Austurland


Austurland - 07.11.1975, Side 2

Austurland - 07.11.1975, Side 2
AVVWV 2 AUSTURLAND Neskaupstað, 7. nóvember 1975. iDSTUBLAND Útgefandi: \ Kjördœmisráð Alþýðubandalagsins á Austurlandi ? Ritstjóri: Bjarni Þórðarson. ; NESPRENT | WWYVWYVVVWVVWWWWVWWWWWWWWVWVVVWVWVVWVYYVVWY'WX/WWVWVWVVWVVWWW Misréttið í skattamálum Nýlega var útvarpað fyrstu umræðu um fjárlagafrumvarpið fyrir árið 1976. Meðal annars gerði Ragnar Arnalds þá að umræðu- efni skattamál félaga. Upplýsingar þær, sem hann gaf um það mál, hafa vakið óskipta athygli. Ragnar gat þess, að 416 félög í Reykjavík með um 20 þúsund milljóna króna velitu greiddu engan tekjuskatt. Listi um þessi félög birtist í Þjóðviljanum 31. október og er afar foxvitnilegur. Hann sýnir að ýmis auðugustu og mestu gróðafélög landsins greiða engan tekjuskatt. Þótt gróðafélög greiði engan tekjuskatt er ekki þar með sagt að þau svíki undan skatti. Að möi’gum þeirra mundi engum koma til hugar að drótta skattsvikum. En skattalöggjöf okkar er með þeim eindæmum úr garði gerð, að þótt fyrirtæki græði stórfé, geta þau á löglegan hátt komist hjá að greiða tekjuskatt. Er nú svo komið, að tekjuskatturinn er að mestu skattur á launamenn. Það, sem veldur því, að gróðinn er ekki skattlagður, er fiá- leitar reglur um afskriftir svo og heimild til að leggjia fé í vaia- sjóð án þess að greiddur sé skattur af því fé. Af þessu leiðir, að gróðinn þarf að verða mjög mikill til þess að hluti hans komi til skattlagningar. Afskriftir geta numið al'lt að 30% á ári og það er hægt að afskrifa endalaust með málamynda eigendaskiptum á eignunum. Þess hefur áþreifanlega orðið vart, að óánægjan með misréttið í skattamálum er gífurlegt og hávær mótmæli hafa borist úr ýms- um byggðariögum. En þótt það sé miikil íþrótt hér á landi að svíkja undan skatti, þurfa tortryggilegar tölur í skattskrá ekki að benda til skattsvika. Óánægjan þarf því að beinast fyrst og fremst gegn hinni ranglátu skattalöggjöf, sem undanþiggur skattlagningu stór- eignamenn og atvinnurekendur. Nú er talað hátt og mikið um að skera verði niður framlög ríkisins til verklegra framkvæmda, menntamála og félagsmála. Ragnar Arnalds benti á, að ef afskriftareglum yrði breytt í það horf sem þær voru fyrir fáum árum, myndu tekjur ríkissjóðs af tekjuskatti að öllum likindum hækka um lallt að fjögur þúsund milljónum. En þeir, sem völdin hafa á löggjafarsamkomunni mega ekki heyra á það minnst, að lögunum sé breytt í þessa átt. Fremur skal skera niður framlög til brýnna iramkvæmda og skerða þau félagslegu réttindi, sem landsmenn hafa áunnið sér. Þetta er ofurskiljanleg afstaða þegar þess er gætt, að ríkisstjórnin er mynd- uð til að standa vörð um hagsmuni auðmagnsins í landinu. En þótt lagaákvæðum um skattgreiðslu atvinnurekstursins yrði breytt svo að hann bæri eðlilegan hluta siameiginlegra útgjalda landsmanna, yrði þar með ekki öllu réttlæti fullnægt. Fjölda marg- ar smugur eru í löigunum, sem menn geta notfært sér til að kom- ast hjá eðlilegum sköttum. Líklega næst mest jafnrétti í skatta- málum með því að leggja tekjusikattinn á eftir svipuðum reglum og nú gilda um útsvör, það er að almenna reglan verði sú, að leggja á brúttótekjur en ekki nettótekjur eins og nú er. Alþýðuleikhúsið i ra’núi. af 1. síðu. Það er vissulega ástæða til að fagna stofnun þessa leikhúss. Mikil nauðsyn er að hér á landi komi upp leikhús sem tekur þátt i virkri og eðlilegri félagsiegri umræðu um mótun samfélags- ins, vegna hinna miklu mögu- leika sem leikhstin býður upp á í túlkun og verkefnavali. En það kostar peninga að reka ieikhús og rekstrargrundvöllur er ekki fyrir hendi nema fjöldi fóiks sé reiðubúinn til að sjá sýningar þess og styrkja það á annan hátt. Því býður Alþýðu- leikhúsið fólki að gerast styrkt- araðilar. Um tvenns konar aðild er að ræða, — þ. e. 5.000 kr. sem gilda jafnframt sem fimm að- göngumiðar og 2.000 kr. sem gilda sem tveir aðgöngumiðar að sýningum leikhússins. Ef menn vilja vera með þá snúi þeir sér til Alþýðuleifchússins, uitaná- skriftin er: Alþýðuleifchúsið, pósthólf 26, Akureyri. í framkvæmdanefnd Alþýðu- ieikhússins eru: Böðvar Guð- mundsson, Helgi Guðmundsson, Ragnheiður Garðarsdóttir og Ragnheiður Benediktsdóttir, þau eru öll búsett á Akureyri. — G.B. SkotloiÉíerí Framhald af 4. síðu. húsa, sem nú verða að víkja og sum hver eru 300 ára gömul, Síðan kom heimsókn á skrif- stofu Flugleiða, svo sem áður er sagt, en eftir hádegi gafst okkur smátími til að versla. .Seinni partinn þ. 10 okt. var lagt af stað heim með þotu frá Fiugieiðum og laufc þar með skemmtilegri 2Vz dags ferð, sem gjarnan hefði mátt vera. lengri. Þessari ferð er lokið en trúlega eiga Flugleiðir eftir að bjóða fréttamönnum af landsbyggðinni í aðra ferð einhverntíma seinna og þá er bara að vita hvort Hall- dór á Kirkjubóli verður í þeirri för til að færa Sveini Sæmunds- syni kvæði í ferðalok, 1 þakkar- skyni fyrir lipra fararstjórn, eins og hann gerði núna. ÚR BÆNUM Afmæli Sigurveig Einarsdóttir, hús- móðir, Þiljuvöllum 8 varð 75 ára 5. nóvember. Hún fæddist í Mjóafirði, en hefur átthér heima síðan 1963. Byltingin er 58 ára í dag. WWVWWWVWIWWWVWVWWYWWYWWWW BÍLASALA Chewrolet Chewelle 6 cyl. 1968 Chewiolet Blazer 6 cyl. 1971 Ohewrolet Nova 1967 Citröen 2CV4 1971 Citröen D Special 1971 Citröen GS 1974 Dodge Dart 1970 Fiat 128 Rally 1974 Fiat 128 1974 Fiat 128 station 1971 Fiat 1800 Special 1973 Ford Torino 1970 Ford Fairiane 1967 Ford Bronco 8 cyl. 1972 Ford Taunus 20M 1970 Ford F-100 1962 Jeepster 6 cyl. 1973 Land-Rover benzín 1969 Land-Rover benzín 1964 Land-Rover benzín 1966 Land-Rover diesel (langur) 1973 Land-Rover diesel (langur) 1971 Morris Marina 1973 Moskwich sendibifr. 1971 Moskwich sendibifr. 1972 Moskwich fólksb. 1972 Moskwich fólksb. 1973 Opel Record station 1966 Opel Record 1900L 1969 Peugeot 404 1968 Peugeot 404 1970 Rússajeppi framb. 1969 Rússajeppi framb. diesel 1972 Simca 1974 Sunbeam 1500 1971 Scout 4 cyl. 1972 Saab 96 1967 Toyota Crown 1970 Toyota Crown 1968 Toyota Crown 1967 Volvo 544 1963 Volkswagen 1303 1973 Voikswagen 1300 1973 Volkswagen 1300 1971 Volkswagen 1200 1964 Volkswagen Variant 1970 Willys 1963 Willys 1955 Willys 1946 Wagoneer 8 cyl. 1970 Wagoneer 6 cyl. 1973 Söluumiboð fyrir nýjar FORD og VOLVO bifreiðir og varahluti. FELL S F . Egilsstöðum Bílasala. V arahluta verslun. Framleiðsla á háþrýsti- slöngum. Sími 97-1179. WWWVYWWWWYWWVWWWVWWWWWWW

x

Austurland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.