Spiluð voru 56 spil og meðal-
skor 1008 stig.
Ráðgert er að tvímennings-
keppni Austurlands verði haldin
á Fáskrúðsfirði í lok maí.
— G. B.
ÚR BÆNUM
Afmæli
Hjálmar Kristjánsson, fyrr-
verandi verkámaður, Þiljuvöll-
um 8, varð 80 ára í gær — 24.
apríl. Hann fæddist í Sandhúsd,
Mjóafirði en fluttist hingað 1965
Frá blaðinu
Að réttu lagi á Austurland að
koma út n. k. þriðjudag, en út-
gáfu blaðsins. hefur verið frest-
að til n. k. fimmtudags — 1.
'maí.