Austurland - 05.05.1983, Page 1
Austurland
ESKIFJORÐUR:
33. árgangur.
Neskaupstað, 5. maí 1983.
19. tölublað.
Veriur umtalsvert atvinnuleysi
hjá skólafólki í sumar?
Mikill samdráttur í framkvæmdum sveitarfélaga á Austurlandi
Dauft hjá togurunum
Afli togaranna, Hólmatinds og aðamótin apríl-maí var afli
Hólmaness hefur minnkað tölu- Hólmatinds 954 tonn og Hólma-
vert miðað við síðastliðið ár að ness 847 tonn, en Hólmanes var
sögn Emils Thorarensen hjá Hrað- :>ð vísu frá veiðum í um 3 vikur
frystihúsi Eskifjarðar. Um mán- 1 febrúar.
Jón Kjartansson hefur aflað
um 680 tonna af fiski frá áramót-
um í 6 veiðiferðum. Hann hefur
nú farið í 2 söluferðir á árinu,
seldi nú sl. mánudag í Cuxhaven
alls 172 tonn. Meðalverð var
15.13 kr. en segja má að al'.ar
tegundir af fiski hafi verið um
borð. Ufsinn dró meðalverðið
töluvert niður, en verð á ufsa
hefur að undanfömu verið afar
Iágt á erlendum mörkuðum vegna
mikils framboðs. — Þ. J.
HOFN :
Á flestum þéttbýlisstöðum hér austanlands virðist atvinna ætla að
vera með minna móti í sumar og sums staðar gæti orðið verulega
erfitt f.vrir skólafólk og unglinga að útvega sér vinnu. Það sem fyrst
og fremst vcldur þessu er hin slæma fjárhagsstaða sveitarfélaganna,
en víða hcfur stór hluti skólafólks starfað við framkvæmdir á vegum
þeirra. Það er augljóst að framkvæmdir sveitarfélaga í fjórðungnum
verða víða í algjöru lágmarki og því verður sá hópur, sem starfað hcf-
ur við þær, að leita á önnur mið hvað atvinnu áhrærir.
Austurland hafði samband við nokkra sveitarstjóra í fjórðungnum og
leitaði frétta um þetta efni.
Björn Kristjánsson sveitar-
stjóri á Höfn taldi atvinnu-
horfur þar vera heldur verri en
oftast áður. Sagði hann að
augljóslega hyrfti að skera
niður framkvæmdir, sem ætl-
unin hefði verið að ráðast í
á vegum hreppsins og hefði
það eitthvað að segja fyrir at-
vinnuástandið. Taldi Bjöm að
starfsemi fiskvinnslufyrirtækja
yrðj síst minni en venjulega.
Jónas Hallgrímsson bæjar-
stjóri á Seyðisfirði sagði að at-
vinnuhorfur |>ar fyrir skóla-
fólk væru ekki bjartar. Hjá
sveitarfélaginu yrði mikill
samdráttur hvað framkvæmd-
ir varðar og þegar væri farið
að neita ungmennum um at-
vinnu. Ekki eru hins vegar
líkur á neinum samdrætti hjá
fiskvinnslufyrirtækjunum, en
óvíst er hvort þau geti tekið
á móti auknu vinnuafli.
Sigurður Gunnarsson sveit-
arstjóri á Fáskrúðsfirði áleit
að þar yrði atvinnuástand erf-
itt fyrir 15—16 ára unglinga.
Sagði hann vera heldur þröngt
í búi hjá sveitarfélaginu og
segði það vissulega til sín
varðandi atvinnu þessa aldurs-
hóps.
Guðmundur Magnússon
sveitarstjóri á Egilsstöðum
sagði að þar væru atvinnu-
horfur mjög slæmar fyrir ung-
linga. Sagði hann að sam-
dráttur yrði í framkvæmdum
á vegum sveitarfélagsins og
því væri útlitið ekki bjart.
Logi Kristjánsson bæjar-
stjóri í Neskaupstað sagði að
á veg'um sveitarfélagsins yrðu
mjög litlar framkvæmdir í
sumar og eins væri augljóst að
lítið yrði um að vera í bygg-
ingariðnaði í bænum. Hins
vegar mun ekki vera útlit fyr-
ir neinn samdrátt hjá fisk-
vinnslufyrirtækjunum. Taldi
bæjarstjóri að ekki væri
ástæða fyrir heimamenn að
kvíða |>ví að vinnuframboð
yrði ekki nægilegt, en ljóst
væri að ekki væri hægt að
veita mörgum aðkomumönn-
um atvinnu, eins og gert hef-
ur verið.
Vel
heppnuð
1. maí
hátíðar-
höld
1. maí var haldinn hátíðlegur á
Höfn með kröfugöngu og úti-
fundi. Var þátttakan í göngunni
með mesta móti a'5 sögn Sigurðar
Hannessonar hjá Verkalýðsfélag-
inu Jökli og útifundurinn vel
heppnaður. Á fundinum hélt
Framhald á 3. síðu.
Austurlandsmót á skíðum
Þróttarar sigursælir
Estcr Þorvaldsdóttir á fullri ferð i svigkeppninni.
(Ljósmynd: Kristján Logason).
Austurlandsmótið á skíðum í
flokki 13 ára og eldri var haldið
í Oddsskarði páskadagana 3. og
4. apríl. Skíðaráð Þróttar sá um
framkvæmd mótsins og var Þor-
gerður Malmquist mótsstjóri.
Veður var ekki allt of hagstætt
og hafði spáð illa, en sem betur
fer létu menn þatí ekki á sig fá
og tókst framkvæmdin ágætlega.
Kappendur voru um 65 frá 5 fé-
lögum, Þrótti, Hugin, Hetti, Austra
og Hrafnkeli Freysgoða. í stiga-
keppni félaga sigraði þróttur, hlaut
126 stig en Huginn var skammt á
eftir með 102 stig. I þriðja sæti
varð Höttur með 76 stig, Austri
hlaut 28 stig og Hrafnkell Freys-
goði fékk 10 stig.
EgiLsstaðamenn virðast vera að
koma sér upp góðum hópi skíða-
fólks og er þap vel. Mótsslit fóru
síðan fram í Egilsbúð en íþrótta-
félagið Þróttur, bauð keppendum
og starfsfólki mótsins í kaffi og
fór þar fram verðlaunaafhending.
Efstu menn í einstökum grein-
um urðu eftirtaldir:
Verðlaunaafhending fyrir svig pilta 13—14 ára. Talið frá vinstri:
Þorsteinn Lindbergsson, Birkir Sveinsson og Óskar Garðarsson.
(Ljósmynd: Kristján Logason).
STÓRSVIG
Karlar: tími sek.
1. Ólafur Hó!m Þorgeirsson, Þrótti 117.80
2. Einar Sv. Jónsson, Hugin 121.90
3. Jóhann Stefánsson Hugin 123.60
Konur:
1. Ester Þorvaldsdóttir, Hugin 129.90
2. Helga R. Melsted Hrafnkeli Freysgoða 134.50
3. Védís Ármannsdóttir, Hetti 147.20
Piltar 15—16 ára:
1.—2. Víðir Ársælsson, Þrótti 120.80
1.—2. Eðvald Garðarsson, Þrótti 120.80
3. Halldór Halldórsson, Hetti 121.50
Stúlkur 15—16 ára:
1. Hrefna Tómasdóttir, Þrótti 122.80
2. Bergrós Guðmundsdóttir, Þrótti 123.00
3. Ása Brynjólfsdóttir, Hetti 140,10
Piltar 13—14 ára:
1. Birkir Sveinsson, Þrótti 106.28
2. Þorsteinn Lindbergsson, Þrótti 107.73
3. Óskar Garðarsson, Austra 112.57
Stúlkur 13—14 ára:
1. Gúnda Vigfúsdóttir, Þrótti 111.73
2. Irma Erlingsdóttir, Hetti 124.29
3. Sigrfíur Ingvadóttir, Austra 128.85
Framhald á 2. síðu.
FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR:
Góður afli
hjá togur-
unum en
léleg
netavertíð
Að undanförnu hafa Fáskrúðs-
fjarðartogaramir fiskað ágætlega,
en netavertíðin hefur hins vegar
verið einstaklega léleg. Tveir
netabátanna, Sæbjörg og Guð-
mundur Kristinn, eru hættir á
netum og mun Sæbjörg fara á
troll bráðlega. Sólborg og Þorri
eru hinsvegar enn á netum, en
án efa fer að líða að lokum þess-
arar einstaklega Iélegu netavertíð-
ar. — B. B.
NESKAUPSTAÐUR :
Engin
götulýsing
í sparnaðar-
skyni
Vegna slæmrar fjárhagsstöðu
bæjarsjóðs Neskaupstaðar hefur
verið Ieitað ýmissa leiða til
spama'Jar. Sú sparnaðarráðstöfun,
sem íbúar bæjarins hafa helst orð-
ið varir við, er sú að ekki hefur
verið kveikt á götuljósum síðustu
dagana. Enn er myrkur á síð-
Framhald á 2. síðu.