Austurland


Austurland - 06.04.2000, Page 2

Austurland - 06.04.2000, Page 2
2 FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 2000 Heldurðu að einhvern tíma rísi álver í Reyðarfirði? Magnús Þór Ásgeirsson: „Þetta er góð spurning. Já, það mun rísa.“ María Jórunn Hafsteinsdóttir: „Það mun rísa. Við verðum að trúa því.“ Reynir Neil: „Ég skil ekki málið nógu vel, en það verður að auka fjölbreytni í atvinnulíf á Austuriandi." Ragnhildur Tryggvadóttir: „Ég veit það ekki.“ Bryndís Aradóttir: „Já, ekki spurning.“ Afar þakklátur cc Norðfjardar- kirkja fær góðar gjafir Séra Sigurður Rúnar Ragn- arsson sóknarprestur á Norðfirði er ánægður og þakklátur maður eftir kristni- tökuhátíð sem þar var haldin um helgina. „Ég vil flytja öllum hug- heilar þakkir fyrir hversu vel tókst til og hversu mjög fólk naut þessarar stundar saman,“ sagði hann í samtali við blaðið. Ekki dregur úr gleðinni hversu góðar gjafir kirkjunni hafa borist að undanförnu. Meðal gjafa til kirkjunnar eru tveir stjakar á altari sem barna- börn Valgerðar Torfadóttur og Hermanns Davíðssonar í Skugga- hlíð gáfu til minningar um þau. Þá hafa Herdís V. Guðjónsdóttir og börn gefið altarisklæði til notkunar á aðventu til minningar um Steinþór Þórðarson í Skugga- hlíð. Herdís hefur einnig gefið, ásamt þeim Aðalheiði Aðalsteins- dóttur og og Sigrúnu Guðjóns- dóttur, altarisklæði til notkunar á föstu til minningar um þá sem fórust í húsbruna í Skuggahlíð 11. ágúst 1949. Kvennadeild Slysavarnafélags- Séra Sigurður: Hægt verður að taka orgelið í notkun í sumar. ins hefur gefið kirkjunni fimmtíu sálmabækur og Brynjar Júlíusson kaupmaður tíu til viðbótar. Þá hefur orgelsjóði borist rausnarlegt framlag frá Sparisjóði Norðfjarðar, svo og Félagi eldri borgara, Norðfirðingafélaginu og fleiri velunnurum. Að sögn séra Sigurðar stefnir í að hægt verði að taka orgelið í notkun í sumar og er það vonum framar. Að lokum vildi séra Sigurður koma á framfæri kæru þalddæti fyrir altaristöflu sem hjónin Úlfur Ragnarsson og Ásta Guðvarðar- dóttir færðu kirkjunni að gjöf. Taflan stóð áður í Skorrastaðar- kirkju og er talin vera frá því um 1700. Sundlaug Weskaupstaðar Voropnun frá 7. apríl 2000 Mándaga - fostudaga 6:45- 10:00 og 16:00-20:00 lauoardaga og sunnudaga 10:00- 16.00 Gufabað fyrir konur, þriðjudaga og laugardaga Gufubað fyrir karla, fimmtudaga og sunnudaga Verið velkomin Starfsfólk laugarinnar Ókeypis smáar Til sölu Bíll til sölu Sófaborð og hornborð. Upplýsingar í síma 477 1497. MMC Pajero V6 3000, 7 manna, árgerð 1989, ekinn 154 þúsund lun. Góður bíll á góðu verði. Upplýsingar í síma 477 1826 og 861 1826 4 ” A Prinsippmálin til vandræða Það fylgdust margir tipparar spenntir með úrslitunum um helgina. Það stefndi í 12 eða 13 rétta hjá mörgum, en þegar upp var staðið var einn hópur með 13 rétta og þrír hópar með 12 rétta. En því miður voru vinningarnir ekki til að hrópa húrra fyrir, rúmlega 40.000 fýrir 13 rétta og 1.200 fyrir 12 rétta. Það var hópurinn Helgist sem náði 13 réttum og 3 Fuglar, Mónes og City náðu 12 réttum, síðan voru níu hópar sem náðu 11 réttum. Það eiga í raun efstu sextán hóparnir möguleika á sigri í hópleikn- um, en rétt er að hafa í huga að hann er kominn skammt á veg og margt óvænt á eftir að gerast. Efstir eru Mónes með 34 stig, 3 Fugl- ar með 33 stig, Eysteinn og Skósi með 32, Bara rugl, HBB ráðgátur, Bítlarnir, Tippverkur og Bandit með 31, síðan koma Táarinn, Express, Dejá Vu, Everton, Gufurnar og City með 30 og West End með 29 stig. Það var frekar ójöfn viðureign hjá Matthíasi og Magna í síðasta blaði. Magni fékk 9 rétta en Mattías 12 og klildcaði því bara á ein- um leik. Það sem fór illa með Magna voru hin ýmsu prinsippmál og óskhyggja um gengi liða. Það er oft gott að blanda þessu saman í hæfilegum skömmtum og þá er aldrei að vita hver útkoman verður. Magni hefur útnefnt Kristínu Guðmundsdóttur í sinn stað. Hún er heitur stuðningsmaður Arsenal eins og Magni og Matthías (er verið að tala um klíkuskap?). Kristín er mjög óánægð með að Man. Utd. skuli ekki vera á seðlinum, því hún hefði örugglega spáð þeim tapi. Hún spáir Ipswich sigri, bara fyrir Hlyn, og svo gaf hún í skyn að Man.Utd,- maðurinn Viðar Sveins hefði lið til vara til að halda með þegar illa gengi hjá Man.Utd., þ.e. Wolves, og hún spáir þeim einnig sigri. Bæði eru þau með heimasigur á öllum leikjunum og tippa noldcuð líkt, en við sjáum hvort þeirra hrósar sigri á laugardaginn. Kristín Matthías Sunderland - Wimbledon 1 1 Leicester - Everton 1 12 Bradford - Southampton 1x2 lx Watford - Derby 12 1 Nott.Forest - Charlton 1x2 1x2 Man.City- Crewe 1 1 Ipswich - Port Vale 1 1 Barnsley - WBA 1 1 Huddersfield - Birmingham lx 1x2 Wolves - Blackburn Ix lx Bolton - Walsall 1 1 Portsmouth - Norwich lx lx C.Palace - Stockport 1 1 Það er áfram hörkukeppni í 10 kr. leiknum og þegar tíu vikur eru búnar af sautján er Guðmundur efstur með 67 stig og næstir eru Víglundur 65, Bói 64, Heimir 63 og Hörður með 61 stig. Besta meðaltalið hefur Siggi Sveins 7,1 síðan koma Heimir 7,0, Guðmundur 6,7, Björgúlfur 6,57, Víglundur 6,5, Bói 6,4 og Hjörvar Hjálmars er með 6,2. Getraunaþjónustan er opin á föstudögum kl 19.30 til 21.00 og á laugardögum kl 10.00 til 13.00. Munið að það er kominn sumartími í Evrópu og leikirnir byrja Jdulckutíma fyrr en í vetur, og lokað er fyrir söluna kl 13.00. Munið félagsnúmer Þróttar 740 alltaf, alls staðar. Knattspyrnudeild Þróttar Ljósmyndamaraþon gegn ofbeldi jósmyndamaraþon Rauða kross íslands og Hans Pet- ersen fer fram laugardaginn 8. apríl nk. Keppnin fer þannig fram að þátttakendur hafa tólf klulckustundir til að lýsa þemanu „umhyggja“. Hver þátttakandi fær eina 36 mynda filmu sem hann skilar átekinni innan 12 klukku- stunda og er honum í sjálfsvald sett hvernig hann túlkar þema keppninnar. Með orðinu umhyggja er átt við að láta sér annt um velferð einhvers og er orðið andstæða ofbeldis sem er eitt af helstu meinsemdum samfélagsins að mati samtakanna. Keppnin er svæðisbundin, þ.e. landinu er skipt í sjö keppnis- svæði og eru verðlaun veitt fyrir fyrsta til þriðja sæti. Afrit af þeim myndum eru síðan send til Reykjavíkur þar sem dómnefnd velur bestu myndirnar á lands- vísu. Tilkynnt verður um verð- launamyndir 8. maí og jafnframt haldin sýning á þeim. Að úrslitum fengnum á Austur- landi mun blaðið birta þær myndir sem vinna til verðlauna.

x

Austurland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.