Austurland - 25.04.1975, Qupperneq 4
4
AUST URLAND
Neskaupsm^, 25. apnl 1975
Stefán Jónsson, alþm.:
3árnbjání á Austfjörðum
Málgagn Framsóknarflokks-
ins í Austurlandskjördæmi birti
fyrir skemmstu óundirskrifaða
grein um afstöðu mína til kísil-
járnverksmiðjunnar sem fyrir-
huguð er i Hvalfirði. Þetta
hnýtti höfundur svo við þings-
ályktunartillögu sem ég fiiutti í
vetur um áburðarverksmiðju á
Norðurlandi eystra, nánar til
tekið á Kópaskeri eða við Fjalla-
hiö'fn.
Ekki get ég hælt mér af því
að hafa knúið flokksforystu Al-
þýðubandaiagsns til andstöð-
unnar gegn þessari verksmiðju.
Fkokkurinn gerði einróma sam-
þykkt á fundi sínum í haust er
leið þar sem kveðið er ljósum
orðum að afstöðu Alþýðubanda-
lagsins í málinu, en tillöguna
þar að lútandi undiirituðu þeir
Lúðv.k Jós-epsson, Magnús Kjart
ansson og Ragnar Arnalds. í
minn hlut kom aðeins að hafa
orð fyrir flokknum í efrideild
Aiþingis þar sem frumvarp rík-
isstjórnarinnar um þetta ó-
þokkalega mál var lagt fram.
í þingflokki Alþýðubandalags-
ins hefur alls ekki verið neinn
ágreiningur um kísiljárnfrum-
varpið, þótt einstakir þingmenn
hafi tíundað rök sín gegn því í
mismunandi röð. Ég hef til
dæmis talið fyrst fram þau rök-
in, sem lúta að lífríki og vist-
fræði. hættu á mengun. óæski-
legum félagslegu’m áhrifum,
röskun byggðajafnvægis, aug-
ljóst efnahagslegt tjón af þess-
um fyrirhugaða samningi, og
svo loiks þá vanvirðu að ganga í
félagsskap við annað eins fyrir-
bæri og auðhringinn Union
Carbide.
Framsóknarflokkurinn hefur
tekið sér forystúhlutverk í
„karbítsmálinu,“ eins og það
nefnist á þingi. Það er leiðinlegt,
að þessi fyrrverandi vinstri-
stjórnarflokkur, sem lætur 1-
haldið teym-a sig til hvers óhæf u- I
verksins á fætur öðru, skuli ekki
hafa getað álpast til þess að
velja sér sæmilegra mál að hafa
forystu um í hægri stjórninni þá
loks hann tók sér eitthvað fyrir
hendur. Það er til dæmis ótví-
rætt, að þingflokkur Framsókn-
ar gekk fram fyrir skjöldu í því
að synia beiðni Búnaðarþings,
Búnaðarsambands Borgarf j arð-
ar og bændasamtakanna f Kjós
og á Kjalarnesþ um líffræðileg-
ar athuganir við Hvalfjörð, sem
Alþingi gæti stuðst við er það
tæki afstöðu til frumvarpsins.
Þessar kröfur studdi ég náttúru-
lega með ráðum og dáð, jafn-
framt því sem ég brafðist rann-
sókna varðandi féiagsleg áhrif
af völdum þessa fyrirtækis, og
könnunar á fyrirsjáanlegum
búsetuáhrifum í landinu. Öllu
þessu synjaði þingflokkur Fram-
sóknar, og kaus heldur að láta
sitja við yfirlýsingar Union
Carbides sjálfs u'm skaðleysi
verksmiðjunnar.
Sjálíur er ég efaiaus um það
að lífríki Hvaifjarðar og þar
næst sjáús Faxaflóa er steínt í
voða með þessari verksmiðju-
gerð. Það eru þungmálmar frá
svipuðu iðjuveri, sem eitruðu
einhver frjósömustu fiskimið
Japana í flóa. sem er þrisvar
sinnum stærri að flatarmáli en
Faxaflói. Þar er nú hvert kvik-
indi baneitrað^ og veiðar bann-
aðar eftir að hundruð manna
létust en þúsundir biðu varan-
legt heilsutjón af völdum fisk-
eitrunar. Einnig austfirðingar
eiga no-kkuð í húfi þair sem er
lífríki Faxaflóa. Þó munu þeir
áður finna fyrir áhrifum hinnar
nýju byggðastefnu, sem mark-
ast aí 40 milljarða fjárfestingu
á næstu fjórum árum í beinum
og óbeinum tengslum við þetta
fyrirtæki Framsóknarflokksins.
Ekki veit ég hvort heldur það
er fyrir greindarsakir eða sann-
sögli að hinn nafnlausi'greinar-
höfundur tengir kísiljárnverk-
smiðjuna við þingsályktunartil-
lögu mína um ábuiðarverk-
smiðju á Norðurlandi eystra.
Gætu þó báðar dyggðirnar ráð-
ið nokkru um. í þingsályktunar-
tllögunni segir að hún skuli
miðuð við þörf íislenskra bænda
fyrir áburð á ræktunarlönd sín
O'g bithaga, og er miðað við að
afköstin verði álíka og verk-
smiðjunnar í Gufunesi. Ástæðan
fyrir staðarvalinu er fyrst og
fremst sú, að á þessu svæði verð-
ur tiitækt rafmagn frá Kröflu-
virkjun innan skamms, en hitt
talið líka, að æskilegt væri fyrir
byggðina í Norður-Þingeyjar-
sýslu að verksmiðjan rísi þar.
Ég treysti mér ekki til að út-
skýra nákvæmlega fyrir grein-
arhöfundi þann mun_ sem al-
þýðubandalagsmenn sjá á notk-
un raforku til framleiðslu á á-
burði sem stuðlað geti að auk-
inni framleiðslu ’matvæla í svelt-
andi heimi_ og á framleiðslu
kísiljárns.
Og nú höfum við Helgi Seljan
lagt fram 1 þokkabót fi'umvarp
um enn aðra verksmiðju til nýt-
ingar íslenskrar raforku í þágu
landsbyggðarinnar: Byggingar-
efnaverksmiðju ríkisins, sem
framleiði gler, einangrunarplöt-
ur, þak- og veggjapiötur úr ís-
lensku grjóti og gosefnum. Fram
leiðslunni á að verja til húsbygg-
inga á þessu kalda og vætusama
landi. Ónefndum ritsnillingu’m
Framsóknarflokksins á Austur-
landi er frjálst að líikja því fyrir-
tæki einnig við kísiljárnsverk-
smiðju ef þeim þóknast.
Þegar ég var að álast upp á
Austurlandi voru þar rnargir
grandvarir og vitrir menn sem
studdu Framsóknarflokkinn.
Þeim hefur náttúrulega fækkað
talsvert. Ef svo skyldi nú reyn-
ast að höfundur fyrrnefndrar
greinar væri ekki austfirðingur
þá bið ég frændur mína og vini
í röðum Framsóknar þar eystra,
velvirðingar á því að ég skyldi
láta mér detta það í hug. Það
hefur margt breyst síðan ég
fluttist að austan. Svona menn
voru náttúrulega til. En við not-
uðu’m þá ekki.
WWVWWVW V\\\\\V\\\\ vw V V WVVVWVVVWV V V
Minningarkort
Sjálfsbjargar
íást i Apótekinu og Bókabúðinni
vvvwwvvvvvwx wvvvvwvvvvvvvvvvvvvvvvvvw
WWVV VWWW WWWVV VWWVVWW WVW W V V VWV V WV W V V V W V W VV V W V V V V W W WW V VV W V VV V'VV vv
Héraðsvaka 1975
*•*
í Valaskjálf, Egilsstöðum 2.—4. viaí i
Föstuidiaginn 2. maí kl. 21. \
1) Héraðsvaka sett. %
2) Umræðufundur um Menntaskóla á Austurlandi. S
Frummælendur Hjörleifur Guttoi’msson forrn. bygg- j
ingarnefndar, arkitektar skólans Ormar Þór og Örn-
ólfur Hall og Indriði Þorláksson deildarstjóri. Frjáls-
ar umræður. Vilhjálmur Hjálmarsson mætir á fund-
inum.
Laugardagur 3. maí kl. 20.30.
1) Dagskrá sem fljótsdælingar flytja. Sveitarkynning
o. fl. Aðg. kr. 300.
2) Dansleikur á eftir. Aðg. kr. 700.
Sunnudagur 4. maí kl. 21.00.
1) Kristján skáld frá Djúpalæk kynntur — Ármann Hall-
dórsson, kennari.
2) Kristján frá Djúpalæk segir frá skáldskap sínum og
lífsskoðun.
3) Flutt verða kvæði eftir skáldið. Lesarar Jón Kristjáns-
son og Einar Rafn Haraldsson.
4) Félagar úr Tónkómum flytja lög við ljóð eftir
Kristján.
5) Afhent verðlaun fyrir snyrtilega umgengni utanhúss.
6) Héraðsvökunni slitið.
Aðg. kr. 300. — Lúðrasveitin Þrestir leikur frá kl. 20.30.
MenningarsamtöJc Héraðsbúa. |
£
\\\\ VW\W VWV VWWWWWWWVWW WVW VV VV V WWWV V W WWVVWVV WV V wwvwwv vwwv vv w\
WWWWWWVWVWWVWVWVWWWVWWWV VWWVVWV V WV V V VVV V WWW WWWWWVWW VWVVW
Hús til sölu
S Tilboð óskast í húseignina Urðarteig 37. g
% Tilboðum sé skilað til Karls Jóhanns Birgissonar5 síma í
I 7379, Nesk. fyrir 10,—5—’75. £
? i
W V V\ VVVVV WVV V W V W WVWWVV W V V VVVW VW W V W W\ W V V \ V W\ WV W W VWW VW V wwvwwvwwv
WWWWVWWWVWWWWWWVWWVWWWWWWWVWWW VV W V V V WV V V VV V VVVW VV W V V V V w vv w
Gólfteppi, Gólfdúkar og veggklæðning frá So’mmer, s
D.L.W., Výmura og fl. ?
<
Verslun Elísar Guðnasonar. S
Vwwwwww vwvwvw vww vvww wwwww vvvw wwvvvvwvwwww V \ vwvwvwv wvvwww