Eining - 01.08.1965, Page 9

Eining - 01.08.1965, Page 9
E ININ G 9 eymdarlífi, sem áfengisbölið hafði búið þeim, og gert þá hæfa til að lifa mannsæmandi lífi og verða nytsamir og dugandi samfélagsborgar." Ræðumaður kom víða við, minníisi á þátt bindindisstarfs- ins í áfengislöggjöf og nauðsyn þess að þeim lögum sé vel framfylgt, því að nú sé vaxandi áfengisneyzla í landinu og verði því hið opinbera einnig að láta málið til sín taka. Einnig rakti ræðumaður allverulega hið margþætta félagsstarf regl- unnar. Eftir þessa opnunarræðu var flutt mikið kvæði, sem einn reglubróðir, Gunnar Nielsen, hafði ort, og svo kom kve'ðja ríkisstjómarinnar. Félagsmálaráðherrann flutti ræðu og bar fram kveðju ríkisstjórnarinnar og viðurkenningu á hinu veigamikla starfi Reglunnar í þjóðfélaginu, vék að hennar háa marki, bræðra- lagshugsjóninni og eflingu samstarfs og samhuga, sem á væri full þörf. Hann ræddi einnig nokkuð þátt hins opinbera varð- andi áfengislöggjöf, meðferð drykkjusjúklinga og margs kon- ar hjálparstarfsemi og félagsmálanna yfirleitt. Minntist á hve þörfin væri mikil á rannsóknar-, fræðslu- og upplýs- ingarstarfsemi varðandi áfengis- og bindidnismálið. Hann lagði áherzlu á það, að þótt afskipti hins opinbera færu vax- andi af þessum málum, mættu ekki áhugamennirnir, ein- staklingar og félög slaka á klónni. Hann óskaði bindindishreyfingunni til hamingju með unna sigra og bauð upp á samstarf í framtíðinni. Nokkrir erlendir og innlendir forustumenn bindindismála fluttu svo ávörp og heillaóskir. Undir þær heillaóskir tökum við íslenzkir bindindismenn og þökkum ánægjulegt samstarf liðinni ára og hin góðu kynni. Góð frétt frá Afengisvarnaráði Áfengisvarnaráð hefur ráðið Sigurð Gunnarsson, kennara, erindreka þetta ár, og hefur ráðið þá tvo menn í þjón- ustu sinni. Sigurður hefur þegar hafið starf sitt, sem verður á sviði félags- mála og ekki sízt í þágu bindindishreyf- ingarinnar og eru við það bundnar rík- ar vonir, en Sigurður er mikill hug- sjónamaður um bindindismálið, kapp- samur, samvizkusamur og ötull. Hefði verið vandfundinn hæfari maður til þessa starfs. Okkur, sem þekkt höfum Sigurð Gunnarsson um áratugi, starfsgleði hans, brennandi áhuga og einlægni, og drengskap í hvívetna, er það gleðiefni að hann tekur nú að sér þetta starf, hvort sem verður í bráð eða lengd. Þörfin er mikil, en aldarfarið mjög ó- hagstætt og slíkt starf því bæði vanda- samt og erfitt. Við hreyfum okkur ekki á þessum árum í hugsjónaheimi alda- mótamannanna, en hver veit nema „aft- ur komi vor í dal,“ en eitt er víst, að Hin heilaga glóð Álitið það, bræður mínir, eintómt gleði- efni, er þér ratið í ýmiss konar raunir, með því að þér vitið að reynsla trúar yðar verkar þolgæði, en þolgæðið á að birtast í fullkomnu verki, til þess að þér séuð fullkomnir, og algjörðir og yður sé í engu ábótavant. Ef einhvern yðar brestur vizku, þá biðji hann Guð, sem gefur öllum örlátlega og átölulaust, og mun honum gefast; en hann biðji í trú, án þess að efast; því að sá sem efast, er líkur sjávaröldu, er rís og hrekst fyrir vindi. Sá maður má ekki ætla að hann fái nokkuð hjá drottni, hann er tví- lyndur maður, reikull á öllum vegum sínum. Jakobsbréf 1, 2-8. Hér eru þrjú megin atriði: Bænin, trúin, full- komleikinn. Mikla hugarþjálfun þarf hinn biðj- andi maður að temja sér, til þess að geta verið fullviss og öruggur um bænheyrslu, og alls ekki efast. Hér er mikill leyndardómur. Efinn útilokar bænheyrsluna. Þetta sýnir hver máttur trúarinnar er. Hinir fyrstu kristnu settu markið hátt. Það var fullkomleiki. Ekkert minna. Hinn nýi maður, umskapaði maður, átti ekki að standa öðrum fæti á þrönga veginum, sem til lífsins leiðir, og hinum fætinum á breiða veginum, sem til glötunar leiðir. Enga hálfvelgju, heilan hug, óskipt hjarta, helgað guði, sannleika, réttlæti, kærleika. — ---------——---------------------------------------------1 girninnar. Réttlæti, ráðvendni, sann- girni. Þetta er hin örugga undirstaða varanlegs friðar og farsældar þjóða. Þetta eru hinar kristilegu dyggðir, og segi kynslóðin í orði og breytni um þær „farið heilar fornu dyggðir," þá fer einnig velferð þjóðanna og heimsfriður- inn. Gætum vel hins dýrmætasta. lliálshættir Eins og vera ber er betra mál á heilagri ritningu en Morgunblaðinu. í Morgunblað- inu 21. júlí sl. var málshátturinn þannig: Sá lati segir: Það er ljón á veginum. Ritn- ingin: Letinginn segir: Ljón á götunum. Annars er greinin öll á þessa leið: Leting- inn segir: Óargadýr er á veginum, ljón á götunum. Ekki lýsir næsta ritningargrein letingj- anum ver: Hurðin snýst á hjörunum og let- inginn í hvílu sinni. Orðskviðirnir ættu að vera eins konar handbók allra manna. IMýr drykkur Rússneskur læknaprófessor hefur fram- leitt nýjan drykk úr tómatsafa og súrefni, og er hann talinn hollur vera. Alert nr. 2, 1965. ekki mun Sigurður liggja á liði sínu og margar góðar óskir munu fylgja honum að starfi. >é >f >f X- X- VaxtarmarkrriLð'Lð „Að lepja upp mola um lífsins stig og láta ekki baslið smækka sig.“ Þannig kvað Klettafjallaskáldið. — Þetta blað er ágjarnt á dýru „molana“ — gullkornin. í sunnudagspistli séra Eiríks J. Eiríkssonar, í Morgunblaðinu 18. júlí sl. eru m. a. góðra setninga þessar: „Hann var alla ævi réttlátur ok ráð- vandur, gjöfull og góðgjarn, en aldrigi auðigr.“ Lýsingu þessa á fyrsta biskupi lands- ins hefur séra Eiríkur úr Hungurvöku. Alla ævi réttlátur og ráðvandur, gjöf- ull og góðgjarn. Þetta er aðalsmark hinnar sönnu menntunar og manndóms. Stefni ekki uppeldi einstaklinga og þjóða að þessu — réttlæti og ráðvendni — þá gagnar lítt „glys og auður og gullið drauma- vor,“ þá eru þjóðir á helvegum eigin-

x

Eining

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.