Austurland - 28.02.1985, Blaðsíða 2
2
FIMMTUDAGUR, 28. FEBRÚAR 1985.
----------Austurland--------------------
MÁLGAGN ALÞÝÐUBANDALAGSINS
Ritnefnd: Elma Guðmundsdóttir, Guðmundur Bjarnason,
Einar Már Sigurðarson, Þórhallur Jónasson og Smári Geirsson.
Ritstjóri: Birgir Stefánsson (ábm.) S7756.
Auglýsingar og dreifing: Aðalbjörg Hjartardóttir - Pósthólf 31
— 740 Neskaupstað — S7756.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar: Egilsbraut 11, Neskaupstað
S7756.
Prentun: Nesprent.
ÚTG.: KJÖRDÆMISRÁÐ ALÞÝÐUBANDALAGSINS
Á AUSTURLANDI
Auglýsingaútvarp íhaldsaflanna
Frumvarp til nýrra útvarpslaga er aftur komið á
dagskrá Alþingis eftir að menntamálanefnd Neðri
deildar hefur um það fjallað frá því sl. haust. Fulltrú-
ar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í nefndinni
skila sameiginlegu áliti og breytingartillögum við
frumvarpið en stjórnarandstöðuflokkarnir skila sínu
álitinu hver. Þannig stendur fulltrúi Alþýðubanda-
lagsins í nefndinni, Hjörleifur Guttormsson, að sérá-
liti og mörgum breytingartillögum við frumvarpið.
Meginágreiningurinn um frumvarpið snýst um
það, hvort heimila skuli auglýsingar í svæðisbundn-
um útvarpsstöðvum og um eignarhald á dreifikerfum
útvarpsstöðva. Alþýðubandalagið stendur eindregið
gegn því að heimila auglýsingar í nýjum útvarps-
stöðvum og leggur áherslu á, að dreifikerfi þeirra sé
í opinberri eigu til að koma í veg fyrir einokun fjár-
sterkra aðila.
Þrátt fyrir stór orð framsóknarforystunnar sl. haust
um andóf gegn stefnu Sjálfstæðisfokksins í útvarps-
málinu, liggur það nú fyrir, að hörðustu íhaldsöflin
í báðum stjórnarflokkum hafa náð saman um að
heimila auglýsingar í nýjum útvarpsstöðvum og af-
henda þar með gróðaöflum í þjóðfélaginu aðgang að
fjölmiðlun í útvarpsrekstri
Bindiefnið í afstöðu stjórnarflokkanna er ekki síst
hinn fyrirhugaði fjölmiðlarisi ísfilm, sem er helm-
ingaskiptafélag SÍS og gróðafélaganna, sem gefa út
Morgunblaðið og DV. Bandalag jafnaðarmanna vill
raunar ganga enn lengra en íhaldsöflin varðandi
hömlulaust auglýsingaútvarp og fulltrúi Alþýðu-
flokksins, Jón Baldvin Hannibalsson hefur einnig
tekið undir auglýsingar utan Ríkisútvarpsins. Vert
er að vekja athygli á, að á öðrum Norðurlöndum
leggjast vinstri flokkar og sumir miðflokkar eindregið
gegn auglýsingaútvarpi á sama hátt og Alþýðubanda-
lagið.
í umræðum og tillögum um endurskoðun útvarps-
laga leggur Alþýðubandalagið megináherslu á eflingu
Ríkisútvarpsins um leið og flokkurinn vill útvíkka
lýðræðislega umræðu með því að heimila starfrækslu
svæðisstöðva án auglýsinga og áhrifa fjársterkra að-
ila.
Vinstri menn þurfa að fylkja sér um slíka lýðræðis-
lega fjölmiðlun gegn auglýsingaútvarpi íhaldsafl-
anna.
Frá Náttúruverndarsamtökum
Austurlands
Eins og félagsmönnum er
kunnugt, var aðalverkefni sam-
takanna á sl. sumri að láta kanna
og skrá á náttúruminjaskrá staði
á norðanverðu félagssvæðinu og
nutu til þess styrks úr Þjóðhátíð-
arsjóði, sem gerði samtökunum
kleift að ráðast í þetta verkefni.
Á næsta sumri er fyrirhugað
að samtökin beiti sér fyrir rann-
sókn á lífríki Hjaltastaðarblár,
en hún hefur lengi verið á nátt-
úruminjaskrá. Náttúrugripasafn
Neskaupstaðar mun sjá um
framkvæmd verksins.
Þetta er allumfangsrnikið
verk, og fjárhag félagsins ofviða
nema að til þess fáist allmikill
styrkur, sem sótt hefur verið um.
Þetta er aðkallandi verkefni,
því sú hugmynd hefur komið upp
að taka hluta af svæðinu (óvíst
hvað stóran) undir kurlskóg, sem
rækta þarf í sambandi við kísil-
Kvennastefna AB
Konur í Alþýðubandalaginu
gangast fyrir kvennastefnu í
Ölfusborgum 9. og 10. mars nk.
Dagskrá kvennastefnunnar er
þannig: 1. Atvinnu- og kjara-
mál. 2. Staða heimavinnandi
fólks. 3. Baráttuleiðir kvenna.
4. Störf kvenna í AB-Kvenna-
fylkingin-Fundaröð ívor. Fram-
söguræður verða haldnar um
hvern málaflokk fyrir sig, al-
mennar umræður verða og
starfshópar fjalla um dagskrár-
málin.
Kvennastefnan er opin öllum
konum í Alþýðubandalaginu og
öðrum stuðningskonum
flokksins.
Tilkynningar um þátttöku
þurfa að berast skrifstofu
flokksins, Hverfisgötu 105,
Reykjavík, sími 91-17500 fyrir
1. mars.
Þær konur, sem hafa í huga
að taka börn með, eru beðnar
að taka það fram við þátttöku-
tilkynningar.
Nánari upplýsingar um kostn-
að o. fl. eru veittar á skrifstof-
unni, en kostnaði verður mjög
í hóf stillt og verður jafnað
niður, þannig að hann verður
greiddur niður fyrir þær konur,
sem eiga langt að sækja.
B. S.
Kirkja
Messa í Norðfjarðarkirkju nk.
sunnudag, 3. mars kl. 1400 e. h.
Æskulýðsdagur kirkjunnar.
Ingunn Sveinsdóttir predikar.
Allt æskufólk velkomið.
Sóknarprestur.
málmverksmiðju. Niðurstöður
þessara rannsókna þurfa að
liggja fyrir áður en ráðist er í að
taka af þessu svæði til neinna
nota, sem valda breytingum á
því.
Önnur verkefni munu því
verða að bíða.
Sl. sumar voru, eins og að
undanförnu, sendir gíróseðlar til
félagsmanna vegna árgjalds. Því
miður hefur þessum seðlum á
undanförnum árum verið dreift
á óheppilegum tíma, bændur í
heyskaparönnum og aðrir e. t.
v. út um hvippinn og hvappinn í
sumarleyfum, sem hefur valdið
því, að menn hafa oft ekki greitt
seðilinn við móttöku.
Það er staðreynd að slíkir seðlar,
sem menn fara að geyma, vilja
stundum gleymast, ekki síst ef um
litlar upphæðir er að ræða, og svo
hefur farið með allt of marga af
árgjaldsseðlunum frá 1984.
Meðal þeirra, sem gleymt hafa
seðlunum eru margir af mestu
áhugamönnunum um viðgang
félagsins. Þessi gleymska veldur
því að félagið er ekki alveg
skuldlaust um áramót.
Stjórn samtakanna hefur hug
á að finna hentugri tíma til að
senda út gíróseðlana, og eru
menn beðnir að greiða þá við
fyrsta tækifæri þegar þeir berast.
Fyrir hönd stjórnar NAUST,
Sigurður Björnsson.
Rýmingarsala!
^ Gamlarvörurognýjaráótrúlega
lágu verði
Fatnaður, skór, íþróttavörur o. fl.
^ Já, allt á að seljast og því lækkum
við verðið niður úr öllu valdi
★ Aðeins þessa viku, en opið á
laugardag ef eitthvað verður eftir
Opið alla
dagal-10
VERSLUN — S7707
Árshátíð
Mjófirðingafélagsins
verður haldin í Egilsbúð laugardaginn 2. mars
20 ára afmæli félagsins
Heitur matur
Húsið opnað kl. 2000
Borðhald hefst kl. 2030
Miðasala föstudag kl. 18 — 20
Mætum öll hress og kát
Nefndin
NESKAUPSTAÐUR
Frá bæjarsjóði Neskaupstaðar
1. gjalddagi fyrirframgreiðslu útsvara og
aðstöðugjalda 1985 var 1. febrúar sl.
1. mars nk. reiknast 3.75% dráttarvextir á öll
vanskil
Gjalddagi2. hluta fasteignagjalda 1985 er 15.
mars Fjármálastjórinn í Neskaupstað