Austurland - 07.03.1985, Side 3
FIMMTUDAGUR, 7. MARS 1985.
3
s
Aðalfundur Kvennadeildar Slysavarnafélags Islands
Aöalfundur Kvennadeildar
SVFI Norðfirði, var haldinn í
Egilsbúð sunnudaginn 24. febr-
úar sl. Áður en gengið var til
hefðbundinnar dagskrár voru
eftirtaldar konur gerðar að
heiðursfélögum í tilefni 50 ára
afmælis deildarinnar á þessu ári,
og voru þeim sérstaklega
þökkuð vel unnin störf í þágu
deildarinnar.
Anna Jónsdóttir, Bjarney
. —. rn—
aaaaany]
EGILSBÚÐ
@7322 — Neskaupstað
Fimmtudagur
7. mars kl. 2100
„OFJARL
VOPNAÞ JÓFANN A "
Æsispennandi mynd um
baráttu óbyggðalögreglu
við ófyrirleitna
vopnaþjófa
Sunnudagur
10. mars kl. 1400
„DISCO - FEVER"
Sunnudagur
10. mars kl. 21°°
„SÖNGUR FANGANS"
Mynd byggð á atburðum
í ævi líflátsfangans Garys
Gilmores og gerð í
samráði við hann
Námskeið
í notkun Bondprjónavéla
verður 12., 13. og 14.
mars kl. 14 — 18 í
Sjálfsbjargarhúsinu,
Egilsbraut 5
Leiðbeinandi Svanfríður
Hagvaag
Prjónavélarnar seldar
með staðgreiðsluafslætti
þá daga, sem námskeiðið
stendur
Upplýsingar S 7779 eða
7252
Bíll til sölu
Toyota Carina
árg.'74
Góður bíll, mikið
endurnýjaður
Upplýsingar S 7392
eftir kl. 1700
Stefánsdóttir, Eyleif Jónsdóttir,
Guðný Guðnadóttir, Guðríður
Þorleifsdóttir, Jónína Beck,
Jónína Halldórsdóttir, Kristrún
Helgadóttir, María Ármann,
Pálína ísaksdóttir, Ragnheiður
Sverrisdóttir, Rósamunda Ei-
ríksdóttir, Sigríður Tómasdótt-
ir, Sigurbjörg Bjarnadóttir og
Sveinhildur Vilhjálmsdóttir.
Kristrún Helgadóttir þakkaði
fyrir hönd þeirra sem heiðraðar
voru, og sagðist m. a. vel muna
31. mars fyrir 50 árum, en það
er stofndagur deildarinnar,
þann dag hefði verið asahláka
■og glaða sólskin.
Störf deildarinnar eru með
nokkuð hefðbundnum hætti,
leitast er við að efla störf björg-
unarsveitarinnar Gerpis eftir
mætti svo og önnur slík málefni.
Þá lætur deildin árlega eitthvað
af hendi til sjúkrahússins og ým-
issa annarra.
Að þessu sinni var alls aflað
á árinu um 200 þús. kr. og af
því fær Gerpir 70 þús., FSN 20
þús., SVFÍ liðlega 50 þús. Þá
var og samþykkt að færa Breiða-
bliki að gjöf vandaða klukku í
setustofu og aðra minni í vinnu-
stofu.
Það kom fram m. a. í skýrslu
stjórnar nú sem undanfarin ár
að ógerningur virðist að fá ung-
ar konur til að ganga í deildina,
og vekur það óneitanlega marg-
ar spurningar, þar sem starf
SVFÍ er svo margþætt að þar
hlýtur sérhver íslendingur að
hafa hlutverki að gegna í eigin
þágu svo og okkar allra.
Stjórn félagsins var öll endur-
kjörin, en hana skipa: Guðrún
M. Jóhannsdóttir formaður,
NESKAUPSTAÐUR
Auglýsing
um breytingu
á deiliskipulagi
Á fundi bæjarstjórnar Neskaupstaðar 5. mars
1985 var samþykkt að gera þá breytingu á
deiliskipulagi, sunnan Bakkavegar, að
heimila byggingu kúluhúss sem að hluta til
eru 2 hæðir á lóðinni nr. 19 við Sæbakka og
að heimila byggingu 4 lítilla keðjuhúsa á
lóðunum nr. 13 — 15 við Sæbakka
Bæjarstjóri
Viðskiptaþjónusta Austurlands hf.
— Fasteignasala —
3 herbergja íbúð við Miðstræti — Ný teppi og
uppgertbaðherbergi—Brunabótamat 1.380 þús.
3 herbergja risíbúð við Miðstræti - Nýir
gluggar - Brunabótamat 950 þús.
Höfum kaupendur að 100 - 130 m2 nýlegum
einbýlishúsum með bílskúr
Brynjólfur Eyvindsson hdl.
Valur Þórarinsson
Egilsbraut 11 Neskaupstað
Sími 97-7790 — Heimasími 97-7690
Toppmyndir-ogtækin ákr. 300 UÍSsraÍ
OPIÐ ALLA DAGA 1 -10
VIDEO — S7707
Rósa Skarphéðinsdóttir vara-
formaður, Fríður Björnsdóttir
gjaldkeri, Elma Guðmunds-
dóttir ritari, aðrar í stjórn eru,
Sigurborg Gísladóttir, Elín
Magnúsdóttir og Jóhanna
Þormóðsdóttir.
Sem fyrr segir verður deildin
50 ára þann 31. mars nk. Fyrir-
hugað var að halda afmælisfagn-
að þann 30., en vegna fermingar
hefur verið ákveðið að fagnað-
urinn verði 20. apríl nk. Það er
von og trú þeirra sem í afmælis-
nefndinni eru að þátttaka verði
góð.
Þá má geta þess að Björgun-
arsveitin Gerpir verður 30 ára á
þessu ári og hefur verið rætt um
að „slá saman“ afmælisveislun-
um.
Að lokum má geta þess að sl.
haust færðu þau Rán Kristins-
dóttir og Draupnir Draupnis-
son, deildinni aðgjöf kr. 327.00,
sem þau höfðu aflað með hluta-
veltu, er gaman til þess að vita
að svona ungir borgarar muni
eftir deildinni.
Að allra síðustu! Páskaeggja-
salan okkar verður í enduðum
marsmánuði. Hjálpumst öll að.
E. G.
Atvinnuauglýsing
Stjórn hitaveitu Egilsstaðahrepps og Fella
auglýsir starf hitaveitusjóra laust til umsóknar
Upplýsingar um menntun og fyrri störf fylgi
umsókninni
Umsóknir þurfa að hafa borist til
hitaveitustjóra, Baldurs Einarsonar, Heimatúni
2 Fellabæ fyrir kl. 17 þann 20. mars 1985
NESKAUPSTAÐUR
Frá Námsflokkum
Neskaupstaðar
Á vorönn 1985 eru fyrirhuguð á vegum
Námsflokka Neskaupstaðar eftirtalin
námskeið, ef næg þátttaka fæst
A. Almenn námskeið
1. Efnis- og kostnaðaráætlanir fyrir
húsasmiði, kennari: Gísli Stefánsson
2. Viðhald og meðferð bifreiða, kennari:
Þórarinn Oddsson
3. Myndlist, kennari: Sigurborg
Ragnarsdóttir
B. Námskeið metin til eininga í
framhaldsnámi, haldin í samvinnu við
Framhaldsskólann í Neskaupstað
1. Skyndihjálp, kennari: Þórir Sigurbjörnsson
2. Líkamsbeiting, kennarar: Anna Þóra
Árnadóttir og Hafdís Ólafsdóttir
sjúkraþjálfarar
3. Málmsuða og samsetningar, kennari:
Björn Gígja
Skráning er til 15. mars og fer fram á
bæjarskrifstofunum og hjá skólafulltrúa, sem
gefur nánari upplýsingar
Námsflokkar Neskaupstaðar