Austurland - 12.04.1979, Qupperneq 3
Bíll til sölu
Lada topas árgerð 1977. Ekinn
23000 km.
Uppl. í síma 7139, Neskaupstað.
Bíll til sölu
Skoda árgerð 1974.
Uppl. í síma 7248, Neskaupstað.
Bíll til sölu
Ford Mawerick árgerð 1970.
Uppl. í síma 7688, Neskaupstað.
Grýtt úr .. .
Framhald af 1. síðu.
Ólafs Jóhannessonar hafi ekki átt
par drýgstan hlut. Ég veit, að V.
H. viðurkennir það aldrei á prenti,
en í hjarta sínu veit hann um hlut
Lúðvíks Jósepssonar hér að.
En við tölum bara ekki alveg
sama tungumál, Vilhjálmur, þegar
komið er að verðbólgunni. Þið
hafið ásamt krötum sett jafnaðar-
merki milli kaupgjalds og verð-
bólgu. Við viljum benda á aðra
orsakavalda: milliliði, verðlags-
myndun, ofhlæði á ýmsum sviðum
og beint brask, svo aðeins séu tek-
in fáein dæmi. Um þetta hefur
deilan snúist og snýst enn. Þetta
er einfalt. Og ég veit fullvel, að
láglaunafólkið í landinu er ekki
á máli ykkar, enda notar það heil-
brigða skynsemi en ekki prósentu-
reikninga „hagspekinga" eins og
m. a. s. þú virðist gera, svo mikla
heilbrigða skynsemi og góða dóm-
greind, sem þú hefur nú. Ekki
von á góðu með aðra. Og svo
þetta með þaklyftinguna af há-
launamönnum. Von að þér sárn-
aði, hve Tómas frændi var þar
fljótur til að leggja blessun sína
yfir.
Hvenær sögðum við Alþýðu-
bandalagsmenn, að með samning-
unum í gildi skyldi allt upp úr
ganga? F.kki kannast ég við þau
orð úr kosningabaráttu okkax
eystra. Þar lögðum við aðaláherslu
rétt eins og nú á lægstu launin,
en þó fyrst og fremst skerðinguna
á yfirvinnunni, sem væri nú komin
niður undir dagvinnukaup, ef þið
Geir hefðuð fengið að ráða.
Þetta voru okkar höfuðaðfinnsl-
tu og ádeiluefni. Um réttmæti
þeirra efast enginn, sem þarf sína
10—12 tíma vinnu til þess að ráða
við eigin efnahagsvanda. Svo
skellir þú bara skuldinni á borgar-
stjórn Reykjavíkur til að bjarga
Tómasi frænda niður af þakinu.
Síðastur manna skal ég mæla þeim
aðgerðum bót, sem allir eiga að
sinn hlut: mínir menn, þínir menn
og kratar í borgarstjóm, en við
skulum ekki rugla þessu tvennu
saman.
Og svo að lokum vinstri ein-
lægni. Ég minni aðeins á, að V.
H. sat með íhaldinu í stjórn í 4
ár, líkaði harla vel og hefði senni-
lega glaður haldið áfram, ef þjóð-
in hefði ekki tekið í taumana. Þar
ríkti sátt og samlyndi. Ég efa ekki,
að V. H. standi einlæglega að
baki þessarar stjómar nú.
En sá sem nýkominn er úr ást-
ríkri íhaldssamvinnu, þar sem
hvergi virtist bera á skugga, ætti
að gæta glerhússins, áður en grýtt
Svo skulum við, Vilhjálmur
minn, reyna að ná saman um að
ríkisstjórnin vinni að hag láglauna-
fólksins í landinu. Það gerir hún
nefnilega seint, ef menn trúa því
að kaup láglaunafólksins sé böl-
valdurinn, sem verðbólgunni veld-
ur. Höfum það báðir hugfast.
Helgi Seljan.
Norðfirðingar
Austfirðingar
Höfum tekið að okkur umboð fyrir Hurðariðjuna Kópa-
vogi. — Útihurðir í mörgum gerðum, bílskúrshurðir og
svalahurðir.
Komið og kynnið yður verð og myndalista.
DRÁTTARBRAJJTIN HF.
Egilsbraut 8, Neskaupstað
Húsnæði óskast
4—5 herbergja íbúð óskast til kaups sem allra fyrst.
Góð útborgun keniur til greina.
Upplýsingar í síma 7619, Neskaupstað.
Austur-Skaftfellingar
Almennur stjórnmálafundur með iðnaðarráðherra,
Hjörleifi Guttormssyni, verður haldinn á Höfn í Homa-
firði, föstudagskvöld 20. apríl kl. 20.30.
Rætt verður um orkumál, iðnað og önnur hagsmuna-
mál sýslunnar.
ALLIR VELKOMNIR.
ALÞÝÐUBANDALA GIÐ
Alþýðubandalagið
d Eskifirði
Félagsfundur verður á skírdag, fimmtudagskvöld 12.
apríl kl. 20.30 í Valhöll (litla salnum).
Hjörleifur Guttormsson kemur á fundinn.
Félagar fjölmennið.
STJÓRNIN
Norðfirðingar:
Páskablómin verða seld milli 2 og 5 á skírdag og
10—13 á laugardag.
Vershm Kristjáns Lundberg
Neskaupstað
Barnaskemmtun
Hin árlega barnaskemmtun Kvenfélagsins Nönnu verð-
ur haldin sumardaginn fyrsta í Egilsbúð kl. 4.
Sjá nánar í götuauglýsingum.
DA GHEIMILISNEFND
ATVINNA
Tvo starfskrafta vantar í eldhús Fjórðungssjúkrahúss-
ins í Neskaupstað frá 1. júní og einn frá 1. júlí.
Upplýsingar gefur matráðskona í síma 7409 og 7346.
Fjórðungssjúkrahúsið í Neskaupstað
EGILSBÚÐ j. '4'ÍU—ij JUUmDDOŒ
Sími 7322 Neskaupstað □□□□□□ □□□□□□□□□□
TEJKNIMV'NDASAFN — Bangsimon og félagar
Sýnd fimmtudag kl. 3.
ÆVINTÝRI POPPARANS
Bráðskemmtileg bresk gamanmynd með ísl. texta. Kvöldbann
14 ára. Sýnd fimmtudag kl. 9.
Mánudagur annar í páskum:
TARZAN OG GULLRÆNINGJARNIR
Sýnd kl. 2. Ath. breyttan sýningartíma.
GREAT EXPECTATIONS
Stórbrotið listaverk eftir einni af vinsælustu sögum Charles
Dickens. Sýnd kl. 5.
DANSLEIKUR
miðvikudaginn 18. apríl frá kl. 10—2. — Hljómsveitin
„VÍRUS“ sér um fjörið. — Húsinu lokað kl. 23.30. — Munið
nafnskírteinin.
Frá Vatnsveitu
Neskaupstaðar
Bæjarbúar sýnið samborgurum ykkar tillitsemi og
sparið vatnið í vatnsskortinum, svo komist verði hjá
skömmtun.
BÆJARVERKSTJÓRI
Utboð
Seyðisfjarðarkaupstaður býður út eftirtalin verk:
Byggingu tveggja hæða einbýlishúss að Botnahlíð 33
Seyðisfirði. Útboðið miðast við gröft, fyllingu og upp-
steypu húss upp í fokhelt. Skila skal húsi fyrir 1. nóv.
1979.
Einangrunarklæðningu utan á sundlaug/íþróttahús
Seyðisfjarðar. Skila skal einangrunarklæðningunni full-
búinni, eigi síðar en 15. okt. 1979.
Útboðsgögn verða afhent á bæjarskrifstofunni Seyðis-
firði, frá 28. mars 1979. gegn 20 J>ús. kr. skilatryggingu
fyrir hvort verk.
Tilboðin verða opnuð á bæjarskrifstofunni 30. apríl
1979, kl. 11 f. h. v/íþróttahúss en kl. 14, e. h. v/Botna-
hlíðar 33, að viðstöddum umbjóðendum.
Seyðisfirði, 27. 3. 1979
BÆJA R TÆKNIFRÆÐINGUR
Atvinnurekendur - bókhald
Get bætt við mig verkefnum í bókhaldi og uppgjöri
fyrirtækja.
PÉTUR JÓNSSON, viðskiptafræðingur
Hraunbæ 134, Reykjavík, s. 85450 og 72623 Box 10185
Nauðungaruppboð
annað og síðast á Naustahvammi 46—48, þinglesinni
eign Naustavers hf., fer fram á eigninni sjálfri mið-
vikudaginn 18. apríl 1979, kl. 11.15.
BÆJARFÓGETINN í NESKAUPSTAÐ