Austurland


Austurland - 22.06.2000, Page 2

Austurland - 22.06.2000, Page 2
2 FIMMTUDAGUR 22. JÚNÍ 2000 Hvaða skemmtikrafta viltu fá á Neistaflug? Ólöf L. Ólafsdóttir: Sóldögg, pottþéttir náungar. Skúli Skúlason: Jón Gnarr og Sigurjón Kjatansson. Þorbergur Ingi Jónsson: Ég er sammála Skúla. KVA sigrar KVA- menn virðast vera sækja í sig veðrið en um síðustu helgi sigruðu þeir Létti í Reykjavík. Leikurinn byrjaði ekki vel og var Léttir einu marki yfir í hálfleik. I seinni hálfleik komst KVA loksins í gang og sigraði leikinn með 3 mörkum gegn einu. Mörkin skoruðu Sigurjón G. Rúnarsson, Andri Bergmann Þór- hallsson og Marian Cekic. Eftir þennan leik vermir KVA 7. sætið í 2. deild en liðið er með 4 stig eftir 5 leiki. Næsti leikur liðsins er næstkomandi laugardag en það verður heimaleikur gegn KS. Golf Starfsemi Golfklúbbs Norð- fjarðar er komin á fullt skrið. Völlurinn kom vel undan vetri og þegar hafa tvö mót farið fram. Um þar síðustu helgi var haldið vormót og um síðustu helgi fór fram púttmót á vegum klúbbsins. Mótið tókst mjög vel að mati að- standenda og tóku tuttugu manns þátt í því. Sigurvegari varð Birgir Sigurjónsson. I öðru sæti varð Eir- íkur Þór Magnússon eftir bráða- bana við Stefán Þorleifsson. Á morgun hefst Jónsmessu- mótið sem stendur fram á rauða nótt með tilheyrandi gleði. Jón Einar Jónsson: Ég vil einugis þá allra bestu. Guðmundur Sigurjónsson: Er ekki best að hafa þá Norðfirska? ; og 6M99 tó® ’ioa»9\9.n'oðu Nánari upplýsingar Imv veitir Magnús Már í síma 899 4Ó65 r—>I.Jr?ó Þróttur með fullt hús stiga á íslandsmótinu KR-ingar komu í heimsókn til Norðfjarðar í síðustu viku eins og allir vita og léku við Þrótt í 32- liða úrslitum bikarkeppni KSÍ. Fjögur hundruð áhorfendur fylgd- ust með og var umgjörð leiksins öll hin glæsilegasta. Leikurinn fór 0-3 en óhætt er að segja að Þrótt- arar hafi staðið sem prýði. Guðm- undur Ingvason, þjálfari Þróttar er hæstánægður með leikinn. „Menn lögðu sig alla fram og mér fannst liðið í heild standa sig vel. Okkur gekk sérstaklega vel í fyrri hálfleik og náðum að mestu leyti að loka fyrir þeirra spil,“ sagði Guðmundur. KR-ingar skoruðu fyrsta mark- ið á tuttugustu mínútu fyrri hálf- leiks og bættu svo við öðru í upp- hafi þess seinni. „Við duttum alv- eg niður þegar annað markið kom en náðum samt nokkrum góðum sóknum undir lok leiksins. Meðal annars átti Dragoslav Stojanovic gott skot sem markvörður KR rétt varði,“ sagði Guðmundur. KR- ingar bættu svo við þriðja og síð- asta markinu fimmtán mínútum fyrir leikslok. Guðmundur segir að allir hafi verið ánægðir, bæði leikmenn og áhorfendur. Síðastliðinn mánudag unnu Þróttarar hins vegar stórsigur á sameinuðu liði Hugins og Hattar. Lokaniðurstaða leiksins var sigur Þróttar með sex mörkum gegn einu. Sigurjón Egilsson skoraði þrjú mörk, Dragoslav Stojanovic skoraði 2 og Dragan Stojanovic skoraði 1. Guðmundur segir að þreytu hafi gætt hjá hans mönn- um. „Þrátt fyrir mörk mörk var þetta ekki góður leikur hjá okkur. Þeir misstu þrjá menn útaf og við nýttum okkur það,“ sagði Guðmundur. Þróttarar eru því efstir í D-riðli þriðju deildar íslandsmótsins með níu stig eftir þrjá leiki. Á morgun leikur Þróttur við Leikni á útivelli og á þriðjudaginn næstkomandi leikur liðið við Neista á heimavelli. Leiknir er með 6 stig eftir 3 leiki, Höttur/Huginn einnig með 6 stig en eftir 4 leiki og Neisti er án stiga eftir 4 leiki. Ceikþnámskeið Próttur o(i .tjurðulnidiiður hjrir ltöm ixdd '90- '95. Zvö ttáiiisheið, liuð itjrru irú 26. júní -14. júlí síðuru númsheiðið irú 24. júlí -12. úyúst. Mmsheiðin stundu tjiir ullu virhu dutju frú ltl. 09.30 - 12.00. Innritun oy shrúnintj fer irum iyrstu duoinn við íjmítluhúsið. Mttökuffjutd er kr. 3000.-, sijstkinuffj. kr. 1.500.- off irítt iyrir mestu. Niðurstöður samræmdra prófa á Austurlandi árið 2000, þar sem 11 nemendur eða fleiri tóku prófið Austurland Stærðfræði íslenska Enska Danska Hallormstaðarskóli 6.7 5.5 5.0 6.3 Egilsstaðaskóli 5.0 4.8 4.5 4.9 Seyðisfjarðarskóli 5.1 4.9 5.0 5.4 Nesskóli 4.9 5.9 5.0 5.4 Eskifjarðarskóli 3.9 4.9 4.5 4.7 Fáskrúðsfjarðarskóli 4.4 5.0 4.8 4.6 Heppuskóli Höfn 3.8 4.3 4.4 5.1 Meðaltal 4.9 4.9 4,7 5.2 Meðaltal Reykjavík 5.3 5.4 5.5 5.3 Meðaltal Suðurnes 4.2 4.3 4.6 4.6 Meðaltal Vesturland 4.6 4.4 4.1 4.3 Meðaltal Vestfirðir 4.7 4.6 4,6 4,4 Meðaltal N-Vestra 4.9 4.6 4.5 4.9 Meðaltal N-Eystra 4.8 4.9 4.8 4.5 Meðaltal Suðurland 4.7 4.7 4.4 4.5 Nágrannasv. Rvk. 5.2 5.1 5.1 5.1

x

Austurland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.