Eining - 01.08.1965, Qupperneq 3
E I N I N G
3
Sambandsþing sænskra
ungtemplara
Ársþing Sænska ungtemplarasam-
bandsins (S.G.U.) var haldið í Lundi
dagana 3.—7. júlí s.l. Þar mættu tveir
Islendingar, Einar Hannesson og Áre-
líus Níelsson, en sá síðarnefndi var full-
trúi I.U.T. á þinginu og flutti þar
kveðju frá Islandi.
Þing þetta var allfjölmennt, sem eðli-
legt er, þar eð innan sænska sambands-
ins eru nú starfandi rúmlega 300 deildir
með 15 þús. félagsmönnum og konum,
hefur þó heldur fækkað á árinu. En
það var að vonum talsvert áhyggjuefni.
Hvergi mun ungtemplarastarfsemin
með öllu meiri blóma en í Svíþjóð. Það
er því margt að læra af því að heim-
sækja svona mót.
Lundur, borgin þar sem mótið var
haldið, er merkilegur staður eins og
kunnugt er. Það er elzti háskólabær
Svía og erkibiskupssetur Norðurlanda
um margar aldir. Þar er því fornfræg
dómkirkja og virðulegt háskólahverfi í
gömlum stíl og í einum af samkomusöl-
um Háskólans var þingið haldið.
íslendingur hlýtur því að dást að
mörgu. En sérstaklega hve allur
undirbúningur er vandaður og allt vel
skipulagt. Ræður eru stuttar um mál-
efnin, sem lögð eru fyrir af allsherjar-
nefnd. Mest áherzla virðist nú lögð á,
að allt sé sem frjálslegast í starfshátt-
um ungtemplara og reynt að hafa áhrif
á löggjöf annars vegar en ófélagsbund-
inn æskulýð hins vegar með mótum,
námsskeiðum og útbreiðslustarfsemi.
Einnig hafa sænskir ungtemplarar al-
þjóðleg málefni á stefnuskrá sinni t.d.
kynþáttavandamál, einkum Suður-
Afríku, baráttu gegn hungri, bræðra-
lag allra þjóða o.s.frv.
Öll kvöld mótsins voru skemmtisam-
komur, sem einkenndust af háttvísi, al-
mennri þátttöku hvers einstaklings, all-
Færeyjaför Hrannar
Um 30 félagar úr UT-félaginu Hrönn
heimsóttu Færeyjar um Ólafsvökuna og áttu
þar mjög ánægjulega dvöl. Móttaka og fyrir-
greiðsla færeyskra ungtemplara var framúr-
skarandi góð. Myndin er af Hrannarfélögum,
tekin um borð í skipinu á heimleið.
ir voru með í öllu og yfir öllu var hlýr
þjóðlegur blær, með almennum söng,
þjóðdönsum og leikjum. Þekktir menn,
t.d. landshöfðingi og fyrrverandi ráð-
herra, fluttu ávörp og ræður.
Átti að flytja íslenzkum Ungtemplur-
um kveðjur frá þessu ársþingi Svía og
það með, að margir hefðu mikinn hug
á heimsókn til Islands á Norðurlanda-
mótið í júlí næsta sumar.
-k -k * *
Alþjóðlegt námskeið ung-
templara í Reinbek
Dagana 10.—17. júlí sl.varnámsskeiS
fyrir foringja og verðandi leiðtoga ung-
templara haldið í Reinbek í nánd við
Hamborg.
Það var International Goodtemplar
Youth Federation, sem nefnt er upp-
hafsstöfunum IGTYF, sem stofnaði til
þessa námsskeiðs og starfrækti það. Einn
fulltrúi frá íslandi, sr. Árelíus Níels-
son, sótti námsskeiðið og veitti stjórn
Landssambandsins gegn áfengisbölinu
honum ferðastyrk og skal það þakkað
hér.
Þetta er fyrsta alþjóðlegt námsskeið,
sem haldið er á vegum IGTYF og þótti
takast ágætlega. Fluttar voru ræður og
fræðsluerindi af mei'kum mönnum í
bindindisstarfi um stefnu og starfs-
Framhald á 4. bls.
SUMARMÁL
Ritstjórn blaösiðunnar:
Guömundur I>6rarinsson
og Einar Hanncsson.