Austurland - 25.06.1982, Síða 3
Halldór
Laxness
óttrœður
Framh. af 4. síðu.
eiga afmæli. Halda mætti
f>essa dagana að hann sé eini
höfundur sem við höfum
eignast fyrr eða síðar. Aldrei
mun ég afneita snilld Kiljans
en við skulum ekki gleyma
f>ví að fleiri hafa kunnað
penna að stýra á íslandi en
hann og f>arf ekki alla leið
aftur í Njáluhöfund eða
Snorra til að finna slíka menn.
Mér er til efs að Þórbergur og
Gunnar gefi honum nokkuð
eftir á sinn hátt hvað ritsnilld
snertir, en aldrei varð svona
gauragangur kringum pá og
urðu ]>ó báðir áttræðir og vel
]>að ef ég man rétt.
Hitt er annað mál að Kiljan
hefur e.t.v. gengið gegnum
fleiri þróunarstig á rithöfund-
arferli sínum en aðrir höfund-
ar og kjörið sér fjölbreyti-
legri viðfangsefni. Einu sinni
var hann katólikki og er {>að
líklega enn undir niðri. a.m.k.
setur hann sig aldrei úr færi
að gera spé að Lúther. Svo
skrifaði hann sig frá kristnum
dómi með Vefaranum, að eig-
in sögn, gerðist sósíalisti og
gaf þjóðinni stórkostlegar
sósíalskar bókmenntir. Hvort
liann skrifaði einatt kórrétt
eftir kenningunni er svo ann-
að mál sem ekki skal reynt
að dæma um.
í seinni tíð hefur farið held-
ur lítið fyrir sósíalisma í
bókum kallsins og er borgara-
stéttin að sjálfsögðu afar glöð
yfir ]>ví enda hefur hún af-
lagt allt bleiustand ]>egar
liann gefur út nýja bók.
En það sem Kiljan hefur
skrifað )>að hefur hann skrif-
að og ]>ess vegna munu hin
sósíölsku ritverk hans blíva
með þjóðinni meðan hún hef-
ur vit á að lesa bækur. Þess
vegna verða orð séra Janusar
á skólanefndarfundinum í
Beruvík í fullu gildi ]>ar til
vitið og mannúðin hefur sigr-
að í heiminum: „Vilji maður
stela elskan mín, sagði prest-
urinn, ]>á á maður fyrir guðs
skuld aldrei að stela frá ]>eim
ríku. Ríkur maður á hundrað
mókögla, svo veit hann ekki
fyr til en ]>að eru eftir níutíu
EGILSBÚÐ
SÍMI 73 22
Sýning sunnudagskvöld kl. 9:
HORFINN Á SEXTÍU
SEKUNDUM,
Hörkuspennandi kappakst-
ursmynd.
og níu: einum hefur verið stol-
ið. Hann mun ekki einusinni
gleyma ]>ví á sinni banastund.
Fátækur maður á aðeins einn
móköggul og er jafn fátækur
pó honum sé stolið. Hann er
búinn að gleyma því á morg-
un. Sá ríki kemur ]>ér undan-
tekningarlaust í bölvun ef ]>ú
stelur frá honum, sá fátæki
nennir ekki einusinni að
minnast á ]>að. Þessvegna
hafa allir sannir þjófar vit á
að stela frá )>eim fátæku. Það
eina sem er verulega hættu-
legt á íslandi er að stela frá
þeim ríku og það eina sem er
verulega arðbært á íslandi
)>að er að stela frá þeim fá-
tæku, elskan mín”.
Ég veit að þessa dagana
fær snillingurinn á Gljúfra-
steini margar hlýjar en e.t.v.
ekkj að sama skapi háværar
þakkir frá alþýðu þessa lands.
— S. Ó. P.
AÐALFUNDUR
Sjálfsbjargar verður haldinn þriðjudaginn 29. júní
kl. 8.30 í fundarsal Egilsbúðar.
I. Venjuleg aðalfundarstörf.
II Önnur mál. Mjög áríðandi að félagar mæti. Kaffi og
kökur. Gestur frá Reykjavík mætir.
Stjómin.
NESKAUPSTAÐUR
Til gjaldenda
Fyrirframreiðsla útsvars og aðstöðugjalda og fast-
eignagjöld álögð 1982 eru nú öll gjaldfallin.
Þeir sem ekki hafa þegar gert full skil eru vinsam-
lega beðnir um að greiða nú þegar til að komist verði
hjá frekari innheimtuaðgerðum.
Fjármúlastjórinn í Neskaupstað.
Sumurferð Alþýðubundu-
lugsins ú Austurlundi
24. og 25. júlí 1982
uð Eyjubökkum og Snæfelli
FERÐAÁÆTLUN:
Farið frá Neskaupstað á laugardaasmorgun 24. júlí
kl. 8.30. Viðkoma á Eskifirði og Reyðarfirði, p&v slást
þátttakendur af suðurfjörðunum í hópinn. Brottför frá
Egilsstöðum um kl. 10.30. Hádegisnesti snætt á Hall-
ormsstað. — Gist í Snæfellsskála (í svefnpokum) —
Gengið á fjallið — Skoðunarferð um Eyjabakka og
umhverfis Snæfell —■ Heimkoma seinni part sunnudags.
NAUÐSYNLEGUR ÚTBÚNAÐUR: Nesti og nýir
skór, hlýr göngufatnaður, svefnpoki og ferðaskap.
ÞÁTTTÖKUGJALD ÁÆTLAÐ: 300 krónur fyrir
fullorðna en 100 krónur fyrir böm.
ÞÁTTTAKA TILKYNNTST TIL: Einars Más Sig-
urðssonar í Neskaupstað síma 7625. — Sveins Jóns-
sonar, Egilsstöðum síma 1622.
Kjördœmisráð AB Austurlandi.
BENNI & SVENNI
Nafnnúmer 1013 - 4986 — Símar: 6399 & 6499
735 ESKIFIRÐI
Flestar tegundir sumardekkja fyrirliggjandi.
GOOD YEAR — BRIDGESTONE og einnig kín-
versk dekk.
Jafnvœgisstillum á meðan beðið er.
GERIÐ VERÐSAMANBURÐ.
TIL SÖLU
Nokkur hross til sölu.
Hagstætt verð.
Upplýsingar gefur Ágúst
Jónsson, síma 97-7454.
Fréttu-
tilkynning
Að gefnu tilefni upplýsist
)>að hér með, að BINGÓ það
sem Dagbl. Vísir er með
ásamt íþróttafélagi fatlaðra
og Sjálfsbjargarfélagi Reykja-
víkur er að engu leyti á veg-
um Landssambandsins eða
Sjálfsbjargarfélags Norðfjarð-
ar.
Sjálfsbjargarfélagar hér,
munu selja happdrættismiða
Landssambandsins næstu
kvöld. Norðfjarðarfélagið fær
35% af þeirri sölu.
Áætlunnríerðir ú Austurlundi
Frá Egilsstöðum Til Egilsstaða .j
Seyðisfjörður 11.45 09.45 Virka daga frá 25.5. — 7.9.
Seyðisfjörður 16.30 20.45 ]>riðjudaga.
Reyðarfjörður 11.45 10.00 alla virka daga.
Reyðarfjörður 21.30 15.00 föstudaga.
Eskifjörður 11.45 09.30 alla virka daga.
Eskifjörður 21.30 14.30 föstudaga.
Neskaupstaður 21.30 14.00 föstudaga.
Neskaupstaður 11.45 08.30 alla virka daga.
Fáskrúðsfjörður 11.45 09.00 mánudaga, miðvikudaga, fimmtudaga og föstudaga.
Stöðvarfjörður 11.45 08.45 mánudaga, miðvikudaga, fimmtudaga og föstudaga.
Breiðdalsvík 11.45 07.30 mánudaga, miðvikudaga fimmtudaga og föstudaga.
Hallormsstaður 14.00 15.00 þriðjudaga.
Hallormsstaður 18.00 19.30 sunnudaga og föstudaga.
Eiðar 14.30 15.30 þriðjudaga.
Eiðar 16.00 17.00 föstudaga.
Egilsstaðir — Akureyri miðvikudagar 10.00
Egilsstaðir — Akureyri mánudagar og föstudagar 16.30 Vekjum athygli á nýjutn leiðum og aukinni ferða-
Egilsstaðir — Höfn miðvikudagar 10.00 tíðni svo sem Egilsstaðir — - Eiðar og Egilsstaðir —
Egilsstaðir — Höfn mánudagar og föstudagar 16.30 Hállormsstað ur. Geymið Auglýsinguna.
Allar upplýsingar hjá Ferðaskrifstofu Austurlands Kaupvangi 6, símar 1510 og 1499, Egilsstöðum. Sérleyfishofar ú Austurlnndi