Eining - 01.11.1943, Blaðsíða 7

Eining - 01.11.1943, Blaðsíða 7
EINING 7 Nýjasfi skólinn. Mikil og fögur íþrótt er það, að geta talað þæði fallegt mál og rétt. En því miður er þetta hinn mesti vandi, sem fáir leika, og fullkominn er þar sennilega enginn. Allir læsir menn vita, að ekki er sama, hvernig tölustöfum er raðað. Ekki er sama, t. d., hvort núllin eru sett aftan eða framan við tölu- stafina. Þannig er og um orðin. Ekki er sama, hvernig þeim er raðað. Eftirfarandi setningar sýna óheppilega orðaröðun, sem allir geta leið- rétt: ,,Fjórir hundar í óskilum hjá lögreglunni. Eigendur vitji þeirra tafar- laust annars verða þeir skotnir“. „Tvö loftherbergi til leigu fyrir einhleypa, gætu verið handa tveimur stúlkum með litlu eldunarplássi.“ „Getum látið horða hundrað og þrjátíu manns í einu.“ „Kaupamann vantar að Hóli, sem getur mjólkað kýr og tvær kaupa- konur.“ Og svo var það auglýsingin um selskinnsbuddurnar, „hentugar handa konum með rennilásum.“ Þá er mikið í daglegu máli okkar af setningum eins og þessari: „Það býst eg við, að allir séu sammála um.“ Lögulegra væri að segja: „Eg býst við, að allir séu sammála um það.“ Þróun bindindis- hreyfingarinnar á Islandi Tilskipanir og tillögur til þess að draga úr áfengisnautn til loka 18. aldar. Átjánda öldin er að mörgu leyti eitt glæsilegasta menningartímabil í sögu Evrópu. — Þýzki rithöfundurinn Fried- ricli von Schlegel (1772—1829), er á- samt bróður sínum, Aug. von Schlegel, var oddviti ný-rómantísku stefnunnar, kallar 18. öldina fagnaðartíma sólarupp- rásarinnar. Heiðursnafn hennar, upplýs- ingaröldin, var ekki gripið úr lausu lofti. Nýjar kenningar eru fluttar mannheimi. Þekkingin vex á náttúrunni, og í sam- bandi við hana taka menn að vakna til meðvitundar um eðli áfengis og hvernig það orkar á veröldina. Hættan, sem mannkyninu stafar af nautn áfengra drykkja, verður æ Ijósari, eftir því sem þekkingin verður almennari á eðli þess og áhrifum. Nytsemin var vígorð aldar- innar. Það var heimtað, að menn hugs- uðu rétt og skýrt. Hlaut þessi stefna að verða hlynnt bindindissemi, að minnsta kosti undirbúa jarðveginn fyrir bindind- ishreyfingu. Á 17. öldinni hafði drykkju- skapurinn verið óhóflegur og ruddalegur Nú kom afturkastið. Það var ekki hægt til lengdar að loka augunum fyrir hinum hræðilegu afleiðingum drykkjuskapar- ins. Rit trúarlegs og siðlegs eðlis frá 18. öldnni bera vott um, að klerkarnir á ýmsum stöðum gefa nú bindindi um á- fengi miklu meiri gaum en áður. Þetta stendur i sambandi við nytsemdarstefnu aldarinnar. Jafnvel í prjedikunum presta gætir nú bendinga, mikilsverðra í daglegu, praktisku lífi. Áður fyrr, á hinni miklu rétttrúnaðar eða ortodoksi-öld (17. öld), prédikuðu klerkar rétttrúnaðarkenningarnar einar saman, en þessar heldur ófrjósömu og bókstafsbundnu kenningar voru ekki einungis fluttar úr stól á 18. öldinni. Sumstaðar þrumuðu klerkar byrstri lög- málsröddu gegn drykkjuslörkurunum í anda 16. og 17. aldar, en annarstaðar í anda hinnar mildu fræðslu- og nytsemi- aldar (Bergm.) Á fyrra hluta 18. aldar er ráðandi í kirkju og skóla hin svonefnda heittrúar- eða guðræknistefna (Pietisme), en Ra- tionalisminn eða fræðslustefnan (upp- lýsingar eða skynsemistefnan) á sitt blómaskeið á síðari hluta aldar þessar- ar. Oddvitar guðræknistefnunnar voru Þýzkir, Spener, háklerkur í Berlín (d. 1705), og Aug. Herm. Francke, klerkur og uppeldisfræðingur í Halle (d. 1727), er stofnaði þar í bænum fátækraskóla og munaðarleysingjahæli, uppeldisstofn- ún og lærðan skóla (hinar franckesku stofnanir). Þessihreyfingfékkbráttmik- ið fylgi, og í Danmörku var vegur hennar mestur á dögum Kristjáns konungs VI. (1730—1746) og drottningar hans, Sop- hie Magdalene, er var þýzk. Voru þau konungshjónin bæði miklir Pietistar. Höfðu kennarar konungs á æskuárum hans verið snortnir af guðrækni- stefnunni, einkum Joh. Vilh. Schi'öder, er ættaður var sunnan af Holsetalandi. Móðir konungs var einnig eindregið fylgjandi hinni nýju stefnu, og orkaði hún á son sinn í sömu átt og kennarar hans og drottning hans síðar. Er þar skemmst frá að segja, að konungur lét sér mjög annt um kirkju og kristni í anda guðræknistefnunnar. Að ráði Schröders gaf konungur út tilskipun um fermingu barna 1736, og orkaði hún meiru um fræðslu barna en nokkur önn- ur fyrirmæli, er út hafa verið gefin í Danmörku allt frá siðaskiptum, að dómi merks sagnritara (Edv. Holm). Kom út barnalærdómsbók Pontoppidans, er síð- ar var snarað á íslenzku og notuð var á Islandi allan síðari hluta 18. aldar (,,Ponti“). Jón biskup Árnason hafði fyrstur allra íslendinga gefið út barna- lærdómsbók, en „Ponti“ kom bráðlega í staðinn fyrir hana. Kristján VI. stofnaði General-Kirke- inspektionskollegium 1737 eða sérstaka stjórnardeild fyrir kirkjumál. Til þessa stjórnarráðs sneri Jón Þorkelsson skóla- meistari í Skálholti, sér með kvartanir um lélegt ástand kirkjuhalds, kristni og skólafræðslu á Islandi, og var það nkömmu eftir, að það var stofnað. Jón skólameistari var einn af lærðustu mönnum sinnar samtíðar hér, hafði ver- ið að námi suður í Kiel. Hvarf hann frá embætti og fór til Hafnar, til þess að fá framgengt endurbótum á skólamálum og kirkju hér á landi. Hafði hann fyrst ráðfært sig við sagnfræðinginn Hans Gram, en sneri sér svo beint til stjórnar- ráðsins. Þá er það hafði athugað mál- ið, réð það af að senda mann til íslands, til þess að fá áreiðanlegar upplýsingar um hag kristninnar í landinu, fá komið á fermingu, barnaspurningum o. s. frv. Var Ludvig Harboe kjörinn til fararinn- ar (J. H.: Kirkjusaga o. fl.) Brynleifur Tobiasson. — „Bindindis- hreyfingin á íslandi“. Bóndi nokkur var að ávíta vinnumann sinn fyrir að hafa með séó lukt. er hann fór að heimsækja vinstúlku sína. „Enþað uppátæki,“ sagði lióndinn. „Þegar eg var ungur og var að líta á stúlkurnar, þurfti eg aldrei að hafa ljós með mér, en fór í myrkrinu." „Já,“ sagði vinnumaðurinn mæðulega. „En sjáðu líka, hvað þú hefur hreppt.“ Fjárhagurinn. Nú fer að styttast til áramóta. Væri gott að þeir áskrifendur blaðsins, sem ekki hafa greitt yfirstandandi árgang, gerðu það sem fyrst. Þessi krafa nær þó ekki til þeirra, sem fengið hafa blaðið óumbeðið. Gott væri einnig, ef útsölu- menn blaðsins gætu gert skil nú fyrir eða um áramótin. Blaðið þakkar öllum, sem stutt hafa að útbreiðslu þess og treystir á aðstoð þeirra framvegis. Útgáfustarfsemi er nú öll mjög kostnaðarsöm. Afkoma blaðsins er því undir því komin, að það eigi marga skilvísa og góða viðskiptamenn.

x

Eining

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eining
https://timarit.is/publication/833

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.