Eining - 01.11.1943, Side 4

Eining - 01.11.1943, Side 4
4 E I N I N G ÚTGEFENDUR: Samvinnuncínd Stórstúku íslands, íþróttasambands Islands, Ungmcnnafélaga Islands og Sambands bindindisfélaga í skólum. NEFNDARMENN: Pétur Sigurðsson, erindreki. Jón Gunnlaugsson, stjórnarráðsfulltrúi. Ingimar Jóhannesson, kennari. Gísli Sigurbjörnsson, forstjóri. Guðmundur Sveinsson, stud. theol. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Pétur Sigurðsson. Heimilisfang blaósins: Pósthólf 982, Reykjavík. Sími 5956. Argangurinn kostar 10 kr. Sódóma 20. aldarinnair Við leggjum ekki mikinn trúnað á eld- regnið, sem á að hafa lagt í auðn Só- dómu hina fornu. En nú höfum við feng- ið að kynnast því eldregni, sem hin trylltustu ógnaröfl öfugsnúinnar menn- ingar hafa hellt yfir réttláta og rang- láta, saklausa og seka. Vissulega hefur þetta sprengju- og eldregn dunið yfir Sódómu 20. aldarinn- ar — stórborgina — hæli spillingar og mannskemmda. Ef ,,lokið“ hefði verið tekið af stórborgum Evrópu eða Ameríku einhverja nótt árin fyrir yfirstandandi heimsstyrjöld? Hvers konar sjón hefði þá blasað við augum okkar? Ekki treysti eg mér til að mála slíka mynd. En þar hefði mátt sjá andvaralausan múginn dansandi og drekkandi, á valdi frumstæðra og lágra hvata, taumlausra nautna, hégómaskapar og léttúðar. Allar þær milljónir manna, hefðu gef- ið hverjum þeim manni langt nef, hleg- ið að honum og haft hann fyrir fífi, sem hefði reynt að vekja athygli þeirra á Guði, — á Guði, sem sæi allt, heyrði allt og léti hvern mann uppskera eftir því, sem hann sáði. Það er jarðbundnu manneðli þægilegt að velta sér í nautnum og makindum, en það er óþægilegt að fá sprengjuregn í höfuðið, hverjum þeim manni, sem hvílir á silkisvæfli í fullkomnu ábyrgðar- leysi gagnvart kjörum og liðan náung- ans. En hvers vegna sprengjuregn ? Kom þetta sprengjuregn sem eitthvert alls- herjarbrot á lögmáli tilverunnar og hinnar miklu framvindu? — Nei. Það kom yfir Sódómu 20. aldarinnar — hæli spillingarinnar, lyginnar, rangsleitninn- ar, svikseminnar og óheilindanna, yfir hæli guðleysis og syndar, léttúðar og stærilætis. En auðvitað leið þar saklaus með sekum. Það er lífsins dularfulla og mikla fórn. Sprengjuregnið kom og það var bein afleiðing hræðilegi’ar meinþróunar í við- skiptum, félagsmálum og stjórnmálalifi þjóðanna. Enskur rithöfundur skrifar nýlega um „Sawdust Sæsars“ — sagkeisara. Ein- hver hefur leyft sér að kalla einrteðis- hróka nútímans „sagkeisara". Það minnir á brúður úr sagi. Mörgum mun nú hafa fundizt um tíma Hitler og Mússólíni vera gerðir úr öðru en sagi. Að minnsta kosti var þá hörð skel utan á saginu, hinum innri veikleika. Hitt er satt, að skyndilega og á furðulegan hátt skaut þessum mönnum upp og skyndi- lega hrynja þeir. Hvaða ölduhryggur lyfti þessum „Sawdust Sæsars“ upp í slíka ógnarhæð, að allar þjóðir hafa um margra ára skeið nötrað frammi fyrir þessum dubb- uðu lirúðumönnum? Það var einmitt ölduhryggur and- varaleysisins, léttúðar og makinda, rangsleitni og spillingar, sem lyfti þeim. Heyrum nú, hvað hinn stóri syndari segir. Rithöfundurinn, sem áður var nefndur, játar synd þjóðar sinnar með svofelldum orðum: „Við hljótum alltaf að rétta út hönd eftir þeim tímanlegu gæðum, sem vísindi og kunnátta hefur gert svo auðfengin. En þess ber að gæta, að þau verði þjón- ar okkar, en við ekki þrælar þeirra. Einmitt þetta höfum við vanrækt, ekki síður en aðrar þjóðir. Þess vegna eig- um við nú í styrjöld. Við getum rakið or- sakir stríðsins til allrar alþýðu manna, eins og okkar sjálfra, víðsvegar um heim. Ekki svo að skilja að við óskuð- um eftir stríði. Nei. En við vorum orðn- ir þrælar þægindanna og öruggir í mak- indum. Við tímdum ekki að fórna neinu af þessu á stundu alvörunnar, sem krafðist þess, að við héldum vörð um heimsfriðinn. Niðurstaðan varð þessir „Sawdust Sæsars“, sem þorðu að fórna og eiga allt á hættu sökum hernaðarins. Þessir „Sagkeisarar" standa ekki í krafti síns eigin máttar og réttar, held- ur á herðum vanmáttar annarra. Mússó- líni gnæfði hátt í heimstigninni á herð- um okkar og á herðum stjórnmála- manna okkar, er við vorum innikróað- ir í ímyndað öryggi og afskiptaleysi um vandamál álfunnar á meginlandinu. Okkur fannst Tékkóslóvakía vera langt í burtu frá ströndum landsins, Abessínía enn fjarlægari og Mansjúkó þaðan af lengra í burtu. Við hölluðum okkur því aftur á bak í hægindastólinn og létum hina nýtízku „Sagkeisara“ fara sínu fram. En árið 1940 varð raun- in sú, að Mansjúkó, Abessínía og Tékkó- slóvakía voru stiklur eða stökkbretti á leiðinni til Coventry, London, Manchest- er og annara borga Englands." Þannig hljóðar hin opinskáa og a-r- lega játning stórsyndarans. En hvað svo næst? Hefur nú hin máttuga og sára reynsla sagt við þjóðirnai: „Syndga ekki framar, að ekki eitthvað enn verra komi yfir ykkur?“ Hinn áður nefndi höfundur víkui- svo að hinu lauslega stríðstímataii, er menn segja: Nú höfum við lært eitthvað, nú skal sagan ekki endurtaka sig. Hann minnir á, að í fyrri heimsstyrjöldinni sögðu menn slíkt hið sama, og vekur svo athygli á þeirri slæmu staðreynd, að hin áður umtalaða nautnadýrkun, sú þrælkun og misþyrming sálar og ar.da, hafi ekki verið afmáð í styrjöldinni. Strax séu menn teknir að slá varnagla og segja: að ekki verði unnt að haida áfram að fórna milljónum sterlings- punda að stríðinu loknu. En hvaðan koma þeir peningai' á striðstímum, spyr höfundur, sem ekki eru fáanlegir til uppbyggingar og nyt- samlegra hluta á friðartímum. Þessi af- staða manna til vandamálanna þurfi að breytast. Hin tímanlegu gæði þurfi að verða þjónar hinnar andlegu og æðri menningar, ef vel eigi að lánast nýsköp- un heimsins. Það sem höfundur þessi á við, er vissulega réttlætið í viðskiptum, sambúð og félagsmálum manna og þjóða. „Rétt- lætið upphefur lýðinn“. Réttlætið er undirstaða góðvildar og friðar. Mann- kostir og heilagar dyggðir verða aldrei ræktaðar i andrúmslofti rangsleitninn- ar. Þar sem „rangsleitnin magnast, mun kæi’leikur alls þorra manna kólna“, sagði meistarinn. Litt stoðar að pré- dika alþýðunni kærleika, ef alþýðan er rangindum beitt. 1 allri uppfræðslu kyn- slóðarinnar og menntun, þurfum við að leggja megináherzlu á réttlætið og inn- ræta öllum mönnum svo sem frekast er unnt, að réttlætið er hinn eini haldgóði grundvöllur friðarins. Og aðeins í rétt- látu þjóðskipulagi og við réttlátan að- búnað allrar alþýðu manna, er hægt að rækta hinar fegurstu dyggðir og mann- kosti. He%I SveinssoBi 75 ára Þann 25. okt. s. 1. var Helgi Sveins- son, fyrrv. bankastjóri, 75 ára. 1 tilefni þess hélt stúkan Freyja, nr. 218, honum veglegt samsæti og færði honum mynd- arlega gjöf frá reglufélögum. Helgi Sveinsson hefur nú verið félagi Góðtemplarareglunnar nokkuð á sjötta tug ára. Um langt skeið var hann einn sókndjarfasti og tilþrifamesti framvörð- ur bindindismálsins á Islandi, eiga Vest- firðir starfi hans í þeim efnum mikið að þakka. Eg hef engan mann séð stjórna stúkufundi með jafnmiklum skörungsskap og br. Helga Sveinsson, á þeim árum, er eg fyrst kynntist reglu- starfi hans á Isafirði. Þar var hann þá bankastjóri og atkvæðamaður í félags- lífi bæjarins. Þegar hann fluttist til Reykjavíkur, stofnaði hann stúkuna Freyju og starfar þar enn af fullu fjöri og miklum áhuga. Hér verður ekki ráðist í það að þessu sinni. að lýsa starfsemi br. Helga Sveins- sonar, en bindindismenn á íslandi hafa ástæðu til að færa honum hugheilar þakkir fyrir óbrigðula einlægni, brenn- andi áhuga og tilþrifamikið og farsæR starf. — Eining óskar honum allra heilla á minningaauðugu og björtu æfikvöldi-

x

Eining

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.