Eining - 01.08.1965, Síða 4

Eining - 01.08.1965, Síða 4
4 EINING Bmdindismannamótin Blöð og útvarp báru skemmtanalýðn- um fremur góða söguna eftir verzlunar- mannahelgina og var áberandi vand- ræðum afstýrt hvarvetna. I Þórsmörk þurfti þó að hafa við hendina sjúkrabil, hjálparsveit og lögreglulið, en það var víst víðar. Eitthvað var um beinbrot og önnur meiðsli, getur þar hafa verið að verki ýmist glannaskapur, ónærgætni eða óhöpp, en „þurr“ mun þó Þórsmörk ekki hafa verið. Að minnsta kosti á tveim fjölmennum bindindismannamótum fékk áfengis- neyzla ekki að komast að, mótunum að Húsafelli og í Vaglaskógi. Þriðja fjöl- menna mótið var svo á Fljótsdalshér- aði, en þar var ölvun einnig stranglega bönnuð og mun þeirri ákvörðun hafa verið framfylgt. Þetta fer vissulega allt í rétta átt. Talið var að 3000-4000 manns hefðu komið til mótsins að Húsafelli. Þar þurfti enga lögreglu, urðu engin bein- brot né önnur meiðsli og engin óhöpp, en þannig lánast lífið oftast þar sem áfengispúkinn kemst ekki að, það er að segja við allt félags- og skemmtanalíf manna. Mótið að Húsafelli hófst laugardags- kvöldið 31. júlí. Formaður mótsnefndar, Gissur Pálsson, setti mótið, en eftir það var dansað í stóru tjaldi til kl. 2 e. mið- nætti. Bæði kvöldin var flugeldasýning og kyntur varðeldur. Söngstjóri við varðeldinn var Árni Norðfjörð. Einnig lék hann nokkra stund fyrir gömlu dönsunum meðan bálið dvínaði. Klukkan 2 á sunnudaginn fór fram guðsþjónusta og framkvæmdi hana séra Björn Jónsson, prestur í Keflavík. — Mótsgestir nutu svo veðurblíðunnar og gengu sumir á fjöll, en kl. 5 hófust skemmtiatriði. — Þjóðdansaflokkur úr Reykjavík sýndi þjóðdansa, Guðjón Guðlaugsson flutti ávarp, farið var svo í ýmsa leiki, reiptog og fleira var þar til skemmtunar. Klukkan 8 síðd. hófst svo kvöldvaka. Árni Helgason, póst- og símstjóri í Stykkishólmi, flutti gamanþætti og söng gamanvísur við mikinn fögnuð tilheyr- enda, þarf ekki að efa slíkt. Afhent voru verðlaun fyrir keppni í starfsíþróttum, sem fram höfðu farið fyrr um daginn, en lokaþátturinn var svo fjörugur dans. Mánudaginn var mótinu slitið kl. 11 árd. Fluttu þá ávörp Gissur Pálsson, formaður mótsnefndar, Magnús Krist- insson, frá Akureyri, Óðinn Geirdal, frá Akranesi og séra Björn Jónsson. ólafur Jónsson, umdæmistemplar, þakkaði svo öllum, bæði starfsfólki og gestum fyrir þáttöku í þessu glæsilega móti, og sagði því slitið. Allt hafði gengið að óskum, veðurblíðan leikið við mótsgestiogmenn voru sammála um það, að framkoma unga fólksins hefði verið svo góð, að fram úr öllum vonum hinna bjartsýn- Framhald af 3. bls. háttu Ungtemplara og einkum störf for- ystuliðsins, og var áberandi, hve ungu áhugafólki var ráðið til að leita sam- starfs við kirkjufélög, presta og ung- mennasambönd í skólum og yfirleitt hvar sem unnt væri að beita áhrifum til bindindisfræðslu og félagslegrar upp- byggingar. En hins vegar bent á, að gefast ekki upp þótt starfshópar templ- ara sjálfra væru fámennir. En hafa þá þeim mun kraftmeiri líkt og orkustöðv- ar. Helztu erindin nefndust: 1. Starf ungtemplarans í nýtízku ver- öld. 2. Alþjóðlegt ungtemplarastarf nú á dögum. 3. Ábyrgð góðtemplara í borgara- legu samfélagi. 4. Starf þýzkra æskulýðssambanda. 5. Áfengisvandamálið og uppeldi æskunnar. 6. Aðstoð við „þróunarlöndin." Af þessari upptalningu sést hve mörg og víðtæk viðfangsefnin voru. En auk þessara umræðuefna voru kvöldvökur til fræðslu og skemmtunar á hverju kvöldi. Þar voru t.d. sýndar litskugga- myndir frá Islandi og lesin íslenzk ljóð og ein smásaga íslenzk í enskri þýðingu. Þetta efni vakti mikla athygli og að- dáun, og gáfu íslenzkir ungtemplarar æskulýðsheimilinu í Reinbek þessar myndir. En þetta æskulýðsheimili í Reinbek er gömul höll auðugs Ham- borgarkaupmanns í ákaflega fögru um- hverfi skógarlunda og vatna. Sýnir staðurinn vel, hve mikilsvert þykir að búa vel að félagslegu uppeldi þýzkrar æsku. En í þessu húsi eru hald- in námsskeið um hin fjölþættustu við- fangsefni félagslífs eitt af öðru árið um kring. Forstjóri móts þessa var Kurt Kirc- hner frá Hamborg, en aðalstjórnendur námsskeiðsins voru Marcel Hebbelinck frá Belgíu og Arvid Johnsen frá Noregi. ustu hefði farið. Þannig geta skemmt- anir orðið sannkallaðar skemmtanir. Móti5 í Vaglaskógi. Blöðin hafa flutt þær fréttir af þessu móti, að á því hafi verið mesti menn- ingarbragur, engin óregla, lögreglan þurfti ekki að sjá um annað en stjórna umferðinni, engin slys urðu og engin óhöpp. Fjölmenni var mikið, eitthvað á fjórða þúsund, einnig þar, fólkið skemmti sér vel, hljómsveitarmenn höfðu orð á, hve gott hefði verið að leika fyrir dansinum bæði kvöldin, en í honum tók þátt um 800 manns, fólkið var „bæði kátt og prútt,“ segir þar. Skemmtilegt var að lesa það í frásögn- inni, að piltar úr Æskulýðsfélagi Akur- eyrarkirkju hefðu séð um helgistundir bæði laugardags- og sunnudagskvöld og hefðu þær heppnast sérlega vel. Um 150 sjálfboðaliðar unnu ýms störf í sambandi við mótið. Hér skulu svo talin þau félagasamtök, sem efndu til mótsins: Héraðssamband Þingeyinga, Ungmennasamband Eyjafjarðar, Þing- stúka Akureyrar, Æskulýðsráð Akur- eyrar, skátafélögin á Akureyri, Æsku- lýðssamband kirkjunnar í Hólastifti og Iþróttabandalag Akureyrar. — Fram- kvæmdastjóri mótsins var Þóroddur Jó- hannsson, framkvæmdastjóri Ung- mennasambands Eyjafjarðar. Góðar voru einnig fréttirnar frá hinu fjölmenna móti í Hallormstaðaskógi. Þar var margt til skemmtunar, svipað því á hinum stöðunum og fór allt vel fram. Tvö hundruð tjöld höfðu risið í Bjarkarlundi, um 1500 manns komið þar um helgina og allt gengið að óskum á dansskemmtunum bæði kvöldin. Mikið megnar alltaf góður vilji. Ekkert samband Afinn situr í hægindastólnum og hrýtur. Minnsti snáðinn hefur skriðið upp á hné hans og heldur áfram að snúa upp á hnappinn í vesti hans. Dálítið eldri bróðir kemur þá til sögunnar og segir: Þetta gagnar ekkert. Þú færð ekki samband við neina aðra stöð með þessu móti. -K -K -K -k Rétta leiðin Starfsemi áfengisvamanefndar rikisins í Frakklandi nær til unga fólksins. Það snýr töluvert bakinu við áfengu drykkjunum og kýs þá heldur hina óáfengu. Þannig drukku Frakkar 4.700.000 lítra af eplasafa árið 1957, en árið 1963 drukku þeir 45.000.000 lítra af sama drykk. Það er 40 milljónum lítra meira en fyrir 6 árum.

x

Eining

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.