Austurland - 22.06.2000, Síða 5
FIMMTUDAGUR 22. JÚNÍ 2000
5
Neistaflug - íjölskylduvæn
skemmtun framundan
Ferðir íjarðamanna
mjög vel sóttar
Undirbúningur að Neistaflugi
2000 er að komast á fullt skrið en
hátíðin verður haldin í 8. skipti í
ár. Neistaflug er orðið fastur liður
í skemmtanahaldi íslendinga um
verslunarmannahelgina og hefur
yfirleitt tekist mjög vel. Ákveðnar
skipulagsbreytingar hafa verið
gerðar á rekstri hátíðarinnar í ár.
Ferðamálafélag Neskaupstaðar
hefur undanfarin ár séð um
framkvæmd og skipulagningu
Neistaflugs en í ár mun Brján sjá
alfarið um hátíðina. Þröstur
Rafnsson, nýráðinn framkvæmda-
stjóri Neistaflugs, segir að sú
tilhögun komi ekki til með að
hafa mikil áhrif enda hafi
starfsmenn Brján yfirleitt haft
umsjón með Neistafluginu.
Þessi hátíð hefur getið sér gott
orð sem fjölskylduvæn skemmtun
Fjarðabyggð stóð fyrir fjöl-
skyldudegi hjá starfsmönnum
sínum sunnudaginn 18. júní á
jörðinni Helgustöðum í Helgu-
staðhreppi hinum forna.
Þetta var fyrsta sameiginlega
árshátíð starfsmanna sveitar-
félagins og var um að ræða
reglulega fjölskylduhátíð, sem
tókst mjög vel. Ýmislegt var
gert til skemmtunar og m.a.
skemmti Felix Bergsson leikari
börnunum og félagar úr
BRJÁN slógu á létta strengi.
bæjarstjórnin grillaði Ijúf-
fengar steikur og pylsur ofan í
alla viðstadda og fórst þeim
það vel úr hendi. Einnig voru
á staðnum íþróttaleiktæki
sem gestir nýttu vel. Liðlega
200 manns mættu og nutu
þessa fallega dags saman og
ríkti góður andi meðal fólks.
Mynd: Jói Tryggva í líki hrein-
tarfs. Ljósm. Pbj.
Háfeti skrifar
Háfeti var til skamms tíma
forfallinn knattspyrnufrík. En það
er nánast liðin tíð en samt reynir
Háfeti að fylgjast með þó ekki
væri nema til þess eins að vera
samræðuhæfur þegar knatt-
spyrnuvertíðin stendur sem hæst.
En nú hefur keyrt út yfir allan
þjófabálk og fótboltinn fer mikinn
í sjónvarpi allra landsmanna.
Háfeti er þá að vitna sérstaklega
til Hvítasunnudagsins þegar þrír
knattspyrnuleikir voru í beinni
útsendingu. Ljósi punkturinn
þann dag var bein útsending frá
landsleiknum í handbolta.
En eini gallinn við knattspyrn-
una er sá að hún er leikin yfir
sumarmánuðina. Hér á Háfeti við
knattspyrnukeppnir eins og þá
og að sögn Þrastar verður það
áfram höfuð markmið þeirra sem
að hátíðinni standa. „Sá póll
hefur verið tekinn í hæðina að
gera hátíðina enn fjölskyldu-
vænni. Að mínu mati má gera
enn betur í þessum efnum en gert
hefur verið undanfarin ár,“ sagði
Þröstur.
Þegar er búið að ráða
hljómsveitina Todmobile með
Andreu Gylfadóttur í broddi
fylkingar en þau spiluðu einnig á
Neistaflugi '97. Með í för er sjálf
Evróvisjónstjarnan Selma
Björnsdóttir en hún mun flytja
nokkur lög með hljómsveitinni.
Todmobile mun skemmta á
laugardagskvöldinu. Selma og
Andrea munu svo vera með atriði
fyrir börn á útisviðinu. Tríóið
BSG hefur einnig staðfest komu
sem nú stendur yfir og sýnt er
beint frá flesta daga. Það eru
vandræði að skapa tilheyrandi
stemmningu þegar sólarljósið
læðist inn. Háfeta finnst að svona
beinar útsendingar eigi bara að
vera á kvöldin eða á dimmu-
tímanum. Samt er eiginlega
ekkert orðið gaman af fótbolta,
alla vega ekki eins og áður.
Fótboltinn hefur sett ofan vegna
þess leikaraskapar sem viðhafður
er. Leikurinn er orðinn villi-
mannslegur og hann er stútfullur
af leikaraskap - ekki með boltann.
Þarna detta menn um hvern
annan þveran, setja upp aum-
ingjasvip, veltast um grasið eins
og stungnir grísir og reyna að láta
ekki bera mjög mikið á því þegar
þeir gjóa augunum á dómarann
til að vita hversu vel þeir hafi nú
leikið. “Ég fæ aukaspyrnu og í
kaupbæti ef mér tekst vel upp fær
helvítið sem sparkaði mig niður
sína. Sigríður Beinteinsdóttir,
einn af meðlimum BSG , mun
jafnframt vera með dagskrá ætl-
aða börnum á útisviðinu.
Skömmu áður en blaðið fór í
prentun staðfesti Þröstur komu
hinna geðþekku grínista Gunna
og Felix. Þeir munu sprella alla
helgina ásamt því að vera kynnar.
Neistaflug hefur talsvert verið
gagnrýnt fyrir það undanfarin ár
að fátt sé í boði fyrir unglinga.
Þröstur segir í því sambandi að
verið sé að vinna í þeim málum
og að öllum líkindum verða tveir
unglingadansleikir í Valhöll á
Eskifirði.
Þröstur vill koma þeim
tilmælum áleiðis að ef fólk hefur
einhverjar góðar hugmyndir varð-
andi hátíðina þá séu þær vel
þegnar.
gula spjaldið”. Sá sem “sparkaði”
aumingjann niður mótmælir
harðlega þessum leikaraskap en
fellur svo örskömmu síðar í sömu
gryfjuna, veltist um grasið eins og
stunginn grís. Sumum tekst svo
vel upp að þeir ættu sannarlega
heima á fjölum hinna merkustu
leikhúsa. Eftir að dómur fellur
standa þeir með fáum undan-
tekningum á fætur eins og ekkert
hafi í skorist, alheilir. Þessi fram-
koma minnir á söguna um strák-
inn sem kallaði; úlfur, úlfur og
allir þekkja framhaldið. Svo er auð-
vitað ekki sama í hvaða liði þú ert.
Menn meiða sig nú samt stund-
um, en sem betur fer miklu
sjaldnar en halda mætti. I Evrópu-
keppninni höfum við orðið vitni
af saumaskap við hliðarlínuna og
Háfeti sá ekki betur en læknirinn
sem saumaði væri svolítið skjálf-
hentur, hann hefur kannski fengið
gula spjaldið!
Geysilega góð aðsókn hefur
verið að öllum ferðum Ferðafél-
ags fjarðamanna það sem af er
sumri og sumar ferðir sem fram-
undan eru, eins og víknaferðin
sunnan Borgarfjarðar, full-
bókaðar.
Að sögn fnu Gísladóttur for-
manns félagsins mættu um 25
manns í fyrstu ferðina sem var
kvöldganga á skíðum. Sami fjöldi
mætti í kvöldgöngu á landi Helgu-
staða upp með Helgustaðará og
að Helgustaðarnámunni. Um 20
manns fóru á Þórarinstaði í Seyð-
isfirði og nutu þar fróðleiks um
staðinn.
Það mættu hvorki fleiri né
færri en 45 manns í kvöldgöng-
una í Fannardal sem farin var
fyrir viku síðan og þótti ferðin
Það sem Háfeta finnst verst við
þetta allt er að íslensk knattspyrna
dregur dám sinn af því sem sýnt
er í sjónvarpinu. Fullorðnir menn
apa leikaraskapinn eftir og það
sem verra er ungir fótboltastrákar,
allt niður í 5. flokk gera það líka.
Háfeti hefur ekki ósjaldan orðið
vitni af þessum leikaraskap þegar
hann hefur fylgt syni sínum á
völlinn.
Dómararnir eru nú líka kapítuli
út af fyrir sig. Háfeti slökkti á
sjónvarpinu þegar dómarinn
færði Hollendingum sigurinn á
silfurfati í leiknum gegn Tékkum.
Það var svo sem allt í lagi að
slökkva leikurinn var hvort sem er
að verða búinn. En jafntefli hefði
að mati Háfeta verið sanngjörn-
ustu úrslitin. En þegar dómarinn
sá að þetta gekk ekki upp hjá
Hollendingunum dæmdi hann
víti á Tékkana og stigin þrjú voru
Hollendinga.
einstaklega vel heppnuð. Þá var
farin vinnuferð í Sandvík, loka-
hönd lögð á stikamerkingar og
endamerki sett niður í víkinni. I
Sandvík sáu ferðalangarnir um
100 hreinkýr með um 50 kálfa.
Á laugardaginn verður farin
sólstöðuferð á Halaklett á Reyðar-
fjalli. Reyðarfjall er á milli Reyð-
aríjarðar og Fáskrúðsfjarðar og
verður sú ferð í samvinnu við
Ferðafélag Fljótsdalshéraðs. Enn
er hægt að skrá sig í sex daga ferð
um Gerpissvæðið 16.-21. júlí.
Allar upplýsingar um ferðir fél-
agsins er hægt að fá á heimasiðu
félagsins simnet.is/ffau og 1 svar-
hólfi 878 1600.
Myndin að ofan er tekin af fnu
1 Helgustaðargöngunni.
Það viðgangast mútur 1 flestum
íþróttum allavega þar sem miklir
peningar eru 1 spilinu.
Knattspyrnumenn hafa á síðustu
árum hlotið dóma fyrir að
hagræða úrslitum, gegn greiðslum
að sjálfsögðu. Dómarar hafa líka
orðið uppvísir af því að þiggja fé.
Hvað er eiginlega orðið af gömlu
góðu knattspyrnunni? Þegar
menn lögðu líf og sál í leikinn og
leikgleðin var í fyrirrúmi. Háfeti
er viss um að peningarnir -
atvinnumennskan, hefur gert
þessa annars skemmtilegu íþrótt
að þessum leikaraskap. Háfeti er
viss um að þessir knattspyrnu-
menn sem eru á skjánum hjá
okkur þessa dagana, með laun
sem gætu dekkað eina kristni-
tökuhátíð eða svo, hafa aldrei
lesið eða heyrt um íslendinga-
sögurnar. Þess vegna vita þeir ekki
að eigi skal haltur ganga á meðan
báðir fætur eru jafnlangir!