Austurland


Austurland - 22.06.2000, Síða 1

Austurland - 22.06.2000, Síða 1
50. árgangur Fjarðabyggð, 22. júní 2000. 25 tölublað Austurland markaðssett Fundað um Kárahnjúkavirkjun - ekki á dagskrá að gera Lagarfljót skipagengt í þessari viku er formlega að hefjast víðtækt markaðsátak, sem standa mun í tvö ár, þar sem sér- stök áhersla verður lögð á að kynna kosti Austurlands með tilliti til búsetu, ferðamennsku og fjárfestinga. Lögð verður áhersla á að gera Austfirðinga sjálfa með- vitaðri um stórkostlega mögu- leika svæðisins í heild, sem og að kynna fjórðunginn fyrir lands - mönnum öllum. Tilgangur átaksins er að móta sterka og jákvæða ímynd Austur- lands í hugum landsmanna allra og auka upplýsingaflæði til al- mennings. Kostir Austurlands eru ótvíræðir og að mjög mörgu leyti eru Austfirðingar mun betur settir en aðrir landsmenn. Hingað til hefur hins vegar nokkuð skort á að landsmenn séu upplýstir urn kosti og möguleika svæðisins en með fyrrnefndu markaðsátaki á að bæta úr því. Á Austurlandi er boðið upp á ótrúlega mikla fjölbreytni í menningu, listum og afþreyingu af ýmsum toga og flesta rekur í rogastans þegar þeir fara að skoða þau mál ofan í kjölinn. Það sem Austfirðingar þurfa að gera í auknu mæli er að skoða svæðið sem eina heild og ekki einblína eingöngu á sitt eigið byggðarlag. í flestum tilfellum er stutt á milli byggðarkjarna á Austurlandi og ekkert meira mál að bregða sér í næsta byggðarlag, t.d. á leiksýn- ingu, en fyrir Reykvíking að fara ofan úr Grafarvogi og niður í miðbæ. Að átakinu standa Samband sveitarfélaga á Austurlandi (SSA), Þróunarstofa Austurlands, Mark- aðsstofa Austurlands, Markaðs- ráð Suð- Austurlands og Ferða- málasamtök Austurlands. Til að koma verkefninu í gang, og halda utan um það, hefur verið ráðinn sérstakur verkefnis- stjóri, Kristján J. Kristjánsson frá Norðfirði. Á fimmtudaginn var boðið til fundar á Egilsstöðum þar sem Landsvirkjun kynnti svonefnda matsáætlun fyrirtækisins vegna Kárahnjúkavirkjunar á grundvelli nýrra laga um mat á umhverfis- áhrifúm. Voru haldin nokkur inn- gangserindi af hálfu Landsvirkj- unar og ráðgjafaraðila hennar. Friðrik Sófusson forstjóri hélt inn- gangsræðu og kynnti verkefnið og áætlaðan tímaramma þess. Tekur það í aðalatriðum til mats á um- hverfisáhrifum ráðgerðrar virkj- unar Jökulsár á Dal, veitu frá Jök- ulsá í Fljótsdal og af Hraunum, tilheyrandi jarðganga, áhrifa á Lagarfljót og fleiri vatnsföll og ströndina og hafsvæði í Héraðsflóa. Næstu vikur leitar J^andsvirkjun ábendinga frá almenningi og fél- agasamtökum um það sem menn telja á vanta í áætlunina eða að breyta þurfi frá fyrirliggjandi drög- um. Síðan á að vinna að rann- sóknum og upplýsingaöflun á grundvelli fullmótaðrar áætlunar og gerir Landsvirkjun ráð fyrir að matsskýrsla liggi fýrir og verði Reyðarál hf., sem er sameigin- legt fyrirtæki Hæfis hf. og Hydro Aluminium í Noregi, boðaði til almenns fundar í Félagslundi á Reyðarfirði síðastliðið mánudags- kvöld. Á fundinum voru kynntar breytingar á lögum um mat á um- hverfisáhrifum og tillaga að áætl- un um mat á umhverfisáhrifum álvers við Reyðarfjörð, eins og kveðið er á í hinum nýju lögum. Ágæt mæting var á fundinn en athygli vakti hve fátt ungt fólk var á honum. Meðal frummælenda var Geir A. Gunnlaugsson stjórnarformað- ur Reyðaráls. í framsögu hans kom meðal annars fram að markmið auglýst lögum samkvæmt í mars 2001. Um matsskýrsluna fjallar síðan Skipulagsstofnun og gera fyrirliggjandi drög ráð fyrir úrsk- urði hennar í júní 2001. Á fundinum var að kynningar- erindum loknum opnað fyrir fyr- irspurnir og ábendingar viðstaddra, en nálægt eitthundrað manns sóttu fundinn. Meðal þeirra sem notfærðu sér það var Hjörleifur Guttormsson. Hann taldi að Lands- virkjun ætlaði sér of stuttan tíma til þessa umfangsmikla verkefnis. Ekki væri heldur eðlilegt að ætla fyrirtækinu sem framkvæmdaaðila að kanna svonefnda núll-lausn, þ.e. aðra landnýtingu. Benti hann á að fram væri komin tillaga um Snæfellsþjóðgarð á þessu sama svæði og eðlilegast væri að um- hverfisráðuneytið fæli Náttúru- vernd ríkisins að fjalla um þann kost og legði til þess fjármagn. Að lokum spurði Hjörleifur stjórnar- formann Landsvirkjunar, Jóhannes Geir Sigurgeirsson hvort gert sé ráð fýrir tengingu Kárahnjúka- virkjunar við orkuveitusvæðið Reyðaráls væri að reisa arðbæra álverksmiðju við Reyðarfjörð. Gert er ráð fýrir því að fyrsti áfangi álversins verði með árlega afkastagetu er nemur 240.000 tonnum og áætlað er að síðar verði verksmiðjan stækkuð í 360.000 tonn á ári. Hann sagði að Reyðar- ál legði áherslu á að umhverfísmál yrðu til fyrirmyndar og að röskun á umhverfi yrði í lágmarki. í máli Geirs kom fram að Reyð- arál áætlaði að leggja fram tillögu um hvernig staðið yrði að mati á umhverfisáhrifum álvers í Reyðar- firði fyrir Skipulagsstofnun 30. júní næstkomandi og að umhverf- ismat yrði svo lagt fyrir í janúar á næsta ári. Bæði 240.000 og 360.000 tonna álver fara í umhverf- ismat og jafnframt fer rafskauta- verksmiðja, sem framleiðir raf- skaut fyrir verksmiðjuna, í um- hverfismat. Úrskurður Skipulags- stofnunar þarf þá, samkvæmt lögum, að liggja fýrir eigi síðar en í apríl það ár og ákvörðun um hvort ráðist verður í framkvæmd- ir eða ekki liggi fyrir 1. febrúar suðvestanlands með raflínum um miðhálendið. Þeirri spurningu svaraði Jóhannes Geir neitandi, slíkt væri ekki á dagskrá. Friðrik Sófusson á Egilsstaða- flugvelli s.l. fimmtudag. Lj.Eg. Sigurbjörn Snæþórsson og fleiri lýstu áhyggjum vegna veitu Jöklu yfir í Lagarfljót og áhrifa á vatns- borð þess í flóðum. Talsmenn Landsvirkjunar svöruðu því til að rniðað væri við að ekki yrði um neina vatnsborðshækkun að ræða í Fljótinu og yrði farvegur þess dýpkaður utan Egilsstaða til að varna því. Einar Rafn Haraldsson 2002. Ef þetta gengur eftir verður hafist handa við virkjunarfram- kvæmdir seinna á því ári. í drögum að fýrirhugaðri mats- áætlun, sem kynnt var á fundin- um, kemur fram að gert er ráð fyrir því að framkvæmdir við 240.000 tonna álver í Reyðarfirði hefjist árið 2003 og taki 36 mán- uði. Stefnt er að því rekstur þess hefjist árið 2006. Geir sagði að starfsmannafjöldi við 240.000 tonna álver yrði um 450 manns og þjónustustörf á Austurlandi tengd því um 150. Álverið myndi því þýða 600 ný störf á Austurlandi. Ef áætlanir um stækkun álversins í 360.000 og Jón Guðmundsson spurðu hvort ekki væri þá hægt að gera Lagarfljót skipgengt en Landsvirkj- unarmenn töldu það ekki á dag- skrá. Sævar Sigbjörnsson spurði hvort virkjun og þjóðgarður þyrftu að stangast á og taldi Friðrik Sóf- usson svo ekki vera. Sitthvað fleira bar á góma, möguleg laxagengd í Jöklu, áhrif á hreindýr, hitastig á Héraði og fiskimið á Héraðsflóa. Sérfræðingar Landsvirkjunar sögðu að allt yrði athugað sem nefnt væri og reynt yrði að ganga sem best úr skugga um hugsanleg áhrif framkvæmda. Orri Hrafnkelsson spurði m.a. um val á vegarstæði vegna virkj- unar frá Egilsstöðum inn í Fljóts- dal og taldi rétt að byggja upp veg- inn norðan Lagarfljóts í tengslum við endurbyggingu Lagarfljóts- brúar. Vakti athygli að Friðrik Sófusson virtist sama sinnis og sagði Landvirkjun ekkert hafa komið að vali leiða í þessu skyni. Fáein hnútuköst urðu á fundin- um og á heildina litið var hann málefnalegur. tonn ganga eftir rnunu alls 790 ný störf skapast á Austurlandi, þar af 590 störf í verksmiðjunni sjálfri. Aðrir frummælendur á fundin- um voru Elín Smáradóttir lögfræð- ingur Skipulagsstofnunar og Eyjólfur Árni Rafnsson verkfræð- ingur hjá Hönnun hf. Elín greindi frá nýjum lögum um mat á um- hverfisáhrifum sem Alþingi sam- þykkti síðastliðið vor, ferli málsins og þeim tímamörkum sem snúa að Skipulagsstofnun og fleiri að- ilum. Eyjólfur Árni ^allaði unr drög að tillögu að matsáætlun á umhverfisáhrifum álversins sem nú liggur fýrir. Álver þýðir 600 ný störf á Austurlandi

x

Austurland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.