Austurland


Austurland - 03.03.1983, Side 4

Austurland - 03.03.1983, Side 4
Æusturland Neskaupstað. 3. mars 1983. Súni 7222 (^) Sparisjóðux fííft Slökkvilið ^ heimilaima Neskaupstaðar SPARISJÓÐUR NORÐFJARÐAR HELGI SELJAN : Orkureikningur tii Alusuisse Allt í einu nú, þegar kosn- ingar nálgast fara þeir fram- sóknarmenn að taka kipp í húshitunarmálunum. Nú á að kynda og kynda vel og enginn orkusparnaður í l>eirri ið.ju, sem nú á að iðka í takt við boðorð Leitis Gróu. Sá 1’ungi baggi, sem bundinn er landsbyggðarfólki hefur ekki íþyngt þeim framsóknar- hetjum stórlega á liðnum ár- um, enda þekkja fæstir þing- menn til hans nema af af- spurn. Landsbyggðarfólki er eðlilega heitt í hamsi og nú skal til atlögu reitt að þeim, sem alla ábyrgð ber að þeirra sögn — ólyginni. Skyldi það vera Landsvirkjun, sem sífellt hækkar raforkuverðið m. a- til að standa undir þeim helmingi af erlendum skuldum okkar, sem formaður Landsvirkjun- ar í öðru embætti telur okkar verstu vá? Auðvitað ekki, því þrátt fyrir allt niðurtalningarhjal þá eru þeir framsóknarmenn mikiir talsmenn frjálsrar verðmyndunar og afskipta- leysis af hégóma eins og verð- lagsmálum. Og auk þess er notalegt að grípa til formanns Landsvirkjunar í hinni stöð- unni, þessari hjá þeim Hall- dóri og Tómasi í Seðlabankan- um þeirra allra, þegar segja þarf aivöru — og aðvörunar- orð til alþýðu manna um að eyða nú ekki um efni fram. Þá er enginn heilagri en skuldasafnarinn Jóhannes Nordal, þessi sem gerði ál- samningixm góða með Stein- grími og lngólfi á Hellu um árið, þennan sem nú er verið að sanna, að hafi verið fyrir neðan allar hellur. Nú þegar Landsvirkjun hækkar sitt heildsöluverð um sömu upphæð og nemur heild- inni tii álversins á orkuein- ingu, þá hljóta þeir framsókn- armenn að beina skeytum sín- um að auðhringnum erienda, sem hiutlausir og virtir aðilar hafa gert uppvísa að margs konar svindli og svmaríi til viðbótar þeirri smán, sem þeir greiða fyrir raforkuna og hvergj þekkist svo lág í heim- inum. Nei, þessir öðlingar fá engin skot, vöm skal það vera fyr- ir öll þeirra svik, vörn til að kiekkja á þeim, sem gekk í þessi mál af einurð og fyllstu óhlutdrægni með því að láta aðra um dóminn. Því hvort sem það eru Tíma —Þórarinn, Guðmundur Bjarnason í Degi eða Haildór Asgrímsson í Austra, þá er boðskapur þeirra sá, að sökin sé Hjörleifs Guttormssonar. Hann hafi ekki viljað semja við Alusuisse, hvað þá að hann hafi nú viljað lúta há- tigninni, ganga að skilyrðum þeirra, gefa þeim upp sann- aðar sakir og fá svo tvíeyring Guðmundar G. á móti. Já, stór er sá tvíeyringur í augum þeirra framsóknarmanna. En auðvitað mundi hann engu breyta um orkukostnað landsmanna, að ekki sé nú minnst á allt tapið í öðru, sem honum á fylgja. Mikil er trú þeirra fram- sóknarmanna á fávísi fólks á iandsbyggðinni, ef þeir halda í alvöru, að allir viti bomir menn hafi ekki fylgst með og viti meginatriði málsins. Alusuisse vill ekki semja, ekki hreyfa sig um hársbreid/i, nema tii eigin hagsbóta. Þeir vilja láta verðlauna sig fyrir svikin, þeir vilja ekkert bjóða á móti. Það skyldi þó aldrei vera. að þeir finni hversu góða bandamenn þeir eiga hér og að þeim sé því óhætt að neita öllu en heimta í þess stað sitt af hverju okkur í óhag. Eða hefur ekki verið undir tekið, fyrst af íhaidi, svo af krötum og nú síðast af þeim er síst skyldi, jafnvel þeim heiðar- legustu í hópi Framsóknar? Þeir hika ekki við að stilla Hjörieifi upp sem andstæð- ingi sínum um leið og þeir taka sér dyggilega stöðu við hlið Alusuisse, sem öllum sökum er firrt. Þó oft hafi verið lágt lagst í kosninga- slag, þá á maður en erfitt með að trúa slíkri lágkúm. Hver láir Alusuisse, þó það neiti af alefli öllum samning- um við þann ráðherra, sem samiandar hans snúast á móti og ráðast að með offorsi fyrir óbilgimi við „góðan” viðskiptaaðila? En engum er ljósara en landsbyggðarfólki, hvert orkureikninginn dýra á að senda, fyrsta afborgunin skilar sér í atkvæðatapi þeirra sem álhringnum þjóna svo dyggilega. Austfirðingar munu áreið- anlega taka sinn góða þátt í að ganga fram í þeirri afborg- un. Það má Framsókn gerst vita eftir gerræði sitt og á- sakanir allar. SVEINN JÓNSSON : Nýlendustefna Reykjavíkurvaldsins Að undunförnu hcfur mikið verið tekist á um vægi atkvæða eftir búsetu kjósenda í landinu. I áróðursherfcrðinni, sem fylgt hcfur, hefur jafnvel verið gripið til þess að efna til könnunar á vilja kjósenda á stór- Reykjavíkursvæðinu. Þarf vart að efast um niðurstöðuna, þegar séð cr hvernig hún er útbúin, hverjir standa fyrir henni og kosta með tilheyrandi auglýsingaflóði. Þar hljóta að vera á ferðinni fjársterkir aðilar, sem munu telja sig hafa af því fjárhagslcgan ávinning að málstaður þeirra nái fram að ganga. Aðilar, sem í dag þurfa á því að halda að draga athyglina frá þeirri staðreynd, að þeir eru afætur á íslensku þjóðlífi. Verslunar- og þjónustuvaidið mcð Reykjavíkur- íhaldið sem aðalmálsvara hcfur það nú að fremsta markmiði að draga svo mátt úr cfnahagslífi landsbyggðarinnar, að það nái því að hafa afkomu hennar i hendi sér. Þessum málstað er svo haldið fram undir yfirskini jafnræðis og réttlætis í umræðunni um kjördæmamál og vægi atkvæða. HVER ER ÁSTÆÐAN? Skyldi það hafa farið fram hjá einhverjum hvaða áróður hefur verið rekinn gegn íslenskum land- búnaði og hvað það kosti þjóðina að standa undir þeirri verðmætasköpun. sem þar á sér stað. Eða þá hvílík óstjórn sé á fjárfestingu í sjávarútvegi, þegar fé er varið til uppbyggingar fiskvinnslu- fyrirtækja út um land og kaupa á veiðiskipum. Svo ekki sé minnst á þann kostnað, sem af því hlýst að tryggja búsetu þar með viðunandi aðbúnaði á sviði heilsugæslu, menntun- ar, samgangna og orkudreif- ingar svo eitthvað sé nefnt. Til sanns vegar má færa, að ýmislegt hefði mátt betur fara, en hér er um að ræða þær atvinnugreinar, sem að verulegum hluta standa undir verðmætasköpun þjóðarinnar. Því fólki, sem að því vinnur verður að tryggja sambærilega lífsafkomu og öðrum þjóð- félagsþegnum, ella verða í þessu landi tvær þjóðir og reyndar er orðinn að því nokk- ur vi'sir í dag. LAUSN EFNAHAGSVAND- ANS. í krafti þingmanna strjál- býlisins hefur AJþingi leitast við að tryggja. lífsafkomu dreifbýlisins svo búsetu verði við haidið. Tekist hefur að hamla gegn fólksflóttanum þaðan tii þéttbýlisins við Faxa fióa á undanförnum árum. Svo virðist þó, sem nú sé enn að losna um þá skriðu. Því er nauðsynlegt, að ekki verði dregið úr iífsnauðsynlegu fjárstreymi til dreifbýlisins, sem á óumdeilanlega rétt til fjárins sakir þeirrar mikiu framleiðslu sem þar á sér stað. Þetta verður að gerast á kostnað þeirrar óarðbæru fjárfestingar og umsvifa í verslun og þjónustu, sem blómstrað hefur úr hófi fram j' þéttbýlinu og er tengd taum- lausum innflutningi og höndl- un verðlausra peninga. Alþingismönnum lands- byggðarinnar er að þakka sú jöfnun lífskjara sem náðst hefur til handa landsbyggðr inni. Þeir eru nú sagðir hafa misbeitt valdaaðstöðu sinni, sem þeir haldi vegna órétt- iáts vægis atkvæða kjósenda sinna. Lausnin hefur verið fundin. Það þarf að fjölga þingmönnum Reykjavíkur- valdsins, helst svo þeir séu kjömir samkvæmt reglunni einn maður eitt atkvæði. Svo er forsjálni þingmanna fyrir að þakka, að bið verður á þeirri breytingu, enda myndi hún hafa leitt til ófyrirsjáan- legs tjóns fyrir þjóðina eins og ástatt er í dag. MARKMIÐIÐ. Eitt meginmarkmið íslenskra sósíalista hefur verið að jafna efnahagslegan aðstöðumun þegnanna í þessu landi. Hér býr ein þjóð, fámenn en í stóm landi. Réttlæti verður aðeins tryggt með sem jafn- astri skiptingu þjóðartekna og aðeins því sem til ráð- stöfunar er hverju sinni, þeg- ar jafnaður hefur verið að- stöðumunur vegna búsetu. Þar hafa Reykvikingar engan sjálfsagðan rétt umfram aðra landsmenn til ódýrari húshit- unarorku, lægra vömverðs. betri eða ódýrarj heilsugæslu og samgángna svo eitthvað sé nefnt. Þegar þessu marki er náð og fyrr ekki er hægt að tala um hugtakið einn maður eitt atkvæðj sem réttlæti. Veistu? að Sverrir Hermannsson sagði í Mogganum að loknu piófkjöri: „Úrslit- in eru auðvitað frábær fyrir mig og ég hef allt gott um þau að segja ... Ég vil einnig benda á, að Egill fékk töluvert mörg atkvæði í I. sætið og það er ekki vantraust á mig heldur traust á hann”. að Egill á Seljavöllum sagði af sama tilefni: „Mér líst mjög vel á þessi úr- slit ... í fjórum efstu sætum lentu sömu menn og skipuðu fjögur efstu sæti á lista sjálfstæðis- manna á Austurlandi við síðustu alþingis- kosningar.” (Egill gleymdi auðvitað Þráni Jónssyni, sem færðist úr fjórða sæti og niður í fimmta sæti!) ..Að því er sjálfan mig varðar, þá er ég afskaplega ánægð- ur ...” — Ekki er að efa að háttvirtir kjós- endur eru farnir að lilakka til að sjá gleð- ina geisla af Agli á framboðsfundum. að Jesa má í Austra að framsóknarmenn telji sig nokkuð örugga að fá þrjá menn kjörna á Austurlandi og íhaldið telur sér tvo sama sem örugga. Það er því alveg þarflaust fyrir aðra flokka að vera að sýna sig gegn þessu tvíeyki. að lesa má í 8. tbl. Austra bi-áðskemmtilega „þanka” um iðnaðarráð- herra, þar sem segir m. a. um hlut hans í stjórn Ólafs Jóhannessonar, sem sat í 13 mánuði: „Þegar ríkisstjómin var liölega þriggja ára fóru kratar í fýlu eins og frægt er orðið og þá sá ráðherra sitt óvænna og á hlaupum út úr ráðu- neytinu setti hann lög um virkjun „Bessý“. — Líklegt er að hér haldi Jón ritstjóri og varaþing maður á penna Hverrúg væri að gefa honum kost á að setja lög, t. d. heima hjá sór? að samgönguráðherra sagði á Alþingi í Ixaust að sl. sumar hefði verið unnið ötullega að rannsóknum varðandi framtíðarupp- bveaingu flugvallar á Egilsstöðum og að nið- ui-stíöður væru væntan- legar unx áramót. En ekkert er enn farið að bóla á þessum niður- stöðum og ekkert hefur heyi’st um kynningar- fund. sem lofað var unx málið. Austfirðingar hljóta að spyrja: hvað dvelur?

x

Austurland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.