Ingólfur - 19.12.1929, Side 1
X
Kosningablað Framsóknarfélags Reykjavíkur
I. árg\
Reykjavík, fimtudaginn
19. des. 1929.
blað.
B-l±stixui
Stefnnskrá.
Framsóknarfélag'S X&eykjavíkur
1. Heimann Jónasson
lögreglnstjóri, Amtmannsstíg 4.
2. Páll E. Ólason
prófessor, Lindargötu 28.
3. Frú Aðalbjörg Sigurðardóttir
Laugarnesi.
4. Helgi Briem
slcattstjóri, Marargötu 3.
5. Sigurður Sigurðsson
búnaðarmálastjóri, Lækjarg. 14.
6. Benedikt Sveinsson
alþingismaður, Skólv.st. 11 A.
7. Guðmundur Thóroddsen
prófessor, Fjólugötu 13.
8. Valtýr Blöndal
\ bankaritari, Njálsgötu 10 A.
ð. Sigurður Kristinsson
forstjóri, Nönnugötu 1.
10. Björn Rögnvaldsson
trésmiður, Hallveigarstíg 8.
11. Helgi Hjörvar
ókennari, Aðalstræti 8.
12. Sigursíeinn Magnússon
fulltrúi, Laugaveg 42.
13. Guðmundur Guðnason
gullsmiður, Óðinsgötu 8 A.
14. Jón Eyþórsson
veðurfræðingur, Marargötu 3.
15. Hilmar Stefánsson
bankaritari, Ránargötu 34.
16. Magnús Stefánsson
afgreiðslumaður, Sunnuhvoli.
17. Helgi Bergs
forstjóri, Skólavörðustíg 30.
18. Júlíus Guðmundsson
stórkaupmaður, Ránargötu 6.
19. Guðjón Guðjónsson
kennari, Tjarnargötu 47.
20. Guðmundur Kr. Guðmundsson
bókhaldari, Bergstaðastræti 80.
21. Svavar Guðmundsson
fulltrúi, Hverfisgötu 21.
22. Jóhann Hjörleifsson
verkstjóri, Sólvallagötu 17.
23. Davíð Ámason
rafvirki, Skólavörðustíg 5.
24. Eggert Jónsson
kaupm. frá Rauðsgili, Óðinsg. 30.
25. Kristinn Kjartansson
trésmiður Baldursgötu 4.
26. Jón pórðarson
prentari, Framnesveg 16 B.
27. Hallgrimur Hallgrímsson
bókavörður, Laufásveg 20.
28. Ásgeir Ásgeirsson
fræðslumálastjóri, Laufási.
29. Jón Árnason
framkv.stj., Laufásveg 71.
30. Björn pórðarson
lögmaður, Bjarkargötu 16.
Á fundi í Sambandshúsinu mánu-
daginn 9 þ. m. samþykti Framsóknar-
félag Reykjavíkur eftirfarandi stefnu-
skrá í bæjarmálum:
1. Ræktun bæjarlandsins.
a. Vinna að því að halda í hóflegn
verði öllu ræktanlegu landi í ná-
grenni bæjarins.
b. Stefna að því, að á öllu ræktanlegu
landi í umhverfi bæjarins rísi smá-
býli, er njóti góðra samgangna við
bæinn.
2. Uppeldismál og íþróttir.
a. Endurbæta barnaskólann.
b. Koma ungmennafræðslu bæjarins í
það horf, að séð sé fyrir framhalds
námi bóklegu og verklegu fyrir
karla og konur eftir atvinnu- og
þroskaskilyrðum lands og bæjar.
c. Efna til leikvalla inni í bænum, eink-
um í hinum þéttþygðari hverfum,
fyrir börn.
d. Vinna að því að gera landið frá
suðurenda Tj arnarinnar, alt suður
að Skerjafirði, og þar með talda
Öskjuhlíðina, að opinberum skemti-
stað fyrir borgarbúa. Skulu þar
vera gangstígar, og margskonar
leikvellir fyrir böm og unglinga.
e. Gera við Fossvog bátastöð fyrir
bæjarbúa.
f. Styðja að því að sundment og al-
mennar útiíþróttir verði stundaðar
af bæjarbúum undir hentugum skil-
yrðum.
3. Heilbrigðismál.
a. Koma á auknu hreinlæti í bænum,
bæði um útlit húsa, lóða og stræta.
b. Vinna að því að götur séu skipu-
lega lagðar, og nægilega breiðar,
þegar miðað er við þarfir bæjar,
sem á fyrir sér að stækka.
4. Húsagerð.
Stuðla að því að heimili bæjarbúa
verði ódýrari og fegurri en nú m.
a. með því að koma á sameiginleg-
um, ódýrum flutningi á innlendu
efni á byggingarstaðinn, með góð-
um fyrirmyndum af nýtískuheimil-
um og með því að garður sé við
hvert hús.
5. Skattamál og f jármál.
a. Vinna á móti ósanngjörnum álög-
um á bæjarbúa.
b. Gera skattaálagninguna réttláta eft-
ir efnum og ástæðum borgaranna.
c. Láta viðhafa ráðdeild og hagsýni í
allri meðferð á fé bæjarins.
6. ÞurfamannamáL
Koma á skynsamlegu aðhaldi um
eyðslu úr bæjarsjóði til þurfamanna
og um vinnubrögð þurfalinga.
7. Atvinnumál.
a. Vinna að því að skapa með smáiðnaði
sjálfstætt atvinnulíf fyrir fólk, sem
nú tekur ekki þátt í framleiðslunni,
af því að það vantar viðfangsefni.
b. Vinna að umbótum á garðrækt í
umhverfi og nágrenni bæjarins og
gera hana að sjálfstæðum atvinnu-
vegi (sbr. 1. lið a.).
Með B-listanum, sem borinn er fram af
félagi Framsóknannanna í bænum og af
mörgum af helstu áhugamönnum frjáls-
lynda félagsins, þeim mönnum, sem ekki
vildu hverfa yfir í herbúðir Morgunblaðs-
ins síðastliðið vor, hefst nýr þáttur í sögu
bæjarins. Miðstétt bæjarins fylkir sér um
þennan lista og um stefnu hans. Fram að
þessu hafa öfgastefnurnar deilt. Annars-
vegar þröngsýnir og úrræðalausir odd-
borgarar, en á hinn bóginn ógætinn og
reynslulítill flokkur hinna svoköiluðu ör-
eiga.
Það er nú meira en mál til komið, að
þeir menn láti til sín taka hér í Reykja-
vík, sem eiga hugsjónir, vit og vilja til
þess að vinna að hollri og eðlilegri þróun
bæjarins. Það getur heldur engum dulist,
sem les stefnuskrá B-listans, að sá flokk-
ur manna, sem að honum stendur, hefir
tekið sér fyrir hendur mörg og þýðingar-
mikil viðfangsefni.
Ein af höfuðsyndum núverandi ráða-
manna Reykjavíkur er frámunalegt hirðu-
leysi um landeign bæjarins. M. a. sýnist
þeim hafa verið nauða illa við, að bærinn
ætti verðmætar lóðir. Mestur hluti bæjar-
landsins er óræktaður og til lítilla nytja.
Engin tilraun er gerð til að láta framleiða
á þessu landi mjólk handa bæjarbúum.