Austurland - 13.03.1997, Side 1
47. árgangur
Neskaupstað, 13. mars 1997.
10. tölublað.
Þemavika og útvarpsrekstur
Um þessar mundir stcndur yfir svonefnd Þemavika í Verk-
menntaskóla Austurlands. Hugmyndin er að brjóta upp hcfðbund-
ið skólastarf og leyfa sköpunargleðinni að njóta sín. Nokkrir hópar
eru starfandi og eru þeir listsköpunarhópur, kaffileikhúshópur.
kvikmyndagerðarhópur, heilsuræktarhópur, tölvuhópur, náms- og
starfskynningarhópur og síðast en ekki síst, útvarpshópur.
Öm Ingi Gíslason hetúr verið fenginn til að lciðbeina hópunum,
en á kvöldin leiðbeinir hann í Listasmiðjunni. Afrakstur Þcmavik-
unnar verður væntanlega til sýnis í lok vikunnar og dagskrá útvaips-
ins er með fjölbreyttu efni, sem ætti að veita bæjarbúum ómælda
ánægju
Hornafjörður 100 ára
/ hljódstofu tírvarps Verkó Aust. Þetta valinkwma lið verður á öldum Ijósvakans næstu dagana á FM 101.4 með eyrnakonfekt af
vmsit tagi. F.v. sitjandi Einar Alberts og Einar Torfi, aðrirf.v. Orri, Sœvar, Sveinn, Einar og Sigurjón Gísli. Ljósm. Eg..
Síldarvinnslan lif. velti rúmlega 4.2 milliörðum 1996
NESKAUPSTAÐUR
_______________ Velta Síldar-
vinnslunnar hf. nam rúmlega 4.2
milljörðum króna á síðasta ári
og siðasta ár skilaói fyrirtækinu
494 milljónum króna í hagnað.
Til samanburðar má geta þess að
hagnaður SVN var 165 milljónir
króna 1995 og rekstraráætlanir
fyrir síðasta ár gerðu ráó fyrir
I 30 milljóna króna hagnaði.
Rekstrartekjur hækkuðu um
35% á milli ára og námu alls
3539 milljónum en að meðtöld-
um innlögðum eigin afla rúm-
lega 4.2 milljörðum eins og áður
sagði. Arðsemi á eigin fjár á
árinu var 47% samanborið við
25% árið áður. í árslok var cigið
fé félagsins 1656 milljónir króna.
Eiginfjárhlutfallið jókst á árinu
úr 28% í 37% í árslok.
Finnbogi Jónsson fram-
kvæmdastjóri Síldarvinnslunnar
hf. sagði í samtali við blaðið í
gær að þessi mun betri afkoma en
rekstraráætlanir gerðu ráð fyrir
stafaði af nokkrum þáttum. Hann
sagði að gengismunur af lang-
tímalánum hefði verið 73 millj-
ónum hagstæðari en gert hefði
verið ráð fyrir, hagnaður hefði
verið af sölu hlutabréfa upp á
155 milljónir og framlegð í rekstri
hefði verið 120 milljónum króna
meiri en gert hefði verið ráð
fyrir. Það stafaði fyrst og fremst
af þvi að loðnuveiðar og vinnsla
hefðu gengið betur en áætlað
var.
Rétt er að benda á að þrátt
fyrir hundruð milljóna króna
fjárfestingar á síðasta ári s.s.
stækkun og endurbætur á loðnu-
verksmiðju, byggingu nýs frysti-
húss og ísverksmiðju í samvinnu
við hafnarsjóð jókst eiginfjár-
hlutfallið úr 28% í ársbyrjun í
37% í lok síðasta árs.
Síldarvinnslan hf. gerir út
einn ísfisktogara, tvo frystitog-
ara og tvö nótaskip og í landi
rekur félagið frystihús, loðnu-
verksmiðju, saltfiskverkun, síld-
arsöltun og dráttarbraut. Hjá
félaginu starfa að meðaltali 360
manns og námu heildarlauna-
greiðslur á síðasta ári 965
milljónum króna. Aðalfundur
Síldarvinnslunnar hf. verður
haldinn 19. apríl n.k.
HORNAFJORÐUR
_________________ í ár eru liðin 100 ár
frá því að byggð hófst á Höfn í
Homafirði. Það var fyrir réttum 100
árum sem verslun Ottós Tuliníusar var
flutt frá Papaósi í Lóni til Hafnar og
var það upphaf að byggðinni á Höfn.
Af tilefni afmælisins verður margt til
skemmtunar á afmælisárinu og mun
dagskrá standa yfir að meira og minna
leyti allt árið og hefur raunar verið
margt til skemmtunar þann tíma sem
liðinn er af árinu.
Hápunktur hátíðahaldanna verður
fyrstu helgina í júli. Þá verður haldin
hin árlega Humarhátíð sem notið
hefúr mikilla vinsælda undanfarin ár.
Forsetahjónin munu heiðra Hornfirð-
inga með nærveru sinni og vinabæjar-
mót norrænna vinabæja Hornafjarðar
verður þá haldið. Af öðmm helstu við-
burðum sumarsins má nefna yfirlits-
sýningu á verkum Svavars Guðnason-
ar listmálara, sem er án efa einn merk-
asti listamaður Homafjarðar fyrr og
síðar. Á þeirri sýningu má líta fjöl-
mörg verk sem ekki hafa verið sýnd
hérlendis áður. Nýtt Sjóminjasafns
Sýslusafnsins verður opnað á jarðhæð
í Pakkhúsinu og á cfri hæðinni verður
kaffistofa og sýningarsalur. Pakkhús
þetta var byggt árið 1930 og hefur
verið í endurgerð undanfarin ár.
Jafnframt þessu er áætlað aö hcfja
uppgröft á forna bæjarstæðinu í
Hólmi, sem fannst í mynni Laxárdals.
Áætlað er að grafa upp skálann i júní
og kamia til hlítar kumlið sem bærinn
famist út frá.
Næstu dagskrárliðir afmælishátíð-
arinnar í mars og apríl er m.a frum-
sýning Leikfélags Hornafjarðar á
morgun, fóstudag, á leikritinu „Á
sama tíma að ári“ og um helgina verð-
ur Gjugg i bæ á Höfn. I apríl vcrður
fímleikamót Sindra, útgáfuhátíð
„Kæra Höfn“ en það er gcisladiskur
með tíu lögum úr keppninni „Afmæl-
islagið 1997“ þá má og ncfna harmon-
ikkutónleika Tattoo Kantoma og af-
mælistónleika karlakórsins Jökuls.
Ótal margt er ótalið af þeirri dagskrá
sem þegar hefur verió gefin út en Ijóst
er að á Höfn ættu allir að finna eitt-
hvað við sitt hæfi á afmælisárinu.
Til hamingju meó afmælið Horn-
firðingar.
Fyrirhugaðri grunnskólabyggingu frestað
Til fermingargiafa
Góð rúmföt
rslumú
Nesbær
Egilsljraul 5 Nesk.mpsLið var477 1113
baqjarins
EGILSSTAÐIR
Bæjarstjórn Egils-
staða hefur ákveðið að fresta
viðbyggingu við grunnskólann
og verja í þess stað um hálfri
milljón króna í ár til úttektar á
starfi skólans. Ef aðstæður leyfa
verður hafist handa um bygg-
ingarframkvæmdir um næstu
áramót og stefnt að því að táka
fyrsta áfanga viðbyggingar í
notkun haustið 1999.
Helgi Halldórsson bæjarstjóri
á Egilsstöðum segir að sáralítil
seinkun verði á framkvæmdum
þrátt fyrir þessa frestun, menn
hefðu bara viljað draga andann
þetta árið og ekki fara í frekari
lántökur. Þess í stað rnunu fram-
kvæmdir væntanlega ganga
hraðar á næsta ári og haustið
1999 munum við taka í notkun
stjórnunaraðstöðu og 7 kennslu-
stofur í viðbyggingu skólans
sagði Helgi. Kostnaður við
stækkun grunnskólans er
áætlaður á milli 50 og 60 millj-
ónir króna.
Varðandi úttekt á starfi
skólans sagði bæjarstjórinn að
hún yrði gerð samkvæmt beiðni
stjórnenda skólans. Þar vilja
menn fara í nokkurs konar
nafnaskoðun, en enn er ekki
endanlega mótað hvemig þeirri
úttekt verður háttað.
Hclgartilbod
Java kaffi 400 gr. 199.-
Oxford kremkex 77.-
Þvottaduft 3 kg. 330.-
Mýkingarefni 2 ltr. 119.-
Lux baðsápa 4 stk. 218.-
WC pappír 8 r. 186.-
6^^
S 477 1301