Austurland - 08.10.1976, Page 4
4
AUSTURLAND
Neskaupstað, 8. október 1976.
Teknir tali á kjördæmisráðsfnndi
Skipun frá RARIK:
Rafhitun á Austurlandi
skal stöðvuð
Rétt fyrir síðustu mánaðarmót barst rafveitustjóra Austurlands,
Jóni Helgasyni Egilsstöðum svofellt símskeyti frá Rafmagnsveit-
um ríkisins í Reykjavík.
„Rafmagnsveiturnar ítreka, að óheimilt er að tengja eða gefa
loforð um raforku til hitunar án J>ess að fyrir liggi skriflegt leyfi
frá aðalskrifstofu í Reykjavík. Stjóm rafmagnsveitnanna hefur
samþykkt að stöðva veitingu hitaleyfa par til viðbótarorku hefur
verið aflað á orkuveitusvæði Austuriands.“
í næstu viku verður fjallað hér í blaðinu um þcssa makalausu
ákvörðun RARIK og ]>ær hörmulegu afleiðingar, sem hún mun
hafa, ef við brjótum hana ekki strax á bak aftur. — Krjóh.
Hér birtist þriðja viðtalið, sem
tekið var á kjördæmisráðsfundi Al-
þýðubandalagsins, sem haldinn var
að Staðarborg í Breiðdal 11.—12.
september sl.
Björn Jónsson,
Reyðarfirði
— Hvernig hefur ykkur á Reyð-
arfirði gengið að halda uppi starf-
semi í A1 þýðubandalagsfélaginu?
— Það hefur verið heldur lítil
starfsemi. Það virðist vera einhver
pólitísk deyfð yfir fólki. Það virðist
alltaf eitthvað stórkostlegt þurfi að
gerast til að áhugi fólks á stjóm-
málum vakni.
Björn Jónsson
— Hvernig líkar reyðfirðingum
við ríkisstjómina, sem nú situr?
— Ég held að almennt líki þeim
hreint ekkert við hana og J>eir sem
leljast stuðningsmenn hennar vilja
helst ekkert um hana tala. Ég held
að fólk sé ekkert ánægt með það að
þegar það fær 6—10% kauphækk-
un J>á hækka strax ríkisstofnanir
gjaldskrár sínar um 30—40% og
noti kauphækkanimar sem átyllu.
Skákkeppni
Nú á föstudag, kemur skáklið frá
Landsbankanum, að keppa við
austfirska skákmenn. Keppni hefst
með hraðskákkeppni á Eskifirði á
föstudagskvöld, en aðalkeppnin fer
fram í- Neskaupstað á laugardag,
frá kl. 2—6 í Gagnfræðaskólanum.
Hjá Landsbankanum vinna margir
góðir skákmenn, og eru einir tveir
eða J>rír í landsliðinu.
Um næstu helgi hefst svo haust-
mót Skáksambands Austurlands, á
Egilsstöðum og er öllum }>ar heimil
J>átttaka. Mótið verður klárað yfir
helgina og verða tefldar 6 umferðir
eftir „Monrad“kerfi, og hefur hver
keppandi 1 klst. til umhugsunar á
skák. Hér verður áreiðanlega um
mjög skemmtilegt mót að ræða, og
vil ég hvetja alla skákáhugamenn
til }>átttöku. — kai.
Ríkisstjómin sjálf ýtir undir verð-
bólguna í landinu, en málgögn
hennar hamast við að skella skuld-
inni á launafólk.
— Hvemig finnst J>ér J>essi aðal-
fundur Kjördæmisráðs vera?
— Þessi fundur hefur verið mjög
góður og sérstaklega ánægjulegt er
að sjá margt ungt fólk hér, sem
líklega er að hefja störf í flokkn-
um. Fulltrúamir hér virðast hress-
ir og baráttuglaðir og tilbúnir að
bjóða öllum byrginn.
— Hverju vildirðu beina til les-
enda Austurlands að lokum?
— Ég vil beina J>eim orðum til
lesendanna að nú er mikil nauðsyn
á að fólk berjist einarðlega gegn
J>essari ríkisstjóm. Ég vil t. d. benda
á að í landbúnaði hefur ríkisstjóm
}>essi algerlega komið í veg fyrir
að J>ar geti orðið eðlileg framj>róun
og uppbygging. Flestir vita að }>etta
er eins í fiskiðnaði. Þessi ríkisstjóm
hefur gersamlega snúið við blaðinu
frá árum vinstri stjórnarinnar. Ég
vil skora á alla austfirðinga að
berjast með oddi og egg gegn rflris-
stjóminni }>ví sú barátta er barátta
fyrir eigin hagsmunum }>eirra.
— S. G.
Alvorleour vatnsshortur
viðo
Hallormsstað, 30 sept — sibl./H.G.
Vatnslaust er nú á fjölda bæja
á Héraði og hefur svo verið vikum
saman, t. d. í Fljótsdal og Eiða-
}>inghá. Það breytir miklu fyrir
bændur með mjólkurframleiðslu,
að teknir hafa verið í notkun nýir
mjólkurtankar með rafkælingu í
stað vatnskælingar, en ella hefði
verið algjört neyðarástand hjá
mjólkurframleiðendum.
Á Hallormsstað fæst nú sama og
ekkert úr vatnsveitu, sem virkjuð
var fyrir fáum árum fyrir staðinn,
og verður að fresta eitthvað skóla-
byrjun á Hallormsstað fyrir vikið,
en setja átti skóla }>ar nú um næstu
helgi. Smádreytil er að fá úr Stað-
ará, og ráðgert að dæla úr henni
upp í vatnsgeymi svipað og gert var
eftir mikinn frostakafla veturinn
1968.
Gamlir menn töldu, að aldrei
}>ryti sú lind, sem virkjuð var fyrir
staðinn, J>annig að Ijóst er að hér
er við óvenjulegt }>urrkaástand að
glíma, sem vonandi stendur ekki
lengi úr J>essu.
Vatnsveitan á Egilsstöðum reyn-
ist hins vegar vel, enda er }>ar
dælt upp úr holu á eyrum Eyvind-
arár, og e. t. v. tengist hún einnig
grunnvatnskerfi Lagarfljóts.
íhaldsStjómin ....................
Fra’iTLh. af 1. síðu.
Þétta um samdráttinn, sem num-
ið hefur um 50% allra nýfram-
kvæmda og miklu meira, sé litið
til útihúsabygginganna, sem brenna
hvað heitast á bændum. En sam-
drátturinn og niðurskurðurinn hafa
hvergi nægt. Enn stórtækari hafa
stjómarherrarnir verið, J>egar að
lánskjörum hefur komið.
í fyrra var um að ræða verulega
vaxtahækkun á öllum lánum og
jafnframt mikla styttingu lánstíma.
Hvort tveggja hefur í för með sér
stórhækkun á árlegum greiðslum
bænda af lánum sínum.
Þó ber J>ess að gæta, að alls ekki
var gengið eins langt og kröfur
ríkisstjómarinnar vom í J>essu
tvennu og sem beinlínis virtust í
pá veru að drepa íslenskan land-
búnað í dróma a. m. k. pá bændur,
sem áttu mikið eða allt ógert.
Þá kom einnig fram krafa um
verðtryggingu útihúsalána, en pá
fyrirætlan tókst pó að koma í veg
fyrir. í ár var verðtryggingin aftur
sett á oddinn og gerð krafa um
40% verðtryggingu, en lokasam-
)>ykktin hjá stjórn stofnlánadeildar
var upp á 25% — íhaldið, kratinn
og einn framsóknarmaður vom með
— alj>ýðubandalagið á móti — en
hjá sátu tveir framsóknarmenn,
sem leist ekki á blikuna, }>egar til
kastanna kom.
Þannig standa málin nú, en víst
er hitt, að núv. rfldsstjórn hyggst
áfram halda á sömu braut og
J>rengja enn kost bænda og pá
einkum ]>eirra, er verr eru staddir
og styttra áleiðis komnir í bygging-
um öllum.
Verði svo fram haldið, dettur
engum manni til hugar að hefja
búskap, slflct er hreint fjárhagslegt
óráð, )>egar hvergi er mætt eðlilegri
)>örf og byrðamar síauknar ár frá
ári.
Fyrir bændur er áríðandi að veita
hér verðugt aðhald og knýja á um
J>að að koma lánamálum stéttar-
innar í eðlilegt horf, svo tryggja
megi heilbrigða framvindu í ís-
lenskum landbúnaði s. s. full J>örf
er á J>jóðhagslega séð og ekki síð-
ur út frá byggðasjónarmiðum.
En dýra lexíu ætlar íhaldsstjómin
að kenna bændum eins og öðrum
og p\í vil ég mega treysta, að sú
lexía verði geymd en ekki gleýmd,
J>egar næst verður að kjörborði
gengið af kjósendum.
í sept. lok.
Helgi Seljan.
ÚR BÆNUM
Aí'mæli
Sigríöur Tómasdóttir, Nesgötu 25
varð 70 ára 19. sept. Hún fædd-
ist hér í bæ og hefur jafnan átt hér
heima.
Borgþór Jónsson, fyrrv. sjómað-
ur, Mýrargötu 20 varð 70 ára 28.
sept. Hann fæddist í Mjóafirði, en
hefur átt hér heima síðan 1954.
Sólrún Haraldsdóttir, fyrrv. hús-
móðir, Mýrargötu 20 varð 65 ára
29. sept. Hún fæddist á Tandrast.
í Norðfjarðarhreppi, en hefur átt hér
heima síðan 1931.
Guörún Sigurjónsdóttir, húsmóð-
ir Þiljuvöllum 37 varð 60 ára 1.
október. Hún fæddist á Skálum í
Vopnafirði, en hefur búið hér síð-
an 1960.
Gyða Aradóttir, Naustahvammi
52 varð 75 ára 2. okt. Hún fædd-
ist hér í bæ og hefur jafnan átt hér
heima.
VVÁAAAAAOAAAAAAAAAAAAAVVVVVVVVVVVVVVVVVVVVA
HOOVER kaffikönnur — ryk-
sugur — viftur.
Barnavagnar og kerrur. Dúkku-
vagnar og kerrur.
BIFREIÐ AÞ J ÓNUST AN
vwwwvwwwwwvwwwwwwwwwwww