Eining - 01.08.1965, Qupperneq 14

Eining - 01.08.1965, Qupperneq 14
14 EINING Ársþing íslenzkra Sjöunda ársþing ÍUT hófst að Jaðri föstudagskvöldið 13. ágúst sl. Þingið setti séra Árelíus Níelsson, formaður IUT og flutti ávarp. Ávarp flutti einnig Ólafur Þ. Kristjánsson, stórtemplar, en aðalræðuna flutti Árni Gunnlaugsson, hæstaréttarlögm., þróttmikið erindi. Þá söng Erlingur Vigfússon nokkur valin lög, en undirleik annaðist Ólafur Vignir Albertsson. Söngur Erlings vakti mikla hrifningu og var það ekkert undur, því að söngur hans var afburða mikill og góður. Þingið tók svo til starfa. Formaður lUT flutti starfsskýrslu hins liðna árs og skipaðar voru nefndir. Almennur söngur var milli þátta. Til þings komu 24 fulltrúar, auk stjórnar. Allmargir gestir voru við þingsetn- inguna, meðal þeirra stórtemplar, Ólaf- ur Þ. Kristjánsson, skólastjóri, séra Kristinn Stefánsson, áfengisvarnaráðu- nautur, séra Sigurður Haukur Guðjóns- son, séra Bragi Friðriksson, Pétur Björnsson, erindreki Áfengisvarnaráðs, Hannes Þ. Sigurðsson, formaður Æsku- lýðssambands Islands og Sveinbjörn Óskarsson, formaður Sambands bind- indisfélaga í skólum, svo að nokkrir séu nefndir. Þegar líða tók á kvöldið var þingfundi frestað til næsta dags og settust þá bæði gestir og fulltrúar að kaffiborð- um í hinum mjög svo rúmgóða og vist- lega fundarsal. Fluttu þá nokkrir gest- anna stuttar borðræður, einnig var sungið liressilega. Allt var kvöldið mjög notalegt, og vissulega var það uppörf- andi fyrir okkur gömlu mennina að sjá þarna ungu kynslóðina að störfum, myndarleg ungmenni ráðin í því að halda áfram sókninni gegn vágestinum mikla, og óhætt er að fullyrða, að for- usta þessarar sveitar er góð. Þar fara saman bæði hin máttugu hjartaöfl og hyggjuvit. I stjórn IUT voru kosnir þessir: Séra Árelíus Níelsson, Grétar Þorsteins- ungtemplara son, Gunnar Þorláksson, Alfreð Harð- arson, Hreggviður Jónsson, Loftur Hauksson og Guðný Gunnlaugsdóttir. Jaöarsmótiö Laugardaginn 14. ágúst hófst svo hið árlega Jaðarsmót, og kom þar yfir 900 manns. Fór þar allt fram hið bezta. Séra Árelíus Níelsson flutti guðsþjón- ustu, en svo var allmargt til skemmtun- ar, íþróttir, leikir og fleira. Verður sennilega nánar skýrt frá þessu í næsta blaði. -K -K -)< -K -K „Komi ríki þitt ” Þannig kenndi Meistarinn lærisvein- um sínum að biðja, en svo flutti spá- maðurinn eitt sinn orð frá guði á þessa leið: Þeir dýrka mig með vörunum, en hjarta þeirra er langt í burtu frá mér. Vissulega hefur þessi bæn, kom ríki þitt, oft verið flutt í alvöruleysi um aldaraðir, en líka í fullri einlægni og al- vöru. Og enn eru þeir kraftar miklir og góðir í mannheimi, sem leitast við að efla ríki guðs á jörðu og frið meðal manna. Hvernig má þetta verða, að ríki guðs, ríki réttlætis og friðar, fái völdin í heiminum? Eru nokkrar horfur á því að einhverjar stjórnmálastefnur fái þessu til vegar komið ? Getur nokkuð af- rekað þetta, nema ræktun hugarfarsins og efling guðshyggjunnar. Víst átti al- ræði öreiganna að setja til valda jöfnuð, frið og réttlæti, en horfurnar eru ekki glæsilegar í þeim efnum. Lesbók Morgunblaðsins flytur þann boðskap 11. júlí 1965, eftir George Feif- ir, að „Rússar skjóti braskara sína.“ Þar er sagt að fjársvikamenn séu tekn- ir af lífi bæði í Póllandi og Rússlandi. Þar er sagt að „hópur gjaldeyrisbrask- ara“ hafi verið „tekinn af lífi í Lenin- grad 1961,“ einnig er talað um aðferð við „aftöku nokkurra hópa,“ og sagt að „allt að því að 200 sovézkir borgarar hafi verið teknir af lífi síðustu fjögur árin, fyrir auðgunarglæpi.“ Rússar hafa víst fengið nægar sann- anir fyrir því, að eitthvað meira en á- kveðið skipulag þarf til þess að ala upp strangheiðarlega menn. Skipulag er nauðsynlegt, líkt og hver varnargirðing, og skipulagið þarf að vera gott og rétt- látt, en samt getur það ekki komið í stað sjálfrar ræktunar garðsins - rækt- unar mannlífsins. Það þarf að rækta í sálarlífi mannsins, og hann þarf sjálf- ur að rækta í sér hið guðlega eðli hversu gott sem skipulagið kann að vera. Menn ættu að vera búnir að læra nægilega mikið af mannkynssögunni og reynslu þjóða, til þess að geta tekið þetta réttum tökum. Það nægir ekki að biðja, komi ríki þitt, nægir ekki að biðja um góðleik, menn verða að í'ækta hann og setja hann til valda. -K -K -K KÆRU KAUPENDUR EININGAR Eigum við að láta blaðið lifa eitthvað lengur eða eigum við að láta það lognast út af ? Miklu merkari blöð en Eining deyja á þessum byltinga- og umbrotatímum. Hin- ir gömlu og trúföstu kaupendur blaðsins falla nú í valinn hver af öðrum, og fáir koma í þeirra stað. Unga fólkið flettir myndablöðum og gleypir í sig ástarsögur og „hörkuspennandi1- lesmál. Það er sterk- ara bragð að slíku en Einingu. Hennar áhugamál er ekki hið eftirsótta lesmál fjöldans. Já, hvað segið þið? Er Eining leiðinleg? Viljið þið að hún fái annan ritstjóra? Er komið ellibragð að blaðinu? Verið hrein- skilin við mig, eg kann að meta hreinskilni. — Eða viljið þið útvega nýja kaupendur, er það hægt, og láta það svo halda áfram að lifa. Ef sá fjöldi manna í landinu, sem ann reglusemi og góðu siðferði, teldi það ómaksvert að sinna blaðinu eitthvað meira, þá væri því vel borgið. Það er ekki svo, að blaðið eigi ekki enn allstóran lesendahóp og góðan, og tryggja kaupendur, en við- hald þyrfti helzt að vera gott en engin rýrnun. Þetta er allt til athugunar og fram- tíð blaðsins getur verið nokkur ráðgáta. Hún fer eftir því, hve margir óska því lengri lífdaga. Með beztu kveðju og þökk fyrir viðskipti liðinna ára. Pétur Sigurðsson. Bindindismenn! Ifliíl ÁBYRGÐ — tryggingafélag ykkar, og þaíl mun efla samtök ykkar.

x

Eining

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.