Austurland


Austurland - 03.03.1983, Síða 2

Austurland - 03.03.1983, Síða 2
FÁSKRÚÐSF.TÖRÐUR: ----------AUSTURLAND------------------------ MÁLGAGN ALÞÝÐUBANDALAGSINS Ritnefnd: Elma Guðmundsdóttír, Gufimtmdur Bjarnason, Kristinn V. Jóhannsson og Þórhallur Jónasson. Ritstjóri: Smári Geirsson: Sími 7630. Auglýsingar og dreifing: Birna Gcirsdóttir s. 7571, h. s. 7454. Pósthólf 31 — 740 Neskaupstafi. Ritstjórn, afgreifisla, auglýsingar: Egilslraut 11, Neskaupstað, sími 7571. Prentun: NESPRENT. ÚTG.: KJÖRDÆMISRÁÐ ALÞÝÐUBANDALAGSINS Á AUSTURLANDI Breyta þarf um fiskveiðistefnu Það er ekki aðeins á Austurlandi að sjávarútvegurinn er burðarás í v :rðmætasköpun heldur á það við um þjóðar- búskapinn í heild. Með j?ví er engri rýrð kastað á aðra atvinnu- vegi og flestir eru sammála um að auka þurfi fjölbreytni í atvinnulífi með sókn inn á ný svið og eflingu ]?ess sem fyrir er, m. a. í iðnaði og Iandbúnaði. Úrvinnsla sjávarafurða er raunar öflugasti iðnaður okkar og sá arðgæfasti á heildina litið. Útfluttar sjávarafurðir standa undir 3/4 hlutum af út- flutningstekjum landsmanna og í fiskiðnaði hafa orðið til flest ný störf á undanförnum árum eða samtals um 6000 síðasta áratug. Samdráttur í sjávarútvegi er fljótur að segja til sín á öll- um sviðum Þjóðlífsins og þannig reyndist 16% verðmætarým- un á síðasta ári meiriháttar áfall. Hrun loðnustofnsins og nær 20% samdráttur í þorskafla á árinu 1982 eru staðreyndir sem enginn getur horft framhjá og |>ær eru öðru fremur undirrót t’eirra efnahagsörðugleika sem nú er við að fást. Horfurnar á l’essu ári varðandi þorskveiðar eru síst betri en í fyrra og loðnustofninn er enn í lægð. Við þessar aðstæður er brýnna en nokkru sinni að tryggja sem mest verðmæti úr þeim afla sem á land berst og gæta hagsýni í útgerð. Það ber að viðurkenna að engan veginn hefur tekist sem skyldi að ná fram vitrænni fiskveiðistefnu og til- kostnaður við veiðar er m. a. af þeim sökum mun meiri en vera þyrfti. Stjórnvöld og hagsmunaaðilar hafa ekki megnað að stilla saman í þessum efnum og því er afrakstur af því sem aflast minni en ella. Allt of lengi hefur dregist að taka upp kvótafyrirkomulag á þorskveiðum sem ná þyrfti jafnt til togara og báta. Flestir viðurkenna nauðsyn |>ess að setja aflahámark á forsk eins og aðra helstu fiskistofna en samhliða t’ví er hreint óráð að skipta ekki leyfilegum afla á fiskiskipin. Núverandi skrapdagakerfi er dýru verði keypt og leiðir í senn til óhagkvæmni í útgerð og lakari meðferðar á afla en vera þyrfti. Fjórðungssamband fiskideilda á Austurlandi undir forystu Hilmars Bjamasonar hefur um árabil knúið á um að tekið verði upp kvótafyrirkomu- lag á þorskveiðum. en um t»ær tillögur hefur ekki náðst sam- staða hagsmunaaðila og rétt stjórnvöld skellt við feim skolla- eyrum. Við höfum ekki efni á j>ví að láta dragast að breyta til í þessu efni og sama máli gegnir um fyrirkomulag síldveiða l>ar sem óhóflegur fjöldi báta keppir um takmarkaðan afla. Skynsamleg stjórnun veiða og hertar gæðakröfur em mál mála í sjávarútvegi. Veiðarnar þurfa að taka mið af vinnslu í iandi og þeim markaði sem unnt er að tryggja. Hér eins og annars staðar verður t>ekking og skipulag að taka við af handa- hófi sem allt of lengi hefur viðgengist. Jafnframt þurfa vel rekin fyrirtæki í sjávarútvegi að geta búið við viðunandi rekstrargrundvöll og aðstæður, sem m. a. geri kleift að endur- nýja með eðlilegum hætti fiskiskipin og tryggja þróun í vinnslustöðvum. Miklir möguleikar eru ónotaðir í sjávarútvegi. Þar þarf að setja gæði og hagkvæmni í öndvegi og tryggja sem best rekstrargrundvöll vel rekinna fyrirtækja, sem staðið geti undir góðum hlut til sjómanna og starfsfólks í landi fyrir hóflegan vinnudag. Fyrir slíkri stefnu mun Alþýðubandalagið berjast í framhaldi af sigursælli forystu í landhelgismálum og ný- skjöpun í sjávarútvegi í þremur ríkisstjómum undanfarna ára- tugi. — H. G. Ný heilsugæslustöð Þann 20. febrúar sl. var vígð ný heilsugæslustöð á Búðum og á PRÓFKJÖR S.TÁLFSTÆÐIS- FLOKKSINS Þrjú efstu sætin öbreytt Prófkjör Sjálfstæðisflokksins á Austurlandi fór fram 25. og 26. febrúar sl. og voru úrslit kunn sl. sunnudag. Helstu úrslit urðu þessi: Sverrir Hermannsson fékk 671 atkvæði í 1. sæti, en liðlega 1050 atkvæði alls. Egill Jónsson fékk 692 atkvæði í 1.—2. sæti, en liðlega 970 atkvæði alls. Tryggvi Gunnarsson fékk 451 atkv. í 1. —3. sæti, en liðlega 720 atkvæði alls. Flest atkvæði í 1.—4. sæti hlaut Gunnþórunn Gunnlaugs- dóttir, en Þráinn Jónsson í 1.— 5. sæti. Úrslit prófkjörsins munu vera bindandi hvað varðar þrjú efstu sætin og munu því sömu menn skipa þau og í síðustu alþingis- kosningum. Alls tóku 1191 þátt í prófkjör- inu að þessu sinni. Fundir um kvenna- menningu Jafnréttisnefnd Neskaupstaðar og starfshópur um kvennamenn- ingu á Egilsstöðum hafa ákveðið að hafa samvinnu um kynningar- og umræðufundi um hugtakið kvennamenningu. Helga Sigur- jónsdóttir kennari mun koma hingað austur og halda erindi í Egilsbúð í Neskaupstað föstudag 11. mars kl. 20,30 og laugardaginn 12. mars kl. 14 í Menntaskólanum á Egilsstöðum. Kirkja Æskuiýðsmessa í Norðfjarðarkiirkju nk. sunnudag 7. mars kl. 2 e. h., á Æskulýðsdegi þjóðkirkjunnaír. Sóknarprestur. hún að þjóna Búða-, Fáskrúðs- fjarðar- og Stöðvarhreppi. Smíði stöðvarinnar var boðin út 1979 og var framkvæmdum endanlega lokið skömmu áður en vígslan fór fram. Um byggingu hússins sáu þeir Þröstur Júlíus- son og Einar Gunnarsson, en Lars & Sævar hf. önnuðust innrétt- ingar og gerð lóðar. Húsið er á einni hæð og allt fyrirkomulag innan dyra eins og best verður á kosið. Enn vantar þó ýmis tæki í stöðina, en væntanlega verður verulega bætt úr því á þessu ári, þar sem 450 þús. kr. eru ætlaðar til kaupa á tækjum í hana. Var orðið virkilega brýnt að bæta aðstöðuna fyrir læknisþjón- ustu á þessu svæði, en heilsu- gæslustöðin var áður til húsa í gam'a læknisbústaðnum, sem byggður var af Frökkum snemma á öldinni. Við vígsluna flutti Sigurður Gunnarsson sveitarstjóri Búða- hrepps ávarp, en auk hans töl- uðu Aðalbjörg Magnúsdóttir, sem tilkynnti um gjöf á tækjum til krabbameinsskoðunar frá Krabba meinsfélaginu, séra Þorleifur Kristmundsson og Einar Guð- mundsson heilsugæslulæknir. Fjöl- menni var við vígsluna og eftir að húsakynnin höfðu verið skoðuð, bauð Búðahreppur til kaffidrykkju í skólanum. — B. B. Norðfirskt skíðafólk í fremstu röð Bikarmót Skíðasambands íslands var haldið á Akureyri helgina 19.—20. febrúar sl. í upphafi stóð til að halda mótið á Dalvík. en sökum snjóleysis varð að halda það á Akureyri. Að austan fóru 7 þátttakendur þar af 5 frá Nes- kaupstað og kepptu þau í flokki 13—14 ára. Bestum árangri austfirsku ungling- anna náðu þau Birkir Sveins- son sem varð 2. í svigi og 5. í stórsvigi og Gúnda Vigfús- dóttir sem varð í 3. sæti í svigi og 5. í stórsvigi. Hinir kepp- endurnir héðan að austan voru nokkuð óheppnir með byltur, t. d. duttu þær Bergrós Guðmundsdóttir og Hrefna Tómasdóttir báðar í svigi en urðu í 10. og 11. sæti í stór- sviginu. Þorsteinn Lindbergsson varð í 13. sæti í svigi og 29. sæti í stórsviginu. en keppendur voru 46 talsins. Þessi árangur er mjög á- nægjulegur og óskar Austur- land öllum þessum unglingum velfarnaðar f skíðabrekkunum í vetur, vonandi verður ein- hver snjór hér fyrir austan, svo hægt verði að æfa. — Þ. J. EGILSSTAÐIR : Atvinnumálakönnun Á vegum atvinnumálanefndar Egilsstaúahrepps var f haust gerð könnun á horfum í atvinnumál- um í hreppnum. Könnunina unnu nemendur í félagsfræði í Menntaskólanum undir hand- leiðslu Jóns Inga Sigurbjömsson- ar kennara. Helstu niðurstöður atvinnu- skiptingar voru að um 34% vinnu- afls starfaði við opinbera stjórn- sýslu og þjónustu, 24% við iðnað og úrvinnslu landbúnaðarafurSa, 17% við verslun og 7% við bygg- ingarstarfsemi. Á launaskrá töldust vera 775, en á íbúaskrá voru 1. des. sl. 1222. Ar-rr. tts—íTl—n □□□□□□□□□□ nnnnnn 1 II II II II II II II II II 1 EGILSBÚÐ — Sími 7322 — Neskaupstað. Fimmtudagur 3. mars kl. 21,00 „LOLA” — Drottning næturinnar. Þýsk kvikmynd undir leikstjóm R. W. Fassbinder. Sagan gerist í smáborg einni í Vestur- Þýskalandi árið 1957. Lola syngur í veitinga- og vænd- ishúsi en þar fær enginn að koma nálægt henni nema Schuckert sem er harður og ósvífinn byggingabraskari, sem hefur alla borgarbúa í vasa sínum. — Fassbinder svtkur engann. Sunnudagur 6. mars ki. 14,00 „Stóri bjöm” Gullfalleg barnamynd um skógarbjöm og lítinn dreng. Kl. 21.00 „Djöfulgangur” (Ruckus). Hörkuspennandi mynd um ungan mann sem nýkominn er úr stríðinu í Víetnam og er ofsóttur af íbúum smábæjar sem hann kemur í. Aðalhlutverk Linda Blair (úr The Exorcist) Dirk Benedict. Tónlist eftir Willie Nelson og Hank Cochran. 60% vinnuveitenda töldu að atvinnuástand í viðkomandi fyr- irtækjum héldist óbreytt í vetur, en 30% töldu að um samdrátt yrði að ræða. Aðsþurðir um möguleika til nýrra atvinnutækifæra innan fyrirtækjanna í nánustu framtíð töldu 64% horfur á óbreyttu ástandi, 14% litla möguleika og 17% mikla möguleika á fjölgun, en 5% líkur á fækkun. Helstu forsendur frekari út- færslu viðkomandi starfsemi töldu vinnuveitendur vera: 1. Hagstæðari lán og aukið láns- fjármagn. 2. Stærri markað. 3. Stærra og hentugra húsnæði. 4. Aðstoð sveitarfélagsins og opinber gjöld. I framhaldi af könnuninni hef- ur nefndin athugað möguleika á byggingu iðngarða eða með kaup á hentugu iðnaðarhúsnæði til handa þeim fjölmörgu fyrirtækj- um, sem áhuga hafa á slíku. S. J. Saumostoían EFTIR KJARTAN RAGNARSSON. Leikfélag Reyðarfjarðar sýnir Saumastofuna eftir Kjartan Ragnarsson í Egils- búð, Neskaupstað 11. mars. Borgarfirði 12. mars og í Valaskjálf, Egilsstöðum 14. mars. Leikstjóri: Guðjón Ingi Sig- urðsson. Píanóleikari: David Roscoe. — Nánar auglýst í götuauglýsingum. Leikfélagið.

x

Austurland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.