Austurland - 25.06.1982, Side 1
.flOSTUBLAND
Oddsskari
32. árgangur. Neskaupstað, 25. júní 1982. 25. tölublað.
Frá Menntaskólanum
á Egilsstöðum
Nú er þriðja ári frá upphaji Menntaskólans á Egilsstöðum
lokið. Alls hafa 215 nemendur stundað nám í skólanum
á skólaárinu, auk 30 í námsflokkum. Síðast liðið vor útskrifuð-
ust fyrstu stúdentarnir 22 að tölu af eftirtöldum brautum:
Málabraut, uppeldisbraut, náttúrufræðibraut, félagsfrœðibraut
og verslunarbraut.
Skólinn er fámennur og hyggst nota kosti smæðarinnar, en
minnka eftir föngum það óhagræði sem henni fylgir í tak-
mörkuðu námsframboði. Fjöldi brauta sýnir, að valkostir ertt
viðunandi fyrir flesta er hyggja á bóklegt nám til stúdents-
prófs.
STÚDENTAR BRAUT-
SKRÁÐIR f ANNAÐ
SINN.
Laugardaginn 15. maí sl.
var útskrifaður 31 stúdent
16 konur og 15 karlar. Hinu
hefðbundna karlaveldi hefur
hér verið rækilega hrundið.
Stúdentar voru nú útskrifaðir
af sömu brautum og í fyrra
að viðbættrj eðlisfræðibraut.
Ljóst er, að margir hafa nú
önnur markmið með Mennta-
skólanámi, en áður var, Þann-
ig hyggur aðeins um 1/5 j>essa
hóps á háskólanám í haust,
hinir fara beint út í atvinnu-
lífið, í nám erlendis eða aðra
skóla en Háskólann. Að loknu
f>essu skólaári hafa rúmlega
Sunnudaginn 20. júní var
hitaveita Seyðisfjarðar form-
lega tekin í notkun við hátíð-
lega athöfn á Seyðisfirði.
Hjörleifur Guttormsson iðn-
aðarráðherra flutti ávarp og
lýsti aðdraganda málsins, en
hitaveitan er samstarfsverk-
efni Rafmagnsveitu ríkisins og
Knattspyrnu-
áhugamenn
í sumar verða glóðvolg úr-
slit úr knattspymuleikjum
austfjarðaliða í símsvara UÍA
síminn er 1353, alltaf þegar
hægt verður að koma Jm' við.
Símsvarinn svarar: á laug-
ardögum eftir kl. 20 og í
hádeginu á sunnudögum,
mánudögum og fimmtudög-
um.
Reynt verður að vera með
úrslit úr öllum flokkum.
— ASt.
50 stúdentar útskrifast frá M.
E..
UM FÉLAGSLÍF OG
HEIMAVIST.
Af skólahaldi í vetur er
það að segja, að það hefur
gengið vel. Fall á haustönn
var minna en áður, aðeins 8%
þegar á heildina er litið. Fé-
lagslíf er gott og tekur sí-
fellt á sig fastara form með
bættri skipulagningu á starfi
stjórna og klúbba. Það háir
nokkuð félagslífi, hve margir
nemendur fara heim um helg-
ar. en reynt er að hafa aðra
hverja helgi skipulagða, þótt
ekki séu lagðar neinar höml-
ur á heimferðir nemenda.
Auðvitað eru tvær hliðar á
Seyðisfjarðarkaupstaðar. Raf-
magn er megin orkugjafinn,
en svartolía til vara og þegar
álag er mest. Hafa slíkar veit-
ur verið kallaðar fjarvarma-
veitur og eru risnar á Höfn
og á þrem þéttbýlisstöðum á
Vestfjörðum.
Nýta þær afgangsorku í
landskerfinu og er vatn hitað
upp í rafskautskötlum og síð-
an koma til varmaskipti.
Iðnaðaráðherra lýsti ánægju
með hvernig til hefði tekist um
lausn húsahitunarmála á Seyð-
isfirði, þar sem fengið er fullt
öryggi í upphitun með svart-
olíu sem varaafli, ef bilun yrði
í aðflutningslínum. Einnig
er 100% varaafl til staðar í
díselvélum til almennrar raf-
orkuframleiðslu.
Verð frá hitaveitunni skv.
gjaldskrá er nú eitthvað lægra
en niðurgreidd olía. Hjörleifur
greindi frá stefnumótun
stjómvalda um að lækka upp-
hitunarkostnað í áföngum á
næstunni þannig að hann yrði
þessu máli, því margir nem-
enda eru virkir í félagslífi
heima hjá sér og gott eitt um
það að segja, að heimabyggð-
ir njóti þeirra um helgar.
Byggingarframkvæmdir við
heimavistarálmuna hafa geng-
ið vel. Óvíst er þó og næsta ó-
líklegt að nokkur not verði af
henni á haustönn 1982. En
fyrst, þegar heimavistarrými
hefur aukist um þau 60 rúm,
sem verða í hinni nýju álmu,
getur skólinn, svo vel sé, ann-
að umsóknum úr fjórðungnum
og auk þess tekið við ein-
hverjum utan hans, en slíkt er
mjög æskilegt ýmissa hluta
vegna. Þá mun heimavistin
rúma 120-130 manns. Mötu-
neyti er öllum nemendum op-
ið, einnig þeim, sem búa í
bænum.
SÉRSTAÐA M. E.
M. E. er yngsti menntaskóli
landsins. Meðalaldur kennara
er 27-28 ár. Vegna smæðar
skólans og hins lága aldurs
kennara hefur skapast náið
samband milli þeirra og nem-
enda. Skólaheimilið hefur
orðið eins og stór fjölskylda.
M. E, starfar samkvæmt ein-
inga- og áfangakerfi fjöl-
Framh. á 2. síðu.
almennt ekki meiri en frá
nýjum og hagkvæmum hita-
veitum, þ. e. um 60% af kvnd-
ingarkostnaði með olíu.
Við vígsluathöfnina töluðu
einnig Kristján Jónsson raf-
magnsveitustjóri og Jónas
Hallgrímsson bæjarstjóri og
lýstu þeir byggingu veitunnar.
Rafmagnsveitumar reistu og
reka kyndistöðina, en Seyðis-
fjarðarkaupstaður sér um allt
dreifikerfið og kaupir orkuna
af RARIK skv. samningi.
Um 80% húsa á Seyðisfirði
munu nú vera tengd veitunni
sem hóf rekstur sl. haust. Bók-
færður kostnaður við kyndi-
stöðina er um 9,1 m. kr. en
við dreifikerfið röskar 7 m. kr.
eða samtals á bilinu 16-17 m.
kr. Reyndist kostnaður við
dreifikerfi lægri en áætlað var
en fjármajgnskostnaður hins
vegar til muna meiri.
Tómas Ámason viðskipta-
ráðherra flutti ámaðaróskir
fyrir hönd þingmanna Austur-
lands, en að því loknu flutti
Ástand Norðfjarðarvegar
sunnan Oddsskarðs hefur ver-
ið með miklum endemum á
þessu vori. Vegurinn hefur
gefið sig undan umferð og
breyst í forarvilpur á um 2
kílómetra kafla frá Háhlíðar-
horni niður undir Sandskeið.
Þetta hefur gerst þrátt fyrir
strangar þungatakmarkanir,
sem enn eru í gildi þá þetta er
skrifað 13. júní. Ástæðan er
sú að ekkert burðarlag er eftir
í veginum og framræsla með-
fram honum ófullnægjandi.
Svona slæmt ástand hefur ekki
orðið á þessari leið um árabil.
Viðbrögð Vegagerðarinnar
til bráðabirgðaúrbóta þóttu
sein og ófullnægjandi og
komu fyrst eftir vemlegan
l’rýsting. Ekki skal hér dæmt
um ástæður fyrir því, en þótt
vegurinn hafi verið akfær, hef-
ur þar verið um eins konar
torfæruakstur að ræða, nú
bráðum um mánaðartíma.
Mestu skiptir að slíkt ástand
endurtaki sig ekki. Ég hef
kynnt mér áform Vegagerðar-
innar um úrbætur og fékk þau
svör í fyrstu, að ekki væri gert
ráð fyrir teljandi viðhaldsað-
gerðum á Oddsskarðsvegi í ár.
Fyrst á næsta sumri væri fyr-
irhugað að setja fjármagn í
lagfæringar. Þetta er algjör-
lega óviðunandi að mati Norð-
firðinga og annarra sem um
veginn aka. Það er ærið að
þurfa að lúta því að vegurinn
um Oddsskarð sé lokaður um
leneri eða skemmri tíma að
vetrarlagi vegna snjóa og ó-
fullnægjandi snjóruðnings,
þótt ekki bætist við lokun og
ófærð drjúgan hluta sumars.
Egill Jónsson alþingismaður
ræðu.
Eftir að mannvirki höfðu
verið skoðuð bauð bæjarstjóm
Seyðisfjarðar gestum til kvöld-
verðar.
Arkitektar að kyndistöðinni
eru Guðmundur Kr. Kristins-
son og Ferdinand Alfreðsson
og verkfræðingar Fjarhitun hf.
með hús og vélbúnað og
tæknideild RARIK með raf-
búnað.
Heimaaðilar og fyrirtæki úr
fjórðungnum unnu mestan
hluta verksins, en fram-
kvæmdir hófust í ágúst 1980
og var stöðin tekin í rekstur
í lok september 1981.
Afl á rafskautskatli í stöð-
inni er nú 2,9 varmamega-
vött, en síðar verður bætt við
öðrum katli og verður stöðin
þá með um 5Mw afl.
Ástæða er til að óska Seyð-
firðingum til hamingju með
þennan myndarlega áfanga í
orkumálum kaupstaðarins.
H. G./Krjóh.
eins og verið hefur að undan-
förnu.
Þingmenn stjóma ekki vega-
viðhaldi innan kjördæma; það
er lögum samkvæmt verkefni
Vegagerðarinnar. Hins vegar
höfum við áhuga á því sem
aðrir að vegirnir séu í sem
besta horfi og heyrum kvart-
anir fólks um þessi efni. Ég
hef talið mér skylt að ræða
þessi mál við Vegagerðina og
óska eindregið eftir úrbótum
hið fyrsta. Starfsmenn og yfir-
stjóm Vegagerðarinnar átta
sig auðvitað á, að þetta ástand
er óviðunandi með öllu, en
þeir telja sig hafa í mörg horn
að líta með takmarkað fjár-
magn.
Kostnaðaráætlun um end-
urbætur á veginum Eskifjarð-
armegin við Oddsskarð, sem
ég hef nýlega fengið frá Vega-
gerðinni, sýnir 2,1 milljón
króna kostnað við að styrkja
veginn frá nýja kaflanum
sunnan við jarðgöngin niður
að Eskifjarðarkaupstað, en
alls er það um 6 km leið. Er
þar gert ráð fyrir að unnt reyn-
ist að fá efni inni í Eskifjarð-
ardal í styrkingu og malarslit-
lag, en ekki þurfj að aka því
alla leið frá Skuggahlíð. Slíkt
væri mun kostnaðarsamara að
mati Vegagerðarinnar.
Þá kröfu verður að gera að
á þessu sumri verði sá hluti
vegarins, sem nú má teljast
ónýtur, lagfærður með styrk-
ingu og slitlagi. Það er talið
kosta tæplega 800 þús. kr.
Kaflinn næst Eskifirði getur
frekar beðið til næsta árs, þótt
veruleg hætta sé á að hann gefi
sig að hluta. Ég vænti þess
að Vegagerðin finni leið til
að sinna þessum lágmarksúr-
bótum, þannig að ekki þurfi
að merkja veginn um Odds-
skarð sem torfæruslóð, eins og
réttmætt hefði verið á þessu
vori.
Myndarleg viðgerð á Odds-
skarðsvegi er þeim mun
brýnni nú, sem ekki er ráð-
gert að ráðast í uppbyggingu
nýs vegar milli Eskifjarðar og
Norðfjarðar fyrr en á árunum
1987-1990. Það verður allstórt
átak og talið kosta um 25 m.
kr. með bundnu slitlagi yfir
mestan hluta leiðarinnar.
Víða eru vegir á Austur-
landi í bágu ástandi og kvart-
að undan ónógu viðhaldi. Ég
hef farið um helstu leiðir á
þessu vori og get borið um, að
hvergi hefur ástandið verið
jafn bágborið og á Odds-
skarðsvegi, nema á Vopna-
fjarðarvegi í Langadal og um
tíma á veginum um Vatns-
skarð til Borgarfjarðar. Því
er þessi grein rituð og vakin
athygli á, að í úrbætur verður
að ráðast strax. Það á einnig
við um brúna yfir Norðfjarð-
ará hjá Skuggahlíð, sem ver-
ið hefur stórvarasöm vegna
skemmda að undanfömu.
Hjörleifur Guttormsson.
Hitaveita Seyðisfjarðar vígð